Morgunblaðið - 12.12.1947, Síða 12

Morgunblaðið - 12.12.1947, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 12. des. 1947 — Eignakönnunin Fimm mínúlna krossgálan SKÝRINGAR: Lárjett: — 1 dugmikla — 6 bættu við — 8 tónn — 10 tónn — 11 bergið — 12 stafur — 13 eins — 14 flana — 16 lát. Lóðrjett: — 2 tvíhljóði — 3 bátnum — 4 hvað — 5 hnappa — 7 spil — 9 þvertrje — 10 meyr — 14 eins — 15 tenging. Lausn á síðustu krossgátu. Lárjett: — 1 safar — 6 nef — 8 us — 10 aa — 11 blærinn — 12 bæ — 13 N.N. — 14 fat •— 16 narta. Lóðrjett: — 2 an — 3 febrúar ■— 4 af — 5 gubba — 7 sanna — 9 slæ — 10 ann — 14 fa — 15 tt. — Meðal annara erða Frh. af bls. 8. þótti mjer eins og þessi látlausa og áreiðanlega ódýra móttaka hefði það í för með sjer, að okkur fyndist við frekar vera á meðal gamalla kunningja en ríkislaunaðra embættismanna. þótt eins og við hefðum það á tilfinningunni, að við lentum ekki þarna í Prestwich af nauð syn einni, heldur til að heilsa upp á fólkið og fá okkur mola- sopa. — Og ekki dró það úr þess ari tilfinningu, þegar ein af ein- kennisklæddu stúlkunum stilti sjer upp við Loftleiðaflugvjel- ina og kvaddi brosandi hvern farþeganna, um leið og hann stei£ um borð. • • Ekki dýrt. Það, sem jeg er að reyna að sýna með þessum orðum, er, að góð farþegaþjónusta og mikið ríkisdæmi þarf ekki nauðsyn- lega að fara saman. Vissulega skal því ekki neitað, að góð húsakynni stórauka gildi far- þegaflugvalla, en hitt hefir ekki heldur lítið að segja, að fram- andi farþegum sje sýnt það, að það sje starfsfólkinu gleðiefni að taka á móti þeim. Að minsta kosti fanst mjer jafnmikið varið í kveðju ein- kennisklæddu stúlkunnar á Prestwichflugvelli og öll þæg- indin, sem þar var boðið upp á. Frh. af bls. 9. Ef eigandi seðla á heima ut- an nefndra staða, eða sje hann ekki fær um að afhenda seðla sjálfur, má hann fela öðrum manni að innleysa seðlana fyrir sína hönd, enda afhendi hann honum nafnskírteini sitt til sýn- is og stimplunar í innlausnar- stofnun. Þeir, sem æskja innlausnar seðla fyrir börn innan 16 ára aldurs, skulu, auk þess að gera grein fyrir sjálfum sjer, eins og áður segir, skýra frá fullu nafni og heimilisfangi eiganda seðl- anna, svo og fullu nafni og heim ilisfangi föður barnsins eða fram færslumanns. Innlausnarbeiðni ópersónulegra aðila, fjelaga, stofnana, sjóða o. s. frv., skal undirrituð af þeim stjórnar- mönnum viðkomandi aðila, sem lögum samkvæmt geta skuld- bundið hann. Um nafnskráningu á innstæðum í lánsstofnunum. Hver sá, sem á framtalsdegi á innstæðu á einum eða fleiri reikningum í banka, sparisjóði eða annarri lánsstofnun, þar með taldar innlánsdeildir sam- vinnuf jelaga, skal afhenda hlut- aðeigandi lánsstofnun yfirlýs- ingu til staðfestingar á eignar- heimild sinni á innstæðunni og sýna samtímis nafnskírteini sitt. Samkvæmt þessu ber því inn- stæðueigendum, hvort sem inn- stæður þeirra eru skráðar hjá peningastofnunum á fult nafn og heimilisfang eigendanna eða skráðar þar með öðrum nöfnum, eða nafnlausar, að gefa um það yfirlýsingu. Það, sem lánsstofnanir eiga hver hjá annari, þarf þó ekki að gefa yfirlýsingu um. Ef innstæðueigandi er heim- ilistfastur utan þess kaupstaðar eða hrepps, þar sem viðkomandi lánsstofnun er, getur hann af- hent innstæðuyfirlýsingu til for- manns skattanefndar eða skatt- stjóra, þar sem hann á heimiíi, en þeir senda hlutaðeigandi láns- stofnun yfirlýsingarnar. í innstæðuyfirlýsingu skal greina heiti lánsstofnunar, núm- er innstæðureiknings eða spari- sjóðsbókar, fullt nafn innstæðu- eiganda, stöðu hans og heimilis- fang. Ef innstæðueigandi er gift kona, skal greina nafn og heim- ili eiginmanns hennar, og sje eigandi barn innan 16 ára ald- urs, skal greint nafn og heimili föður eða framfærslumanns. Ef fleiri en einn eru eigendur innstæðu, skal greina nafn, stöðu og heimilisfang hvors eða hvers eiganda um sig og skýra frá, hvernig eignahlutföll eru þeirra á milli. Ef sami aðili á fleiri en einn innstæðureikning í sömu láns- stofnun, skal greina sjerstaklega hverja innstæðu fyrir sig. Framtalsnefnd lætur gera eyðublöð undir innstæðuyfirlýs- ingar, og skulu þau liggja frammi í öllum lánsstofnunum, svo og hjá skattstjórum og for- mönnum skattanefnda. Undirskriftum innstæðuyfir- lýsinga skal hagað með sama hætti sem undirskriftum fram-1 tala. Sjeu fleiri en einn eigandi að innstæðu, er nægilegt, að einn sameigandi undirriti yfrlýsing- una. Ef ekki er kunnugt um eig- anda einhverrar innstæðu, hvíl- ir yfirlýsingarskyldan á þeim, er hefur viðtökuskírteinið í vörsl- um sínum. Handveðhafar innstæðna geta einnig gefið slíka yfirlýsingu fyrir hönd eiganda veðsins, þóft þeir hafi ekki sjerstakt umboð til þess. Yfírlýsingar um innstæðu skulu afhentar hlutaðeigandi lánsstofnunum eða skattayfir- völdum innan tveggja mánaða frá framtalsdegi. Einstaklingar og fjelög, sem heimilisfang eiga erlendis, skulu hafa frest til að skila innstæðu- yfirlýsingum sex mánuði frá framtalsdegi. Framtalsnefnd getur veitt lengri frest, ef sjer- stakar ástæður eru fyrir hendi. VandræSi sökum smjðrlíkisskorts SMJÖRLÍKI er nú. að heita ófa- anlegt í bænum og stafa af því margvíslegir erfiðleikar. — Hús- mæður eru í vandræðum með jólabaksturinn, en hann fer nú senn að byrja á flestum heimil- um. Sjúkrahúsin fá ekki smjörlíki og heldur ekki skip. Gríðarleg eftirspurn er eftir smjörlíki, sem von er, þegar eins er ástatt og nú í þeim efnum. Ástæðan fyrir smjörlíkisskort- inum er sú, að bankarnir hafa ekki treyst sjer til að yfirfæra fyrir hráefni, sem liggur hjer í höfn og er komið fyrir nokkru. Gjaldeyris- og innflutningsleyfi eru fyrir þessum hráefnum og stendur því aðeins á bönkunum. Húsmæður og aðrir, sem þurfa á smjörlíki að halda vænta þess fastlega, að bankarnir reyni sitt ýtrasta til að yfirfæra þessa pen- inga til þess að hráefnið í smjör- líkið fáist laust hið fyrsta og smjörlíki komi á markaðinn í tæka tíð fyrir jólin. Fáheyrð ósvífni Rússa {Berlín Berlín í gærkv. I DAG var tveimur bresk- um blaðamönum vikið af fundi Kristilega Lýðræðisflokksins af þeirri fáheyrðu ástæðu að þeir væru breskir. Tildrög þessa fundar voru þau Kristilegi Lýðræðisflokkurinn hafði boð- að, að ósk Rússa, til fundar til þess að krefjast þess, að Kais- er, formaður flokksins, segði af sjer, vegna þess að hann neit- aði að styðja hið svokallaða al- þjóðarþing, sem ætlar að senda fulltrúa sína á fund utanrík- isráðherranna í London. Þegar fundurinn var ný- byrjaður, gengu þessir Bretar í salinn og bjuggust við að sjá hvað fram færi. En þá var allt í einu fundurinn stoppaður og Kaiser sagði þeim einslega að fundurinn myndi ekki byrja fyrr en þeir gengu út. Þeir neituðu ,en þá komu rússneskir hermenn og sögðu . að yfirboðarar þeirra hefðu gef ið út þá yfirlýsingu, að ekki mætti halda fund þar sem Bret ar eða Ameríkumenn væri við staddir. Þegar blaðamennirnir neit- uðu enn einu sinni höfðu her- mennirnir í hótunum svo þeir urðu frá að hverfa. Þegar síð- ast frjettist, hjelt Kaiser fast við sinn keip, og neitaði að segia af sjer. Þetta skeði eins og menn vita í rússneska svæð inu í Berlín.___— Reuter. __ London í gærkvöldi. NEÐRI málstofan breska hefur nú samþykt frurnvarpið um að minka frestunarvald lávarða- deildarinnar úr þremur niður í eitt ár. Tillaga kom fram frá stjórnarandstöðunni um að hafna frumvarpinu, en hún var feld með 340 atkvæðum gegn 186. — Reuter. Fonnaður frönsku Hóttamannanefnd- arlnnar rekinn París í gærkvöldi. TILKYNT var í París í dag, að formaður flóttamannanefndar- innar, sem nýlega var vikið úr Moskva, hafi verið rekinn frá störfum. Hann_ heitir Marquie og er ofursti. Ákvörðun um að reka hann frá stórfum var tek- in eftir að utanríkismálaráðu- neytið fekk skeyti frá franska sendiherranum í Moskva, sem skýrði frá því að Marquie hefði lýst því yfir í blaðayiðtali, að utanríkismála árekstrar Rússa og Frakka, síðustu daga, væru hluti af skipulögðum áróðri frönsku stjórnarinnar gegn rússnesku stjórninni. —Reuter. Kvekarar fá verðlaun Osló. — Bandarískir og breskir kvekarar fengu friðarverðlaun Nobels, þetta ár. Hjelt fulltrúi Ameríku þar ræðu og kvatti allar þjóðir til þess að reyna að bæta úr ósamkomulaginu milli USA og Rússlands. SKIPAUTCi€RÐ RIKISINS Esja vestur um land til Akureyrar um miðja næstu viku. Við- koimistaðir á báðum leiðum: Patreksfjörður, Bíldudalur, Þingeyri, Flateyri, ísafjörður og Siglufjörður. Vörumóttaka í dag og árdeg is á laugardag. Pantaðir far- seðlar óskast sóttir á mánudag. UNGLINGA vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir- talin hverfi: Lindargala Yesfurgölu Við sendum blöðin heim til barnanna. Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600. Efllr Robert Storm X HAVEN'T TlME F0R GUES£IN6 QAME&, L0U.... I WASB V0UR BAð PACKED/ W1LPA, BUT GUEZZ’ WHATl Copr 1947. King Features Syndicate, Inc , World Vinkonan segir: Jeg er búin að pakka niður fyrir vera að því, bíllinn bíður. Vinkonan: Phil Corrigan Wilda: Hvað — hvað sagðirðu — endurtaktu það — þig, Wilda, en gettu hvað skeði. Wilda: Jeg má ekki hringdi og sagðist elska þig og vilja giftast þjer. hægt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.