Morgunblaðið - 25.11.1947, Page 1
Bandaríkjaþing mun sam-
þykkja bráðabirgðarhjálp
handa Evrópu
Vandenberg fordæmir stríðsáróður Rússa
Hjer á myndinni sjest Elizabeth prinsessa á leiðinni til Westminster
'Abbeý. Áætlað er að um tvær miljónir manna liafi verið á götum
■Lundúna til að horfa á prinsessuna og mann liennar.
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ARTHUR VANDENBERG flutti ræðu í dág í öldúngaráðsdeild
Bandaríkjaþings og lagði þar eindregið með því að frumvarpið
um bráðabirgðaaðstoð til Evrópu yrði strax samþykt. Kvað hann
állan drátt á þessu aðeins auka styrjaldarhættuna. í ræðu sinni
fór hann hörðum orðum um áróður Rússa í garð Bandaríkjanna
og sagði Marshall áætlunina alls ekki leiða til verslunarstyrjald-
ar néma því aðeins að Molotov hjeldi áfram að hamra á slíku.
Hjálp til Asíu <
Stjórnmálaritarar líta svo á,
að þessi ræða Vandenbergs nægi
til þess að frumvarpið verði þeg-
ar samþykt þar sem lítil eða
engin mótmæli komu fram í
þinginu. Wayne Morse, öldung-
ardeildarþingmaður frá Oregon,
gat þess að jafnframt þessu
frumvarpi ætti að bera fram
annað sem gerði ráð fyrir álíka
hjálp til handa Kína, Filipps-
eyjum og Kóreu. Komst hann
m. a. svona að orði: „Við getum
ekki með góðu móti beint aug-
unum aðeins að Evrópu meðan
kommúnistar reyna að slá hring
um okkur í Kyrrahafinu“. Hann
dró og mjög í efa hina svoköll-
uðu ,,hlutleysisstefnu“ stjórnar-
innar í garð Asíu.
y
Rómaborg í gærkvöldi.
VERKFÖLLUM á Suður-Ítalíu
er nú að mestu leyti lokið. Hafa
verkamenn 1 Bari meðal annars
tekið upp vinnu á ný, og til
engra óeirða kom í dag.
stúdenta 1. des.
HIÐ nýskipaða Stúdentaráð
Háskólans, sem annast allan
undirbúning að hátíðahöldum
stúdenta 1. desember n.k. hef-
ur nú lokið öllum aðalundir-
búningi.
Eins og að venju, hefjast há-
tíðahöldin með skrúðgöngu
eldri sem yngri stúdenta frá
Háskólanum kl. 1,30. Gengið
verður um Suðurgötu og að
Austurvelli. Þar flytur ræðu
af svölum Alþingishússins próf.
Ásmundur Guðmundsson.
Að lokinni ræðu próf. Ás-
mundar, verður hlje á hátíða-
höldunum þar til kl. 4. — Þá
hefst samkoma í hátíðasal Há-
skólans. Þar flytja ræður próf.
Guðmundur Thoroddsen og
próf. Sigurður Nordal.
Um kvöldið verður svo stú-
dentasamkoma að Iiótel Borg.
Þar mun dr. Sigurður Þórar-
insson flytja ræðu.
Fundur utunríkisruðherru
fjórveldunnu hefst í dug
100 sðuðkindur
farast ú
Kópasker
SÍÐASTL. laugardag drukn
uðu um 100 sauðkindur í sjón-
um, skammt frá bænum Snart-
arstaðir við Kópasker. Sauð-
kindurnar voru frá þessum bæ
og áttu þær bræðurnir Guðni
og Sigurður Ingimundarsynir,
er bar búa.
Jörðin Snartarstaðir er góð
sauðiörð og gengur fje þar úti
mestan hluta árs, þó því sje
gefið mðe fjörubeitinni, sem
þar er. — Á föstudag var veð-
ur sæmilegt og var fjeið á beit
ífjörunni eins og vant var. —
Þegar leið á nóttina tók veð-
ur rrjög að versna með mikilli
fannkomu og stóð vindur af
landi.
60 kindur flæddu. 5
Þá um nóttina var fje í mó-
unum fyrir ofan fjöruna og
mun það hafa hrakið undan
veðrinu fram í fjöruna, en þar
var lágsjáva. Þegar flæða tók
mun veðurofsinn hafa verið
svo mikill og ófærðin, að fjeð
mun ekki hafa haft sig undan
flóðinu og á þarih' hátt munu
um 60 sauðkindur hafa farist.
Snjóflóð tók 40 kin^ur.
Við Snartarstaðarnúp standa
fjárhúsin frá Snartarstöðum.
Um nóttina skall snjóflóð yfir
fjárhúsin frá Snartarstöðum.
Um nóttina skall snjóflóð yfir
þau og álíta menn þar að snjó
flóðið, sem fór í sjó fram, hafi
tekið með sjer 40 kindur. -
Annars er þessi mikli fjárskaði
ekk.i enn fullkannaður. Þeir
bræður Guðni og Sigurður hafa
misst þarna milli 30 og 40% af
bústofni sínum.
Brúðarkjól! Elísa-
betar
Brúðarkjóll Elizabetar vakti mik-
ið umtal í tískuheiminum. Má
telja fullvíst, að þeir verði ekki
fáir, sem stæla kjól prinsessunnar
----------» <,-<—:-
Tyrone Power kosinn
í stjórn fjelags kvik-
myndaieikara
FJELAG kvikmyndaleikara
Ameríku hjelt nýlega fund og
var bá kosin ný stjórn. Forseta-
kosningu hlaut leikarinn Ron-
ald Reagan én meðstjórnendur
voru kosnir Tyrone Power, Ed-
ward Arnold, Van Heflin, Dana
Andrews, Anne Revere, Dan
Duryea og Charles Bickford.
Aðrir stjórnendur voru kosnir:
Walter Pidgeon, Gene Kelly og
William Holden. Gjaldkeri var
kosin Olivia De Havilland, en
ritarastöðina hlaut Leon Ames.
Eitt atriðið á stefnuskrá fjelags
ins er útrýming kommúnism-
ans.
Ógnarástand í fangabúðum Rússa
75 deyja daglega við Muehlberg
Frankfurt í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FRANZ HOLLER, einn af þingmönnum fylkisins Saxon-Anhalt
á hernámssvæði Rússa í Þýskalandi, tjáði frjettamönnum í dag, að
að minnsta kosti 75 manns Ijetu nú daglega lífið í fangabúðunum
við Muehlberg í Austur-Þýskalandi.
Flýði Rússa ®
Holler er nýkominn til her-
námssvæðis Bandaríkjanna. —
Skýrði hann frjettamönnum frá
því, að hann hefði flúið, þar sem
hann óttaðist það að verða hand-
tekinn af rússnesku leynilögregl
unni.
ráðstefna
MONTE VIDEO: — Dagblaðið
Pais sagði í dag að ráðgert hefði
verið að kommúnistaflokkar
Suður-Ameríku mundu koma
saman þar í borg til þess að minn
ast hundrað ára afmælis útgáfu
bókar Karl Marx, Commumst
Manifesto.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Bandaríkjanna, Rússlands og
Frakklands eru nú komnir til
London, en þar mun á morgun
(þriðjudag) hefjast fundur ut-
anríkisráðherra fjórveldanna.
Hafa bæði Molotov og Mars-
hall þegar rætt við Bevin
breska utanríkisráðuneytinu,
en Bidault — franski utanrík-
isráðherrann — kom síðastur
og mun hitta Bevin á morgun,
áður en fundir hefjast. Mikil
eftirvænting er yfirleitt ríkj*
andi yfir ráðstefnu ráðherr-
anna, enda flestir sammála um,
að árangur hennar sje ákaflegg
mikilsverður.
i
Osamkomulag.
Ekki er hægt að segja. að
mikil bjartsýni sje samfara
hinni nýju ráðstefnu utanríkis-
ráðherranna. Hafa fulltrúar
þeirra verið á fundum að und-
anförnu, en svo til ekkert sam
komulag náðst — fulltrúarnir
jafnvel ekki getað komið sjer
saman um dagskrá fjórvelda-
fundarins. Er aðaldeilumálið í.
sambandi við Austurríki, en.
Bandaríkin, Brétland og Fx’akk
landi vilja að fiiðarsamningar
við Austurríkismenn verði tekri
ir fyrir hið fyrsta. Rússar eru
aftu.r á móti andvígir þessu.
Framtíðin.
Stjórnmálaritarar eru sam-
mála um að þessi fundur utan-
ríkisráðherranna kunni að
valda miklu um framtíðina. Er
yfirleitt litið svo á, að Marshall
muni taka því illa, ef Rússar
reyni að draga málin á langin,
og er jafnvel sagt að hann muni
hafa aðeins stutta viðdvöl í
London, ef Molotov enn einu
sinin geri tilraun til að koma
í veg fyrir það, að bandamenn
gangi frá samningum við aust-
urrísku stjórnina.
T
vinnu-
laun í Frakkiandi
París í gærkv.
NYJA stjórnin franska kom
saman til fjögra klukkustunda
fundar í dag. Er talið líklegt,
að stjórnin muni fallast á al-
menna launahækkun. en jafn-
vist er að hún reyni í lengstu
lög að láta verðlag og laun
haldast í hendur.
Aðalverkefni stjórnarinnar
er auðvitað að leysa verkfalls-
málin, en um ein miljón manna
hafa nú lagt niður vinnu £
Frakklandi.