Morgunblaðið - 25.11.1947, Síða 11
Þriðjudagur 25. nóv. 1947
MORGV /V BLAÐIÐ
:ií
Fjelagslíf
ASalfundur Knattspyrnu-
fjelags Reykjavikur fer
fram þriðjudaginn 2. dt’S-
emfter kL 8Í4 i fjebesheim
ili V. R. (miðhæð).
Lagabreytingar og venjuleg aðat-
fundastörf. Lagabreytingarnar liggja
frammi hjá formanni fjeírgsuis.
Stjór-i K. /{,
F ramhaldsaSalfundu r
fjelagsins verður hald-
inn annað kvöld mið-
vikud. kl. 8,30 í fje-
lagsheimilinu.
Stjórnin. ...
1. O. G. T
VERÐANDl
Fundur i kvöld kl. 8,30. 1. Inntaka
nýliða. 2. Flagnefndaratriði annast
III. fl. (O. C.) 3. Upplestur: kvæði
Olga Clausen. 4. Einsöngur: Sigurð-
nr Ölafsson. 5. Erindi um reglumál,
Einar Rjörnsson, 6. Sameiginleg kaffi
drykkja. Fjölmennið.
Æ. T.
SKRIFSTOFA
STÓRSTtJKUNNAR
Vrikirkjuveg 11 (Templarahöllinni)
Stórtemplar til viðtals kl. 5—6,30
alla þriðjudaga og föstudaga.
»>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦#♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Tilkynning
ÖskiS þjer eflir brjefaskriftum
einhversstaðar i heiminum? Safnið
þjer frimerkjum? Hafið þjer áhuga
á einhverju erlendu tungumáli? Lang
ar yður til að komast í kunningsskap
óður en þjer ferðist erlendis? Einnig
verslunar- og vísindaerindum og yður
til heilsubótar. Skrifið eftir upplýs-
ingum
THE RILLIKEN PEN CLUB,
Rennweg 16, Ziirich 1,
Switzerland.
Sálarrannsóknarfjelag íslands
heldur fund í Breiðfirðingabúð Skóla
vöi'ðustíg 6, í dag kl. 8,30 e.h. Fund
arefni: Sagt verður frá fyrirbxygðum
á miðilsfundum Einar Nielsen. Fje-
lagsmenn mega taka með sjer gesti.
7.I0N Bergstaðastræti 12 B.
Vakningasamkoma í kvöld ki. 8. All
ir velkomnir.
Kaup-Sala
'SENDIÐ MYND,
stóra eða litla, nýja eða gamla. Stækk
un á mynd í 8—10 tommur kostar 12
kr. danskar, sje liún lituð bætast við
Jcr. 5. Innrömmun með gleri og
ramma kr. 10 danskar.
CHRISTENSEN NIELSEN
fotograf
Silkeborg, Danmark, Tlf. Silkeborg
860.
Nýir hjólbarSar fyrir bresk hjól stærð
900x16 — Mjög lágt verð. Vjer
«endum verðlista eftir beiðni.
HENRY GREENBERG & CO
116 Broad Street, New York 4, New
Yox-k, U.S.A. Símuefni: „Kiekberg".
Þafi er ódýrara
að lita heima. Litina selur Hjörtur
Hjartarson, Bræðraborgarstig 1. Simi
4256.
NotuS húsgögn
og lítið slitin jakkaföt keypt hæst
verði. Sótt heim. Staðgreiðsla. Simi
6691. Fornverslunin, Grettisgötu 45
Kensla
Reikningskennsla
Les með byrjendum Algebru, Rúm
og hornafr., Differentialreikning og
£1. og bý undir gagnfr. og stúdents-
próf. Dr. Weg, Grettisgötu 44 A. simi
•5082.
328. dagur ársins.
Næturlæknir er í Læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki, sími 1330.
I.O.O.F.Rb.st.l.Bþ.9711258141
□ Edda 594711257—1.
Sextug verður í dag ekkjan
Sigurlína Bjarnadóttir, Báru-
götu 15.
Silfurbrúðkaup eiga í dag
frú Hildur Matthíasdóttir og
Sigurður Sigurðsson, kennari,
Urðarstíg 2, ísafirði.
25 ára hjúskaparafmæli eiga
í dag hjónin María Steinþórs-
dóttir og Kristján Jóhannes-
son, hreppstjóri í Hjarðardal í
Onundarfirði.
Hjónaband. Nýlega hafa ver
ið gefin saman í hjónaband af
sjera Garðari Þorsteinssyni,
fr.k. Sigríður Jakobsdóttir og
Björn Ólafsson, húsasmiður.
Heimili ungu hjónanna verður
á Nönnustíg 8, Hafnarfirði.
Hjónaband. Nýlega hafa ver
ið gefin saman í hjónaband af
sjera Garðari Þorsteinssyni,
frk. Ragna Björnsdóttir og
Ólafur S. Ólafsson, bifreiða-
stjóri. Heimili ungu hjónanna
er á Skúlaskeið 22. Hafnarfirði.
Hjónaband. Nýlega hafa ver
ið gefin saman í hjónaband af
sjei’a Garðari Þorsteinssyni,
frk. Sigríður Ólafsdóttir og Ari
Benjamínsson, bifreiðastjóri.
Heimili ungu hjónanna verður
á Nönnustíg 8, Hafnarfirði.
Hjónaefni. S.l. laugardag op
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Sigurlaug Júlíusdóttir frá
Sauðárkróki og Guðberg Har-
aldsson, bifvjelavirki, Soga-
bletti 14.
Afmælishljómleikar Lúðra-
sveitar Reykjavíkur verða
haldnir í Austurbæjarbíó í
kvöld kl. 7,15.
Leikfjelagið sýnis gaman-
leikinn „Blúndur og blásýra11
anað kvöld og er það síðasta
sýning á þessu leikriti. Tvær
sýningar hafa nú verið hafðar
á „Skálholti“ (föstud. og sunnu
dag.) og var aðsókn sem fyrr,
hvert sæti skipað. Vegna veik-
inda eins aðalleikandans verð-
ur ekki hægt að hafa næstu
sýningu fyrr en á föstudag í
fyrsta lagi.
Heilsuhælissjóð Náttúrulækn
ingafjel. íslands hefur borist
dánargjöf að upphæð kr. 5000,
til minningar um Unu Vagns-
dóttir frá Hafnarfirði. Með'
þakklæti móttekið 18. nóv. ’47.
Heilsuhælissj óðsnef nd.
Dagrenning, 5. tbl. 2. árg.,
hefir borist Mbl. Efni er m. a.:
— Vakna þú, íslenska þjóð,
eftir Jónas Guðmundsson, Fæt-
ur fagnaðarboðans, eftir F. B.
Edgell, Hátiðarnar þrjár, eftir
sjera Guðmund Einarsson, Edó-
mítar — Assyríumenn, eftir J.
J. o. fl.
Skipafrjettir. — (Eimskip).
Brúarfoss er á Siglufirði, lest
ar frosinn fisk. Lagarfoss er í
Kaupm.h. Selfoss fór fram hjá
Látrabjargi í dag á leið frá
Rvík til Siglufjarðar. Fjallfoss
er í Rvík. Reykjafoss er í Rvík.
Salmon Knot fór frá Rvik 20.
nóv. til New York. True Knot
kom til Rvíkur 24/11. frá Hali-
fax. Knob Knot lestar í New
York í byrjun desember. Linda
lestar í Halifax í byrjun des-
ember. Lyngaa fór frá Ábo í
Finnlandi 23/11. til Rvíkur via
Kaupm.h. Horsa kom til Ant-
werpen 24/11. frá Leith.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30 Morgunútvarp
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.30 Miðdegisútvarp.
18,30 Dönskukensla.
19,00 Eskukensla.
19,25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20,20 Tónleikar: Píanósónata í
h-moll eftir Chopin (plötur).
20.45 Erindi: Frumbyggjar jarð
ar, II: Fyrstu forfeðurnir (dr.
Ásjtell Löve).
21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Smásaga vikunnar: „Sag-
an“ eftir Anatole France; þýð,
ing Vilhjálms Þ. Gíslasonar
(Þýðandi les).
21.45 Spurningar og svör um
íslenskt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson).
22,0*0 Frjettir.
22,05 Húsmæðratími (frú Dag-
biört Jónsdóttir).
22.15 Djassþáttur (Jón M.
Árnason).
22,40 Dagskrárlok.
Sigurður Krisijáns-
son alþingismaður
lendir í bíislysi
ÞAÐ slys varð s.l. laugar-
dagskvöld í Austurstræti að
Sigurður Kristjánsson alþing- j
ismaður varð fyrir bifreið og
hlaut af mikil meiðsl.
Bar slysið þannig að, að Sig-
urður var að fara yfir götuna
er bifreiðin rakst á hann. Fjekk
hann þungt höfuðhögg og
skrámaðist töluvert á höfði.
Ennfremur hlaut hann töluverð
an áverka á síðu. Var hann þeg
ai’ fluttur á Landsspítalann og
var þar gert að sárum hans en
hann síðan fluttur heim. Var
hann þungt haldinn á sunnu- ^
dag og fyrrihluta dags í gær. j
í gærkveldi var líðan hans
töluvert betri og taldi læknir
hans meiðslin ekki mjög al-
varleg. Líkur eru þó til að hann
hafi fengið snert af heilahrist-
ing.
Tapað
. Tapast hefir nvyndaveski. Vinsam
lega skilist á Grenimel 1.
Vinna
HREINGERNINGAR
og giuggahreinsun. Sími 1327.
Bjöm Jónsson.
HREINGERNINGAR
Pantið í tíma. Simi 5571.
GuSni Björnsson.
RÆSTINGASTÖÐIN. Tökum að
okkur hreingemingar. Simi 5113
Kristján og Pjetiir.
Fróðleg! erindi í Nátt
úrufræðifjelaginu
TÓMAS Tryggvason járð-
fræðingur, hjelt í gær fróðlegan
fyrirlestur á samkomu Hins ís-
lenska náttúrufræðifjelags. —
Fjallaði fyrirlesturinn um mæl
ingaleiðangur Þjóðverja í Þing
eyjarsýslum sumarið 1938, en
Tómas var aðstoðarmaður Þjóð
verjanna og túlkur. Gerði Tóm-
as grein fyrir þeim kenningum,
sem lágu til grundvallar fyrir
því, að leiðangur þessi var far-
inn. Jafnframt lýsti hann starfi
leiðangursmanna og mælitækj-
um. En mælingar þær, sem leið
angursmenn framkvæmdu, eru
grundvöllur undir áframhald-
andi mælingum, sem munu
leiða í ljós m. a. jarðhræringar
og orsakir til sprungumyndana
á jarðeldasvæði Þingeyjar-
. sýslna.
Alúðar þakkir til allra þeirra, sem á ýmsan hátt sýndu
mjer vinarhug á 70 ára afmæli mínu 15. þ.m.
Gúdlaufrur Ingimundarson,
Ásvallagötu 6.
>♦♦04
Vjeistjóra vantar
við frystihús í nágrenni Reykjavíkur. Framtíðarstarf
fyrir vanan laghentan mann, sem getur einnig unnið að
algengum lagfæringum. Tilboð merkt: ,,Frystihúsgæsla“
leggist á afgr. Mbl. fyrir 1. des.
Skrifstofuvinna
Ung stúlka með verslunarskólaprófi og vön ski’ifstofu-
vinnu, óskar eftir ;starfi hjá góðu fyrirtæki.
Tilboð merkt: „Atvinna“ leggist inn á afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir 1. desember.
Vegna jarðarfarar fyr
verandi ráðherra
maóonar
(ddinaró
d^ijRarlandi
formanns sambandsstjórnar verður skrifstofum vorum
vörugeymsluhúsum og sölustöðvum lokað í dag frá kl.
12 á hádegi.
ddamland Íóí. óamuinnu jjeic
acja
Faðir okkar
DAVlÐ ÓLAFSSON
frá Kambi, Vopnafirði, andaðist í Landakotsspitala
23. þ.m.
Börn hins látna.
Móðir okkar og tengdamóðir
SESSELJA MAGNÚSDÓTTIR
verður jarðsungin miðvikudaginn 26. nóv. Athöfnin
hefst í Dómkirkjunni kl. lþ^ e.h.
Börn og tengdabörn.
Jarðarför konunnar minnar
MÖGGU ÖLDU EIRlKSDÓTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 25. nóv.
kl. 1,30 e. h. (en ekki kl. 4,30 eins og áður hefur verið
auglýst). Árný Elríhsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall
og jarðarför mannsins mins
ERNST SCHAAL
Unnur Schaal.
Innilegasta þakklæti til allra, er sýnt hafa hluttekn
ingu og samúð við andlát og jarðarför mannsins míns
SIGURBERGS EINARSSONAR
og heiðrað liafa minningu hans með nærveru sinni,
aðstoð og minningargjöfum. Guð blessi ykkur öll.
Árný Eiríkssdóttir.