Morgunblaðið - 05.03.1949, Page 6

Morgunblaðið - 05.03.1949, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. mars 1949. Hetju.sa.ga ungra Frainsóknarmanna í tveimur þáttum A<V I. þáttur: Ungir Framsóknarmenn á æskulýðsfundinum í Aust urbæjarbíó á föstudegi. Jjssðfön. II. þáttur: Ungir Framsóknarmenn á miðstjórnarfundi Framsóknar daginn eftir. UNGIR Framsóknarmenn hafa leikið furðulegt hlut- verk undanfarið. Á æsku- lýðsfundinum í Austurbæjar bíó, kusu þeir samstöðu með kommúnistum. Allur mál- flutningur þeirra beindist ist gegn hugsanlegri þátt- töku í Norður-Atlantshafs- bandalagi. Nafnið á slíkum samtökum, hvort það er kallað „hernaðarbandalag“ eða ,,varnarbandalag“, skipt ir ekki máli, sögðu þeir, „heldur hitt, að forráðamenn þjóðarinnar — þeir, sem með utanríkis- og öryggismál fara — komi ekki fram þeim vilja sínum, að svíkja þjóðina til samningsgerðar, sem leiða mundi yfir hana tortímingu erlendrar her- setu, — dulbúinnar eða ódulbúinnar“. Þetta var á föstudags- kvöldi! Svo kom laugardagur — og hinar ungu framsóknar- hetjur mættu á miðstjórnar fundi Framsóknarflokksins. Hvað skeði? Jú, þar sam- þyktu þeir í einu hljóði al- veg gagnstæða ályktun mið stjórnar Framsóknarflokks- ins í öryggismálunum! Þetta er að kunna vel til vígs! Ungkommúnistarnir klöpp uðu sig sveitta fyrir og eftir ræður ungra Framsóknar- manna á æskulýðsfundin- um. Vonbrigðin urðu mikil. Enda skrifaði nú samherj- inn á æskulýðsfundinum, Magnús Kjartansson, reiði- þrunginn leiðara í Þjóðvilj- ann með fyrirsögninni: „Svik Framsóknar“! flj Er að furða! Hann hgfði I ekki klappað svo lítið á eft- ir þessum niðurlagsorðum annars ræðumanns ungra Framsóknarmanna á bíó- fundinum: x „Það er skylda bæði niínj og þín, — svo framarlegaj sem við viljum ekki, að fúin,1! sultarkröm bein forfeðra okk a ar bylti sjer í gröfinni, — bölvandi því, að þeir skyldu verða þess valdandi, að til sjeu nú íslendingar, sem ekki kyssa,-------ekki kyssa — heldur sleikja vöndinn." Nú spyrja menn unga Framsóknarmenn þessa dag- ana, ef til vill með nokkru spotti: Vel á minnst, — hverj ir eru það eiginlega, sem — ekki kyssa — — — ekki kyssa, — heldur sleikj;i vöndinn? Samanburður á kjörum verkamanna í Rússlandi og lýðræðisríkjunum ÞJÓÐVILJINN hefir birt frjett um „stórfelda verð- lækkun í Sovjetríkjunum". í þessari „frjett“ er ekki sagt frá þvi, hvað miklu þessi verðlækkun nemi, að undanskildu verðlagi á vörutegundum, svo sem silki, áfengi, reiðhjólum, útvarpstækjum og grammófónum, en þessar vörur hafa um langan tíma vart verið fáanlegar í Rússlandi, í það minnsta ekki fyrir almenning. Þessi verðlækkun er því eingöngu ætluð til þess að bæta hag hinnar kommúnistisku yfirstjettar í landinu. í þessu sambandi er fróðlegt að gera samanburð á lífskjörum fólks í Rússlandi, þar sem kommúnistar, „vinir alþýðunnar11 ráða og lýðræðisríkjunum, sem kommúnistar ráðast sem harðast á og segja að arðræn- ingjar ráði ríkjum. Hjer á eftir fer samanburður er svissneskt blað, sem gefið er út í Basel gerði nýlega á lífskjörum fólks í Rússlandi og þremur öðrum löndum. „Iðníærðum verkamönnum í Bandaríkjunum er kleift að kaupa fatnað handa konum sínum með launum fyrir tólf stunda og fimmtíu mínútna vinnu, en rússneskir starfsbræður þeirra verða að vinna tvö hundruð fimmtíu og tvær klukkustundir til að geta keypt sambærilega hluti.“ Hinn eini rjetti mælikvarði á launagreiðslur, er hvað hægt er að kaupa fyrir launin, en ekki hæð launanna ein út af fyrir sig. Svissneskur verkamaður þarf að vinna í 28,50 klst. til að geta keypt föt á konu sína. Sænskur verkámaður 35,55 klst. í skránni hjer á eftir er gerður samanburður á kjör- um verkamanna í fjórum löndum. Sviss og Svíþjóð, sem bæði voru hlutlaus í síðustu styrjöld og Rússlandi og Bandaríkjunum, sem eru voldugustu ríki heimsins nú. Þessi skrá er samin eftir nákvæmum rannsóknum á opinberum skýrslum um laun og verðlag viðkomandi landa. Vörúteg. Sviss. Svíþjóð. Bandaríkin. Rússland. 1 kg. brauð 0,12 klst. 0,19 klst. 0,15 klst. 1,08 klst. 1 kg. sykur 0,31 klst. 0,23 klst. 0,12 klst. 5,40 klst. 1 kg. hveiti 0,40 klst. 0,17 klst. 0,18 klst. 2,54 klst. 1 kg. kjöt 3,46 klst. 2,43 klst. 1,04 klst. 11,25 klst. 1 kg. smjör 4,04 klst. 2,26 klst. 1,47 klst. 23,36 klst. 1 kg. egg 1,45 klst. 1,27 klst. 0,38 klst. 31,05 klst. 1 kg.’kaffi 2,30 klst. 0,50 klst. 41.06 klst. 1 hapdsápa 0,19 klst. 0,19 klst. 0,06 klst. 1.39 klst. 20 cigarettur 0,21 klst. 0,43 klst. 0,09 klst. 2,04 klst. Karlm-skór 15,30 klst. 13,15 klst. 7,15 klst. 104,30 klst. Kvenskór 13,30 klst. 11,30 klst. 5,30 klst. 107,30 klst. Karlm.föt 61,30 klst. 78,30 klst. 28,00 klst. 580,00 klst. Af þessari skrá sjest, að mikið má verðlagið á grammó- fónplötunum í Rússlandi lækka, eigi lífskjör almenn- ings þar að verða nokkuð sambærileg við það, sem fólk á við að búa um hinn lýðræðissinnaða heim. Þannig er ástandið í fyrirmyndarríki kommúnista. Hver myndi óska eftir slíku ástandi hjer. Athugasemd í MORGUNBLAÐINU 24. febr. þ. á. skrifa tveir frændur frú Móeiðar Skúladóttur, minning- argreinar um hana og taka þar eftirfarandi vísu: • „Þegar hittumst himnum á hvorugur verður móður. Syngja skulum saman þá sjera Friðrik góður“. Og halda þeir fram, að vís- : an sje um ájera Friðrik Thor- arensen. Jeg’ lærði ungur þessa vísu vestur á Breiðafirði. Þar var hún sögð kveðin, með fleiri; vísum, af Samúel Egilssyni bónda á Miðnesi í Revkhóla- sveit. Eftir sjera Friðrik Jóns- son prest á Stað á Reykjanesi, • er druknaði í Þorskafirði 1840. •_ Samúel var meðhjálpari hans,; og báðir taldir góðir söngmenn. Jeg hefi talað við marga fyr-' verandi sveitunga mína, mið- aldra og eldri, og eru þeir allir undrandi á þessari nýju kenn- ingu. Mjer væri þökk í ef tveir frændur frú Móeiðar vildu nefna höfund vísunnar. Því jeg er af gamla skólanum, og vil hafa það sem sannara reynist. Með þökk fyrir birtingu at- hugasemdar þessarar. Magnús Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.