Morgunblaðið - 27.01.1949, Side 1
36. árgangur.
21. tbl. — Fimmtudagur 27. janúar 1949.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bevin á Isið lil þmgs.
ERNEST BEVIN utanríkisráðhcrra Brcta sjest hjer á mjndinni
á leið til þingsins, cn venjulega safnasí fólk fyrir á götunum
J.egar von cr á ráðherranum. í gær veittist Churchill mjög að
Bevin fyrir stefnu hans og jafnaðarmannastjórnarinnar í Pal-
cstínumálinu.
Kommúnistar heimta
Ciang Kai-Shek fram-
seldon
Talið að þeir muni taka Nanking áður en þeir
hefja friðarviðræður við kínversku stjórnina
Nanking í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
7 ÚTVARPI kommúnista í Norður-Shensi í kvöld var þess
krafist, að stjórnin ljeti þegar taka Chiang Kai Shek höndum,
sem og aðra þá menn er væru á listanum yfir ,,stríðsglæpamenn“
og framseldi þá kommúnistum. Sagði þulurinn, að enda þótt
Chiang Kai Shek hefði tekið sjer hvíld frá störfum að nafninu
til, þá hjeldi hann áfram samvinnu við núverandi forseta Li
í sung-Jen, og ljeku þeir aðalhlutverkin í „dramatískum friðar-
leik“ stjórnarinnar, er væri til þess gerður að villa mönnum sýn
og beina athyglinni frá næstu hernaðaraðgerðum stjórnarinnar.
Síðan taldi þulurinn upp nöfn nokkurra ,,stríðsglæpamanna“ í
viðbót, og var Paul Yupin, yfirmaður rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar í Nanking einn þeirra.
Samþykt þingsins.
Kínverska þingið samþykti í
kvöld að fara þess á leit við
kommúnista, að þeir tækju til
greina óskir þjóðarinnar um að
hernaðaraðgerðum yrði hætt
þegar i stað, en kommúnistar
höfðu áður lýst yfir því, að þeir
myndu ekki hætta hernaðarað-
gerðum fyr en Peiping væri
„fullkomlega frjáls“.
Framh. á bls. 8.
Stjórnmálanám-
skeiðið
STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐ
Ileimdallar verður í Sjálfstæð-
ishúsinu, uppi, í kvöld kl. 8.30.
Áríðandi cr að allir þeir, er
sækja ætla námskciðið mæti.
RETAR VIÐURKENNA EKKI
ISRAEL AÐ SVO STÖDDU
Flokkur Ben Gurions
efslur
Umræður í neðri deild*
inni um Palestmu
(hurchill gagnrýuir stefnu Bevins.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
UMRÆÐUR hófust um Palestínu-málið í neðri deild breska
þingsins í dag og var Bevin, utanríkisráðherra, frummælandi.
Hann kvað bresku stjórnina ekki geta veitt Israelsríki viðurkenn.
ingu að svo stöddu, eða ekki fyrr en málið hefði að fullu venð
rætt við fulltrúa bresku samveldislandanna og þeirra landa, er
standa að Brussel-bandalaginu. Hann sagði, að það myndi hafa
valdið misskilningi hjá ýmsum af samveldislöndunum, ef Bretar
hefðu samþykkt ótímabæra viðurkenningu á Israelsríki, og átti
hann þar við Indland, Nýja Sjáland, Pakistan og Ceylon, eu
ekkert þessara landa hefur enn viðurkennt Israel.
®Utanríkisiáðherrar
Tel Aviv í gærkvöldi.
TALNINGU atkvæða í Israel er
enn ekki lokið og munu úr-
slitatölur ekki berast fyrr én
síðdegis á föstudag. Samkvæmt
síðustu tölunum hefur verka-
lýðsflokkur Ben Gurions feng'-
ið 34% atkvæða, sameiningar-
flokkur ofsatrúarmanna 13%,
vinstri sosialistar 12%, flokkur
Irgun Zwai Leumi 11% og
kommúnistar 3%. — Reuter.
Nefnd semur um
viðskiftin við
Tjekkóslóvakíu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef
ur skipað þessa menn í nefnd
til að semja um viðskipti íslands
og Tjekkóslóvakíu:
Pjetur Benediktsson, sendi-
herra, formann, Dr. Odd Guð-
jónsson, varaformann, Gunnar
Kvaran, stórkaupmann, Helga
Pjetursson, framkvæmdastjóra
og Dr. Magnús Z. Sigurðsson,
vararæðismann íslands í Prag.
Samningar hefjast 31. þ. m. i
Prag.
Fundur utanrríkis-
ráðherra
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Bretlands, Frakklands og Bene-
lux-landanna munu halda fund
með sjer í London á morgun.
Fundurinn verður lokaður, en
frjettaritarar telja að til um-
ræðu muni Atlantshafs-sáttmál
inn, einnig Evrópu- og Palest-
ínu-málið. — Reuter.
ræða Palestínu-málið
„En nú, þegar vopnahljesvið'-
ræður eru vel á veg komnar, þá
álítur stjórnin að viðurkenning
hennar á Israel kynni að stuðla
að friði,“ sagði Bevin. — Hann
kvað stjórnina í stöðugu sam-
bandi við stjórnir áðurnefndra
samveldislanda og sagði, að Pal
estínumálið yrði til umræðu á
fundi utanríkisráðherranna
fimm, sem hefjast á í London a
morgun. — Hann sagði, að svör
frá þessum löndum myndu ber-
ast innan fárra daga, og þá, en
ekki fyrr, gæti breska stiórnin
Mesta útflutningsarið,
en vöruskiftajöfnuðurinn
er óhagstæður
ÚTFLUTNINGSVERSLUN landsins á árinu 1948, var sú mesta
sem um getur í sögunni, en vöruskiftajöfnuður ársins var þó
óhagstæður um 61 milljón króna. Vöruskiftajöfnuður ársins
1947 var óhagstæður um 228 millj. kr.
Arið 1948.
Hagstofan skýrði Mbl. frá
þessu í gær, en vegna hinna
nýju tollalaga hafa nauðsynleg
gögn borist miklu seinna tii
stofnunarinnar, en venjulegt er
við mánaðaruppgjör Hagstof-
unnar.
Verðmæti útfluttra afurða á
árinu 1948, nemur 395,7 millj-
ónum króna, en innfluttra
456,7 millj. kr. Þess ber að
gæta, að hjer erú t. d. innifalin
skipakaup á nýsköpunarreikn-
inginn og aðrar nýsköpunarvör-
ur. Vinnur Hagstofan nú að
sundurliðun inhflutningsins á
árinu, og mun þá beinn vöru-
skiftajöfnuður ársins koma bet-
ur í ljós.
Verðmæti innfluttrar vöru a
árinu 1947, nam 519 millj. kr„
en útfluttrar vöru 290 millj. kr.
Desember
varð metmánuður
Desembermánuður 1948 varð
met-mánuður ársins hvað inn-
flutningi viðvíkur. Verðmæti
innfluttrar vöru nam 61,4 millj.
kr. Hjer eru t. d. innifalin kaup
á tveim skipum, Hæringi og
Kötlu, sem bæði komu til lands
ins á síðasta ársfjórðungi. —
Verðmæti útfluttrar ‘ vöru nam
25 millj. kr. Var vöruskifta]öfn
uðurinn fyrir desember því ó-
hagstæður um 36,4 millj. kr.
Ú tf lutningur inn
Til Bretlands var mest af
Framh. á bls. 12
tekið ákvörðunina um viður-
kenningu á Israel.
Afstaða samveldislandaima
Stjórnmálamenn í London
skilja þessi ummæli Bevins á þá
lund, að tryggt muni að viður-
kenning Breta á Israel sje ekki
langt undan, enda þótt landa-
mæri Israelsríkis hafi ekki enn
verið ákveðin. En vitað er, að
samveldislöndin fjögur, sem áð-
ur voru nefnd, hafa verið and-
víg viðurkenningu fyrr en
landamærin væru endanlega
ákveðin.
Tjekkar rufu vopnabanuið
Bevin kvað Breta frá önd-
verðu hafa hlýtt fyrirskipun-
um Öryggisráðsins um hlut-
leysi í Palestínu. En í sama
mund hefðu vopn streymt inn
í landið til Gyðinga, frá Tjekko
slóvakíu, þvert ofan í banri Ör-
yggisráðsins. — Hann sagði, að
Arabar teldu sig hafa jafn mik
inn rjett til þess að vera í Pale
stínu og Gyðingar, en þeir
hefðu bara ekki rekið jafn.
skefjalausan áróður. — Hann
kvað það furðu gegna, hve ver
öldin ljeti sig litlu skifta þá
staðreynd, að í Palestínu dveld
Framh. á bls. 8.