Morgunblaðið - 18.11.1947, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.11.1947, Qupperneq 12
12 MORGl) NBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. nóv. 1947 * Attræður: Jónsson, í DAG fyllir áttunda áratuginn inn einn af bænda öldungum þessa lands, Ásmundur Jónsson, bóndi að Krossum í Staðarsveit. Fæddur er hann að Lýsuaal í Staðarsveit og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Jóni Magnús- syni og Guðrúnu Björnsdóttur. Árið 1891 fór hann vinnumaður að Krossum til þeirra Stefáns Jónssimar og Helgu Jónsdóttur, er þá munu hafa verið talin auðugust hjóna vestur þar. — Þremur árum síðar gekk hann að eiga Kristínu, dóttur þeirra, og tók þá þegar við búforráðum og hefur búið þar alla tíð síðan, eða um 53. ára skeið. Þrátt fyrir hinn háa aldur gengur Ásmund- ur enn að störfum, sótti t.d. hey- skapinn s.l. sumar, sem ungur væri. Ásmundur var alinn upp við þröngan kost, og nam það þegar í æsku, að vinna og sparsemi væru þær. dygðir, er hverjum æskumanni myndi heillavænleg- astar til góðs ger.gts í baráttu Jífsins. Hann brá því ekki frá þeim lærdómi, þó að hann tæki við nokkrum efnum, að mæli- kvarða þeirra tíma. Starfið og hagnýtnin hafa því jafnan verið hinn hinn rauoi þráðurinn í öllu hans lííi. Mjer er í barns minni reglu- og hirðusemi bóndans að Krossum. Mannsins, er hvergi mátti vita neinn hlut nema á sín um stað. Jafnframt fyrirhyggju um allt er að búskapnum laut. Þegar Ásmundur hóf búskap sinn voru búnaðarhættir slíkir, sem þeir höfðu verið um alda' raðir. Hús öll á gamla vísu og ræktun lítil. En er árin liðu og Asmundur Krossum kröfurnar breyttust, fylgdist hinn aldni bóndi með. Hann jók hið ræktaða land jarðar sinnar og tók til óspiltra málanna .að byggja hana upp, og eru nú liðin nokkur ár síðan að hann lauk vi/ð að breyta hinum gömlu bygg ingum í nýtísku byggingar, bæði yfir. menn og málleysingja. Er jörð hans því nú með best uppbyggðu jörðum. Um áratugi bar Ásmundur mestu 'oyrðarnar 1 þágu sveitar sinnar, og mun tvímælalaust sá núlifandi manna í sveitinni, er mest hefur greitt til almennra þarfa. Um skeið var hann odd- viti sveitarinnar og gengdi því starfi sem öðru, með sjerstakri samviskusemi. Konu sína misti Ásmundur 1929 og hefur búið síðan með dætrum sínum, • Stefaníu og Maríu. Hún er nú óðum að hverfa af sjónarsviðinu sú kynslóð, sem lifað hefur þá tvenna tímana, að þola fátækt þá og örbirgð, sem hrjáð hefur gengnar kynslóðir um óratíð, og aftur hitt, sem nú er, að flestir hafi gnægð þess, sem lífið heimtar. án þrotlauss erfiðis. Áttræði heiðursbóndinn að Krossum, hefur því án efa margs að minnast, er hann nú lít ur yfir farinn veg, enda þótt gæfa hans hafi verið sú, að vera meira veitandi en þurfandi, á hinni löngu leið. Um leið og jeg þakka afmælis barninu fyrir liðna tíma flyt jeg því innilegustu afmælisóskir mínar. Megi æfikvöldið verða sem lengst og fegurst. Lifðu heill góði vinur. Jóhann Hjörleifsson. Stálu 100 þús. krónum PARlS: — Tveir vopnaðir menn brutust nýlega inn í pósthús hjer í París, bundu tvo starfsmenn, sem þar voru, og komust undan með yfir 100,000 krónur. r*Jdjá(pú ti( a( grœ(a (andicí oCaggi álerj^ i oCand^ræ(i(uijóc ' Sirifítofa -J\iappordíq 2/ Guðftnna Thorlacíus Hjáhnarsdóttir Nú Bebba Litla biöur. Guös blessan, líf 03 friður. Nú huggi hjarta mitt. * Á himhnum heimi yfir mín hjartkær vina lifir. ' Ó, blessa Jesús, barniö þitt. Viö sungum ætíö saman, hve sœlt þaö var og gaman, þá Ijós Guös lýsir veg. í Guðshús oft viö gengum. Guöfinna mín þar fengum viö orö frá Jesú elskuleg. Þú syngur okkar sálma um sólskin, Ijós og jtálrna meö englum, elskan mín. 1 þínu hreina hjarta var himnaríkiö bjarta. Nú ásýnd Jesú skært þjer skín. Minn Guö, þjer þakka af hjarta þá sœludaga bjarta er liföum, Ijekum hjer. Minn vinur, vertu hjá mjer, mig víkja lát ei frá þjer. Minn Jesú, allt jeg þákka þjer. G. Þ. springa Tokyo í gær. BANDARÍSK vopnageymsla í námunda við Yokohama í Japan sprakk í dag í loft upp. Urðu margir sprengingar í vöruhús- um þeim, sem geysiöílugt sprengiefni var geymt í, og eyði- lögðust þau með öllu. Um þúsund tonn af sprengi- efni mun þarna hafa sprungið, en ekkert hefur enn verið um það tilkynt, hvort manntjón hafi orðið. — Reuter. Hflinttingarorð asm- Sfein Sigurðsson STEINN SIGURÐSSON klæð skeri verður jarðsunginn í dag. Hann andaðist eftir stutta legu,- sunnudaginn 9. þ. m. á sjúkra- húsi Hvítabandsins. Steinn sálugi var fæddur 6. apríl 1873 að Friðholti í Þykkvabæ á Rangárvöllum. Hóf hann nám í klæðskeraiðn skömmu /eftir aldamótin hjá þeim meisturunum Friðriki sáluga Eggerts og Renhold And erson. Hann hóf sjálfstæðan at- vinnurekstur á Akureyri 1906, en fluttist þaðan haustið 1908 til Vestmannaeyja og rak hann þar klæðskeraverkstæði til haustsins 1929, er hann flutt- ist til Reykjavíkur með fjöl- skyldu sína, og vann upp frá því á saumastofu Vigfúsar Guð brandssonar af þeirri fágætu trúmensku og dyggð, sem hon- Um var í blóð borin. Steinn sálugi var heill og öruggur í öllu dagfari sínu óg í öllu því, sem honum var trúað fyrir. Skýldurækni hans og ráð- vendni var svo takmarkalaus, að erfitt myndi nú reynast að finna þá menn, sem stæðu hon- um jafnfætis í því eða tækju honum fram Hann vann þrot- inn af kröftum og farinn að heilsu allt til síðustu stundar, og var óhætt að segja, að vilj- inn og trúmennskan ættu þar mestan þáttinn í Steinn sálugi kvæntist hinni ágætu eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Friðriksdóttur 17. okt. A903. Höfðu þau því lifað saman í ástríku og frið- sömu hjónabandi í full 44 ár. Um konu hans má með sanni segja, að hún hafi verið manni sínum traustur og dyggur föru- nautur öll þessi ár, þegar við margskonar erfiðleika og stund um fátækt var að stríða með stóran barnahóp. En heimili þeirra var byggt á þeim kletti, sem eigi bifast, enda ríkti þar trúaröryggi um handleiðslu Drottins, sem aldrei brást. Þau hjónin eignuðust 10 börn og eru 7 þeirra á lífi, öll hin mannvænlegustu og vel af Guði gefin. — Þau eru, Friðrik, bakari á Selfossi, Ásmundur, járnsmiður í Vestmannaeyjum, hin eru öll búsett í Reykjavík, Steinn Sigurðsson. Jóhannes verslunarstjóri, Sig- urður, jámsmiður, Ingolfur prentari, Auður hárgreiðslu- mær og Anna. Minning Steins sáluga geym- ist hjá þeim, sem hann starfaði hjá og svo og hjá öllum, sem kynni höfðu af honum. Blessuð sje minning Steins Sígurðssonar. V. og S. Lýður Guðmundsson hreppsfjóri fimfugur LÝÐUR Guðmundsson, hrapp- stjóri i Sandvík, á fimmtugsaf- mæli í dag. Er þar góðs bónda að geta, sem Lýður er, og heíur Sandvíkurheimilið verið eitt hið traustasta og myndarlegasta í bændabyggð Suðurlands, nú um langan aldur. | Pleldur Lýður þar öllu vel í horfið, er faðir hans, Guðm. sál. Þorvarðarson hvarf frá. Hjá þeim hjónum, Lýð, hreppstjóra og Aldísi Pálsdóttur, er ætíð gestrisni og góðvild að mæta, og víst er, að hlýjar kveðjur og árnaðaróskir sveitunga og ann- ara vína berast þessum sveitar- höfðingja nú á hinum merka af- mælisdegi hans. Kanadiskur njósnari • dœmdur í fangelsi ONTARIO: — Harold Samuel Gerson, fýrverancli starfsmaður hjá vopnageymslunum kanadisku, hefur verið dæmdur í fjögra ára fangelsi fyrir að gera tilraun til að láta Rússum í tje hernaðarleg- ar upplýsingar. 6HUCK5/ A AIM'T BeEN KI4ÍED- UNLE&S 6HE'5> BEEN -V1E6SED! . WHEW1 N’OU Br-A&T- NOU'Vc PLAV6D HAVOC WiTH MS /MAi<E-UP! PARöON ME WHiLE I Í-KET:H LP BACK INií'O CHAl-iACTEK- V WHAT DO YOU HEAR FROM A1V C0A1PETITI0N 7 THE ^ECRETARV WHO LEFT V0U WAITIN6 IN THE > \ LURCH ... _____CÓÆk LINDA’? NOT A WCRD... 6HE MU5T HAVE EEEN 50METHIN6 I - DREAAIED — / \re> A LONö VARN, v YdLDA — HI6H, WlDE AND VV00LV 1 EO/HE OTMER 1ÍMB ~ / r NOW, THEN... BRlNð A BIDDY UP TO DATE 0N YOUR PERSONAL LlFE ! /HV HEART WAZ HIBERNATED 6INCE , I LA$T EAVV Y0U — M w ; gpgljí d'- S 2 i• ,1*1; 1947, Kin^ Icaturt-s S)nJ»cJtc, luc , Vt orlJ ri/jits tcscc^O Wilda: Dóninn þinn, allur varaliturinn er farinn Wilda: Jæja, segðu ipjer hvað skeð hefur, síðan um, sem stakk þig af . . . Phil: Áttu við Lindu? af mjer. Afsakaðu mig meðan jeg mála mig. Phil: Láttu ekki svona. Það er ekki hægt að tala um neina kossa, nema varaliturinn aflagist svolítið. — jeg sá þig síðast. — Phil: Það er of langt mál. Við getum látið það bíða betri tíma. — Wilda: Hvað hefurðu frjett af keppinaut mínum? Einkaritaran- Jeg hef ekkert heyrt frá henni . . . Mig hlýtur að hafa dreymt þetta allt saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.