Morgunblaðið - 14.03.1947, Síða 1
*
16 síður
34. árgangur 61. tbl. —Föstudaginn 14. mars 1947. ísafoldarprentsmiðja h.f.
4 FARÞEGAR LATA LÍFIÐ
I FLEGSLVSI
Svíþjóð hefir lánað
yfir 1000 milj.
dollara
Stokkhólmur.
í RÆÐU, sem forsætisráð-
herra Svíþjóðar, Tage Erland-
er, flutti fyrir skömmu í Kaup
mannahöfn, upplýsti hann það,
að Svíar hefðu nú lánað vörur
fyrir rúmle'ga 1,000 milj. doll-
ara.
Sænska ríkið hefur als lánað
ýmsum löndum sem nemur
1,083,330,00 dollurum, og hef-
ur auk þess lagt fram tæplega
39 miljón dollara til alþjóða
hjálparstarfsemi. Einstakling-
ar í Svíþjóð hafa hins vegar
gefið til hjálparstarfsemi um
139 miijónir dollara.
800 Gyðlngar komusf
í land
Jerúsalem í gær.
AUGLJÓST er nú orðið, að
meir en 800 Gyðingar hafa
'verið á skipinu ,,Súsana“, sem
í gær tókst að leika á strand-
varnir Breta og sigla í strand
við Palestínustrendur. Vitað
var, að mikiil fjöldi Gyðinga
komst á land, en þegar hefur
-tekist að handsama um 830
þeirra.
Þeir, sem náðst hefur í, hafa
‘þegar verið fluttir um borð í
skip á höfninni í Haifa. Verða
þeir fluttir þaðan til Cyprus.
Flugbátur sá er fórst við Búðardal "var af þessari gerð.
BæðaTrumans vekur
WASHINGTON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÞESS er vænst, að Dean Acheson, aðstoðarutanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna, leggi á morgun fyrir utanríkisnefnd full-
trúadeildar Bandaríkjaþings lokauppkastið að tillögum Tru-
mans um aðstoð til handa Grikklandi og Tyrklandi. Charles
Eaton, formaður nefndarinnar, tilkynnti þetta í dag.
Bundin stefnuskrá SÞ.
Er frjettamenn áttu í dag við-
tal'við Warren Austin, leiðtoga
Bandaríkjamanna á þingi sam-
einuðu þjóðanna, um ræðu
Trumans, sagði hann, að Banda
ríkin hefðu skuldbundið sig til
að fylgja stefnuskrá sameinuðu
þjóðanna, en frelsi og sjálfstæði
Grikklands og Tyrklands væri
nauðsynlegt að viðhjeldist.
Frá ulanríkisráðherrafundiiuim:
Aður nasistar — nií Rússavinir
MOSKVA í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
MARSHALL, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hjelt því fram
í ræðu á fundi utanríkisráðherranna í Moskva í dag, að fregnir
hefðu borist um það, að fyrverandi nasistum á rússneska her-
námssvæðinu í Þýskalandi tækist að skjóta sjer undan refsingu,
með því að gerast meðlimir í sameiningarflokki sósíalista á her-
námssvæðinu.
„Hreinsaði andrúmsloftið“.
Frjettir af fundinum í dag
herma annars, að mikið af tím-
anum hafi farið í ásakanir og
gagnásakanir Bevins og Molo-
tovs. Annars kemur frjettarit-
urum saman um, að ræða Bev-
ins í gær um breska hernáms-
syæðið í Þýskalandi og svar
hans við ásökunum Molotovs,
hafi gert mikið til að hreinsa
andrúmsloftið.
Efling lýðræðisins.
Bidault, utanríkisráðherra
Frakka, tók til máls á fundin-
j um í dag og ræddi Þýskalands-
málin. Sagði hann, að tvö megin
verkefni biðu úrlausnar her-
námsveldanna í Þýskalandi:
eyðing nasistahugsjónarinnar
og endurvakning lýðræðishreyf
ingarinnar. Benti hann á,
hversu nauðsynlegt væri að
koma nasistaflokknum með
öllu fyrir kattarnef.
Fundurinn stóð í tæpar fjór-
ar klukkustundir og var Bevin
í forsæti.
Auðveldar ekki störf
Marshalls
Ræða Trumans forseta, hefir
að vonum vakið geysimikla at-
hygli.
Sendimenn Bandaríkja á ráð-
stefnunni í Moskva yfirleitt
hafa tekið ræðunjii vel, enda
þótt á það sje bent, að ekki
muni hún auðvelda Marshall
starf hans.
Frjettamenn eru yfirleitt sam
mála um, að Truman hafi nú
lýst yfir ákveðnari afstöðu til
utanríkismála en nokkru sinni
áður.
Ræðan heyrðist erlendis.
Ræða Trumans, en strax að
henni lokinni lagði hann af stað
flugleiðis í þriggja daga frí í
Florida, var útvarpað til Evr-
ópu og landanna við botn Mið-
jarðarhafs. Þá var ræðan einnig
þýtt á átta erlend tuhgumál,
til útsendinga til Evrópu, Sovj-
etríkjanna og landanna við
Kyrrahaf.
Vandenberg öldungadeildar-
maður, sagði meðal annars um
ræðu Trumans: „Ræða forset-
ans snerist um staðreyndir og
sama verður Bandaríkjaþing að
Eramh. á bls. 5
FLUGBATIJR HRAPAR
VIÐ BIJÐARDAL
>*
Atta manns voru í
flugvjelinni
í GÆRDAG hrapaði í sjóinn vestur við Búðardal Grum-
man flugbátur er var að leggja af stað. í honum voru
átta manns. Af sjö farþegum fórust fjórir.- Tvær konur,
önnur hjeðan úr Reykjavík, en hin frá Búðardal, og tveir
karlmenn. Annar frá ísafirði en hinn frá Búðardal.
Af þeim fjórum sem bjargað var slagp aðeins einn
ómeiddur.
Er slysið vildi til, var veður hið besta og'ládauður sjór.
Þeir sem fórust með flug-'
bátnum voru:
Frú Elísabet Guðmundsdótt-
ir, Búðardal, kóna Magnúsar
Rögnyaldssonar, verkstjóra í
Búðardal. Hún var um fertugt.
Frú María Guðmundsdóttir,
ekkja Guðjóns heitins Gamali-
elssonar, húsameistara, frá
Bergstöðum við Bergstaða-
stræti, Reykjavík.
Einar Oddur Kristjánsson,
gullsmiður, Isafirði, lætur eftir
sig konu og 3 uppkomin börn.
Magnús Sigurjónsson frá
Hvammi í Dölum. Hann var
ungur maður einhleypur.
Þeir sem björguðust:
Þrem farþegum og flugmann
inum var bjargað. Farþegarnir
voru: Benedikt Gíslason, prent
myndagerðamaður, Reykjavík,
frú Guðrún Arnadóttir, læknis
frú í Búðardal og Magnús Hall
dórsson frá Ketilsstöðum við
Búðardal. Flugmaður var Jó-
hannes Markússon.
Á leið til Reykjavíkur
Grummanflugbátur þessi var
ist upp á kjöl vjelarinnar og
eins Benedikt Gíslason. Þeir
höfðu náð í Maríu heitina og
hjeldu henni upp úr sjónum.
Framh. á bls. 2
„Ferðin borgaði sig"
segir Strachey
London í gærkvöldi.
STRACHEY, matvælaráð-
herra Breta, kom heim til Bret
lands í dag eftir fjögra vikna
ferðalag um Kanada og Banda
ríkin.
I stuttu viðtali, sem ráðherr
ann átti við blaðamenn, sagði
hann þeim, að ferðalagið hefði
borgað sig og að hann hefði
mætt miklum skilningi og vel-
vilja í Washington.
Strachey mun innan skams
birta tilkynningu um árangur
ferðar sinnar. — Reuter.
eign h.f. Loftleiða. ♦Ferðinni
var heitið til Reykjavíkur. En
bæði á ísafirði og á Djúpuvík
höfðu farþegar verið teknir. —
María heitin Guðmundsdóttir
komf flugvjelina á Djúpuvík,
en Einar O. Kristjánsson á ísa-
firði.
Flugvjelin settist á sjóinn
skamt fyrir framan kauptúnið.
Voru farþegarnir 5, sem ætl-
uðu að taka sjer far með flug,-
vjelinni fluttir á bát út í vjel-
ina. Rjeru þeir bátnum tveir:
Eiður Sigurðsson, bílstjóri í
Búðardal og Aðalsteinn Guð-
mundsson, verkamaður.
Er þeir höfðu skilað farþeg-
unum út í vjelina snúa þeir á
bátnum til lands. En mótorar
flugvjelarinnar voru settir af
stað.
Eftir litla stund rennir flug-
maður vjelinni til flugs. Lyft-
ist hún lítið eitt upp frá sjávar
fletinum.
En síðan sj^ menn sjer til
mikillar skelfingar að flugvjel
in tekur að hallast. — Hvolfist
hún yfir á vinstri væng og
snýst svo að það skiftir eng-
um togum, að hún er á hvolfi
í sjónum, en marar þar í kafi.
Sjónarvottar geta enga grein
gert sjer fyrir því hvað hafi
verið orsök þess að svo fór. En
hvað flugmaður segir um or-
sakir slyssins vissi blaðið ekki
í gærkvöldi. Felmtri sló á alla
í Búðardal yfir þessu sviplega
slysi, sem þama gerðist fyrir
augum þeirra án þess að nokk
ur gæti gert sjer grein fyrir
orsökum þess.
Björgunarstarfið
Mennirnir á ferjubátnum,
sem rjeru út að flugvjelinni
með farþegana fylgdust með
því, sem gerðist. Rjeru þeir nú
lífróður út að flugvjelinni, þar
sem hún lá í.sjónum og mar-
aði í kafi. Fimm af þeim, sem
í vjelinni voru höfðu komist út
úr henni. Flugmaðurinn, Jó-
hannes Markússon hafði kom-