Morgunblaðið - 30.10.1946, Side 15
Miðvikudagur 30. okt. 1946
mgkgonblaðib
15
Fjelagslíf
ÆFINGAR
1 kvöld
í Austurbæjarskólanum:
Kl. 7%—8V2 Fiml. drengir
14—16 ára.
Kl. 8y2—9y2 Fiml. 1. fl. karla.
í Miðbæjarskólanum:
Kl. 9—10 Frjálsar íþróttir.
íþróttahúsi Í.R.R. Hálogal.:
Kl. 6,30—7,30 Handb. kvenna.
Kl. 7,30—8,30 Handb. karla.
Stjórn K.R.
S? ÆFINGAR í
ÍR-húsinu-
\yj ídag:
Kl. 7—8 ísl. glíma.
Kl. 8—9 I. fl. kvenna, fiml.
Kl. 9—10 I. fl. karla, fiml.
.VALSMENN
jUnnið við bygg-
f'ingu fjelagsheim-
ilis á Hllíðarenda í
kvöld kl. 6,30.
Fjölmennið, áríðandi.
Verkstjórinn.
VALUR
Æfing í kvölld í húsi I. B. R.
kl. 9,30. Meistarafh, 1. fl.
II. fl. Handknattieikur.
L O. G. T.
St. EININGIN nr. 14.
Fundur í kvöld kl. 8,30
Kosning embættismanna.
? ? ?
Spiluð fjelagsvist.
Fjölmennið.
Æðsti templar.
q-..« • ----------
UPPLYSINGA- og
iHJÁLPARSTÖÐ
Þingstúku Reykjavíkur er op-
in á mánudögum, miðvikudög
um og föstudögum, frá kl. 2—
3,30 e. h. í Templarahöllinni
við Fríkirkjuveg.
Aðstoð og hjálp verður
veitt, eftir því sem föng eru
i, öllum þeim, sem í erfiðleik
um eiga vegna áfengisneyslu
sín eða sinna. — Með öll mál
er farið sem einkamál.
Vinna
Tek aftur að mjer HREIN-
GERNINGAR. Uppl. í síma
1327. — Björn Jónsson.
HREIN GERNIN G AR
Magnús Guðmundsson
sími 6290.
HREINGERNINGAR,
Tökum að okkur
;ími 5113, Kristján Guðmunds
Bon.
Kaup-Sala
REYKBORÐ
til sölu.
Bókabúðin Klappastíg 17.
MINNINGARSPJÖLD
lysavarnaf jel agsins eru falleg
cst. Heitið á Slysavarnafjelag-
ið, það er best.
Tilkynning
K. F. U. M.
Yngsta deild. Drengir 10—
13 ára. Aukafundur kí. 7 í
kvöld.
303. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 8.05.
Sólarlag kl. 16.17.
Árdegisflæði kl. 7.45.
Síðdegisflæði kl. 20.05.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs-
Apóteki, sími 1330.
I. O. O. F. (Spilakvöld).
□ Edda 59461117 þriðja 2.
atkv.
Söfnin. I Safnahúsinu eru
eftirtöld söfn opin almenningi
sem hjer segir: Náttúrugripa-
safn: sunnudaga IY2—3 e. h.
og á þriðjudögum og fimtudög-
um kl. 2—3. Þjóðminjasafnið
opið sömu daga kl. 1—3. Skjala
safnið, er opið alla virka daga
kl. 2—7 og Landsbókasafnið
alla virka daga kl. 10—10. —
Bókasafn Hafnarfjarðar er op-
ið kl. 4—7 alla virka daga og
frá 8—9 e. h., mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga.
75 ára er í dag Björn Björns-
son byggingameistari, Skeggja-
götu 5.
í frásögn af setningu Menta-
skólans á Akureyri, í blaðinu
í gær misritaðist tala nemenda
við skólann. Þeir voru sagð-
ir 146, en á að vera 346.
Dansskóli Rigmor Hanson. —
Fyrsta æfingin fyrir fullorðna
verður í kvöld að Þórscafé.
Nýjustu dansarnir kl. 8,30, al-
gengu dansarnir kl. 10.30.
Kirkjublaðið, sem kom út í
gær, er helgað skólaæskunni í
landinu. Birtir það m. a. við-
töl við skólastjóra nokkurra
skóla hjer í bænum um við-
horf þeirra til kristinnar trúar
og trúarbragðakennslunnar.
Læknablaðið, 6. tbl., 31. árg.,
hefir borist blaðinu. Birtist í
blaðinu erindi um appendicitis
eftir Gunnar J. Cortes, er hann
flutti í Læknafjelagi Reykja-
víkur í apríl þ. á.
Hjónaband. Síðastliðin laug-
ardag voru gefin saman í
hjónaband af síra Arna Sig-
urðssyni, Sigrún Sigurðardótt-
ir og Guðmundur Guðmunds-
son, stýrimaður. Heimili ungu
hjónanna er á Hávallagötu 35.
Bæjarráð hefir samþykt að
skipa Rögnvald Þorkelsson sem
deildarverkfræðing hjá Vatns-
og hitaveitunni.
Frú Ellen Björnsson, tann-
læknir hefir ákveðið að taka að
sjer tannlækningar við Aust-
urbæjarskólann nú í vetur.
Sveinn Helgason skoraði síð-
ara mark Vals gegn Fram á
sunnudaginn, en ekki Halldór
bróðir hans. eins og sagt var
hjer í blaðinu í gær.
Farþegar með Salmon Knot
til New York, Guðríður S.
Gunnarsson, Jóhanna Kristj-
ánsdóttir, Guðrún Jónsdóttir,
Gunnar K. W. Mosty, Ásta G.
ísleifsdóttir, Sigurlaug Jóns-
dóttir, Pálína Oswald, Sigur-
björg Guðnadóttir, Rósa Lauf-
ey Guðmundsdóttir, Hans A. H.
Jónsson, 'John Frank Barrows,
Adolfína S. Barrows, Elín Sig-
ríður Barrows og barn.
Skipafrjetfir. Brúarfoss fór
frá Kaupmannahöfn 26. okt. til
Leningrad. Lagarfoss er í
Kaupmannahöfn. Selfoss fór
frá ísafirði kl. 1 í fyrrinótt.
28. okt. til Antwerpen. Reykja-
foss kóm til Reykjavíkur í gærj
Salfnon Knöt fór frá -Reykja-'
ví’k" 25. ókt. til'New York. -—
True Kilot er í1 New York. Anne
kom til Gautaborgar.”23. okt.
frá Kaupmannahöfn. Lech kom
til Reykjavíkur í gæi’morgun
frá Leith. Horsa fór frá Hull í
(f
gærkvöldi 29. okt til Reykja-
víkur,
ÚTVARP í DAG:
8.30— 8,45 Morgunútvarp.
12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30— 16,00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 2. fl.
19.30 Þýskukensla, 1. fl.
19,25 Þingfrjettir.
20,00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka: a) Kvæðalög
(Jóhann Garðar Jóhanns-
son). b) Sagan af Vestfjarða-
Grími. c) 20,55 Sigurður
Þórarinsson doktor: Gríms-
vötn og Grímsvatnajökull.
Erindi. d) Heimleiðis af
Vatnajökli; bókarkafli eftir
Ahlmann prófessor. — Upp-
lestur. e) Þjóðsögur úr Or-
æfum. f) Vilhjálmur Þ.
Gíslason: Brjefkafli frá
sveitapresti. g) Kvæði kvöld
vökunnar.
22,00 Frjettir.
22,05 Tónleikar: Lög leikin á
harmoníku og rússneskan
gítar.
Skýrsla um viðræð-
ur Sidky Pasha og
Bevins
London í gærkvöldi.
ATTLEE forsætisráðþerra
gaf í dag skýrslu í neðri deild
breska þingsins um viðræður
Sidky Pasha, forsætisráð-
herra Egypta, og Bevins utan-
ríkisráðherra. Kvað Attlee
umræðurnar fyrst og fremst
hafa stefnt að því, að Sidky
Pasha og Bevin gætu kynnt
hver öðrum stefnur sínar og
skoðanir í sambandi við end-
urskoðun bresk-egypska
samningsins.
Attlee var spurður um af-
stöðu bresku stjórnarinnar til
sameiningar Egyptalands og
Sudan, en eins og mönnum er
ef til vill kunnugt, eru Egypt-
ar þess mjög æskjandi, að
þessi tvö lönd verði sameinuð
í eitt ríki.
Breski forsætisráðherrann
svaraði því til, að íbúar Súdan
mundu að sjálfsögðu sjálfir
fá að ákveða framtíð sína. —
Reuter.
Innbrot
UM helgina voru framdir
nokkrir innbrotsþjófnaðir
hjer í bænum. Úr mannlausu
herbergi í húsi nokkru við
Háteigsveg var stolið milli
4600 og 4800 krónum. Brotn
var rúða í sýningarglugga í
skartgripaverslun Magnúsar
Benjamínssonar og s tolið
einni fingurbjörg. í skart-
gripaverslun Guðmundar
Andrjessonar var brotin rúða
og stolið armbandsúri. Þá var
rúða brotin í versluninni Op-
tik, en engu hefur víst verið
stolið þaðan.
Vínhneyksli í Frakklandi
LONDON. Komist hefir upp
um mikið fjársvikabrall í
Frakklandi. Voru vínbirgðir
koyptar í Algier af ýmsum
kunnum mönnum og Seldar
með ofsalegum ágóða á svört-
um markaði heima í Frakk-
landi.
.............................................
: Hjartanlega þökkum við öllum, sem heiðr- 'f-
■ ■
■ uðu okkur, með heimsóknum, gjöfum og skeyt ■
■ , ■
• um á 50 ára hjúskaparafmæli okkar, síðastlið- :
■ inn fimmtudag. 1:
: María Geirmundsdóttir, :
: Guðjón Einarsson. :
: Hliði, Grindavík. ■
■ ■
■ Hjartans þakkir færi jeg öllum þeim, sem j
: heiðruðu mig á sjötugsafmæli mínu, með ■
j heimsóknum, gjöfum, skeytum og ástúðlegu •
: viðmóti. — Guð blessi ykkur öll! :
■ Magnús Jónsson, :
■ Sleipnisveg 31, Akranesi. :
IKápubúðin Laugaveg 35)
■ ■
■ Ódýr undirföt, náttkjólar og barnafatnaður ■
j í miklu úrvali. Ávallt fyrirliggjandi pelsar, :
j verð við allra hæfi. Nýkomnir fallegir silki- j
: sloppar, vatteraðir. Taubútasala í nokkra daga :
■ hentugir í barnafatnað. :
■ Sigurður Guðmundsson, ■
: sími 4278.
| Húsgögn j
■ ■
j Sófasett (tveir stólar og sófi). Borðstofuhús- j
j gögn (útskorin) buffet, kontorborð (fundar- j
j borð), eldhúsborð nokkrar gerðir. Útvarpsborð ■
j símaborð, gólfpullur, kollar, spilaborð, bóka- j
j hillur (opnar), gormstólar, kommóður, for- j
■ stofuskápar.
■ z
■
(assaaa scDm[páM5a[D %
*
■ -vv ■
j Hringbraut 56, símar 3107 og 6593. :
Duglegur
SENDISVEINN
óskast strax.
Sijóuátnjcjcjlitcfarfoelacj ^Qólaticló li.p.
Brunadeild.
Jarðarför móður okkar,
VILBORGAR ÁSGRÍMSDÓTTUR,
fer fram föstudaginn 1. nóv., frá heimili henn-
ar, Norður-Götum, Mýrdal, og hefst með hús-
kveðju kl. 12 á hádegi.
Vilborg, Sigríður og Ragnhildur
Runólfsdætur.
Þakka innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug, við andlát og jarðarför unnusta míns,
BALDURS STURLA HJÁLMARSSONAR.
Þorbjörg Halldórsdóttir.