Morgunblaðið - 25.06.1947, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. júní 194/j ]
Síðustu fregnir af verkfaB9smálunuiii:
Kommíffiistar vilja langt verkfaii
— Tofið fyrir Fjelogsdómi —
Styrktirstarfsemi Oagskánar —
„Fasisminn“ í augum kommúnista
Þaö er áþreifanlega komið í
Ijós, sem giskaö var á hjer í
blaöinu á dögunum, aö komm-
únistar vilja hafa langt verk-
fall í Dagsbrún.
Meiníu ekkcrt með
kröfunum.
Eftir að verkfallið hófst, var
letrað utan á Þjóðviljann með
prentsmiðjunnar stærsta letri
að Alþýðusambandið eða hin
kommúnistiska stjórn þess,
gerði þá kröfu, að verkfallinu
yrði lokið tafarlaust.
í framt að því hálfan mánuð,
birti Þjóðviljinn skammir og
skæting út a£ því, að aðilar töl-
uðu ekki saman, að verkamenn
væru ekki virtir viðtals og þar
fram eftir götum. En þegar á
Jþað var bent, að svo virtist sem
þar fylgdi ekki hugur máli, því
ekki hefði formaður Dagsbrún-
ar borið fram neinar óskir um
samningaumleitanir, þá þagn-
aði Þjóðviljinn við.
A fundinum.
Þaö vékur algeg sjerstaka
eftirtekt, aö þegar stjórn Dags-
brúnar kallar saman fjelags-
fund eftir hálfsmánaöar verk-
fall, þá er þar engin ósk borin
fram um þaö, aö samningum sje
hraðað.
Svo lítil alvara hefur verið
á bak við kröfu Þjóðviljans um
„tafarlausa samninga“, að hún
er gleymd þegar á fjelagsfund
kemur.
Að þessi krafa var látin koma
fram í Þjóðviljanum fyrstu
daga verkfallsins, var skiljan-
legt, vegna þess að þegar fje-
lagsmenn greiddu um það at-
kvæði, hvort leggja ætti út í
verkfall eða ekki, þá sögðu allir
áróðursmenn Alþýðusambands-
stjórnarinnar, að verkfallið
myndi aldrei standa nema einn
eða tvo daga.
En þá hafa forsprakkar komm
únista í Dagsbrún verið búnir
að koma sjer saman um, að best
færi á því, fyrir þá að haga sjer
þannig að verkfallið yrði sem
lengst.
Frá Siglufirði.
• Annað hefur komið fram í
verkfallsmálunum, sem ber þess
ótvíræðan vott að kommúnistar
vilji að lausn vinnudeilunnar
dragist.
Mál Þróttar á Siglufirði var
lagt fyrir íjelagsdóm á mánu-
dag, sama daginn sem fundur-
inn var haldinn í Dagsbrún.
Eins og lesendum blaðsins er
kunnugt, horíir það mál þannig
við, að í vinnudeilu þeirri, sem
reis milli verkamannafjelagsins
Þróttar á Siglufirði, og síldar-
•verksmiðja ríkisins, bar hjeraðs
sáttasemjari fram miðlunartil-
lögu. Kommúnistar á Siglufirði
bjuggust við því, að tillaga sátta
semjara yrði samþykt orða-
laust, ef þeir beittu ekki þeim
ofbeldisaðferðum, sem þeirra er
venja, bæði hjer á landi og ann-
arsstaðar. Foringjar kommún-
ista á Siglufirði finna það nú
út, að atkvæðagreiðsla sú, sem
sáttasemjari hefur efnt til, sje
ólögleg, og fjelagsmenn í Þrótti
eigi að hundsa hana.
En atkvæðagreiðslan fór fram
hvort sem kommúnistum lilíaði
betur eða verr. Og með því að
þar var samþykt, með yfirgnæf-
andi meirihluta að fallast á
miðlunartillögu sáttasemjarans,
þá lítur stjórn síldarverksmiðja
ríkisins svo á, að engin vinnu-
deila sje lengur milli Þróttar og
síldarverksmiðjustjórnarinnar.
En Þróttur á Siglufirði haml-
ar fjelagsmönnum frá vinnu,
vegna þess að atkvæðagreiðsl-
an fór ekki eins og kommúnist-
ar vildu og fjelagsstjórnin fjekk
meirihluta á fjelagsfundi til
þess að samþykkja traustsyfir-
lýsingu til sín, alveg út í loftið.
Reyna að tefja
Fjelagsdóm.
Alþýðusamband íslands hef-
ur útnefnt Ragnar Ólafsson
málaflutningsmann sem full-
trúa sinn í dómnum. Hann ósk-
ar eftir að fá frest í málinu til
þess að kynna sjer framlögð
skjöl. Og er ekkert til þess að
segja.
En eftirtektarvert er þaö, aö
hann óskar eftir svo löngum
fresti aö ekki kemur til mála aö
veita svo langan frest í máli,
sem er aökallandi, aö úr veröi
skoriö sem fyrst.
Eftir allmikið þjark, varð það
að samkomulagi, að fulltrúi Al-
þýðusambandsins í Fjelagsdóm-
inum ljeti sjer nægja frest til
laugardags.
En meö því aö hafa frestinn
svo langan, er þaö víst aö úr-
skuröur í málinu fellur ekki
fyrri en í nœstu viku.
Það er gefið mál, að með því
að draga úrslit Fjelagsdóms í
þessu máli á langinn, er verið
að gera sjer leik að því, að tor-
velda lausn Dagsbrúnardeilunn-
ar.
Verkfallsstyrkir.
Á fundinum sem Dagsbrúnar-
stjórnin hjelt á mánudag, var
það aðalverkefni hennar að und
irbúa fjelagsmenn undir fram-
Iengingu á verkfallinu. Þeir fje-
lagsmenn sem eru giftir, eiga
að fá 7 krónur á dag fyrir sig
og konu sína í verkfallsstyrk.
En fyrir hvert barn, sem þeir
hafa á framfæri, eiga þeir að
fá í styrk 5 krónur á dag. Fje-
lagið mun eiga í sjóði eitthvað
nálægt því sem svarar 100 krón-
um á hvern fjelagsmann. Svo
þetta getur orðið nokkur styrk-
ur fyrir þá, sem þurfa fyrir
fjölskyldu að sjá, því einhleypir
fjelagsmenn fá engan gtyrk.
En lítil frambúð er í þessu
fyrir fjelagsmenn alment. Finst
sumu fjelagsmönnum að styrk-
ur þessi myndi verða svipaður
eins og sú lífsafkoma, sem Dags
brúnarmenn fengju, til fram-
búðar, ef foringjar kommúnista
yrðu aðalatvinnuveitendur hjer
í bænum.
Frá Borgarnesi.
Eftir að fjelagsmenn í Verka-
mannafjelaginu í Borgarnesi
höfðu tekið ráðin af kommún-
istum í stjórn þess fjelags, fór
eins og við var að búast, að
Þjóðviljinn sakar verkamenn í
Borgarnesi fyrir það, að þeir
aðhyllist fasisma, og beiti sömu
aðferðum og tíðkaðist meðal
fasista, meðan þeir voru og
hjetu.
Ef kommúnistar bíða ósigur,
og þeir lenda í minnihluta og
tekin eru völdin af þeim, þá eru
þeir menn kallaðir fasistar, sem
taka fram fyrir hendur komm-
únistanna. Þetta er alþekt fyr-
irbrigði.
í Verkalýðsfjelagi Borgar-
ness eru á annað hundrað
manns. — Síðan verkfallsbrölt
kommúnistanna byrjaði, hafa
þeir aldrei getað fengið nema
8 fjelagsmenn með sjer. En það
kalla kommúnistar hið „full-
komnasta lýðræði" að þessir
átta ráði lögum og lofum og
vilji hins yfirgnæfandi meiri-
hluta í f jelaginu verði virtur að
vettugi.
Á föstudag.
Rjett er að taka það fram, að
á fundi þeim, sem fjelagsmenn
hjeldu á laugardaginn var, var
skorað á stjórn fjelagsins að
hún hjeldi fund sem hún boð-
aði til á föstudaginn kemur. Svo
fjelagsmenn gætu þar sagt álit
sitt á gerðum stjórnarinnar.
Annaðhvort er fyrir fjelags-
stjórnina að halda þenna fund,
eða að segja frá sjer öllum af-
skiptum af fjelaginu. Hótanir
þær, sem Þjóðviljinn flytur
Borgnesingum í gær, eru of
barnalegar til þess að nokkur
geti tekið þær alvarlega.
Krefjast aukins
mafarskamfar .
FIMM þúsund verkamenn í
borginni Oldenburgh á hernáms
svæði Breta í Þýskalandi hafa
nú gert verkfall og kref jast auk-
ins matarskamtar.
Fregnir um þetta berast sam-
tímis því, sem tilkynt er, að
fyrsti fundur efnahagsráðs
bresk-bandaríska hernámssvæð-
isins sje um það bil að hefjast.
Fjársöfnun væntanleg
'til íslandsheimilis í Höfn
Heimili handa gamalmennum,
námsfélki o. fi. .
í RÁÐI er að hefja hjer á landi fjársöfnun til styrktar „Bygg-
ingarsjóði íslendinga í Kaupmannahöfn", en sá sjóður var stofn-
aður í ársbyrjun 1945 af löndum í Höfn. Markmið sjóðsins er
að afla fjár til byggingar húss eða til kaupa á húsi í Kaupmanna-
höfn, er verði samastaður íslendinga. Þar er ætlast til að verði
bústaður handa námsfólki, vistarverur handa gamalmennum,
bókasafn, lestrarstofa o. fl.
Norðmenn og Svíar eiga
slík heimili.
Martin Bartels, sem lengi
hefur verið forustumaður í
málefnum Islendinga í Höfn,
skýrði blaðamönnum frá þessu
í gær. Hann gat þess, að Norð-
menn og Svíar ættu í Kaupm,-
höfn heimili, sambærileg við
það, sem Islendingar ætja sjer
að reisa. Lengi hefðu verið á
döfinni fyrirætlanir um að
reisa Islendingahús í borginni,
en aldrei komist verulegur
skriður á málið fyrr en nú. —
Söfnun væri þegar hafin meðal
landa ytra, en sjóðsstjórnin
hefði talið nauðsynlegt að leita
hingað til lands til frekari fjár
öflunar.
Hefur þegar verið kosin fjár-
söfnunarnefnd og er prófessor
Olafur Lárusson, for-
maður hennar. Hann skýrði
frjettamönnum frá því, að
þetta væri í fyrsta skifti, sem
farið væri fram á fjárframlög
til íslendinga í Kaupmanna-
höfn. íslendingar hefðu á und-
anförnum árum verið stórgjöf-
ulír, er safnað hefði verið fje
til e.rlendra þjóða og væri það
lofsvert. En þá væri ekki síð-
ur ástæða til að leggja eitthvað
af mörkum til þessa mikla
nauðsynjamáls, er hjer væri um
að ræða.
Frá fjársöfnun'þessari verð-
ur nánar skýrt hjer í blaðinu,
er hún hefst og er þess að
vænta, að almenningur sýni
skilning og áhuga á málinu.
<s> .......-
Þýskur læknir
sakaður um
stríðsglæpi
Núrnberg í gærkvöldi.
í RJETTARHÖLDUM, sem
nú fara fram hjer í Núrnberg
yfir dr. Wald.emar Hoven, íyr-
verandi yfirlækni við Buchen-
wald fangabúðirnar, heíur hanri
skýrt frá þvi, að einu fangarnir,
sem hann hafi drepið, hafi verið
menn, sem nasistar notuðu til
að njósna um meðfanga sína.
Hovep er einn af 23 læknum,
sem sakaðir eru um að hafa
gert læknisfræðilegar tilraunir
á föngúm. Hann heldur því
fram, að hann hafi verið með-
limur í leynifjelagsskao fanga
í Buchenwald, og að þeir hafi
fært honum menn, sem haldið
var-fram að væru svikarar, til
að drepa þá.
Hoven segist hafa drepið 6Ö,
„svikara" með því að sprauta í
þá eitri.
Margir fyrrverandi fangar*
hafa borið það fyrir Núrnberg-
rjettinum, að Hoven hafi bjarg-
að lífi þeirra og verið meðlimur
í leynifjelagsskap þeirra. 1942
var hann sjálfur sendur í fanga-
búðir, vegna þess að nasistad
grunuðu hann um græsku.
— Reuter,
Nefnd manna fjallar um
leikskóla og dagheimili
í bænum
Á FUNDI bæjarráðs, er haldinn var á mánudag, var kosin
þriggja manna nefnd, til þess að hafa með höndum leikvalla-
og leikskólamál Reykjavíkurbæjar, svo og dagheimila.
Nefnd þessi er skipuð einum®
fulltrúa frá Sjálfstæðisflokkn-
um og er það frú Auður Auð-
uns, öðrum frá Alþýðuflokkn-
um, Jón Axel Pjetursson og
þriðji frá Sósíalistaflokknum,
Sigfús Sigurhjartarson.
Nefndin skal gera tillögur
um framtíðarskipun, staðsetn-
ingu og tilhögun leikvalla, leik-
skóla og dagheimila í bænum.
Þá skal nefndin einnig gera til-
lögur um það, hvaða fram-
kvæmdir í þessum efnum sje
æskileg að ráðast í á næstunni.
í starfi sínu skal nefndiri
hafa samstarf við fræðslufull-
trúa og garðyrkjuráðunaut bæj'
arins.
KJÖTINNFLUTNINGUR
BRETA.
London: — ÁstralíumenrJ
hafa gert áætlun um, að flytjd
200.000 tonn af kjöti til Bret-
lands á þessu ári, en það ei*
mesti útflutningur kjöts fráí
Ástralíu síðan 1940—41.