Morgunblaðið - 13.01.1949, Side 16
fHEÐURÚTLITIÐ: FAXAFLÓI:
SuSvestan. átt og slyddujel
fyrst, en lægir síðan tneð suð-
lajgari átt.
Heimdallur efnir til
stjórnmálanámskeiðs
á næstunni
Þátttaka tilkynnist skrifstofu Sjálislæð-
isilokksms sem iyrst.
HEIMDALLUR, fjelag ungra Sjálfstæðismanna, efnir til
stjórnmálanámskeiðs nú á næstunni. Verður það haldið í Sjálf-
stæðishúsinu og mun standa yfir í þrjár vikur. Verða fundir
sennilega fjóra daga í viku hverri og verða þeir haldnir á
kvöldin, nema á iaugardögurn, þá verða funairnir á timanum
C' tii 7 e. h.
Á námskeiðinu verða fluttir
fyririestrar um ýmis efni stjórn
rnálalegs eðlis. Verður reynt
að hafa efni fyrirlestranna sem
fjölbreyttast til þess að vænt-
anlegum þátttakendum gefist
kostur á að afla sjer sem víð-
tækaistan fróðleik. Jafnframt
verður lögð sjerstök áhersla á
mælskuæfingar og öðrum hverj
um fundi varið tii þeirra.
Öilum ungum Sjálfstæðis-
rnönnum er heimil þátttaka og
er þess óskað, að þeir er ætla
sjer að sækja námskeiðið hafi
sem fyrst samband við skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í
Sjálfstæðishúsinu, sími 7100 og
verða þá gefnar nánari upplýs-
m-gar um -íilhögun námskeiðs-
iii:
ITeimdalIur hefur á unrian-
• förnum árum efnt til stjórn-
málanámskeiða á hverjum
vetri. Hefur aðsókn að þeim
yfirleitt verið mjög góð og á-
gætur árangur náðst, enda alit
af reynt að vanda til þeirra
seir. best. Er þess að vænta að
ungir Sjálfstæðismenn samein-
kt'i-ná sem endranær um það að
^era þetta námskeið sem glæsi-
legast. •
Mkolahúsið að ás-
álísskála brennur
o.L. SUNNUDAG brann skóla-
iiúsið að Ásólfsskála í Vestur-
Eyjafjallahreppi. Það var gam-
alí timburhús og brann það til
ösku. Talið er að kviknað hafi
» útfrá olíuofni, sem notaður
var til upphitunar.
I skólahúsinu brunnu kenslu
tæki öll svo og bókasafn, er var
óvátrygt. Er þetta hið mesta
tjón fyrir hreppsbúa og ekki
vitað enn hvernig úr rætist með
búsnæði fyrir skóla, þar sem
arinað skólahús er ekki til á
þessum slóðum. Hallast menn
beist að því ráði, að fá húsnæði
fyrir kenslu á einhverjum bæ í
breppnum.
«------------------------
Vaxandi saia happ-
Éættisskuldsbrlefa
SALA happdrættisskuldabrjefa
ríkissjóðs hefir aukist mjög síð
ustu dagana. Munu nú vera
seld skuldabrjef fyrir yfir 5
milj. króna. Eftir eru nú að-
eins 3 söludagar, þar til dregið
verður í fyrsta sinn í happ-
drætti B-flokks Happdrættis-
lánsins. Dregið verður þá um
461 vinning, að upphæð sam-
tals 375 þús. kr., en samtals eru
13.830 vinningar í þessum
flokki Happdrættislánsins.
Rjett er að vekja athygli
fólks á því, að brjefin gilda fyr-
ir alla 30 útdrætti vinninga í
láninu. Er því sjálfsagt að
kaupa brjef nú þegar til þess að
geta verið með í öll skiptin, en
hjer er um að ræða óvenjulegt
tækifæri til þess að freista að
vinna háar fjárupphæðir, án
þess að leggja nokkuð í hættu.
Aðalfundur fslensk
ameríska fjelagsins
ÍSLENSK-AMERÍSKA fjelagið
sem starfar í sambandi við
American Scandinavian Found-
J ation að auknum kynnum og
j menningarsambandi milli Is-
| lands og Bandaríkjanna, held-
ur aðalfund sinn í Oddfeliow
| n. k. laugardag.
Fjelagið hefur starfað af
miklu fjöri í haust og vetur,
og meðal annars greitt götu all-
margra íslenskra námsmanna,
sem leita vilja til náms í Banda
ríkjunum. Þá er starfandi á veg
um fjelagsins bókaklúbbur, sem
vinnur að því að útvega erlend-
ar bækur, sem meðlimir óska að
j iesa og láta þær ganga milli
I fjelagsmanna þeirra, er þess
óska. Formaður í bráðabirgða-
stjórn fjelagsins er Ófeigur
Ófeigsson læknir.
Þrír menn farasf
fHjlningar
FLUGFJELAG eitt hjer i Lond
ou. var sakað um það í dag, að
h + . á óleyfilegan hátt flutt
vop:\abirgðir til Frakklands í
*na: s. 1. ár. Málið er í rann-
sók". -— Reuter.
Rio de Janeiro í gærkveldi.
(NTB): — Þrír menn fórust
og margir særðust hættulega,
er sprenging varð í oliuskipiú
höfninni hjer í Rio De Janeirb
í dag. — Skip þetta heitir
Tamarati og er 5700 smálestfr
á stærð.
Kínverjar ríia sparifje silt úr bönkunutn
ÁSTANDIÐ í KÍNA hefir orðið til þess, að almenningur hefir rifið fje sitt úr ríkisbönk-
unum og heimtar gull eða silfurmynt í stað seðla. Þröng er daglega fyrir framan banka og
verður að hafa lögreglu til að gæta reglu. Hefir oft komið til óeirða í sambandi við þetta og
svo var er þcssi mynd var tekin. Lögregluþjónn á hesti reynir að halda æstum múgnum í skefj-
im. í óeirðum þessum særðust margir menn og nokkrir ljetu lífið.
Beilusíld flutt
Inn frá loregi
BEITUSÍLDARSKORTUR er
svo mikill í landinu, að horfið
hefir verið að því ráði, að
kaupa beitusíld í Noregi fyrir
smábátaútgerðina. Er hjer um
að ræða talsvert magn af síld,
sem kaupa verður fyrir erlend
an gjaldeyri, þar sem síldveið
in hefir verið það treg hjer, að
ekki hefir aflast til 'beitu.
Sjerstök nefnd, sem skipuð
er samkvæmt lögum, sjer um
skipulagningu innflutnings á
síldinni frá Noregi og eiga þeir,
sem óska eftir beitusíld, að snúa
sjer til nefndarinnar
í nefndinni eiga sæti Jón
Þórðarson, formaður. Jakob
Hafstein, framkvæmdastjóri
LÍÚ og Jón Árnason frá Akra-
nesi.
Leilað að erfingja
Vestur-íslendings
BANDARÍSKA sendiráðið
hjer hefir fengið fyrirspurn frá
skrifstofu lögfræðings í Banda-
ríkjunum um ættingja og erf-
ingja Vestur-islendings, sem ný
lega er látinn í Ameríku.
Vestur-íslendingurinn hjet
Jón Steinar Henderson og er
sagður fæddur á íslandi 24.
júní 1867. Hann var einhleyp-
ur maður og átti engan ætt-
ingja eða erfingja vestan hafs
svo vitað sje, en hann ljet eft-
ir sig tæplega 7000 dollara.
Ættingjar þessa manns geta
fengið nánari upplýsingar í
i ameríska sendiráðinu hjer.
Danskur maður
finnur upp nýll
síldartroll
FUJETTIR frá Danmörku
herma, að maður nokkur
hafi fundið upp nýja gerð
síldartrolls, sem hafi
reynst mjög vel og sje
með því hægt að veiða
síld, án þess að hún vaði
og jafnt í „miðjum sjó“,
við botn eða á yfirborð-
inu.
í útvarpsfrjettum frá
Noregi í gær er rætt um
þetta nýja veiðarfæri og
látið mikið yfir kostum
þess frá fyrri síldartroll-
um, en eins og kunnugt
er hafa Norðmenn notað
troll til síldveiða og hafa
þau gefist misjafnlega.
Reynist þetta nýja troll
eins gott og það er sagt
vera í frjettunum, þá
gæti verið um merka upp
finningu að ræða, sem
ætti að koma íslenskum
síldveiðimönnum að mikl
um notum.
Æfisaga Jóns biskups
Árasonar í undirbúningi
GUÐBRANDUR Jónsson pró
fessor vinnur að rannsóknum
og undirbúningi að ævisögu
Jóns biskups Arasonar og er
ráðgert að sagan komi út á 4ra
aldar dánardegi Jóns, 7. nóvem
ber 1950. — Útgefandi er Hlað-
búð. —
Islandsmótlð í
handknattleik held-
ur áfram
HANDKNATTLEIKSMÓT ís-
laids, sem byrjaði á síðasta ári,
heldur áfram í dag, en síðan 5.
desember hafa leikir ekki far-
ið fram.
Mótið hefst kl. 8 í kvöld og
fara þá fram tveir leikir Fyrst
keppa KR og ÍR, en síðan fer
fram leikur milli Fram og ÍBH.
Tíu leikir hafa þegar verið
leiknir á þessu móti, og er Ár-
mann í fyrsta sæti.