Morgunblaðið - 14.03.1947, Blaðsíða 11
Föstudagur 14. mars 1947.
M O R G U N'B L A Ð I Ð
11
GISTIHÚS BÚNAÐARFJELAGSINS
Eftir Árna G. Eylands
í fyrri grein minni um þetta
efni — í Morgunblaðinu 11.
mars — gekk jeg alveg framhjá
gistihúsinu. Mun þ>að hafa vak-
ið athygli þeirra lesenda sem
kunnifgir eru málinu og vita um
þær ráðagerðir, er uppi hafa ver-
ið, um að leysa í senn húsnæð-
ismál B. 1. og gistihúsvandræðin
er snerta bændurna er leið eiga
' til höfuðborgarinnar.
IX
Búnaðarþing 1945 samþykkti
meðal annast eftirfarandi álykt-
un!
„Búnaðarþing 1945 ályktar
að Búnaðarfjelag íslands byggi
hús fyrir starfsemi sína og gisti-
heimili fyrir bændur, svo fljótt
sem tök eru á, og með skýrskot-
un til samþykktar Búnaðar-
þings 1943 um húsbyggingarmál
Bf. ísl. (mál m. 35) ályktar Bún-
aðarþing að fela stjórn fjelags-
ins: m
. 1. Að tryggja lóð undir b.ygg-
ingu fjelagsins á hentugum stað
í bænum.
2. a. Að láta gera teikningu af'
húsi fyrir skrifstofur, fundarsal,
bókhlöðu og aðrar þarfir fjela'gs-
ins.
b. Ennfremur, að í sam-
banclj við þessa byggingu verði
reist gistihús fyrir allt að 100
gesti með tilheyrandi veitinga-
sölum, enda fáist nóg þátttaka
annarstaðar frá, að dómi sjóðs-
stjórnarinnar.
3. Að sernja við ríkisstjórnina
um annað tveggja, hæfilega
leigu eftir Sámstaði, með áhöfn
og öllu tilheyrandi, sem að sín-
um hluta gæti borið uppi lán
til húsbygginga, eða um sölu á
eigninni fyrir hæfilegt verð, sem
svo gangi til byggingarinnar.
4. Að leita kauptilboða í hús-
eign fjelagsins, Lækjargötu 14 B;
og selja, þegar ástæður !eyfa“.
I’að sem farið er fram á í til-
lögum þessum er komið í kring,
að því er varðar tölulið 1 —
samanber það sem sagt hefir
[Verið hjer að framan -r— og tölu-
Iið 3, því að samningar um leigu
eftir Sámsstaði, eru komnir á.
Um gistihúsmálið hefir nokk-
uð verið ritað og rætt, en frek-
ar virðast þær umræður og hug-
myndin um 100 manna gistihús
í sambandi við skrifstofubygg-
ingu fí. /., hafa orðið til að
spilla byggingarmálinu en til
þess að greiða götu þess, enda
í alla staði eðlileg að svo stórar
fyrirætlanir tefji frekar hina
sjálfsögðu og tiltölulega auð-
yeldu framkvæmd, að koma
upp .húsi fyrir starfsemi B. í
1‘ótt mikið sje byggt í höfuð-
borginni og einnig víðar, mun
nú svo komið horfum með stór-
byggingar bæði um kostnað og
framkvæmd, að ekki virðist
[vænlegt að rígbinda sig lengur
[við hugmynd Búnaðarþings
1945, um að hafa allt í eínu
taki, húsakynni handa B. í. og
100 manna gistihús. Betri er
hálfur sigur en enginn, og þótt
gistihúsmálið sje áhugamál bún
-aðarþingsmanna, er finna vel
hvar skórinn kreppir á því sviði,
inega erfiðleikarnir sem á því
eru, að hrinda í framkvæmd
slíku stórfyrirtæki ekki tefja
eðlilegan frantgang þess að B. í.
fái gott þak yfir höfuðið fyrir
starfsemi sína. Það er því með
ráðnum hug að jeg hef í þessum
hugleiðingum, og þejm tillögum
sem þar koma fram, gengið fram
hjá gistihúsmálinu.
X
Nokkur atriði, varðandi hið
umrædda gistihúsmál eru hins-
vegar þess eðlis, að jeg tel
nokkra þörf á að ræða þau nán-
ar og jafnvel að leiðrjetta mis-
skilning og missagnir er fram
hafa komið í umræðum um mál-
ið.
Oft hefur verið vitnað til
gistihúsanna norsku er ganga
undir nafninu bœndaheimili, t.
d. Bondeheimen í Osló, sam-
nefnt gistihús í Bergen og Staf-
angri o. s. frv. Einnig hefir ver-
’ið bent á að allvíða í norskum
borgum og bæjum sjeu stór-
byggingar er nefnist: „hús bænd-
anna“ - Böndernes hus - og sjeu
sameign ýmisra fjelaga bænda
og fvrirtækja er þeir standa að
A þetta hefur verið bent til fyr-
irmyndar. Er það rjetmætt og
eðlilegt.
Þann misskilning er þó vert
að leiðrjetta að gistihúsin:
Bondeheimen í Osló, Bonde-
heimen í Bergen, Trönderheim
en í Þrándheimi o. s. frv. sjeu
eign norskra bændafjelaga eða
fyrirtækja er bændur stancla að.
Þau eru eign norsku angmenna
fjelaganna. Stofnuð og starfrækt
með hvorutveggja fyrir aug-
um: að gistihúsin geti verið
nokkurt menningaratriði, og að
rekstur þeirra sje starfsemi ung
mennafjelaganna fjárhagslega
til styrktar.
Um ,.hús bændanna" gegnir
nokkuð öðru máli. Að þeim
standa ýmsir aðilar, er alla
jafna hafa einhvern rekstur
varðandi Iandbúnað ineð hönd-
um, eða fjelagsmálastarfsemi.
Má þar til nefna, sparisjóði,
banka, samvinnu-verslanir,
mjólkurbú o. fl. o. fl. Því er svo
komið hjer á landi að vjer erum
orðnir of seinir fyrir um að
koma upp Bœndahöll í Reykja-
vík með þessu sniði, á þeim fjár-
hagslega grundvelli sem títt er í
Noregi og til hefir verið vitnað.
Hefði hjer verið þannig ástatt,
að fleiri eða færri af eftirtöldiim
stofnunum og fjelögum hefði
vantað þak yfir höfuðið og
viljað slá sjer saman um skrif-
stofubyggingu: — Samband ísl.
samvinnufjelaga, Sláturfjelag
Suðurlands, Búnaðarbankann,
M j ól k u rsamsölu m, B ún aða r-
fjelags íslands og fleiri mætti
telja, — þá hefði verið tilvalið
að byggja fíœndahöll sem öllum
hlutaðeigandi aðilum til hags-
bóta.
Sem betur fer getum vjer
sagt, eru þessir aðilar allir,
nema B. í. búnir að eignast
húsakyiiHÍ til sæmilegrar fram-
búðar, og munu því ekki eiga
neina samleið um að koma upp
stórbyggingu til sameiginlegra
eigin nofci.
Eigi að síður væri ekki nema
gott eitt um það að segja ef
þessir aðialr tækju höndum sam-
an um að koma upp gistihúsi í
höfuðborginni, er auk þess að
bæta úr brýnni almennri þörf,
verði sjerstaklega reist með það
fyrir augum að greiða fyrir
bændum og sveitafólki sem á er-
indi til Reykjavíkur.
Sömuleiðis er vel farið ef B.
I. vill hafa forustu um þetta
góða mál, þótti jeg sje ekki einn
um þá skoðun, að öðrum aðilum
standi það ennþá nær, og sann-
gjarnara sje að krefjast átáka til
úrlausnar úr annari átt. það er,
frá þeim viðskiptastofnunum er
mest fara með afurðasölu fyrir
landbúnaðinn og viðskiptamál
hans yfrrleit, og hafa þannig all-
mikið fje i veltunni.
En hversu sem til tekst um
þetta, utn gistihúsbygginguna,
má það ekki eiga sjer stað að
hún verði til þess að hindra fram
gang þess að husnæðismál B. í.
verði leyst á viðunandi hátt. Og
sist af öllu má það eiga sjer stað
að Búnaðarþing og Búnaðar-
fjelag íslands verði, með því að
blanda saman tveimur svo ó-
skildum málum sem húsnæðis-
máli fjelagsins og gistihúsmál-
inu, til þess að tefja heppilega
lausn hins fyrrnefnda. .
XI.
Aðstaða er ekki fyrir hendi til
að byggja í höfuðborg landsins
hús eða höll bændanna. er
rúmi á einum stað skrifstofur
þeirra viðskiptafyrirtækja er
bændurnir eiga í borginh'i, bún-
aðarbankann, o, fl., og lofa B. í.
að njóta góðs af um aðstöðu og
húsakost. Þessi aðilar búa svo
vel að það er ekki þörf á slíkri
stórbyggingu. Aftiír á mót.i er
hjer mesta nauðsyn og um leið
auðveldlega kleift, að koma upp
góðri Búnaðarbyggingu á ghesi
legum stað, þar sem saman verði
safnað undir einu þaki með B.
f. sem megin aðila öllum þeim
búnaðarskrifstofum er starfa
að einhverju, mestu- eða öllu
leyti á vegum ríkisins.
Þetta er auðvelt ef B. í. og
landbúnaðarráðuneytið taka
höndum saman um *málið, og
hinn fyrirnefndi aðdi nýtur
fulls stuðnings hins síðarnefnda,
sem þess aðila er öll slík mál
verða að lokum mestu. Slíkt
samstarf ætti að vera auðvelt,
slíkur stuðningur og forusta auð
fengis,
Ef skjótt’ er við brygðið og
vel á háldið, er Hægt að hefja
framkvæmdir um byggingu Bún
aðarbyggingarinnar, á horninu
ádngólfsstræti og Sölvhólsgötu,
innan tveggja mánaða. Hún
getur verði kornin undir þak í
haust, og B. í. og fleiri aðilar
flutt 1 bygginguna vorið 1948.
Þetta er góður kostur og betri
en að bíða eftir öðrum, sem ekki
verður sjeð að sje í neinu betri
nema ef telja skal þann hje-
góma, að B. í. eigi enclilega að
reisa eigin byggingu á eigin lóð
og að ríkið og ríkisstofnanir
megi þar hvergi ’nærri koma
(nema að leggja til lóð og styrk
úr ríkissjóð).
Ef það er ákveðin ætlun for-
ráðamanna B. í. — og það
skylc^ enginn efa — að ætla
hinu aldna fjelagi, að vinna um
ókomin ár af festu og alúð, að
málefnum bændanna, og ef það
ei” trú þeirra og sannfæring að
sú starfsemi þurfa að vera
studd fullri forsjá og henni
stjórnað frá varanlegum víg-
stöðvum, ættu þeir að nota það
tækifæri er nú býðst' til að leysa
húsnæðisiHál B. í. með mikilli
sæmd. Verði það gert auðvel-
legar og betur, og um Ieið jafn-
fljótt, á annan hátt en þann sem
hjer hefir verið bent á, ber að
sjálfsögðu að hafa það er betra
reynist. Sje eigi svo, ætti að
mega nýta tillögur þær. er lijer
hafa verið framsettar, þótt þær
kunni að brjóta nokkuð í bága
við hugmyndir er áður hafa
verið uppi um lausn málsins, án
þess þó að þeirn hafi unnist það
fylgi, og svo fast hafi verið á
haldið, að til úrræða drægi.
Sje það ofsagt að mál þetta
þoli enga bið, er þó fullljóst, að
bið verður ei til bóta, Betra
hefði verið að byggja í fyrra eða
í ár, heldur en að eiga það eftir
næsta ár, og skárra verður að
byggja næsta ár heldur en að
fresta því um óákveðinn tíma
og vita þó að því verður ekki
frestað nema skamma stund.
XI.
Lóðin sém B. í. eí búið að
fá við Sölvhólsgötu týnist von-
andi ekki þótt B. I. byggi ekki
á henni í bráð, en verði í þess
stað meðeigandi í Búnaðar-
byggingu á hornlóðinni vestan
við.
Vonandi koma síðar dagar og
ríð að koma upp hinu umræddu
gistihúsi. Mætti þá ef til vill
velja því stað á lóð B. J. við
Sölvhólsgötu gegnt S. I. S., ann-
ars staðar á lóðinni kemur vart
til greina að reisa gistihús. Fyrr
má rota en dauðrota, og minna
má gagn gera en 100 manna
gistihús. Götuhlið lóðarinnar
við Sölvhólsgötu er 30 m. Til
samanburðar má nefna að götu-
hlið Hótel Borg við Pósthús-
stræti er tæpir 30 nj-d °g
Hótel Borg rúmar 60— 65 gesti
til gistingar.
Það er kominn tími til, að
hugmyndin um gistihús ,,i sam-
bandi við“ skrifstofubyggingu
B. í. verði látin devja drottni
sínum, (ef að nokkurn tíma hef-
ir átt að taka hana bókstaf-
lega). Það væri sannarlega nógu
náið „samband“ að hafa gisti-
húsið“ í næstu byggingu. Kcm-
ur nokkrum manni til hugar að
Iv. E. A. myndi telja Hótel fje-
lagsins bétur komið í sömu
byggingu sem skrifstofur fje-
lagsins eru í, heldur en þar sem
það er í öðru húsi i nágrenninu?
Það er ekkert last um íslenska
bændur, nje starfslið B. í., þótt
þess sje til getið, að hjer í landi
kunningsskaparins, væri lítil
starfsbót að því, að hafa sem
mest „innangengf* úr 100
manna gistihúsi í - skrifstofur
Búnaðarfjelags íslands.
Saman það sem saman á í
góðri og glæsilegri Búnaðar-
byggingu og byggjum hana án
tafar. Hótelið getur komið sið-
ar þegar samkomulag, kringum-
stæður og kraftar leyfa.
10. mars 1947
Arni G. Eylands.
Lítið á húsgögnin hjá okkur!
Stofuskápar (mikið úrval)
Bókaskápar,
Sængurfataskápar,
Sófaborð,
Plötuskápar með spilara
og margt fleira.
HÚSGÖGN CO., Smiðjustígi 11.
Þeir, sem vilja vita fyrirfram hver verða
endalok hinnar örlagaríku Moskvaráðstefnu,
sem nú stendur yfir, ættu að lesa greinina
6. ágúst 1947
eftir Jónas Guðmundsson í nýútkomnu hefti
af Dagrenningu. — Fæst í bókaverslunum. —
JJiman
tJ U)c
'a^renntng.
Reynimel 28. — Sími 1196.