Morgunblaðið - 12.12.1947, Side 16
VEDURÚTLITIÖ: — Faxaflói:
NOUÐAUSTAN or austan
kaldi. — Sennilega úrkomu-
laust.
285. tbl. — Föstudagur 12. desember 1947
EÍGNAKÖNNUNIN. Fjár-
málaráðherra birtir reglugerð.
— Sjá grein á bls. 9.'
ígæt kvöldvaka
Varðarfjelagsins
VARÐARFJELAGIÐ hjelt í
gærkveldi síðustu kvöldvöku
sína fyrir jól.
Skemmtiskráin var þannig að
fyrst flutti Sigurður Bjarnason
alþingismaður ræðu, þá söng
Kristinn Hallsson söngvari ein
sön". Vigfús Sigurgeirsson
sýndi kvikmynd, þá var söng-
ur með gítarundirleik, Brynj-
ólfur Jóhannesson leikari las
upp og að lokum vár dansað.
Ragnar Lárusson setti sam-
komuna og stjórnaði henni. Fór
hún í öllu hið besta fram.
--------------
Berda! verðcr ráðu-
nautur víð rsýju Sogs
virfajimina
BÆJARRÁÐ kom saman til
fundar s.l. miðvikudag. — Á
þessum fundi va - samþykt að
heimila borgarstjóra og raf-
magnsstjóra að semja við A.B.
Berdal verkfræðing í Oslo, um
að vera ráðunautur við und-
irbúning fyrirhugaðrar nýrrar
Sogsvirkjunar.
A. B. Berdal var ráðunautur
rafveitunnar, er orkuverið við
Ljósafoss var hygt hjer á ár-
unum.
Áffa fungurdufl gerð
óvirk
EINS og kunnugt er vinna hjer
á landi allmargir menn að því á
vegum Skipaútgerðar ríkisins
að gera tundurdufl, ér reka að
ströndinni, óvirk.
Nýlega hafa þessir menn
þannig gert átta dufl óvirk. —
Helgi Eiríksson gerði dufl ó-
virkt á Þykkvabæjarfjöru og á
Efri-Eyjarfjöru í Meðallandi.
Skarphjeðinn Gíslason óvirkti
dufl í Mýrabug, Jón Guðmunds-
son í Skinnalóni á Melrakka-
sljettu, Hjeðinsfirði og Dalvík
og Haraldur Guðjónsson hjá
Broddadalsá í Hrútafirði og
Hvalsá.
BRESKT blað birtir þessa mynd og heldur því fram að hún sje af
stærstu ýsu, sem nokkru sinni hafi komíð á land í Bretlandi. Hægt
er að gera sjer í hugarlund stærð fiskjarins með því að bera hana
saman við stikuna á myndinni, sem er 15 þumlungar. Ýsan veiddist
á togaranum „Leeds United“. Fiskurinn vóg 26 Z> enskt pund upp
úr skipi, en þegar búið var að reykja ýsuna var hún 20 pund. Þess
er getið að þessi risa-ýsa hafi veiðst á íslandsmiðum.
Sfærsfa ýsan af íslandsmiðum
Mikil veiði síðari hluta
da%s í sœr í Hvalfirði
o cy
Búið að bræða á Siglufirði 149
þúsund mál.
í GÆR var hið ákjósanlegasta veður til síldveiða í Hvalfirði. En
síldin Ijet lítt á sjer bæra þar til komið var rhyrkur. Þá kom hún
upp og eftir þeim frjettum er bárust hingað í gærkvöldi munu
mörg skip hafa náð mjög góðum köstum. Önnur fyltu sig á
skömmum tíma.
Reykjavík
Síðastliðinn sólarhring hafa
ekki komið nema fá skip inn.
Klukkan um 10 í gærkvöldi voru
þau orðin 8, sem komið höfðu
síðan á sama tíma í fyrrakvöld.
Skipin voru með því sem næst
5,500 mál.
í gærkvöldi voru hjer í höfn-
inni rúmlega 30 skip. Verið var
að losa í flutningaskip og milli
5 og 10 skip ljetu síld sína í land
hjer til geymslu. 1 gær var ver-
ið að lesta Súðina og ms. Gróttu.
í dag verður sennilega byrjað á
að lesta Selfoss og Banan er
væntanlegt að norðan fyrir há-
degi í dag.
Skipin sem komu
Þessi skip hafa komið s.l. sól-
arhring: ísleifur með 700 mál.
Garðar 350, Vilborg 400, Eggert
Ólafsson 250, Ágúst Þórarinsson
1000, Edda 1000, Sidon 950,
Freyja RE. 850. Altmargir b'át-
ar voru á leið til lands þegar
þetta er skrifað.
Siglufjörður
Til Siglufjarðar höfðu í gær
kvöldi borist 140 þúsund mál af
Hvalfjarðarsíld og var allri
bræðsu hennar lokið. Á leiðinni
eru allmörg skip, sem ekki enn
hafa getað komist vegna veðurs.
Meðal þeirra er True Knot, sem
enn liggur á Patreksfirði. Hin
skipin eru síldveiðiskip er sigla
með eigin afla. Þessi skip eru
með um 60 þús. mál. í gærkvöldi
kom þangað Snæfellið frá Ak-
ureyri og von var á Eldborg-
inni.
Halafdippingar verði
bannaðar með lögnm
ÁÐUR en gengið var til dag
skrár í Sameinuðu Alþingi í
gær, las forseti upp brjef frá
frú Ingunni Pálsdóttir frá Akri,
þar sem hún skorar á Alþingi
að setja löggjöf um bann gegn
halaklippingu nautgripa.
<g------.--------------------
Sveitir !s@barns cg
Ragnars Jóhannes-
scnar urðu efslar
BRIDGEKEPPNI Bridgefjelags
Reykjavíkur í I. fl. er lokið.
Leikar fóru þannig, að sveitir
Ingólfs Isebarns og Ragnars
Jóhannessonar urðu jafnar, með
12 stig hvor, og flytjast því upp
í meistaraflokk.
■Næst komu sveitir Magnúsar
Björnssonar og Einars Jónsson-
ar með 8 stig hvor, 5. var sveit
Gunnars J. Möller, með 6 stig,
6. sveit Jóns Ingimarssonar, með
5 stig, 7. sveit Hersveins Þor-
steinssonar með 3 stig og 8.
sveit Rúts Jónssonar, með 2
stig.
Næstkomandi þriðjudag verð
ur spilakvöld hjá Bridgefjelag-
inu í Breiðfirðingabúð. Keppa
þá sveitir Ingólfs Isbarns og
Ragnars Jóhannessonar um 1.
sætið í I. flokks keppninni.
SUNDKNATTLEIKSMÓT
Reykjavíkur hjelt áfram í Sund
höllinni í gærkveldi með leik
milli Ármanns og Ægis. Bar
Ármann sigur úr býtum með
5 :1.
í kvöld fer svo fram úr-
slitaleikurinn milli KR og Æg-
is. Nægir KR jafntefli til
þess að vinna mótið, en ef Æg-
ir vinnur leikinn, hafa öll fje-
lögin hlotið jafnmörg stig og
endprtaka verði keppnina.
Manilla. — Kosningaúrslit hjer
eru ekki kunn, en líkur virðast
benda til að frjálslyndi flokkur-
inni vinni 17 gegn 7 meirihluta í
öldungaráðinu. 75% kjósenda
notaði kosningarjett sinn, og kusu
3 milljónir.
Hekla í ferð um Evrópu
Norður- og Suður-
Ameríku
Hún fiutti sýnishorn af hraðfrysfri síld
ti! Rómaborgar.
í GÆR milli klukkan 5 og 6 lagði Skymasterflugvjel Loftleiða
,,Hekla“ upp í fjögra daga ferðalag um Evrópu, N-Ameríku og
S-Ameríku. Ferðinni hjeðan er heitið til Rómaborgar. í þessari
ferð sinni flutti flugvjelin nokkuð af hraðfrystri síld til um-
boðsmanns Sölumiðstöðvarinnar í Róm.
Forseli íslands og
Fínnlandsforseti
skiftast á kveðjum
í TILEFNI 30 ára afmælis sjálf-
stæðis Finnlands sendi forseti ís
lands, herra Juho K. Passikivi
forseta Finnl. árnaðaröskir hoh-
um til handa og finnsku þjóð-
inni. Forseta íslands barst í gær
svohljóðandi þakkarskeyti frá
forseta Finnlands:
„Jeg færi yður, herra forseti,
alúðarfyllstu þakkir mínar fyr-
ir Vingjarnlegar árnaðaróskir
yðar í tilefni af 30 ára sjálfstæð-
isafmæli Finnlands. Jafnframt
sendi jeg yður persónulega, rík-
isstjórn íslands og íslensku þjóð
inni innilegustu árnaðaróskir.
Finnska þjóðin óskar þess að
varðveita og efla samskipti þau
við íslendinga, sem lengi hafa
staðið og hvíla traustum stoðum
í menningarsamvinnu Norður-
landa“.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
VerSur hafisi leif að
málmum í jörðu!
INGÓLFUR JÓNSSON flyt-
ur á Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um leit að dýrmæt-
um efnum og málmum í jörðu,
svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að fela rannsókn-
arráði ríkisins að láta rannsaka
hvort hjer eru í jörðu efni eða
málmar í það stórum stíl, að
af því megi verða arðvænlegur
atvinnurekstur.
í greinargerð segir: Það er
kunnugt, að fundist hafa hjer
í jörðu ýmis dýrmæt efni og
málmar, enda þótt það hafi ekki
verið í svo stórum stíl, að til-
tækilegt þætti að hefja vinslu
þeirra. Það er ekki sæmandi,
að gera ekki meira en gert hef-
ur verið til að rannsaka til hlít
ar, hvort hjer eru í jörðu málm
ar og dýrmæt efni í það stórum
stíl, að arðvænleg atvinnugrein
geti af því orðið,
Meg tillögu þessari er gert
ráð fyrir því, að rannsóknar-
ráði ríkisins verði falið að sjá
um framkvæmd rannsóknanna.
Má gera ráð fyrir, að ekki vrði
hjá því komist að bæta aðstöðu
ráðsins á ýmsan' hátt, til þess
að það geti sinnt þessu mikil-
væga hlutverki í ríkari mæli en
verið hefur.
■^Flugáætlunin
Þessi flugferð er farin á veg-
um ferðafjelags í Bandaríkjun-
um. — Fyrsti áfanginn á leið
Heklu- í þessu langa ferðalagi,
er Parísarborg, en þangað var
flogið í gærkvöldi. Einn farþegi
var með flugvjelinni þangað,
Jóhannes Þórir Jónsson. Flug-
stjóri er Alfreð Elíasson. í Róm
tekur flugvjelin 44 farþega, sem
hún flytur til höfuðborgar Suð-
ur-Ameríkuríkisins, Venezuela,
Caracas. — Á leiðinni þangað
verða París og Reykjavík áfang-
ar. Alfreð Elíasson stjórnar flug
vjelinni hingað heim aftur. Hjer
tekur Kristin Olsen við flug-
stjórn ,,Heklu“ og flýgur til New
York, en þar tekur Bandaríkja-
maðurinn Moore við og flýgur
til Caracas og til baka til New,
York, en Kristinn flýgur heim,
„Jólafer3ir“
Hjeðan fer flugvjelin svo
samkv. áætlun 16. des. til Prest-
vjkur, Stavanger og Hafnar og
þann 18. des. til Prestvíkur,
Hafnar og Stokkhólms og er það
síðasta flugferð frá Loftleiðum
til útlanda fyrir jól.
v
Hraðfrysta síldin
Það mun þykja og merkilegt
við þessa för Heklu, að til Róma
borgar flutti hún milli 300 og
400 kg. af hraðfrystri síld frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Umboðsmaður S. H. í ítalíu
Hálfdán Bjarnason ræðismaður
tekur þar við henni. En hann á
að kynna gæði vörunnar og
kanna sölumöguleika hennar
þar um slóðir. Munu menn ef-
laust fylgjast vel með starfi um
boðsmannsins og vænta menn
góðs af því.
Gert var ráð fyrir að Hekla
myndi koma til Rómaborgar eft-
ir um 12 stunda flug.
Stjórn segir af sjer
Sofía. — Stjórn Dimitrovs hefur
sagt af sjer. Frjettir herrna þó að
þetta sje aðeins til málamynda,
vegna hinnar nýju stjórnarskrár,
sem nýlega gekk í gildi, og muni
þingið skipa Dimotrov íorsætis-
ráðherra strax aftur. .
dapr
tii