Morgunblaðið - 18.12.1946, Side 1
16 síður
33. árgangur
288. tbl. — Miðvikudagur 18. desember 1946
ísaioldarprentsmiðja h.f.
Hótað oð sprengja
breska
konungshöllina í loit
upp
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
EINN eða fleiri menn, sem ekki er vitað hverjir eru, hótuðu
í dag að sprengja Buckingham Palace, konungshöllina bresku
í loft upp. Hringt var á símstöð eina, í útjarðri Lundúna, og
sagt: þetta er aðvörun um það, að sprenging mun verða í
Buckingham Palace á miðnætti.
EFTIBLIT MEÐ ATOMORKU
TIL UMRÆÐU í NEW YORK
-s-
Tvær aðrar aðvaranir bár-^
ust í dag, en í annari var-sagt,
■áT :
að Victoria Station, ein af;
aðal járnbrautasiöðvunum í|
London, mundi verða sprengd;
í loft upp kl. 5.
Síðan á föstudag, hafa 23
tilkynningar af þessari teg-
und borist Slotland Yard. í
einni fólst jafnvel hótun um
það, að sprengja upp bæki-
stöðvar lögreglunnar.
ERU GYÐINGAR AÐ
VÉRKI?
Alskonar varúðarráðstafan-
ir hafa verið gerðar. Er al-
ment álitið, að vitfirtur mað-
ur sje hjér að verki, en sögu-
sagnir hafa einnig heyrst um
það, að menn úr Sternfiokkn-
um, sem er' einn af skæðustu
óaldarflokkum Gyðinga, hafi
komist til Bretlands, tii að
byrja þar skipulagða skemd-
arstarfsemi.
Byrnes ræðir þjóð-
nýtingaráform Breta
í Þýskalandi.
Washington- í gærkvöldi.
BYRNES, utanríkisráðhera
Bandaríkjanna, mótmælti í dag
þeirri fregn að Bandaríkjamenn
væru andvígir áformum Breta
um víðtæka þjóðnýtingu iðn-
aðarins á hernámssvæði þeirra
í Þýskalandi.
Byrnes sagði blaðamónnum
að Bandaríkjastjórn hefði ekk-
ert við þessu að segja, ef þjóð-
nýtingin færi fram á lýðrpðis-
legan hátt og í samræmi við
viljá þýsku þjóðarinnar. —
Reuter.
kaudsyflriýsinp.
París í gærkvöldi.
FRANSKA þingið samþykti
í dag traustyfirlýsingu til
stjórnar Leon Blum með 580
atkvæðum gegn 16.
Allir flokkar, alt frá komm-
únisturrí til þeirra, sem Jengt
eru taldir standa til hægri,
greiddu atkvæði með trausts-
yfirlýsingunni. — Reuter.
íiiiögur Bandaríkjamaniia
lá góöar undirtektir
New York í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ATOMORKUMÁLANEFND sameinuðu þjóðanna kom sam-
an til fundar í dag og ræddi tillögu þá, er Baruch, fulltrúi
Bandaríkjamanna í nefndinni, hefur borið fram um alþjóða-
eftirlit með notkun atomorkunnar og refsiaðgerðir gegn þeim
þjóðum, sem brjóta í bága við eftirlitsákvæðin. í tillögu Baruchs
er gert ráð fyrir því, að stórveldin megi ekki beita neitunar-
valdi sínu í sambandi við eftiríitið.
ÞýfiS vár 15 miljési
m ei
Vilja vera heima.
London í gærkv.
FIMM HUNDRUÐ breskir
hermenn, sem verið hafa
heima í fríi, neituðu í dag að
fara um borð í skip það, sem
flytja á þá til fyrri stöðva
sinna á Austurlöndum.
Skip þetta átti að leggja af
stað frá Glasgow 1 kvöld.
— Reuter.
Mænuveikin virðist heldur
verá í rjenum, sagði Magnús
Pjetursson hjeraðslæknir Mbl.
í gærdag.
Samkvæmt skýrslum lækna
er vitað um 13 eða 14 ný til-
felli. I vikunni þar áður voru
tilfellin 18.
Um aðeins fáar lamanir er
að ræða og enginn hefur látist
í vikunni af völdum veikinnar.
Ekki hefur þótt ástæða til að
flytja neinn hinna sjúku í
sjúkrahús, sagði hjeraðslæknir
inn að lokum.
Breiar íá hveili frá
iandaríkjnm.
London í gærkveldi.
BRESKI matvælaráðherr-
ann hefir tjáð neðri málstofu
þingsins, að Bandaríkjamenn
hafi lofað að láta Bretum í
tje 68,000 tonn af hveiti og
allmikið magn af öðrum korn-
tegundum, fyrir janúarlok.
Þá mun Bandaríkjastjórn
hafa heitið því, að greiða fyr-
ir flutningi kanadiskra korn-
sendinga yfir Bandaríkin.
— Reuter.
Smuts hershöfðingi, forsretis-
ráðherra Suður-Afríku, er ný-
kominn heim af þingi Samein-
uðu þjóðanna. A heimleiðinni
kom hann við í Bretlandi. Ital-
íu og Grikklandi, og var als-
staðar frábærilega vel tekið.
króna viröi.
gurs
Tokíó í gærkveldi.
HUNDRUÐ þúsunda Jap-
ana fpru í dag í kröfugöngy
urn götur Tokíu, til, að mót-
mæla aðgerðum ríkisstjó'rn-
Arinnay. Kröfugöngumenn
krefjast meðal annars aukinna
rjettinda, laga um lágmarks-
kaup og framkvæmda um
endurreisn iðnaðarins.
Á meðán þessu fór fram,
báru sósíaldemókratar á þingi
fram vantraust á stjórnina,
sem fellt var með 238 atkv.
gegn 160.
— Reuter.
Frankfurt í gærkvöldi.
RJETTARHÖLDUM heíur nú
verið frestað í máli Jack Dur-
i ant höfuðsmanns, sem handtek
1 inn var fyrir nokkrum mánuð-
1 um síðan, fyrir að stela krýning
I argripum úr kastala Hesse-ætt
| arinnar í Þýskalandi. Gripirnir
munu vera um 15,000,000 kr.
virði.
Kona höfuðsmannsins, sem
var í vitorði með honum og var
liðsforingi í kvennaher Banda-
, ríkjanna, hefur þegar verið
dæmd í fimm ára fangelsi. —
Reuter.
m
Fomleifafundur
LONDON: Leifar af xóm-
versku húsi frá fyrstu öld, hafa
fundist í Canterbury.
nemur 9,4 milj. kr.
VAXTABRJEF Stofnlána-
deildarinnar hafa selst sem
hjer segir:
Áskriftir í Reykjavík og
Hafnarfirði vikuna 9.—-t14. des.
487.800 kr.
Áður tilkynntar áskriftir frá
3.0. okt. til 7. des. 8.677.000 kr.
Samtals 9.164.700 kr.
Áskriftir mánudaginn 16.
desember og þriðjudag 17. des-
ember 1946 229.900 kr.
Áskriftir alls síðan 30. okt.
1946 9.394.600 kr.
Aukin kolaframlciðsla.
LONDON: — West Midlands
kolanámurnar framleiddu 768.-
000 tonnum meira af kolum frá
1. janúar til 23. nóvember, en
á sama tíma s.l. ár.
Lík Ferdinants Eyfeld
í gær.
í GÆRDAG fanst lík Ferdi-
nants Eyfeld vjelstjóra. Hann
hvarf hjer í bænum s.l. laug-
ardagskvöld.
Lík hans fanst inni í girð-
ingu á auðu svæði í norðvest-
an verðu Kleppsholti. Engan
áverka var að sjá á því.
Við rannsókn málsins hef-
ur komið í Ijós, að Ferdinant
fór í bifreið frá kunningja sín-
um. Máður sá er ók bílnum
hefur gefið sig fram við rann-
sóknarlögregluna. Hann hefur
skýxt svo frá að hann hafi
ekið honum inn á móts við
gatnamöt Kleppsvegar og
Langholtsvegar. Bíistjórinn
hefur sagt svo frá, áð er hann
hafi verið komiVff út úr bíln-
um hafi hann gengið eftir
Kleppsveginum í áttina að
Kleppsspítalanum.
Fullu nafni hjet hinn látni
Ferdinant Rikard Ejviólfsson
Eyfeld. Hann lætur eftir sig
konu, þrjú uppkomin börn og
eina fimm ára dóttur. Hann
var tvígiftur.
Fulltrúar Breta, Kanada og
Ástralíumanna lýstu yfir fylgi
sínu við tillögu Bandaríkja-
manna, en Andre Gromvko, full
trúi Rússa, gerði hvorki að
hafna henni nje samþykkja.
Friðarþrá mannkynsins.
Baruch flutti langa ræðu í
sambandi við bandarísku tillög
una, og taldi að þjóð sín gæti
verið hreykin af því, að standa
á bak við hana. Hann lauk ræðu
smni með því, að lýsa því yfir,
að það væri von sín, að tillög-
urnar gætu orðið grundvöllur-
inn að því, sem mannkvnið
hefði leitast eftir, alt frá því að
tayrjað var að skrá sögu þess.
,,Því maðurinn er í eðli sínu
friðsamur og elskar lífið“, sagði
Baruch.
Lausn vandamálsins.
í ræðu þeirri, sem Sir Alex-
ander Cadogan, fulltrúi Breta,-
flutti til stuðnings bandarísku
tillögunum, sagði hann: Baruch
hefur fengið okkur í hendur
þau grundvallaratriði, sem
ættu að leiðbeina okkur við
lausn þessa vandamáls.
ígypska sfjémin iær
ausfsyfirlýshigu.
Cairo í gærkv.
TR AU STS YFIRLÝSING til
hinnar nýju stjórnar Ekypta-
lands hefur verið samþykt
með 159 atkvæðum gegn 21.
Sjö þingmenn sátu hjá við
atkvæðagrei' J :luna.
Við þetta tækifæri lýsti
hinn nýi forsætisráðherra Eg-
ypta, Nokrashi Pacha, því yfir
í ræðu, að stjórn sín mundi
vinna að því, að fá Breta til
að fara burt úr landinu. Kvaðst
hann staðráðinn í, að beita til
þess öllum ráðum, annað hvort
með beinum samkomulagsum-
ræðum við Breta, eða með því
að leggja málin fyrir Öryggis-
ráðið.
— Reuter.