Morgunblaðið - 13.12.1946, Blaðsíða 9
Föstudagur 13. des. 1946
MORGUNBLADIÐ
9
ij Innilega þökkum við öllum þeim mörgu vin-
j: um og vandamönnum, nær og fjær, sem
!: heiðruðu okkur á gullbrúðkaupsdegi okkar,
: 11. október síðastliðinn, með kærkomnum
■ kveðjum og góðum gjöfum.
Helga Þorgrímsdóttir,
: Maríus Benediktsson.
: Hlöðum, Húsavík.
<SX$*$"$X$*Sx$*$X$><$X»#<»«»<»<$*$X$<$X$><$X$X$X$X$*$><$X$X$X$XSx$xS><$>«X^Xj><$K$K..'*iSX$*$*Sx-.><$*$-
;
Uppefdisskóli Sumargjafar
Ný deild tekur til starfa 1. febrúar 1947.
Skólinn veitir stúlkum nauðsynlega mentun
til þess að taka að sjer forstöðu- og uppeldis-
störf við leikskóla, barnaheimili og leikvelli.
Námstími er 2 ár, 9 mánuðir á ári. Námstím-
anum verður skipt til helminga milli bóklegs
og verklegs náms, bæði árin.
Þessar námsgreinar verða kendar:
Uppeldis- og sálarfræði.
Líkamsfræði og heilsuvernd.
Fjelagsfræði.
Næringarefnafræði.
Meðferð ungbarna.
Hjálp í viðlögum.
Leikir, kvæði og sögur.
Fandíðir (teikning, leirmótun, föndur).
Söngur.
Átthagafræði.
Bókfærsla.
Rekstur leikskóla, barnaheimila og leikválla.
íslenska.
Leikfimi.
Verklega námið fer fram í leikskólum og
barnaheimilum Barnavinafjelagsins Sumar-
gjöfin.
Inntökuskilyrði skólans eru:
1) Nemandi sje eigi yngri en 18 ára.
2) Nemandi hafi stundað að minsta kosti
tveggja ára nám og lokið prófi úr gagn-
fræðaskóla, kvenna- eða hjeraðsskóla,
eða hlotið hliðstæða mentun.
Eigirihandarumsókn ásamt prófskírteini og
heilbrigðisvottorði sendist til Valborgar Sig-
urðardóttur Ásvallagötu 28.
Umsóknarfrestur er til 5. janúar 1947„ Allar
ná’nari upplýsingar gefur Valborg Sigurðar-
dóttir í síma 5890.
Frá Kvöldútgáfunni
Kvöldútgáfan gefur út þrjár bækur á mán-
uði fyrir aðeins þrjátíu krónur. Fyrstu bæk-
urnar koma út í janúar, og verða:
SÖGUR HERLÆKNISINS, með myndum,
1. hefti.
GÁTURNAR SJÖ, skáldsaga eftir
Oppenheim.
Revýan „FORNAR DYGÐIR“.
Sendið áskriftir yðar sem fyrst í pósthólf 65,
eða tilkynnið þær í síma: 6819, 7508 eða 5934.
Guðmundur Bergsson
fyrv. póstmeistari
400 Gyðingar fá land-
viifarleyfi í Palesfínu
London í gærkveldi.
Guðmundur Bergsson.
Guðmundur Bergsson fvrv.
póstmeistari verður jarðsung-
inn í dag. Með honum er til
moldar genginn einn af þeim
mönnum er með mestri trú-
mensku og skyldurækni hefir
á undanförnum árum unnið
s^örf í þágu hins opinbera hjer
á landi.
Guðmundur heitinn var
fæddur að Hólshúsum í Vatns
íjarðarsveit þ. 25. maí 1869.
Hann braust áfram efnalítill
til þess að afla sjer mentunar.
Gekk hann fyrst í hinn ágæta
búnaðarskóla Torfa i Ólafsdal.
En er hann hafði lokið verk-
legu og bóklegu námi þar,
gekk hann í gagnfræðaskól-
íunn á Möðruvöllum og lauk
þar prófi vorið 1896.
Næstu árin vann hann ým-
ist við jarðabótastörf, ellegar
hann annaðist kenslu. Þangað
til aldamótaárið að hann fór
til Isafjarðar til þess að hafa
þar á hendi verkstjórn við
vatnsleiðslu er leggja skvldi
til kaupstaoarins.
Þetta varð til þess að hann
ílengdist á Ísaíirði og var þar
í 20 ár. Tók hann þar að sjer
.stjórn barnaskólans og gerðist
ið af störfum, var hann sæmd-
ur riddarakrossi Fálkaorðunn
ar.
Guðmundur var tvígiftur.
Fyrri kona hans var Sigurlaug
Siggeirsdóttir frá Veisu í
Fnjóskadal. Hún andaðist ár-
ið 1939. Síðari kona hans er
lifir mann sinn, er Hrefna
Ingimarsdóttir frá Litlahóli í
Eyjafirði.
FJOGUR HUNDRUÐ Gyð-
ingar, sem að undanförnu
hafa verið í haldi á Cvprus,
en fengið hafa . nú landvistar-
leyfi í Palestínu,. komu til
Haifa í dag.
Um 1000 Gyðingar að auki
bíða nú flutnings til Palestínu,
en þar er í ráði að leyfa þeim
að setjast að, í samræmi við
lög stjórnarvaldanna þar um
innflutning útlendinga.
•— Reuter.
<$x$x$x$x$x$x$*$x$*$x$*$*^$xMx$x$x$*$*$x$x$-<$x$^x$x$*$x$x$*$x$*$>«*$*$>«*$x$*$*$*$*$x$*$><»‘$>«
Fæðiskaupendafjelag Reykjavíkur:
FUNDUR
verður í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 15.
desember, kl. 2 eftir háfjegi.
DAGSKRÁ:
1) Stjórnin gerir grein fyrir störfum fjelags-
ins.
2) Rætt verður um viðhorfið í fæðissölumál-
unum.
3) Inntaka nýrra fjelaga.
Fjölmennið.
Stjórnin.
'^X$*$X$X$X$X$X$X$*$X$X$*$X$X$*$X$X$X$*$X$X$*$X^$*$X$*S>$X$*$X$X$*$><$*$X$X£<^<5*$K$><$X$K$X$>4
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ...................................
si iil ®ln
1 st. Broadwood & Söns, kgl. hirðsali.
1 st. Steinway & Sons.
1 st. Horning & Möller, kgl. hirðsali.
Hágkvæmir greiðsluskilmálar.
Bankastræti 7.
aðstoðarmaður ÞorvaJdar hjer
aðslæknis Jónssonar, er hafði 1
póstnfgreiðslu staðarins á
hendi. Varð þetta upphaf að
póstþjónustu Guðmundar ei
náði yfir 40 ára skeið. Árið
1906 gerðist hann póstmeist-
ari á ísafirði. Rak hann þar
búkaverslun um skeið með
góðum árangri, enda var hann
hagsýnn maður með afbrigð-
um.
Árið 1920 varð hann póst-
meistari á Akureyri. En þar
var hann ekki nema 3 ár.
Bauðst honum þá staða við
pósthúsið hjer í Reykjavík er
hann taldi sjer heppilegri.
Var hjer póstfulltrúi til árs-
|ins 1939. að hann ijet af störf-
jum með fullum launum, þá
jsjötugur að aldri.
Guðmundur heitinn var,
mjög áhugasamur um þjóð-
mál, einbeittúr í skoðunum og
fvlginn sjer. Hann var trygg- j
lyndur maður einlægur vinur j
vina sinna. en átti ekki auð- •
velt méð að gleyma mótgerð-.
um, er gert var á hlut hans.
I frístundum sínum iðkaði
hann tafl, og var mjög fær í.
þeirri íþrótt.
' Ái-ið eftir að hann hafði lát-
VEEÐÖL vjela elíu
Þjer munuð vissulega læra að meta hina
frábæru vernd, sem Veedol veitir yður. Hin
langa og vel þekta reynsla sannar að Veedol
varnar skemdum af núningi og hið' endur-
bætta Veedol varnar sýrumyndun, og óhrein
indum, veitir yður hreinni betur smurðar vjel
ar! Kaupið hina endurbættu Veedol smurolíu
strax í dag. Tryggið öryggi bifreiðar yðar.
100% hrein Pennsylvania vjelaolía — og
framleiðsla
Tide Water Associated Oil Company