Morgunblaðið - 25.06.1947, Side 6
6
■:' TWTrp* JWfTfpa
MORGtfWBLAÍiID
Miðvíkudagur 25. júní 1947
ntiMftMfe
Útg.: H.f. Árvakur, Rrykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Ætla þeir að laga
heimsmarkaðinn ?
KAUPDEILA SÚ, sem nú stendur yfir, milli Dags-
brúnar og Vinnuveitendafjelagsins, er á margan hátt sjer-
stæð í sögu íslenskra fjelagsmála.
Fyrst og fremst vegna þess, að kröfur þær, sem fram
eru bornar að þessu sinni, fyrir hönd verkamannanna,
eru ekki gerðar til þess að þeir fái kjör sín bætt.
Meðan kommúnistar hjengu í ríkisstjórninni og töldu
að þeir væru þar ómissandi, sögðu þeir, að nær væri að
auka kaupmátt þess kaups, sem launþegarnir fá í hendur,
heldur en að fjölga þeim krónum, sem fólkið fengi. Því
eftir því, sem kaupið yrði hærra að krónutali, eftir því
yrði kaupmáttur hverrar krónunnar minni.
Það vildi svo einkennilega til, að þar sögðu kommún-
istar satt. Þeir sáu, að svona er þetta. Og þeir viðurkendu
það.
Allt, sem þessir menn hafa sagt, um bætt kjör verka-
manna með því að fjölga krónutölunni í kaupinu, hafa
þeir því sagt, gegn betri vitund.
Kommúnistar segja nú og margendurtaka, að
hækkunarkröfurnar sem þeir hafa gert, fyrir hönd Dags-
brúnarverkamanna, sjeu hinar „sanngjörnustu“. Vinn-
andi menn í landinu geti ekki gert sig ánægða með færri
krónur en þær, sem farið er fram á.
★
Nýlega hefir verið gengið frá viðskiftasamningum við
Breta og Rússa um kaup á miklum hluta af sjávaraf-
urðum okkar í ár.
Það tók allt að heilt missiri að komast að þeim samn-
ingum. En þegar allt kemur til alls, þá er ekki vitað enn,
hve mikið við getum selt þessum viðskiftaþjóðum okkar
af þeim fiski, sem kominn er á land, því sala fer eftir því,.
hvað veiðist af þeirri síld, sem enn er í sjónum og enginn
veit hvar er.
Fái þessar viskiftaþjóðir okkar ekki tilskilið magn af
síldarlýsinu, þá kaupa þær ekki fiskinn, fyrir nálægt því
það- verð, sem það kostar okkur, með núgildandi fram-
ieiðslukostnaði, að framleiða hann.
Þegar síldarlýsið verður ekki lengur til þess að bæta
verðlagið á fiskinum okkar á erlendum markaði, hvað
skyldi þá verða úr því sem kommúnistar prjedika nú
gegn betri vitund, um „sanngjarnt“ og ekki sanngjarnt
kaup á íslandi? Við hvern ætla þeir að sakast ,þegar að
því kemur að engan fisk er hægt að framleiða hjer fyrir
það verð sem fáanlegt er fyrir hann? Ætla þeir að hækka
verðlagið á heimsmarkaðinum til að kippa málinu í lag?
Hve lengi skyldu kommúnistar ætla sjer að láta hinar
’i/innandi stjettir á íslandi bíða eftir því, að heimsmark-
aðurinn lagi sig eftir verðinu á íslenskum afurðum, eftir
að lýsið er ekki orðið eins eftirsótt og það er nú?
★
Nær er að halda, að þeir menn, sem hafa reynt að reisa
allsherjarverkfallsöldu hjer á landi, rjett þegar þjóðinni
hggur mest á að unnið sje, hugsi sjer að vinna það með
verkföllunum og kröfunum um hækkaða krónutölu, að
þegar ekkert verður selt úr landi fyrir framleiðsluverð,
þá verði sem erfiðast að koma þjóðfjelaginu í samt lag
aftur, svo hinar vinnandi stjettir geti haldið atvinnunni
og komist klakklaust út úr vandanum.
Þegar núverandi Dagsbrúnarverkfall hófst, þá voru það
789 fjelagsmenn, sem sáu, að það er augljós óhagur fyrir
verkalýð landsins að kaup sje hækkað í krónutali einmitt
nú. En þó það væru ekki fleiri innan þess fjelags, sem litu
þannig á málið, er augljóst, að fjöldinn allur af verka-
mönnum utan Reykjavíkur hefir áttaað sig á þessu máli
1 tél fulls. Þessvegna fær Alþýðusamband íslands eða hin
kommúnistiska stjórn þess svo óvenjulega kaldar kveðjur
frá mörgum verkalýðsfjelögum víðsvegar um land
'Uíbverji áhri^ar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Er gamli Geysir
gleymdur?
ÞAÐ HAFA MARGIR fund-
ið til þess, að frægð þessa heims
er fallvölt. Enginn heyrist nú
lengur nefna gamla Geysi á
nafn. Er hann dauður úr öllum
æðum, eða bara gleymdur?
Hann hefir fengið skæðan
keppinaut, þar sem Hekla er og
meðan nýja brumið er á henni
má búast við, að hann njóti
ekki jafn mikillrar hylli al-
mennings og áður.
En trúlegt má nú þykja, að
enn sjeu þeir nokkuð margir,
sem halda trygð við hann og
vilji sjá hann í öllu sínu veldi
og ofsa. Það væri því ekki al-
veg út í bláinn, að Ferðaskrif-
stofan, eða Ferðafjelagið til-
kynti hvenær von sje á Geysis-
gosi í sumar, en undanfarin
sumur hefir sá galli verið á, að
það hefir verið farið með það
eins og leyndarmál, er einhver
hefir fengið leyfi til að bera
sápu í Geysi og því færri notið
tignar hans en ella.
•
Öskubuska útvarpsins.
EINN ER SÁ þáttur útvarps-
ins, sem oftast er settur hjá. Er
einskonar olnbogabarn, sem
ekki þykir ástæða til að láta
mikið með. Þó er vafalaust
hlustað jafn mikið, ef ekki
meira á þenna þátt, en marga
aðra, sem betur er tilvandað og
þá fyrst og fremst á sumrin,
bæði vegna þess, að þá er fólk
almennt árisulla og einkum
vegna hins. að þá eru lesnar
veðurfrjettir. En það þykir
nógu gott, að hafa óvana þuli
í þessum þætti, sem hósta og
ræskja sig eins og mæðiveikis-
rollur. Axel Thorsteinss. blaða-
maður, sem best hefir sint þess
um morgunþáttum er víst í fríi.
En er það nokkur afsökun?
•
Bjóðið ekki þjóf-
unum heim.
ÞAÐ MYNDI ÞYKJA heldur
kjánalég auglýsing ef einhver
setti eitthvað á þessa leið í
blöðin:
„Verð fjarverandi í þrjár
vikur. Á meðan er opinn gluggi
í kjallaranum hjá mjer og ef
að vanda lætur hefi jeg skilið
eftir bakdyrnar illa læstar.
Einnig má komast inn um
glugva a stofuhæð með lagi“.
Erj^er það ekki einmitt þetta,
sem svo margir gera, þegar
þeir fara að heiman. Þeir draga
fyrir alla glugga til þess að
sýna, að enginn sje heima, en
gleyma að loka húsinu.
Þetta er að bjóða þjófunum
heim. eins og mýmörg dæmin
sanna.
•
Ætli botninn sje
dottinn úr þeim?
ÞAÐ ÞÓTTU NÚ heldur en
ekki framfarir um daginn í
umferðarmálunum er umferð-
ardómstólnum var komið á. Nú
skyldi engum ökuþrjótum leng
ur líðast að aka of hratt, leggja
bíl sínum lengur en lög stóðu
til og alt átti að vera í lagi.
Ökumenn voru teknir samdæg
urs og lántir sæta ábyrgð, en
sektir hækkaðar til muna.
Vonandi að þetta sje svo enn.
Það er bara éitt, sem fjekk mig
til að efast. í gær stóð bifreið
fyrir framan gangstjettina við
Landsbankann, þar sem slökkvi
liðskrani er. Bíllinn stóð þarna
ábyggilega lengur en hálf-
tíma. En á pósthúshorninu voru
tveir myndarlegir lögreglu-
þjónar að rabba saman lengi,
lengi.
Gaman væri að 'vita hvort
sá er bíllinn átti hefir verið
dreginn fyrir umferðardóm-
stólinn, því vonandi er ekki
botninn dottinn úr honum.
•
Stuttbylgjuútvarp
til útlanda.
EIN BÓLA. sem bólgnar upp
hjá okkur við og við er að það
væri þarft verk, að hafa reglu-
legt stuttbylgjuútvarp til út-
landa frá íslandi til að kynna
landið og segja almennar frjett
ir hjeðan.
Við og við er byrjað á þessu
og því haldið áfram í nokkra
daga^ en svo búið spil. Ætli
það stafi af því, að. ráðamenn
útvarpsins hafi ekki trú á að
þetta borgi sig, eða bara gamla
úthaldsleysið? Hver getur svar
að því.
•
Farfuglarnir koma
heim.
FARFUGLARNIR OKKAR,
listamennirnir, sem sækja út í
lönd til að leita sjer frægðar
og frama koma heim aftur þeg-
ar fer að sumra. Sumir dvelja
langdvölum erlendis og koma
ekki nema á 10—15 ára fresti,
eins og t. d. Nína Sæmunds-
son, sem nýlega er komin heim
eftir langa útivist. Aðrir koma
oftar. Elsa Sigfúss. Einar Krist
jánsson og Stefán Islandi, svo
nokkur sjeu nefnd. En alt er
þetta fólk okkur aufúsugestir,
sem við heimaalningarnir bjóð
um velkomna.
Flaggstangahátíð.
I REYKVÍKINGUR, sem ný-
lega er kominn í bæinn eftir
nokkra daga dvöl úti á ■ landi,
sagði við mig í gær: „Hvað
stendur til í bænum? Á að
( verða, hátíð? og hann benti á
allar flaggstengurnar í Austur-
stræti. við Austurvöll og víðar
í miðbænum.
Nei, vinur. Það stendur ekk-
ert til, það er búið að vera.
Flaggstengurnar eru bara hafð
ar svona auðar í nokkra daga,
og kanski vikur, til að minna
okkur á, að við hjeldum þjóð-
hátíð 17. júní og kanski líka
fyrir bíla til að aka á og
hrekkjalóma til að beygja og
bögla að gamni sínu.
Með öðrum orðum. Það er
bara gamla sleifarlagið.
MEÐAL ANNARA ORÐA . . ..
Heimurinn er aðtýna gultlnu
Eftir Monfy Turner.
ÞAÐ sem líklega er ein-
kenpilegast við gull heimsins,
er að mannkynið er stöðugt að
týna því. Myntfræðingar hafa
nýlega reiknað það út, að af
því 2.000.000 miljón króna
virði af gulli, sem hefir verið
grafí.ð úr móðurjörð síðustu
10000 ár sjeu aðeins 700.000
milj. enn í höndum mannanna.
Það er ótrúlegt að mannkyn-
ið hafi farið svona að ráði sínu,
en svona er það nú samt að nú
verðjjr mannkynið að gera sjer
að góðu þessar 700.000 milj.,
þótt það hafi í raun og veru not
fyrir langtum meira en
2.009.000 miljónirnar.
Etþjer hafið dálítið meira en
stur # iráhuga fyrir hinni sí-
breytilegu skiftingu milli þjóð-
anna og hagfræðilegri aðstöðu
1 þeir^a hverrar fyrir sig. þá
| munuð þjer geta sjeð með því
| að hprfa lítið eitt á bak við
tjöldin, að þessi „einskis nýti“
! málmur er altaf þýðingarmesti
þráðu.rinn í vef menningarinn-
í ar. —
! Gull hefir þann eiginleika
i þrátt fyrir að lítið er hægt að
nota það til hagsýnna hluta, að
það Ulyst alltaf mest þangað,
sem það er öruggast. Þetta
stafgr að öllum líkindum af
hinni miklu ábyrgð, sem fylgir
því íið hafa gull undir höndum.
En- jafnan hefir það farið svo
að heimsverslunin hefir verið
mest þar sem nóg hefir verið
til af gullinu.
Þrátt fyrir skipulagið, sem er
komið á gullmál heimsins. týn-
ist gullið enn á margan Hatt
og er ómögulegt að verjast því
algjörlega. Jafnvel þótt fram-
leiðsla gulls aukist nokkuð
verður hún aldrei mikið meiri
en svo, að hún rjett vegi upp
á móti því sem týnist.
Raunar er ekki farið eins illa
með gullið núna eins og fyrir
um þúsund árum, þegar gull,
sem nú jafngildir 800 milj.
krónum, var notað í þakið á
Sólarmusterinu í Peru og þegar
gerð j/oru þrjú goðalíkneski úr
gulli í hofinu í Níveve.
Þegar bandaríska stjórnin
Ijet .flytja gull, sem jafngilti
18.000 miljón krónur úr stað
til öruggari * geymslustaða,
týndust við núning og veðrun
hvo.rki meira nje minna en gull
fyrir 300.000 krónur.
En auk þess, sem þannig
glatast við eyðslu verða men:
að vera minnugir allra þeirr
sokknu fjársjóða, sem haf
horfið niður á hafsbotn me
gömlu galeiðunum.
Bandaríska myntstofnuni
gerði fyrir stríðið áætlun ur
hvaða leiðir gull heimsins heff
týnst" og er hjer skilgreinin
þess, umbreytt í krónur.
^ Týnt í stýrjöldum 30.000 mil,
í Tapað við núning 10.000 mil;
| Tapað í sjóinn 8.000 mil
Grafið í jörðu 20.000 mil;
Notað í skreytingar
0" skartgripi 46.000 mil',
í notkun við fjár-
málin 50.000 mil.
Hamborg: — Útvarpið hjer í
[ ITamborg tilkynti í dag, að
bresku flotayfirvöldin í Þýska-
; landi hefðu bannað óviðkom-
| andi að fara á land í Helgoland.
i Er þetta gert vegna sprengju-
j hættu, en stöðvar Þjóðverja á
eyjunni voru sprengdar í loít
upp 18. apríl s.I.