Morgunblaðið - 18.12.1946, Síða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
KAFLAR úr hinni merkit
Sunnan kaldi eða stinnings-
kaldi — rigning öðru hvoru.
Miðvikudagur 18. desember 1946
afvopnunarræðu Byrnes á bls.
8. —
iKIL SiLÖ I
KOLLAFIRÐI
ÓHEMJU síld er sögð vera í
Kollafirði. Bátur hjeðan úr
Reykjavík, íslendingur, fjekk
þar í gærdag milli 50 og 70
tunnur síldar í ein fjögur net.
Síldin var mjög falleg og öll
sett í frystihús Ág. Flvgering
í Hafnarfirði, til beitu.
Skipstjóri á Islending er Jó-
hann Guðjónsson, en með hon-
um í ferð þessa fór Ingvar
Pálmason skipstjóri. Netin
voru lögð í fyrrakvöld og
þeirra vitjað í gærmorgun. Alls
10 net lögð. En er taka átti
hin inn var síldin svo rn.ikil í
þeim að þau rifnuðu. Jóhann
telur að ef tekist hefði að ná
netunum öllum inn hefði afl-
inn orðið milli 250 og 300
tunnur.
— Fjörðurinn var íullur af
síld, sagði Jóhannes, en eng-
inn annar bátur var þar.
Margir hvalir.
Meðan við vorum á veiði-
svæðinu, sáum við eina 15
hvali, sem jeg held að hafi
verið steypireyður, sagði Jó-
hannes. Þeir komu mjög ná-
lægt bátunum og sumir þeirra
gífurlega stórir, fullt eins
langir og báturinn okkar, sagði
skipstjórinn.
Síldarganga um þetta leyti
árs á þessum slóðum er mjög
sjaldgæf og því nærri eíns
dæmi.
DANIR ERU í þann veginn að taka við stjórn flugvallanna,
sem Bandaríkjamenn bygðu þar í styrjöidinni. Þeir tóku að
sjer veðurathuganir 1345. Á myndinni sjest hluti af flugvell-
inum „Blue TA7est I“, aðaistöð Bandaríkjamanna hjá Narssaksuak,
um 80 km. frá Julianehaab. Neðri myndin er af veðurathugana-
stöðinni Narssak Point í Skovfirði.
Aðrir æskuiýðs-
hljómieikar á þriðja
í jólum.
TÓNLISTARFJELAGIÐ
hefur ákveðið að aðrir æsku-
lýSstónleikar fjeiagsins^skulu
fram fara þriðja í jólum, í
Tiipoli-leikhúsinu.
Lansky Otto leikur einleik
á píanó, ver-k eftir Beethoven.
Dr. Páll ísólfsson mun skýra
fyrir áheyrendum hvert við-
fangsefni efnisskrárinnar.
Á fyrstu æskulýðshljóm-
leikum Tónlistarfjelagsins var
nær því hvert sæti skipað. —
Ekki er að efa að æskulýður-
inn muni fylla Tripoli-Ieik-
húsið á þr-icja í jólum.
Jegmanjjálíð".
„JEG MAN ÞÁ TÍГ (Ah.
Wilderness) eftir Nobelsverð-
Jaunaskáldið Eugene O’NeilI,
heitir jólaleikrit Leikfjelags
Reykjavíkur. — Frumsýning
jress fer fram á'annan í jólurrí.
Bogi Ólafsson, yfirkefinari,
hefur íslenskað leikritið."—
indriði Waage er leikstjóri.
Leikendur eru 15.
,.Jeg man þá tíð“, er gaman
lc-ikur í þrem þáttum, sem
gerist í smáborg í Bandaríkj-
unum skömmu eftir alda-
mótin.
Vefrartijápn:
FULLTRUAFUNDUR Lands
sambands ísl. útvegsmanna
hófst í gær, kl. 2 e. h. í fundar-
sal sambandsins í Hafnarhvoli.
Var þetta- framhald fundarins
á dögunum.
Fundurinn var mjög fjöl-
mennur. I byrjun fundar flutti
Ólafur Thors forsætisráðherra
ítarlega ræðu, þar sem hann
skýrði frá aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar við að afla mark-
aða fyrir íslenskar sjávaraf-
urðir og söluhorfum. En eins
og forsætisráðherrann hafði
áður skýrt frá á Albingi og í
viðtali við MorgunblaSið, horf-
ir mjög vel með sölu sjávar-
afurða á næsta ári.
Að lokinni ræðu forsætisráð-
Veslurbæinii oy
viðar í kvöld
ÞAÐ er í kvöld, sem skát-
'arnir hefja för sína um bæ-
| inn tii þess að veita móttöku
gjÖfurn. sem bæjarbúar vilja,
jláta aí hendi rakna til starf-
semi Veti'aihjáiparinnar, þess
íarar mannúðarstofnunar, sem
heíur þáð göfuga hlutverk að
jmiðla þeirn, sem harðast hafa
; oi'ðið úti ög mest hafa farið á
Iierra hófust almennar umræð-
ur. StóSu þær fram til kí. 7.
í lok fundarins var kosin 5
manna nefnd til ao gera til-
lögu um aðgerðir til írygging-
ar rekstri útvegsins.
Næsti fundur hefst kl. 2 í
dag.
ViII flytja Gyðinga til Banda-
ríkjanna.
BERLÍN: — Phillip S. Bern-
stein, sjerstakur ráðunautur
um málefni Gyðinga á hernáms
hiuta Bandaríkjanna í Þýska-
landi, hefir gert það að tillögu
sinni, að 100.000 Gyðmgum
verði leyft að setjast að í Banda
ríkjunum.
Reynsla undanfaíinna ára
hefur sýnt, að Reykvíkingar
hafa fyllílega skilið þessa
starfsemi cg styrkt hnna vel.
Ekki et' aö efa áð svo verði
onn, því að þörfin er nú síst
minni en oft áður. Þegar hafa
■sótt um aðstoð mun fleiri en
á sama tírna í fyrra.
Skátarnir fara í kvöld um
Miðbæinn, Vesturbæinn,
Grímsstaðaholt, Skerjafjörð,
Seitjarnarnes og ennfremur
Kleppsholt og Laugarne.s-
hverfi í Austurbænum.
' Reykvíkingar takið vel á
móti skátunum og styðjið
! Vetrarhjáipi'na!
Karlakór Reyk jovíkur
hlaut ógæta dóma
íNewYork
SÍÐUSTU HLJÓMLEIKAR Karlakórs Reykjavíkur voru í
Mew York. Þar fengu þeir ágætis dóma, eins og annarsstaðar
er þeir sungu. Stórblaðið New York Times hælir kórnum og
annað stórblað New York Herald Tribune fer einnig lofsam-
legum orðum um kórinn, en gagnrýnir aðeins söngskrána.
Karlakórsmenn eru nú væntanlegir heim úr sigurför sinni til
Bandaríkjanna á þverri stundu.
Guðmundur S. Guðmunds
son fer í dag
GUÐM. S. GUÐMUNDSSON
fer hjeðan í dag til Englands til
þátttöku í alþjóða skákmótinu.
Hann fer hjeðan með, leiguflug
vjel Flugfjelags Islands.
\ Skákmótið fer fram í Hast-
ings og hefst 30. desember og
stendur til 8. janúar.
(iý fyrírmæli um
skaltgreiðslur
útlendinga
FJÁRHAGSNEFND ND.
flytur samkvæmt ósk fjár-
íhálat'áðhen'a frv. um skatt-
og útsvar.sgreiðslur útlend-
inga o. fl.
Er í frv. þessu tckin upp
ákvæði gildandi laga og
nokkrum nýmælum bætt við.
Veigamestu nýmæli eru að
lágmarkstími fyrir skatt-
skyldu er styttur úr 3 mán-
uðum í einn mánuð, og.tekin
upp ákvæði um, að maður,
sem hjer vinmír sjer inn 10
þús. kr., . sje skattskyldur,
hversu stutt sem hann hefur
dvalið í landinu.
„Tiiefni þessarar breytingar
er tvenns konar“, segir í
greinai'gerðinni. „Tilrauna
hefur orðið vart til þess að
komast framhjá tímaákvæð-
inu þannig, að útlendingar,
sem hjer hafa verið í vinnu,
hafa forðað sjer úr landi áður
en þriggja mánaða tímabilið
var útrunnið, en komið síðan
af'tur innan skams og þá með
nýju vegabrjefi. Að hafa
hendur í hári siíkra manna
má telja ókleift nema með
mjög kostnaðarsömu vega-
brjefaeftirliti. Er því horfið
að þeirri lausn að stytta
skattskyldutímabilið. í einn
mánuð. Þá er og að myndast
aðstreymi fólks utan úr lönd-
um í ýmsum listgreinum, sem
mcð hljómieikum, sýningum
og á ýmsan annan hátt og á
vegum ýmissa aðiia taka hjer
skjóttekinn gróða. Þykir á-
stæðulaust að undanþiggja
fólk þetta skattgreiðslu,
enda þótt tímatakmarkið nái
ekki til þess, og er því lagt.
til, að tekjurnar sjeu skatt-
lagðar, ef þær nái kr. 10 000,
00 hjá hverjum einstökum að-
ila“.
„íslensku söngvararnir, sem
komu hingað í október og hafa
sungið í 60 borgum, enduðu
fyrstu ferð sína til Bandaríkj-
anna með hljómleikum í Tov/n
Hall. Þessum 36 manna karla-
kór er stjórnað af manninum,
sem stofnaði söngsveitina fyrir
tuttugu árum, Sigurði Þórðar-
syni skrifstofustjóra Ríkisút-
varpsins íslenska.
Thor Thors sendiherra ís-
lands í Bandaríkjunum skýrði í
formála söngskrárinnar að þeir
fjelagar kæmu hingað „sem
boðberar vináttu“. Þeir sýncfu
það vissulega í gærkveldi því
þeir eru hin fríðasta sveit og
þeir guldu áheyrendum með
fögrum söng.
Karlakórsmenn fljúga heim
til íslands á þriðjudag. Á fimtu
dag verða margir þeirra komn-
ir til starfa sinna, en í gær-
kveldi voru þeir enn klæddir
kjólfötum með bláan hvítan og
rauðan borða, liti lands síns, á
ská yfir skyrtubrjóstin. Þeir
stóðu í tvöfaldri röð umhverfis
stórt píanó. Stundum ljek Fritz
Weisshappel undir, en oftast
sungu þeir án undirleiks.
Að fráskyldu laginu London-
derry Air, sem þeir sungu á
ensku, sungu þeir á sínu eigin
máli. Þeir kunnu öll lögin utan
að og flest tónskáldin voru ís-
lensk, þar á méðal Páll ísólfs-
son, (Sigfús) Einarsson og (Sig
urður) Þórðarson, söngstjórinn.
Söngmennirnir sungu af
næmum skilningi og tónninn
var hreinn. Það er auðsjeð að
(Sigurður) Þórðarson hefir
þjálfað þá af nákvæmni. því
hann hefir valid á tóninum.
Háir og lágir tónar voru hrein-
ir. Þeir breyttu tóninum frá
pianissimo í forte og ekkert var
of hratt fyrir tónsvið þeirra.
Til viðbótar því að vera vel
þjálfaðir eru kórfjelagar við-
kvæmir. Þeir sungu vögguvísur
af tilfinningu, sálmalög af næm
um skilningi og lög um íand
sitt af einlægni, sem hreif
menn. Góðir einsöngvarar voru
Stefan Islandi tenor og Guð-
mundur Jónsson bariton.“