Morgunblaðið - 23.12.1948, Side 2
9
MORGUNELAÐIÐ
Fimmtudagur 23. des. 1948.
ar í ina!
Erleni ríli yrði aS gahga á fflilli
Nanking í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
I;i Oí riýmyndaða ríkisstjórn dr. Sun Fo telur ekki með öllu loku
fyrij: það skotið, að hægt verði að semja frið vio kínverska
kouúnúnista. Einn nánustu samstarfsmönnum forsætisráð-
hci rans skýrði frjettamönnum frá þessu í dag, en ljet þess jafn-
fv.jmt getið, að samkomulagsumleitanir mundu verða að fara
fi-jn'r: ,r.eð milligöngu einhvers erlends ríkis.
K!;)d skiiyrði
líann bætti því þó við. að |
rílrisstjórnin nýja h.jfði verið1
mynri j 5 án þess að ákveðin af-
staða hefði verið tekin til friðar
eða áíramhaldandi ófriðar og
aft' Cldrrng Kai Shek og stjórn-
málaráð Kuornintang yrði að
laka erdanlega ákvörðun um
hver;-:-:onar samninga. Dr. Sun
Fo hefur ekki heí'dur sett það
sem skilyrði fyrir stjórnarmynd
un sinrii, að Chiang fallist á
fri'ð'a;. samninga.
Nj árás við Tientsin
Aovar fregnir frá Kína herma
að liarðast sje nú barist á
Tientnn vígstöðvunum, en þar
hófu kommúnistar nýjar stór-
feJldai' árásir.frá öllum hliðum
sne: :a í morgun. Á einum
stað e: sagt að hersveitir þeirra
eir.j aðeins ófarna um fjóra
kíl'jcnetra inn í miðbox'gina.
f'þ-i
ræoif
Frankfurt í gær.
iG . •»., matvælaráðþerrann á
hei námssvæðum Vesturveld-
anng hjelt ræðu í Frankfurt í
dag, og hrósaði því meðal ann-
aiv: ; 'jög. með hve miklum
þcgnskap Bretar tækju núver-
andí raatvælaskorti. Ráðherr-
ari.u, íerti er nýkominn úr ferða-
lagi. tii Bretlands, komst þannig
aft otðl, að enda þótt Bretar
hefðu unnið styrjöldina, gerðu
þeij :?jer það Ijóst, að þeir yrðu
crm utn skeið að láta sjer lynda
ni.jiv.elaskortinn. Þýska þjóð-
in Æílaðist hinsvegar nú þegar
lil þess, að ástandið yrði eins
og þ r var fyrir stríð. — Reuter
1
wsmur
af frakjárni stolið
í V f RRINÓTT var stolið miklu
af þakjárni, sem var geymt á
Ki ossamýrarbletti fyrir innan
Eiliftaár. Mun það samsvara
uro tveimur bílhlössum.
Þakjárn þetta var notað og
rnílað rauðbrúnt. Þeir, sem ein
hvorjar upplýsingar geta gefið
í sornhandi við þjófnað þennan,
eru \ insamlega beðnir um að
h 4 j s.amband við Rannsóknar-
lögrégluna.
lörOOO fðnna isreskf
fceirslnlp í Stiang'haí
Shanghai í gær.
BF F.- ■ :A beitiskipið ,,London“,
séu 10,000 tonn, kom í dag
til Ai.mghai. Koma skipsins
miro ;anda i sambandi við þær
varúftarráðstafanir, sem Bretar
gc nú til að vernda líf breskra
borgara’í Kína. — Reuter.
í áliiancð
ALLIANCE FRANCAISE hjelt
skemmtifund í Sjálfstæðishús-
inu mánudaginn 20. þ. m. Að
þessu sinni voru sýndir tveir
leikþættir. í fyrri þættinum
ljeku frú Claude Voillery, ung-
frú Guðrún Hallgrímsdóttir, hr.
Claude Voillery og hr. Halldór
Hansen, læknisfræðinemi. í
seinni þættinum Ijeku frú Ast-
hildur Egilsson, ungfrú Marie-
Madeleine Voillery og hr. Franz
Siemsen. Leikið var á frönsku.
Búningar voru hinir ágætustu.
Hr. Andre Rousseau, franski
sendikennarinn, annaðist leik-
stjórn. Sýningarnar tókust ágæt
lega, og var öllum leikurum
klappao óspart lof í lófa fyrir
prýðilegan ieik. Á milli sýning-
anna voru leikin lög eftir
Massenet og Trenet. Dans var
stiginn til kl. 1. Fundurinn var
mjög fjölsóttur og fór hið besta
fram.
Samkoma ísleiid-
ingafjelagslns S
Oslc 1. des.
1. DESEMBER hjelt Islendinga
fjelagið í Osló hátíðlegan með
samkomu og veisluhaldi í ein-
um af hótelsölum borgarinnar.
Flutti sendiherra Gísli Sveins-
son þar erindi um sjálfstæftis-
viðhorf íslendinga og ræddi
meðal annars um íslenska hand
ritamálið og endurheimt þoirra
gersema og annara úr söfnum í
Danmörku. — Söngkonan Elsa
Sigfúss, sem var stödd í Osló
til þess að syngja í ríkisútvarp-
ið norska þennan dag, skemmti
á samkomunni með söng og síð-
an hjelt hátíðin áfram meðan
til vannst og þótti vel takast.
Formaður fjelagsins er nú enn
á ný Guðni Benediktsson bck
ari, en fjelagið er nú 25 ára
gamalt og hefur getað haldið
1. desember-fagnað á hverju
ári frá stofnun þess.
Sköíri!un rpkuS í
finnlandi
Stokkhólmur í gærkv.
EFTIR nýjárið m.un mjólkur-
skammturinn í Finnlnndi auk-
inn til muna, og heíir stjórn-
in í hyggju að afnema með öllu
skömmtun á smjöri og mjólk
næsta sumar. Á þessu ári hafa
Finnar flutt inn 7500 smálest-
ir af smjöri frá Danmörku en
á næsta ári mun innflutning-
urinn aðeins nema L500 smál
Jólakveðja frá
„Mannerkemforbundets Krigs
fadderútskctt“, sem sjler um
hjálparstarf vegna barna fall-
inna hermar.na í Finnlandi í
síðasta ófriði, leyfir sjer að
flytja íslenskum styrktar-
mönnum barnanna jólakveðju
og innilegt þakklæti fyrir mik
ilsverða hjálp yðar við börn
fallinna herrr.anna vorra. —
Vjer óskum’ þess og vonum að
þau nýu vináttubönd, sem
hennar vegna hafa jtengst
milli íslands og Finnlands,
verði traust, og frá kærleiks-
verki yðar á harla erfiðum
tíma vorum komi innileg og
varanleg vinátta með þjóðum
vorra beggja.
Clara Borenius.
formaður, fil. mag.
, K. J. Moriug,
framkvæmdastjóri, yfirforingi.
Framanskráð kveðja, dags.
14. þ. m., barst mjer í dag, á-
samt greinilegri skýrslu um
þetta hjálparstarf almennt. —
Verður eitthváð úr henni birt
bráðlega hjer í blaðinu. Eins
og kunnugir ,vita tala Finnar
um „faddere“ barnanna, þótt
jeg kalli þá „styrktarmenn“
þeirra.
Reykjavík, 22. 12 1948.
S. Á. Gíslason.
Fvrsti allsherjar-
islandsk Samband
19. NÓVEMBER hjelt Norsk-
íslenska sambandið í Oslo
(Norsk-islandsk Samband) —
fyrsta allsherjarfund sinni frá
því sambandið var stofnað en
formaður þess er prófessor A.
W. Brögger. Eftir fundarsetn-
inguna tók fyrstur til máli S.
A. Friid ritstjóri, er var blaða-
fulltrúi á íslandi í stríðinu eins
og kunnugt er og er nú vara-
formaður sambandsins. Fjall-
aði ræða hans um samskifti
Korðmanna og íslendinga á
stríðsárunum og um tilgang
sambandsins til frama og gagns
báðum þjóðum. Þá flutti gener-
almajor Hj. Riiser-Larsen ræðu
og lýsti aðstöðu norska hersins
á íslandi og þakkaði Islending-
um góða aðstoð. Þar næst flutti
formaður próf. Brögger lær-
dómsríka ræðu um Noreg og
ísland í fortíð og framtíð og þau
miklu sameiginlegu verkefni, er
nú biðu lausnar áhugamanna.
— Loks hjelt sendiherra Gísli
Sveinsson ræðu og þakkaði hin-
um norsku vinum vorum áhuga
þeirra og aðgerðir, sem hann
vonaði að mætti bera glæsileg-
an árangur með sameiginlegum
átökum frá beggja hálfu.
Fundur þessi, sem var hald-
inn í háskólanum í Osló, var
mjög vel sóttur og voru menn
hinir ánægðustu. Söngfjelag
verslunarmanna undir stiórn
Leifs Halvorsens skemmti /neð
ágætum söng miili ræðuhald-
anna, og á eftir ræðu sendi-
herra var sunginn íslenski þjóð
söngurinn.
V erslunarsamningur
ROMABORG — Italía og Ung-
verjaland hafa undirritað versl-
unarsamning fyrir næsta ár. —
Löndin munu skiptast á vörum
fyrir um 230 miljón krónur.
Framh. af bls. 1 4
þeim íslertsku, sem Lárus Ing-
ólfsson hefur gert, og bendir
það til þess, að Skotar hafi
haft líkar hugmyndir og ís-
lendingar sjálfir um hvernig
leiksviðin ættu að vera fyrir
þetta leikrit.
Ljósaútbúnaður mikið
notaftur
í fyrsta þætti vakti baðstof-
an athygli, en þótt hún kæmi
mönnum ókunnuglega fyrir
sjónir, bar hún þó raunhæfan
svip.
í öðrum þætti hafði leik-
sviðsstjórinn- sleppt að mestu
klettunum, sem eru á íslenska
leiksviðinu. Leiksviðið var í
nokkurri móðu, en áhrifum
náð með ljósabreytingum, sem
fóru vel við eínið.
í þriðja þætti sjest ekkert
af dásemdum himnaríkis, þær
koma ekki í ljós fyr en Gullna
hliðið opnast í fjórða þætti, en
þá streymir frá leiksviðinu ljós
haf mikið og dásemdir allar
framkallaðar með ljósum.
Leikstjórnin hefur tekist
prýðilega.
Kerlingin vel leikin
Af leikurum bar Helcn
Gloag af í gerfi kerlingarinnar
og vakti leikur hennar bæði
hrifningu og gleði áhorfenda.
María mey', st. Pjetur og engl-
arnir vöktu einnig hrifningu.
Virðulegir gestir
og kvöldboð
Meðal áhorfenda voru all-
'margir virðulegir gestir ræð-
ismanns íslands, Sigursteins
Magnússonar, en hann og frú
hans höfðu boð inni í stærsta
gistihúsi borgarinnar fyrir
gesti og leikhúsfólk að leiksýn-
ingu lokinni.
Meðal gesta voru borgar-
stjórinn í Edinborg, Rodney
Murray, lafði Rosebery, Har-
vay Wood, fulltrúi British
Council og erlendir ræðis-
menn, þar á meðal aldursfot-
seti ræðismanna í Edinborg.
sem er ræðismaður Belgíu og
er 78 ára.
Var þetta í alla staði hið á-
nægjulegasta kvöld, sem minst
mun verða lengi í Edinborg
vegna hins sjerstæða og góða
leiklistarviðburðar.
Þannig komst Mr. Groves að
crði í símtali við Morgunbl. í
gær. Þessar ágætis viðtökur,
sem leikrit Davíðs Stefánsson-
ar, hefur fengið meðal Skota er
öllum vinum höfundar og ís-
lenskrar leikritagerðar liið
mesta ánægjuefni.
London í gærkveldi.
BRESKA utanríkisráðuneytið
tilkynnti í 'kvöld, að Rober
Schuman, utanríkisráðherra
Frakka, hefði verið boðið að
heimsækja Bretland snemma
næsta ár. Enn hefur ekki verið
nákvæmlega ákveðið, hvenær
heimsókn þessi eigi sjer stað,
en Schuman verður gestur
bresku stjórnarinnar, meðan
hann dvelst í Bretlandi
—Reuter.
Keílavíkurflugvöllur
141 fiugyfe! lenli þar
ÞRATT'fyrir óhagstætt veð-
ur lentu 241 flugvjel á Kefla-
víkurflugvelli í nóvernbermán-
uði 1948.
Millilandaflugvjelar voru
samtals 200, sem er aðeins 16
færri en í oklóber. Aðrar lend-
ingar voru: Flugvjelar á le'ið-
inni Reykjavík-Keflavík, einka
flugvjelar svo og æfingaflug
björgunarvjela vallarins.
Flutningur rneð millilanda-
flugvjelunum var 170.932 kg.,
að viðbættum 17.576 kg., som
til íslands komu, en hjeðan var
sent 1.269 kg. Vegna jólapósta
var flugpóstur meiri en áður,
eða 44.198 kg„ en var 21.206
kg. í s. 1. mánuði. Hingað kom
af flugpósti 1.772 kg„ en hjeð-
an var sent 1.241 kg.
Með flestar lendingar voru
eftirfarandi flugfjelög: Tfans
Canada Air Lines 46, eða sex
fleiri en í s. 1. máhuði, Amer-
ican Overseas Airlines 37, Sea-
board & Western Airlines 21
og British Overseas Airways
Corporation 17, Air France hef-
ur nýlega lokið við að láta gerjt
skýrslur um ferðalög um Norð
ur-A.tlantsb.af. Þar sjest aö. frá
4. janúar til 11. september á
þessu ári hefur tala farþega frá
Norður-Ameríkú til E /rópu,
verið 161.615, þar af bafa
70.205 farþegar ferðast flug-
leiðis, — eða 46%. Frá Evrópu
til Norður-Améríku var_ tala
farþega 178.694 með skipum, en
94.483 með flugvjelum.
Yfirvöld flugvallarins vilja
votta slökkviliðinu hjer á staðn'
um og íbúum Keflavíkurkaup-
túns þakklæti fyrir veitta að-
stoð þegar kviknaði í byggingu
við farþegaafgreiðsluna þann
15. nóVember s. 1. Vegna dugn-
aðar þessarra aðila tókst að
slökkva eldinn þrátt fyrir erf-
ið veðurskilyrði og varð því
tjón af völdum eldsvoðana
minna en ella.
3ók um hrakninga
á hafísjaka
„HRAKNINGAR á hafísjaka1*
heitir bók, sem nýkomin er út
á vegum Bláfjallaútgáfunnar.
Er hún um hin furðulegustu
æfintýri, sem danskir skipbi’ots
menn lentu í, en þeir sigldu
meðal annars um 1000 kíló-
metra leið á hafísjaka norður
í íshafi.
Loftur Guðmundsson hefir
íslenskað bókina, sem prýdd er
mörgum myndum.
Truman efsfur á lista
Washington.
SAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem fram hefur farið í Banda-
ríkjunum, er Truman forseti
efstur á lista þeirra tíu manna,
sem Bandaríkjaþjóðin dáir
mest. Nöfn og röð hinna níu
fylgir hjer á eftir: Eisenhower,
MacArthur, Churchill, Mars-
hall, Hoover, Dewey, Pius páfi,
Stassen og Einstein.