Morgunblaðið - 13.01.1949, Page 9

Morgunblaðið - 13.01.1949, Page 9
Fimmtudagur 13. janúar 1949. MORGVNBLAÐIÐ 9 NOKKRIR ATBURÐIR ÁRSINS 1948 Á ÁRINU fór ágreíningurinn á milli stórveldanna vaxandi. Jafnframt urðu meginlínurnar í heimsviðskiftunum skýrari en áður. Atburðirnir gerðust svo ört, að áður hefði það tekið ára- tugi, sem nú gerðist á einu ári. Vel má vera, að þær ákvarð- anir, sem gerðar hafa verið á árinu, fái áhrif á líf þjóðanna í aldir. Á þessu ári hurfu Ameríku- menn frá fyrri vanabundinni stefnu sinni í utanríkismálum. Og heimurinn fjekk glögga vitneskju um Sovjetríkin. Á árinu sem leið, rann út kafli í sögu Evrópu, og annar hófst, kaflinn sá, þar sem Evr- ópuþjóðir standa á krossgötum, er liggja til eyðingar eða áfram haldandi þróunar. Á þessu ári varð það lýðum Ijóst, að heim- urinn er skiftur milli tveggja andstæðna. Og svo mun verða um langa framtíð, að öll stjórn- mál heims fara eftir viðskift- unum milli þessara tveggja aðila. En alt öryggi eftir því, hvernig tekst að skapa jafn- vægi í herstyrk þeirra, sem varanlegt reynist. En friður eða ófriður veltur á því, hvernig tekst með varnir lýð- ræðisríkjanna annarsvegar, og árásar áform kommúnista hins- vegar. —O— Á ÖNDVERÐU árinu 1948 gerðu kommúnistar byltingu í Tjekkóslóvakíu. Þetta varð til þess, að lýðræðisþjóðirnar vökn uðu til dáða, og sáu nauðsyn þess, að leita samvinnu sín á milli. í árslokin unnu kommún- istar sigra í Kína, sem leiddu í ljós, að lýðræðisöflin eru ekki nægilega styrk. Aftur á móti urðu kommúnistar og Sovjet- ríkin að sætta sig víð ósigra í verkföllum þeim, sem Komin- form kom af stað í Ítalíu og Frakklandi, sætta sig við ó- sigra í öllum frjálsum kosn- ingum, sem fram fóru í álfunni, og sætta sig við það bjargráð Vesturveldanna, er þau komu upp ,,loftbrúnni“ til Berlínar, og við aðgerðir Vesturveld- anna, til viðreisnar í Vestur- Þýskalandi. En það getur veríð kommún- ístum harmabót, hve ört þeim hefir miðað áfram í Kína, og að þeir hafa getað kom íð ókyrð á í Malajalöndum í Burma og í Indónesíu. Saga ársins 1948, er ýmist saga um sókn á sviði hernað- ar eða stjórnmála, með hljeum, sem notuð voru til friðarum- leitana, í „hinni vopnlausu styrjöld“. Fyrst sendu Rússar frá sjer friðarumleitanir gegn- um Þýskaland. Þvínæst skall á byltingin í Tjekkóslóvakíu. En uppúr henni kom Marshall- áætlunin, og Vesturlanda banda lagið. Þá amerísk orðsending til Moskvastjórnarinnar, er í rúss- neska áróðrinum var kölluð ,,friðmæli“ og ekkert varð þvö úr. Nú kom flutnin gateppan til Berlínar, og uppúr henni leyni- legar samningaumleítanir í Moskva, milli Vestur- og Aust- urveldanna, er komu að engu gagni. En framhald þeirra varð rifrildi á þingi Sameinuðu þjóð anna. Eftir alla þessa fram- Um hver áramót hirta stórhlöð jafnan yfirlits- greinar um heístu heimsviðhurði liins liðna árs og orsakasamhand þeirra- Grein eftir hinn glögga og margfróða hlaðamann Eigii Steinmetz er stnttorð. En gefur þó tiltölulega skýra yfirsýn yfir helstu viðhurði þá er máli skifta, og gerðust árið sem ieið. Birtist hjer meginefni hennar. vindu bar mest á nöfnum tveggja borga Berlín og Nan- king. Á þessu ári einsog ritstjóri breska blaðsins „Econiomist“ Geoffrey komast að orði „lærðu Bandaríkjamenn -hv-aða skyldur styrkur þeirra leggur þeim á herðar, en Bi’etar lærðu hver eru takmörkin fyrir veik- leika þeirra“. —O— ÞETTA var árið er leiddi í ljós, að yfirgangsstefnan er stjórn- málastefna kommúnista, og afl ið er einasta ráðið sem dugar í baráttu lýðræðisríkjanna fyr- ir tilveru sinni. Samtök Sam- einuðu þjóðanna sýndu, að þau eru afllaus. Eftirlitið með kjarnorkunni varð að engu, vegna þess, að Sovjetríkin hjeldu dauðahaldi í neitunarvald sitt. Tillögurnar um afvopnun fóru sömu leið, vegna þess að Moskvastjórnin ætlaði að nota þær til þes að lokka stórveldin til að afvopn- ast en svíkjast um að gera hið sama. Sættir í Berlínardeilunni fóru út um þúfur. Horfið var frá fyrirætlunum um skifting Palestínu, og hallast heldur að þeirri sáttatillögu Bernadotte, er varð honum að bana og kom ekki til framkvæmda. En Pales tínu málið virðist nú ætla að fá sína lausn, með því að ara- biskur raunsæismaður tekur til sinna ráða, Abdullah konung- ur, og hefir til þess samþykki Breta á bak við tjöldin. Ekkert varð úr umræðun- um hinar itölsku nýlendur, vegna þess að öll stórveldin vildu komast hjá því, að taka það mál upp, néma Bretar. Lokaþáttur á þingi Samein- uðu þjóðanna varð, að þessu sin'ni, að samþykt var yfirlýs- ing um mannrjettindi, er verð- ur að telja hlægilega þegar þess er gætt, að Rússar eru í samtökunum og „Alþýðulýð- veldin“ svokölluðu í Austur Evrópu. En eftirmáli þeirrar yfirlýsingar varð tiltæki Hol- lendinga í Indonesíu, sem sett var á stað eftir hárnákvæman undirbúning. En þar átti eitt smáríkjanna í hlut, sem Trygve Lie nokkrum dögum áður hafði sagt, að væru eina framtíðar- von Sameinuðu þjóðanna. Þannig varð útkoman hjá Sam- einuðu þjóðunum. Og þannig kom á daginn, hversu veik- burða þessi allsherjar þjóða- samtök eru“. Ef annað eins þing verður háð einu sinni til, þá er úti um þann fjelagsskap, sagði The Times, að þinginu loknu. —O— SAMEINUÐU þjóðirnar gefö ekki skgpað öryggi, geta ekki tryggt mönnum grundvallar atriði frelsisins, geta ekki kom- ið í veg fyrir styrjöld. Oll heimsmál gerast í dag í skugga þeirrar vitneskju að i næstu styrjöld verður háð einvígi á milli tveggja andstæðna, svo vitað er, að þar hlýtur að vera barist til úrslita. Sá sem vinn- ur þessa styrjöld, hlýtur heims- yfirráð. Stefnc> Sovjetrikjanna er í dag feimulaus. Hún hefir enga skrautgrimu lengur, skrifar sænski blaðamaðurinn Bertil Svahnström í bæklingi sínum „Evrópa á milli Austurs og Vesturs“. Sovjetríkin stefna að heimsbyltingu, en ekki að stefnulausri heimsbyltingu Len ins, heldur byltingu, sem öfl- |ugasti landher heimsins kemur á. Þetta er mikill mismunur. Yfirgangsstefnan er "tekin í þjónustu heimsbyltingíú'innar. Eða kannski öllu heldur, að heimsbyltingin er komin í þjónustu yfirgangsstefnunnar. Svona er umhorfs í stjórn- málunum, hermálum, fjárhags- málum. Alstaðar verður aðeins um tvent að velja: Allar sættir eða málamiðlun á milli ein- ræðisins, stefnunnar, sem náð hefir sinni fullkomnu mynd í ,,alþýðulýðveldunum“ og lýð- ræðisríkjanna er útilokað Lýð- ræðisþjóðirnar myndu fremja sjálfsmorð, ef þau gefa nokkuð eftir af hugsjón sinni, frá því sem orðið er. Þessvegna verða lýðræðisþjóðirnar að þoka sjer saman. Þessvegna verða Banda ríkin að ýta hernaðarmörkum sínum til Vestur Þýskalands. Þessvegna óx Marshalláætlun uppúr Trumanskenningunni en Marshall áætlunin varð að Vest urlandabandalagi. Og Vestur- landabandalagið er að verða að Atlantshafs sáttmála. Því, eins og forsætisráðherra Breta orð- aði það: Lýðræðisþjóðirnar verða að hanga saman. Að öðr- um kosti verða þær hengdar hver um sig. Með aukinni sam- heldni kemur aukinn styrkur. Með auknum styrk, kemur auk ið öryggi. En með þessu öryggi fæst einasti möguleikinn, sem til er, til þess að komast hjá styrjöld fyrst um sinn, og skapa starfsgrundvöll, að samningum, um varanlegan frið. —O— Á ÁRINU 1948 tókst að koma því í kring, sem margir álitu, að taka myndi áratugi, en enn- þá fleiri álitu, að myndu verða loftkastalar til eilífs nóns. Evrópu þjóðirnar eru að koma upp hjá sjer sameiginlegu fjár- málakerfi með tilstyrk Mars- hall áætlunarinnar. Vestur- Evrópu þjóðir eru einnig að koma upp hjá sjer sameiginleg- um hervörnum. En fyrir til- stilli Haagfundar Churchills, og samninga þeirra, sem fram hafa farið á milli Vestur Evrópu þjóða er að koma upp stjórn- málasamvinna í álfu okkar. Samtímis hafa Bandaríkin skil- ið við einangrunarstefnu þá um nokkurt skeið, hliðra sjer sem lengi hefir skapað grund- hjá því, að leggja út í styrjöld, völlinn að allri utanríkispóli- vegna þess, að styrkur hennar tík þeirra. Bandaríkin eru nú er ekki eins mikill, og látið er að koma upp varnarkerfi, sem í veðri vaka. Þetta kemur í Ijós nær um Atlantshaf þvert, varn- i hagfræðiskýrslum Rússlands nær um Atlantshaf þvert, vörn og í ýmsum ókyrrleika austan um, sem auka á skyldur þeirra, Járntjaldsins. að þau geti komist lífs af. | Titó er ekki einasta upp- Samvinna lýðræðisþjóðanna steitinn kommúnistaforingi, hefir mætt erfiðleikum. M. a. sem metur að jöfnu þjóðernis- vegna þess, að Frakkar heimta kend sina, og metorðagirnd og- að þeir fái að halda sínum fyrri frægðarljóma en þar í landi eru óróleikatímar. Erfiðleikar skap ast og vegna þess, að bresku stjórninni hættir til að blanda saman þjóðnýtingu og lýðræði. Erfiðleikum veldur og það, að ítalir leitast við að koma upp „þriðja valdinu“ með því að efna til bandalags latneskra þjóða, Alt þetta gefur tilefni til misklíðar. En í hvert sinn sem komm- únistar hafa efnt til sóknar, hef ir það ýtt undir lýðræðisþjóð- irnar að hraða varnaraðgerðum sínum. Sigrar hafa verið unn- ir. Þegar Kominform verkföll- in í Frakklandi fóru út um þúf- ur, og sigur vannst gegn komm únistum við kosningarnar í Ítalíu og í Vestur Þýskalandi. En einkum vannst sigur í Berlín, er Sovjetríkin ætluðust til, að þar yrði ekki nema um tvent að velja. Annaðhvort Ijetu Vesturveldin þar undan síga ellegar til ófriðar yrði að koma. En þá varð þriðja leiðin opnuð. Loftbrúin. Vestur Evrópu þjóð- irnar og'Bandaríkin eru sam- ferða. Og hafa engan mögu- leika til að snúa aftur. —O— SOVJET-RÚSSAR hafa orðið að viðurkenna, að sókn sú frá þeirra hendi, sem átti að nægja, til þess að kommúnisminn næði yfirráðum í Vestur Evrópu, og Sovjetríkin gætu haldið áfram, að leggja undir sig lönd þar. hef ir fengið gagnstæð áhrif, komið lýðræðisríkjunum til að styrkja samtök sín, og fletta ofan af fyrirætlunum Sovjetvaldhaf- anna. Sovjetríkin reka sína póli- tík áfram, á fremsta þrepi til styrjaldar, með þeirri átyllu, að sjer sje sifelt ógnað með styrj- öld. En aðferðir þeirra og að- farir hafa samt leitt í ljós, að þau óska ekki eftir styrjöld, frekar en Bandaríkin óska eft- ir henni. Líklegt er jafnvel, að Sovjetríkin sjeu öllu vanbún- ari undir ófrið, en Bandaríkin. Þessvegna verða árekstrarnir í Berlín, ekki annað en árekstr- ar. Af því að Moskvastjórnin | óskar ekki eftir sprengingu. Obótaskammir Vishinskys á þingi Sameinuðu þjóðanna, verða ekki upphaf að því, að hann og menn hans fari þaðan sína leið fyrir fullt og alt. Því Sovjetríkin vilja geta haldlð á- fram að tala sínu máli á þeim vettvang. — Jafn- framt því sem fulltrúarnir þar telja, að neitunarvald þeirra sje hið þýðingarmesta pólitíska vopn þeirra, er þeir fyrir hvern mun verði að hafa í hendi sjer. I hvert sinn sem Sovjetstjórn in verður var við undanláts- semi í varnarlínu lýðræðisríkj- anna, ítrekar hún ófriðarógnun sína. En hún mun a. m. k. enn undirgefnina gagnvart Moskva stjórninni. Hann er líka sam- nefnari fyrir öfl þau og1 strauma, sem gera víða vart við sig í Austur-Evrópu. Mindszennty kardínáli er ekki einstakur í sinni röð, sem eldheitur forvígismaður, í bar- áttunni gegn skoðanakúgun. Hann er forvígismaður í flokki tugþúsundanna, sem berjast gegn harðstjórn og einræði. Hin óþekkta kennslukona frá Sovjetríkjunum, Kosen- kina, er kaus heldur dauða sinn, en lífið í Sovjetríkjun- um, er boðberi milljóna manna, er lifa lífi sínu í og utan við' fangabúðir Rússlands. —O— ÞAÐ er gamall siður Rússa, að hörfa undan, þar sem þeir fyr- irhitta staðfasta andstöðu, og leita þá í bili annarsstaðar á. Svo var líka að þessu sinni, er þeir fundu hina vaxandi and- stöðu í Vestur-Evrópu. Þá herða þeir sóknina í Kína, þeg ar eftirtekt allra er sem mest beint til Berlínar. Hvernig sem endalokin verða í viður- eigninni í Kína, þá er eitt víst, að sigrar kommúnista þar, raska valdajafnvæginu í heim inum, frá því sem það áður var. Hvort heldur þar kemst á málamiðlunarfriður, samsteypu stjórn eða kommúnistar ger- sigra, þá verður útkoman sú, að fólkinu á yfirráðasvæðt kommúnista hefur fjölgað um 490 milljónir manna. Sigrar kommúnista í Kína gera þaö að verkum, að í Asíu komast óstöðvandi öfl á hreyfingu, er miða að því, að koma gamla vígorði Japana í framkvæmd, að Asía skuli vera fyrir Asíu- menn. —O— VIÐBURÐIRNIR í Berlín erit í nánum tengslum við viðburð ina i Nanking. Á árinu 1943 hefur hin „vopnlausa styrjöld'* orðið hnattræn. Þessi styrjöld milli Austur- og Vesturlanda, sem sumsstaðar er langt frá því að vera „köld“, sem kallað er. er orðin að baráttu um heimsálfur. Leitast er við að bjarga Ameríku og bjarga Vestur-Evrópu. En varnir Ameriku verða að ná yfir um hafið. í Asíu fara áhrif Evrópu þjóða minnkandi. Þess vegna reyna Evrópuþjóðir að tryggja sjer áhrif í Afríku, og gera þessa álfu að forðabúri sínu og varnarvígi, ef til þess skyldi koma, að dragi til höfuðorustu, á milli stórveldanna. Þessvegna er ekki hægt að afgreiða landvarnarmál Norð- urlanda, sem mál, er aðeins snerta þessar þjóðir. Hvergi eru lengur til neinir „friðarblett- ir“, ekkert hlutleysi í barátt- ■ Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.