Morgunblaðið - 15.06.1947, Page 12

Morgunblaðið - 15.06.1947, Page 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói NORÐAUSTAN KALDI. 'ýpkomulaust. REYKJAVÍKURBRJEF er 5 bls. 7. — 132. tbl. — Sunnudagur 15. júní 1947. Gamli Gullfoss getur flutt 175 farþega GULLFOSS, fyrsta skipið, «em Eimskýpafjelag Islands eignaðist, er nú í eigu „Skipa- fjelagsins Foroyar“ í Þórshöfn. Hefir gagngerð viðgerð, sem hefur kostað miljónir króna, farið fram við skipasmíðastöð Svetsmekano í Gautaborg. — Er skipið orðið eins og nýtt og hef- ur nú annað nafn. Kallast það „Tjaldur“. „Tjaldur“ lagði af stað í fyrstu ferð sína 10. maí s.l. og hófust þar með fastar áætlun- arferðir fjelagsins milli Kaup- mannahafnar og Þórshafnar. — Skipstjóri er Færeyingurinn Eiríkur Mohr. Astæðuna til þess, að Gullfoss hefur gengið að fullu úr hönd- um Islendinga, verður að rekja beint til hernáms Þjóðverja í *I>anmörku. Átti skipið að leggja frá Kaupm.höfn til íslands 9. apríl 1940, en sama morguninn hertóku Þjóðverjar borgina og a,Igeru samgöngubanni var komið á til íslands. Gullfoss lá lengi kyr í Höfn, en svo fór að lokum, þegar farið var að sverfa að Þjóðverjum, að þeir gátu ekki lengur á sjer setið, tóku skipið eignarnámi og not- uðu það til flutninga. Svo vissu menn ekki meira um Gullfoss, uns hann loksins fannst eftir stríðslok á höfninni í Kiel. Var það ætlun þýsjfra hervalda að sökkva honum, til þess að hann kæmi engum að notum. Af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum fórst það fyr ir, en ekki var annað hægt að segja, en að skipið væri hræði- lega útleikið. Hafði allt lauslegt verið úr því rifið, bæði af þýsk- um hervöldum og þjófum og þorpurum, sem í upplausninni í stríðslok höfðust við í flak- inu. Heilir veggir voru rifnir úr því, göt skotin á gólf og stoðir, dúkar rifnir og tættir, rúður brotnar, allar leiðslur rifnar burtu og alit eftir þessu. Þannig leit Gullíoss út, þeg- ar hann fannst og þeir Pjetur Guðmundsson og Baldvin Ein- aisson o. fl. keyptu hann af tryggingarfjelaginu og vildu reyna að færa hann aftur heim til Islands. En ekkert varð úr því, neyddust þeir því til að selja hann aftur og komst hann þá í eigu skipstjóra eins í Gautaborg, Gustavs Bartley, er Um þetta leyti vildi það til í kom honum í viðgerðina. Færeyjum, að helæsta flutninga skip Færeyinga, „Tjaldur“ strandaði og sökk. Olli það mikl um flutningaörðugleikum í eyjunum, og reyndi Skipafje- lagið að ná sjer í annað skip hið fyrsta. Komst það að samning- ura. við Bartley skipstjóra um kaup á Gullfossi. A5 utanverðu er sqmi tign- arlegi svipurinn yfir skipinu og inni í sölum þes virðist allt vera mjög fullkomið, bæði skreyting og þægindi. Matsalur á fyrsta farrými er klæædur innan með mahogni, reykinga- Viðgerð hans kostaði Færeyinga miljónir kr. Þessar mymli r eru teknar í hinum glæsilegu sölum Tjalds. Efri myndin er tekin í borðsal fyrsta farrýmis, en neðri myndin í reykingasalnum. salur með álmviði og í honum mjúkir hægindastólar og legu- bekkir í sámhæfðum litum. Ný þilför hafa verið- lögð og í brúnni er að finna fullkomin stjórntæki svo sem bergmáls- dýptarmæli. Má á öllu sjá, að skipafjelagið hefur ekkert til sparað, að skipið verði sem vandlegast úi* garði gert. Á fyrsta og öðru farrými komast 30 farþegar. en ef mikið liggur við, getur það tekið 175 farþega. Margir íslendingar muna enn þann atburð, þegar Gullfoss sigldi í fyrsta sinn inn á Reykja víkurhöfn 16. apríl 1915. Eng- inn, sem þar var viðstaddur, getur gleymt þeirri hátíðlegu stund. Það veldur okkur von- brigðum, að nú á hann að hætta að sigla undir íslenskum fána, en nokkur bót er það í missi okkar, að hann hefur ekki far- ið langt frá okkur. Gullfoss á nú heima hjá þeirri þjóð, sem er náskyldust okkur allra þjóða og þar mun hann gegna sama hlutverki og hjer, að sanna að Færeyingar geta lifað sem frjáls og óháð þjóð, án dahskrar íhlutunar. Við óskum þess, að hann verði sama happasæla skipið og hann var, þegar íslenskar hendur hjeldu um stjórnvöl- Vísitalan greidd niður um 55 stig NIÐUPvGREIÐSLAN á vísitöíunni nemur nú samtals 55 stigum, segir í frjettatilkynningu frá Viðskiptamálaráðuneyt- inu. Va»ri hún nú 365 stig, ef engar slíkar greiðslur áettu sjer stað. Allur kostnaður við niðurgreiðsluna er greiddur úr ríkis- sjóði. Ræflum flofamál í Camberra Louis Denfield, aðmíráll, yf- irmaður bandaríska flotans, er kominn til Canberra til að ræða um útlitið á amerísk-breksri samvinnu um flotamál. Aðmír- állinn kom til borgarinnar í sama mund og Butler; ameríski sendiherrann, kom aftur frá Washington að loknum viðræð- um við Truman forseta um svipuð máleíni. Þessir menn munu nú bráðlega hefja við- ræður við Chiíley, forsætisráð- herra og háttstandandi herfor- ^ ingjaráðsmenn. — Kemsley. Bærinn starf- rækir leikskóla Á FUNDI bæjarráðs á föstu- dag skýrði borgarstjóri frá því, að Reykjavíkurbær hefði látið Eesta húsnæði í gamla Stýri- mannskólanum og Málleysingja skólanum fyrir leikskóla í sum ar. í skóla þessum verða um 60 börn á aldrinum 2—5 ára. Forstöðukona fyrir leikskól- anum í Stýrimannaskólanum hefur þegar verið ráðin og er það frú Guðrún S. Stephensen. Fundur bæjarráðs ákvað að bærinn skyldi taka sömu mán- aðargjöld og tekin eru í leik- skólum Sumargjafar, en það eru kr. 60,00 fyrir tveggja ára börn og 75,00 fyrir 3—5 ára börn. Ekki er vitað hvenær leik- skólar þessir taka til starfa, en það mun verða eins fljótt og þess er nokkur kostur. Tónlistarhálíðin heldur áfram a morgun TONLISTARHATIÐ Tónlist- arfjelagsins heldur enn áfram og nær hámarki sínu á mánu- dags- og miðvikudagshljóm- leikum, er hinir ensku snill- ingar og úrval íslenskra tón- listarmanna sameinast Busch- kvartettinum. Á mánudagskvöld verður leikinn Oktett Schuberts og á miðvikudagskvöld Septett Beet hovens. Oktettinn er stærsta og veigamesta verk Schuberts. — Skrifað fyrir átta einleikara. — Septett Beethovens er eitt merkilegasta stórverk hans, ekki fyrir það fyrst og fremst hve veigamikið það er á strang asta mælikvarða, heldur hve fljótt það nær eyrum allra. Námskeðð í hand- VANDRÆÐI FLOTTAMANNA BERLÍN: — Bandarískur em bættismaður hefur skýrt frá því, að Júgóslavar ákæri nú Bandaríkjamenn og Bréta fyr ir að leyna júgóslavneskum kvislingum á hernámssvæðum sinum og sje það þáttur í til- raunum þeirra til að halda er- lendum flóttamönnum frá því að hverfa heim. NÝLOKIÐ er á Sauðárkróki knattspyrnu- og handknattleiks námskeiði. Þátttakendur voru úr Umf. Tindastóll, 75 piltar og 55 stúlkur, eða alls 130. Námskeiðið stóð yfir í mán- uð og var árangurinn ágætur. Kennari var Ax.l Andrjesson, sendikennari ÍSÍ, en hann er nú á förum til ísafjarðar, þar sem hann mun halda námskeið. Niðurgreiðslurnar skiptasf- niður á hina ýmsu vöruteg-< undir, sem hjer segir: 1. mars var verð á kjöti lækk að um kr. 1,00 pr. kg. og verð á kartöflum um kr. 0,30 pr. kg. Verðlækkun þessi svarar til 6,3 vísitölustiga. 1. apríl var verð á kjöti lækk að um kr. 1,00 pr. kg. Þessi verðlækkun svarar til 3,7 vísi- tölustiga. 1. júni var verð á smjöri út á skömmtunarseðla lækkað um kr. 4,00 pr. kg., verð á smjör- líki um kr. 2,50 pr. kg. og verð á kartöflum um kr. 0,15 pr. kg., sem samtals svarar til 6 vísitölustiga. Samtals nema þessar niður- greiðslur því 16 vísitölustigum og mundi því vísitalan nú vera 326 stig, ef þær hefðu ekki komið til framkvæmda. Auk þess var kjöt, mjólk og' kartöflur áður greitt niður sem svaraði 33,4 vísitölustigum. Þá befur loks verið keypt ís- lenskt smjör til afhendingar gegn skömmtunarseðlum á sama verði og áður. Svarar sú niðurgreiðsla til 5,6 visitölu- stiga. Verfcamenn íBorg- arnesi mólmæla verfcfallsboði . VERKAMENN í Borgarnesi hafa nú risið upp gegn hinni kommúnistísku stjórn verka- lýðsfjelagsins þar og trúnaðar- ráði, sem boðað hafði samúðar- verkfall með hinu pólitíska verk falli Dagsbrúnar í Reykjavík. Verkamenn, sem voru ó- ánægðir með þessa verkfallsráð- stöfun, hafa safnað undirskrift- um með eftirfarandi tillögu: „Við undirritaðir fjelagar í Verkalýðsfjelagi Borgarness -mótmælum eindregið'að stofn- að verði til samúðarverkíalls eða annarra slíkra ráðstafana af hálfu Verkalýðsfjelagsins vegna kaupdeilu þeirrar, er nú stendur yfir milli Verkamanna- f jelagsins Dagsbrúnar og Vinnu veitendaf jelags íslands, þar sem við teljum að nú þegar sje dýr- tíðin í landinu svo mikil, að Tiagsmunum verkamanna og annarra stjetta stafi stórhætta af, og verðum því ekki þátttak- endur í neinum þeim aðgerðum, sem auðsjáanlega stefna að aukningu hennar.“' 76 verkamenn höfðu undirrit- að þessa tillögu í gær, en í fje- laginu eru 150—160 manns, en margir þeirra eru ekki í kaup- túninu nú. Fundur verður hald- inn í fjelaginu í dag, þar senf þessi mál verða rædd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.