Morgunblaðið - 25.11.1947, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. nóv. 1947
flugufrepum
! hnekfcf
j Nanking í gærkvöldi.
hriLKYNNT var hjer í Nanking
j dag, að ekkert væri hæfi. í
Iflugufregnum um það, að nokkr-
ir bandarískir flugmenn, sem
skotnir voru niður yfir Kína í
styrjöldinni, væru fangar hjá
hinum svokallaða „Lolo“-kyn-
flokki í Vestur-Kína. Vitað er,
að margir úr kynþætti þessum
eru mannætur.
í tilkynningunni í dag er þess
getið að 210 daga leit á land-
svæðum kynþáttarins hafi eng-
an árangur borið, nema hvað
nú þyki sannað, að engir Banda-
ríkjamenn geti verið fangar
þarna. — Reuter.
— Meðsl annara orða
Framh. af bls. 6
Víða pottur brotinn.
Einhver hefir nú tekið upp á
því í Svíþjóð, að halda sýningu
á því, hversu yfirvöldin geta
íþyngt borgurunum. — Kort
er þarna, sem sýnir, hvernig
sænskur verslunarmaður kann
að þurfa að koma við í 29 skrif
stofum, til þess að fá innflutn-
ingsleyfi. Auk þess er það sýnt
með tölum og myndum, að 27
menn geta á átta mánuðum
byggt 130.000 króna hús, en áð-
ur en hægt er að ljúka við bygg
inguna, verða 40 opinberar
skrifstofur að fjalla um málið
og að minsta kosti 110 embætt-
ismenn að koma til skjalanna.
• •
Pardís öreiganna.
Það virðist sem menn verði
að fara til Svisslands til þess
að komast að raun um hinn ó-
hemiuháa framfærslukostnað
Moskvubúa. Utgjöld svissnesku
sendinefndarinnar í Moskva
hafa nú verið tekin til umræðu
í svissneska þinginu. Sviss-
nesku skrifstofustúlkurnar, sem
vinna við sendiráðið og fá um
10 pund á viku, kosta stjórn-
ina um 1800 pund á ári, þó
svo að húsakynni þeirra sjeu
ekki annað en litið og óásjálegt
hótel. Hinn opinberi svarti
markaður er aðalútgjaldaliður-
inn. Auk þess er svo lítið um
grænmeti í þessari „paradís ör-
eiganna“ að sendinefndin verð
ur að fá alt grænmeti sitt sent
frá Svisslandi.
Þó svo að Svissland og Rúss-
land hafi nú stjórnmálasam-
band hvort við annað, þá hafa
viðskifti milli landanna lítið
aukist og eru ekki meiri en svo
að þeirra er ekki getið í hag-
skýrslu svissnesku stjórnarinn-
ar.
— Síldarverksmiðja
ÍFramhald af bls. 2).
árvirkjunin hefur verið full-
gerð.
Aðkallandi nauðsyn.
Það orkar ekki tvímælis, að
hjer er mikið og aðkallandi
nauðsynjamál að ræða, sem eng
an veginn má skella skollaeyr-
um við. Síldarafurðirnar eru
verðmestu og eítirsóttustú verð
mætin sem Islendmgar fram-
leiða nú og senda á erlendan
markað. Það má því ekki henda
oss í þriðja sinn, þegar slíkur
afli berst upp í hendurnar á
okkur, að við sjeum þess var-
búnir að hagnýta hann til þess
ítrasta.
Þátttaka Reykjavíkurbæjar.
Jóhann Hafsteia kvaðst sam-
mála Pjetri um þá nauðsyn,
að koma upp síldarverksmiðju
við Faxaflóa, en hinsvegar væri
álitamál hvar hún ætti að
standa. Taldi harn því heppi-
legast að stofna til ítarlegrar
rannsóknar um hvar staðsetja
æíti verksmiðjuna.
Fyrir forgöngu Reykjavíkur
bæjar hefði verið stofnað til
rannsókna á þessu máli og
kvaðst Jóhann áskilja sjer rjett
að lokinni þeirri rannsókn, að
bera fram breytingartillögu við
frumvarpið.
&■'
Vantar geymsluþrær.
Jóhann Þ. Jósefsson, sjávar-
útvegsmálaráðherra, benti á að
einhver úrbót mur.di fást nú á
næstunni með því að fjölga og
breyta lýsis- og beinamjöls-
verksmiðjunum við Faxaflóa.
Það, sem sjerstaklega bagaði
nú, væri skortur á geymslu-
þróm, því að reynslan sýndi að
að Faxasíldin geymdist svo vik-
um skifti í þrónunum.
Leggja ætti því áherslu á að
auka þróarplássið til þess að
bæta úr þessu.
Finnur Jónsson benti og á,
að þegar búið væri að gera
nauðsynlegar breytingar á lýs-
isverksmiðjunum við flóann,
mundu þær geta afkastað um
4—5 þús. málum á sólarhring
(þar með talin hvalveiðastöðin
í Hvalfirði).
Pjetur sagði, að þessar verk-
smiðjur gætu aðeins unnið til
áramóta, því að þá tæki ver-
tíðin við og verksmiðjurnar
bundnar við hana.
Nokrrir fleiri tóku til máls
og ljetu sumir þá skoðun í ljós
að leysa ætti þetta mál með því
að fá fljótandi síldarverk-
smiðju.
• 111111111 iiiiiimiiiiiiiiiiiiiit iii fiiniiiiiiitiiiimtMM'
| Almenna fasteignasalan
! Bankastræti 7. sími 7324 |
: er miðsföð fasteignakaupa.
Þorsteinn Bjarnason
að Hurðarbaki, sjö-
tugur
ÞORSTEINN Bjarnason, bóndi á
Hurðabaki, verður sjötugur í dag.
Hann er fæddur á óðalseign sinni
Hurðabaki í Reykholtsdal, ólst
upp þar og þar hefur hann búið
alla sína búskapartíð. Faðir hans,
Bjarni Þorsteinsson, var einnig
alla sína æfi á Hurðabaki. Hafa
þeir þrír ættliðir Þorsteinn eldri,
Bjarni sonur hans og Þorsteinn
yngri, búið meira en öid sam-
fleytt á Hurðabaki, og sem betur
fer, eru allar líkur til þess, að
ættbálkur þessi búi þar enn lengi
og vel. Hefur Bjarni, sonur Þor-
steins, tekið þar við búi og virð-
ist enginn verfeðrungur um alla
búsýslu og er þá langt til jafnað,
en hinn sonur Þorsteins, Svein-
björn, hefur all-mikla blóma- og
aldinrækt við hverina, sem þar
eru skammt frá heimatúninu.
Þorsteinn bóndi er hinn gest-
risnasti og ávallt glaður og reif-
ur. Fjör- og framkvæmdamaður
eins og ýmsir ættmenn hans t.d.
föðurbróðir hans, Þórður eldri á
Leirá. Hann var á yngri árum
sínum ..estamaður góður og hefur
margur gæðingurinn verið frá
honum fenginn. Jörð sína hefur
hann bætt geysimikið. Stækkað
heimatúnið og ræktað nýtt tún
hjá hverunum. Hann hefur gjört
húsabætur miklar. Nú er Hurðar-
bak betra tveimur bændum en
einum, er Þorsteinn tók við.
Það er alltaf eins og hressandi
blær fylgi Þorsteini, þar sem
hann fer, áhuginn og kappið við
hvert starf, hlýleikinn og hjálp-
semi, enda er hann maður vin-
sæll og einlægur vinur vina
sinna.
Hann er kvæntur Guðrúnu
Sveinbjarnard. frá Sigmundar-
stöðum, mestu myndarkonu og
búa þau hjón nú hjá Bjarna syni
sínum og konu hans, Sigríði Sig-
urjónsdóttur frá Álfafossi, og una
vel hag sínum.
Óskum við vinir og frændur,
sem ekki getum heimsótt hinn
! erna öldung á afmælinu, honum
! langra lífdaga, heilla og ham-
ingju. Þorst. Þorsteinsson.
Ófímabær skrif
VEGNA blaðaummæla um
fisksölu til Þýskalands, vill
ríkisstjórnin taka það fram, að
íslensk stjórnarvöid hafa lengi
unnið að því, að afla rr.arkaðs
fyrir íslenskan fisk á hernáms-
svæði Bandaríkjamanna og
Breta í Þýskalandi. Samningar
um þetta standa enn yfir og
verður þessvegna að svo komnu
ekki sagt, hver árangur þeirra
Guðjón Einarsson
fcosinn form. VR
GUÐJÓN EINARSSON var
í þriðja sinn í röð kosinn for-
maður Verslunarmannafjelags
Reykjavíkur me ðdynjandi lófa
taki á aðalfundi þess í gær-
kveldi.
Aðrir er hlutu kosningu í
stjórn voru: Baldur Pálmason,
Einar Elíasson og Þórir Hall og
voru þeir kosnir til tvóggja
ára. Fyrir eru í stjórninni:
Sveinbjörn Árnason, Gunnar
Ásgeirsson og Gunnar Magnús-
son. — í varastjórn Ingvar
Pálsson, Þórður Guðmundsson
og Ólafur Stefánsson.
Áskorinn á bæinn.
Fundurinn gerði svohljóð-
andi ályktun: Að gefnu tilefni
beinir aðalfundur V.R.. hald-
inn 24. nóv. ’47, þeim tilmæl-
um til borgarstjóra Reykjavík-
ur og bæjaryfirvaldanna, að
innanbæjarmenn verði látnir
sitja fyrir atvinnu við af-
greiðslu- og skrifstofustörf í
fyrirtækjum bæjarins. Enn-
fremur skorar fundurinn á aðra
atvinnurekendur í bænum að
gera hið sama sökum þess að
horfur eru á minkandi atvinnu
verslunarfólks.
Með ölinu.
J Á fundinum var rætt um öl-
frumvarpið og skoraði fundur-
inn á Alþingi, að samþykkja
ölfrumvarpið sem nú er til um-
ræðu.
Fimm mínútna krossgátan
SKÝRINGAR:
Lárjett: — 1 enda — 6 kepni
— 8 hvíldi — 10 tvíhljóði —
11 draslið — 12 saman — 13
íþróttafjelag — 14 veiðarfæri
— 16 blóta.
Lóðrjett: — 2 forsetning — 3
subbuleg — 4 eins — 5 iand í
Afríku — 7 vaggar — 9 manns
nafn — 10 viður — 14 frum-
efni — 15 þyngdareining.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárjetí: — 1 — lengi — 6 sjó
— 8 au — 10 te — 11 skortir
— 12 ku — 13 nr. — 14 auð
— 16 myrða.
Lóðrjctt: — 2 es — 3 Njörð-
ur — 4 gó — 5 raska — 7 þerra
-— 9 uku — 10 tin — 14 av —■
15 ðð.
— Handlcnattleiksmótið
(Framhald af bls. 2).
Meistaraflokk kvenna vann
Ármann með 4 stigum, vann
einn leik og gerði tvö jafntefli.
Fram og KR hlutu 3 stig hvort
fjelag og ÍR. 2.
II. flokk k.venna vann Fram
með 2 stigum. KR hlaut ekkert.
Fleiri kepptu þar ekki.
xiiiiiiiii i iuitiiii iini iiiiiiiiiin ii iiiiiiiintif m*i m i iii iii it
! Jcg þarf ekki að auglýsa. !
i LISTVERSLUN
! VALS NORÐDAIILS
! Sími 7172. — Sími 7172. !
Húseign í Sieflavík til sölu
Hálf húseignin (efri hæð) Heiðavegur 12 í Keflavík,
sem er nýtt steinhús, er til sölu nú þegar. íbúðarhæð-
in er 4 herbergi auk efdhúss og rúmgóðrar innri for-
stofu samt. 112 ferm. að stærð. öll nýtísku þægindi eru
í húsinu.
Nánari uppl. gefur eigandinn á staðnum, eða undir-
ritaðir.
SVEINBJÖRN JÓNSSON,
GUNNAR ÞORSTEINSSON,
hœstarjettarlögmenn.
- .. --------------- --------------------------------------------'
v 4. * Eflir Roberi Slorm
THI£ 1« FOR
Y00, M &&
POREAV !
A<2 PH Pi-ANE
LAND£ AT IT$
PE5>TlNATI0N"“
OH?
THANkf
YOlJ |
’ Um leið og flugvjelin lendir, færir flugfreyjan
.Wildu samanbrotinn brjefmiða. Wilda gengur út úr
flugstöðinni og þakkar guði fyrir að Phil skuli ekki
hafa þegar komið auga á hana. Er hún sjer að hún
hefur rángt fýrir sjef, þegar hún brýtur sundur
briefmiðann. Á honum stendur: Wilda . . . Þú ert
lN ATAXI, WILDA D0RRAY READ4 THF Mfc'AéAðf
HANDfD HfR BV THf AIRLINE <&TEWA)?FEí>> —
Wf'dU*'
VJtik,
t*'W%
lUsivySavft
jaln falleg hvort sem þú ert með gleraugu eða’
gleraugnalaus. En hversvegna alla þessa leynd?,
— Phil.