Morgunblaðið - 25.11.1947, Blaðsíða 2
MORGVDiBLAÐlÐ
Þriðjudagur 25. nóv. 1947"
r 2
IÞúsundir manna biða næturlangt á götum Lundúna, til þess að sjá Eliztbeth prinsessu og mann
fcennar á leið til kirkju. Sumt kom með stóla og nesti, eins og sjá má hjer á mvndinni.
Brfn nauðsyn síldarverksmiðju
við Faxafióa
Fjáimálaréherra kveSur Þjóðverja hafa
áhuga fyrir síldarkaupum hjer
S JÁVARÚT VEGSMÁL A-
RÁÐHERRA, Jóh. Þ. Jósefsson
uppiýsti í gær í umræðum um
fcyggingu síldarverksmiðju á
-Akranesi, að fram hefðu farið
máiaumleitanir milli ísiensku
ríkisstjórnarinnar og síldarinn-
flytjenda í Hamborg, hvort
hægt yrði að taka upp aftur út-
fiutring á Faxasíld til Þýska-
lands eins og fyrir stríð.
Eins og kunnugt er, seldu ís-
lendingar Faxasíld í stórum stíl
til Þýskalands fyrir ágætt verð
og á mjög hagstæðan hátt. Var
isíldin flutt beint ut í togurum
þannig. að dálitlu af ís og salti
biandað saman við hana. — í
Þýskalandi var síldin reykt og
jþótti mjög vinsæli rjettur.
Ráðherra upplýsti, að svar
hefði borist frá síidarinnflytj-
cndunum, þar sem þeir óska
mjög að taka upp þessi viðskifti
á ný. Færu nú fram miklar
málaumleitanir af þeirra hálfu
við yfirstjórn hernámssvæðis-
ins um að fá Faxasíld frá ís-
landi, en jeg get ekki á þessu
fctigi fullyrt, hvað úr þessu
verði.
Hefur verið stungið upp á því
a£ okkar hálfu, að skip yrðu
fiend beint hingað upp til að
Eækja síldina, vegna þess að
mjög örðugt væri nð fá íslensk
Bkip til þessara flutninga vegna
liins mikla flutningskostnaðar.
Hefði því komið til mála að
«elja síldina frítt um borð hjer.
Þessu hefur öllu verið komið á
framfæri, en um niðurstöðu er
ekki hægt að fullyrða ennþá.
Umræður þessar spunnust út
ar frv. Pjeturs Ottesen um að
reisa 5 þúsund mála síldar-
yerksmiðju á Akranesi, ef urt
ci íyrir 1. okt. 1948. með full-
komnum útbúnaði, þróm og
fljötvirkum löndunartækjum.
Skal ríkisstjórninni heimilt að
iaka allt að 8 milj. kr. ]án til
fcessara framkvæmda.
I'ríiðar aðstípður nú.
í Pjetur Ottesen flutti ítarlega
(famsöguræðu með frumvarp-
nu. Sagði hann í upphafi ræðu
fiinnar, að með síldveiðunum a
s.l. hausti hefði hafist nýtt tíma
bil í atvinnusögu útvegsins hjer
á landi. Nú hefðu bessar veiðar
hafist á ný og væri magnið enn
meira en á s.l. hausti. Er. erfið-
leikarnir við að hagnýta síldina
væru svo miklir að við svo bú-
ið mætti ekki standa lengur. —
Eina ráðið í þessu efni hefði ver
ið að nota lýsisverksmiðjuna á
Akranesi, en afköst hennár
væru ekki nema 800 mál á sól-
arhring, svo að það nær skamt.
Ennfremur er hún bundin við
lýeisbræðslu og fiskimjölsvinslu
frá áramótum.
Aðalúrræðið hefði verið að
flytja síldina norður til vinslu.
En reynslan væri sú, að þetta
væri mesta neyðarúrræði,
vegna mikils flutningskostnað-
ar og tafa við afgreiðslu veiði-
skipanna.
Vjelar eru til í landinu.
Af þessum ástæðum er frum-
varp þetta fram borið, sagði
Pjetur.
Stærð verksmiðjanna er mið
uð við það, að til eru bræðslu-
vjelar fyrir norðan fyrir 5 þús.
mála verksmiðju, sem eru í eign
Óskars Halldórssonar útgerðar
manns. Veit jeg ekki hvort
hægt er að fá þessar vjelar, en
tel ekki loku skotið fyrir það,
að ríkisstjórnin gæti komist að
samkomulagi um kaup á þess-
um vjelum, eða sarnningar tækj
ust milli Óskars og ríkisstjórn-
arinnar um byggingu verk-
smiðjunnar. Er þetta einasta
leiðin til að hægt verði að koma
upp verksmiðjunni fyrir næsta
haust.
Staðsett á Akranesi.
Flutningsmaður kvað Akra-
nes vera sjerstaklega vel sett
í þessu skyni. í fyrsta lagi lægi
sá staður mjög vel við miðun-
um. í öðru lagi er þar nóg land
rými og hafnarbætur hafa þar
miklar verið gerðar á undan-
förnum árum, og verður þó enn
um bætt á næsta sumri. — I
þriðja lagi er gnægð raforku á
Akranesi nú eftir að Andakíls-
Framh. á bls. 8
Ölfrumvarpinu
vísðð til l. um-
mk með 10:13
í GÆR fór fram atkvæða-
greiðsla um ölfrumvarpið við
1. umræðu. Andstæðingar frum
varpsins ætluðu að reyna að
fella það við 1. umræðu og
koma þannig í veg fyrir að
málið fengi þinglega meðferð
í nefnd. En svo fóru leikar að
samþykt var að vísa málinu
til 2. umræðu með 19 atkvæð-
um gegn 13, en 3. þm. voru
fjarverandi.
Þessir þingmenn sögðu já:
Barði Guðmundsson, Ásgeir
Ásgeirsson, Emil Jónsson, Ey-
steinn Jónsson, Gunnar Thor-
oddsen, Gylfi Þ. Gíslason, Hall-
grímur Benediktsson, Helgi
Jónasson, Ingólfur Jónsson, Jó
hann Hafstein. Jón Pálmason,
Jón Sigurðsson, Jörundur Bryn
jólfsson Ólafur Thors, Sigurð-
ur Bjarnason, Stefán Jóh.
Stefánsson, Stefán Stefánsson
og Steingr. Steinþórsson.
Þessir sögðu nei: Áki Jakobs
son, Einar Olgeirsson, Finnur
Jónsson, Halldór Ásgrímsson,
Hermann Guðmundsson, Jón
Gíslason, Katrín Thoroddsen,
Lúðvík Jósefsson, Páll Þor-
steinsson, Pjetur Óttesen, Sig-
fús Sigurhjartarson, Sigurður
Guðnason og Skúli Guðmunds-
son.
Fjarverandi voru: Sigurður
Kristjánsson, Sigurður E. Hlíð
ar og Jónas Jónsson.
Málinu var síðan vísað til
allsherjarnefndar með 17 gegn
8 atkvæðum.
Kommúnistar halda
i
fyrirlestra gegn
Bandaríkjunum
Varsjá.
PÓLSKI kommúnistaflokk-
urinn tilkynnti nýlega að sjer-
stakir fyrirlestrar gegn Banda-
ríkjunum mundu bráðlega hefj
ast. Aðalefni fyrirlestra þess-
ara verður „Amerísk heimsveld
isstefna“. Andrei A. Zhdanov
mun flytja fyrsta fyrirlestur-
inn þegar hann ávarpar þing
Austur-Evrópu kommúnista-
flokkanna í desember.
— Reuter.
Vatnsskatturinn verður
hækkaður vegna nýju
vatnsæðarinnar
Lagt er að hann verði 1 prósent af
iasteignamati,
......
TIL ÞESS að Vatnsveita Reykjavíkur fai staðist undir þeim ut-
gjöldum er henni ber á komandi ári, leggur vatns- og hitaveitu-
stjóri til, að vatnsskatturinn verði hækkaður upp í eitt prócent
af fasteignamati húsa. Tekjur vatnsveitunnar munu hrökkva
skamt til, næsta ár að óbreyttum vatnsskatti og horfur á að
Vatnsveitan muni safna alt að iy2 miljón króna viðbótarskuld
með óbreyttum vatnsskatti.
Morgunblaðið átti í gær tal®
við Helga Sigurðsson forstjóra
vatns- og hitaveitu, um þessa
fyrirhuguðu hækkun. Mál þetta
kom fyrst ívrir fund bæjarráðs
er haldinn var s.l. föstudag, en
á þeim fundi var málið ekki
rætt.
I viðtali blaðsins við Helga
Sigurðsson komst hann m. a. svo
að orði:
Ástæðan
Þessi hækkun, sem jeg legg til
að gerð verði á vatnsskattinum,
er til þess, að standast kostnað
af vegna lagningar hinnar
nýju aðalæða, sem nýlega er
lokið, en hún kostaði rúmar 6
milj. Sömuleiðis á nauðsynleg-
um innanbæjarlögnum, bæði í
nýjar götur og nokkrar æðar er
leggja þarf vegna heilla hverfa,
sem byggst hafa í seinni tíð,
svo sem Laugarneshverfi, Lang-
holts- og Kaplaskjólshverfi. —
Og að lokum vegna sívaxandi
kostnaðar við reksíur og viðhald
vatnsveitunnar.
Innanbæjaraukningin hefur
verið óvenju mikil á síðustu ár-
um, vegna þess hversu margar
nýjar götu hafa verið byggðar.
Hin síðustu ár hefur vatns-
skatturinn ekki hrokkið til að
standast undir þessari aukningu
og rekstri vatnsveitunnar. Hafa
því safnast nokkrar skuldir auk
skulda vegna nýju vatnsæðar-
innar frá Gvendarbrunnum.
Á stríðsárunum hafði vatns-
veitan óvenjulega miklar tekjur
af vatnssölu til skipa, en þær
hafa nú aftur minkað í eðlilegt
horf. Síðan hafa tekjurnar ekki
hrokkið fyrir gjöldum.
Gjöldin 1948
Árlegur vatnsskattur nemur
nú samtals um 600 þús. kr. En
útgjöld vatnsveitunnaar næsta
ár, eru áætlaðar á þriðju miljón.
Af þessu eru vaxtagreiðslur tæp
400 þús., afborgun af lánum
rúm 500 þús., auk afborgana af
skuld við bæjarsjóð. Innan bæj-
araukningin er áætluð 800 þús.
á næsta ári. Rekstur og viðhald
350 til 400 þús. Af þessu er ljóst
að nauðsynlegt er að hækka
vatnsskattinn, svo að tekjur
vatnsveitunnar megi verða 3 til
4 sinnum meiri en nú er.
í
Vatnsskatturinn
í samræmi við þetta er jeg
hefi nú sagt, sagði Helgi Sig-
urðsson, hef jeg lagt til við bæj-
arráð að hinn almenni vatns-
skattur hækki upp í 1% af fast-
eignamati húsa. Áður var hanrs
2 til 3,75%c Flestar byggingar
hafa skattinn 3,75%c af fast-
eignamati, því hann gildir fyrir
íbúðarhús, þar sem fasteigna-
mat er undir 100 þús. kr. Ef
taka skal dæmi: Hús, sem mið-
að er við 50 þús. fasteignamat,
kæmi til með að greiða 500 kr.
í hinn árlega vatnsskatt, en nú
er skattur þessi 175.50. — Hjer
á sjer því stað rúmlega þreföld
hækkun.
Gert er ráð fyrir að auka-
skattur af iðnfyrirtækjum og
þessháttar hækki heldur meira,
en svo aftur vatn til skipa
nokkru minna.
Aðalástæðan til þess að jeg
legg til að vatnsskatturinn verði
hækkaður, er vegna byggingar
hinnar nýju vatnsæðar frá
Gvendarbrunnum. Enda þótt á-
stæða hefði verið til að hækka
vatnsskattinn fyrr, þótti þaö
ekki heppilegt, fyrr en sjeð yrðl
hve kostnaðarsöm hin nýja
vatnsæð myndi verða, sagði
Helgi Sigurðsson að lokum.
Ármann Reykjavíkurmeistari í
handknattleik kvenna oy karla
HANDKNATTLEIKSMÓTI Reykjavíkur lauk s.l. sunnudag með
sigri Ármanns bæði í meistaraflokki karla og kvenna. I. flokk
karla vann ÍR, Víkingur II. flokk karla og KR III. flokk. II. flokk
kvenna vann Fram.
í meistaraflokki karla vann
Ármann alla sína leiki og hlaut
10 stig. Valur var næstur með
6 stig. ÍR nr. 3 með 5 stig, 4.
KR með 4 stig, 5. Fram með 3
stig og 6. Víkingur með 2 st.
1 I. flokki vann ÍR með 3
stigum, vann einn leik og gerði
eitt jafntefli. Ármann varð nr.
2 með 2 stig og Fram nr. 3 með
1 stig.
II. flokk karla vann Víkingur*
með 9 stigum, vann 4 leiki og
gerði eitt jafntefli. Valur var
næstur með 8 stig. Þá komu lR
og Ármann með 5 stig, KR meS
3 stig og Fram ekkert.
KR vann III flokk karla meði
6 stigum, vann alla sína leiki,
Ármann hlaut 4 stig, ÍR 2 og
Valur ekkert.
Framh. á bls. 8 j