Morgunblaðið - 20.04.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1949, Blaðsíða 1
4 16 síður 36. árgangur. 88. thl. — Miðvikudagur 20. apríl 1949. Prentsmiðja Morgunblaðsins Málshöfðunarbeiðnin fii nmræðn a Alþingi BEIÐNI 5. menninganna um málshöfðun gegn Ólöf Thors var enn til umræðu í Neðri deild í gær og varð umræðu ekki lokið. Flutti Ólafur Thörs við það tækifæri glæsilega og sköru- leg'a ræðu og afhjúpaði á eftirminnilegan hátt framkomu hinna svokölluðu 5-menninga í íslenskri pólitík fyrr og síðar. Er ræðan birt á 2. síðu blaðsins. — Þá flutti Jónas Jónsson ein- beittta ræðu gegn ofbeldislýðnum og hvað 5-menningana bera fulla ábyrgð á árásinni á Alþingishúsið. Gylfi Þ. Gíslason reyndi af veikum mætti að bera hönd yfir höfuð fína fólksins, en svo mjög var af honum dregið, að hann afneitaði öllu samneiti við ,,Þjóðvarnarfjelagið.“ Þorir Gylfi ekki að svara fyrir sig Jónas Jónsson sagði að hjer væri margt djarflega mælt á þingi, og menn ættu að geta sagt meiningu sína án þess að einhverjir taugaveiklaðir ,,fín ir“ menn gætu stokkið upp og' heimtað málsókn í skjóli . strangrar meiðyrðalöggjafar. Og herra Gylfi Þ.. Gíslason ætti að geta svarað fyrir sig eins og aðrir þingmenn hjer á þingi. Eða þorir Gylfi ekki að eiga orðaskpti við Ól. Thors? Þótt við hinir þingmennirnir vitum. að Ólafur Thors er harð- ■vítugur bakdagamaður þá höf- um við altaf og munum altaf svara fyrir okkur. Hitt er lítil- mótlegt og ber vott um upp- gjöf, þegar menn þora ekki að éiga' í hörðum orðaskiptum heldur vilja skera úr deilunni með málshöfðun. i t Ætlar „fína“ fólkið nú ekki að stefna Jónasi? Jónas rakti nokkuð atburð- ina við þinghúsið 30. mars .1. Sagði hann að 5-menning,arnir bæru fulla siðferðislega ábyrgð á ofbeltlinu og árásinni á Al- þingishúsið. Það væri afleiðing af því sem Gylfi og ,,Þjóðvörn“ væru búið að aðhafast í þessu máli. Fór Jónas mjög hörðum orðum um æsingaskrif og ræð- ur .þessara manna og tók jafn- vel dýpra í árinni en Ólafur Thors hafði gert. — Fóru menn nú að spyrja, hvort „fína fólkið“ myndi ekki stefna Jónasi fyrir þessi ummæli hans. En í þess stað fór Gylfi að afsaka sig. Sagðist Gylfi aldrei hafa skrifað eða talað nokkurt orð sem hefði getað orðið til þess að 1-yfta undir kommúnista!! —■ Jónas sagði að Gylfi og hans nótar slyppu ekki við á- byrgðina af stuðningi sínum við ofbeldi kommúnista. Þeir yrðu dregnir fyrir dóm þjóðar innar. Þessi málshöfðunarbeiðni er þingsins mál, en ekki Ólafs Thors. Hann hefir gert hreint fyrir sínúm dyrum, með því að endurtaka ummælin í Mbl. — Væri því allur málefnalegur grundvöllur fyrir þessari beiðni brott fallinn. . i Skilnaðarmálið Þá rakti Jónas í stórum drátt um ræfildóm 5-menninganna í skilnaðarmálinu. kvað hann þessa „fínu mentuðu“ menn minna sig einna helst á undir- lægjuhátt konungskjörnu þing mannanna gömlu. Endaði J. J. ræðu sína með því að segja, að mönnum gæf- ist nú gott tækifæri til að meta hin pólitísku afbrot þessara 5- menninga með því að minna á aðgerðir þeirra í skilnaðarmál- inu, flugvallarmálinu 1946 og nú í Atlantshafsbandalagsmál- inu. — Gylfi Þ. Gíslason tók næstur til máls og sagði m. a.: Gylfi Þ. Gíslason. Jeg er al- veg sammála Jónasi Jónssyni. Þingmenn eiga ekki að vera að höfða mál hver gegn öðrum. Mjer hefði ekki dottið í hug að höfða mál gegn Ólafi Thors, ef jeg hefði einn átt hlut að máli. Jeg tel orðbragðið ekki neitt sjerstakt. En ált annað er þeg- ar einn allra mesti áhrifamað- ur Alþingis ræðst á utanþings- menn, Nú er spurt af hverju við tökum ekki aftur beiðni okk- ar um málshöfðunina úr því Ólafur Thors hefir endurtekið ummælin utan þinghelginnar. En við viljum fá sjálf þingum- mælin dæmd ómerk. Að vísu er deilt um hver þau eru. Jeg viðurkenni fyllilega að handrit þingritara bindur ekki, heldur það sem þingmaður sjálfur tel- ur sig hagt hafa. Jeg vona að flokksbræður Ól- afs verði við ósk hans um að af- ; ljetta þinghelginni. En mjer i þykir undarlegt að einn helsti ' þeirra, Gunnar Thoroddsen, hefir þó ásamt Finni Jónssyni borið fram dagskrá um að vísa málinu frá. Mjer þykir undar- legt að hann skuli ekki virða óskir formanns síns meir en þetta. Þá afneitaði Gylfi oft og á- kveðið jafnt blaðinu „Þjóð- vörn“, sem fjelaginu , Þjóð- vörn“, orðum þess öllum og æði, kvaðst enga ábyrgð bera Framh. á bls. 12 Stjórnmálanefnd S.Þ. ræðír rjett- arhöld Mindszenty kardinála -<é> Hann „játaði" eitir miklar pyntingar Einkaskeyli til Mbl. frá Reuter. LAKE SUCCES, 19. april. — Adolxo Costa du Rels, full- trúi Bolivíu, flutti fyrstu ræðuna í stjórnmálanefnd allsherj- crþingsins í dag, er nefndin tók til umræðu rjettarhöldin yfir Mindzenty kardinála í Ungverjalandi og búlgörsku mótmæl- endaleiðtogunum. Áður en hann flutti ræðu sína, hafði stjórn- málanefndin samþykkt að bjóða stjórnum Ungverjalands og Búlgaríu að taka þátt í umræðum um þessi mál, en tillaga um það kom fram frá Norman Makin, fulltrúa Ástralíu. Ennþá ókyrð í Mandaiay RANGOON, 19. apríl: — Stjórn arherinn í Burma á enn í erfið- FJARLAGAFRUMVARP Sirjleikum í borginni Mandalay, Stafford Cripps hefur verið sem hann tók af uppreisnar- rætt í breska þinginu undan- j mönnum fyrir tveimur vikum. farna daga. Frumvarpið hefur Menn úr andstöðuflokkum valdið nokkurri óánægju með- ' stjórnarinnar eru enn í Manda- al verkalýðsleiðtoga í Bret- lay og krefjast þess, að þeim lantb- " j verði falin stjórn borgarinnar. Borgarsfjóri skorar á Sigfús Annes í úfvarpsumræður SEM KUNNUGT er af fyrri frjettum Mbl., skoraði Si'jfús Annes Sigurhjartarson, bæjarfulltrúi kommúnista, á Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóra til einvígis á útifundi, er ræða skyldi atburðina við Alþingishúsið 30. mars síðastl. í gær svaraði borgarstjóri brjefi frá Sigfúsi Annesi um þetta mál með svofeldu brjefi: . Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur 7. apríl var rætt um atburðina 30. mars síðastl. Flutti jeg tillögu að ályktun um það mál og var hún sámþykkt með 11 gegn 4 atkvæðum. Á fundinum kvartaðir þú yf- ir því, að of fáir áheyrendur væru viðstaddir í Kaupþings- salnum og skoraðir mig til ,,ein vígis“ á útifundi, til þess að ræða þessi mál. Jeg tók einvígisáskoruninni þegar í stað. Bjóst jeg fastlega við að heyra frá þjer næstu daga um óskir þínar varðandi tilhögun þessara viðræðna. En brjef þitt um það barst mjer eigi fyrr en fjórum dögum eftir bæjarstjórnarfundinn og var þá komið fram í páskaviku. I brjefinu krefst þú, að útifund- ur verði haldinn í síðasta lagi á annan í páskum. Jeg taldi það fjarri öllu lagi að velja til þess páskahelgina að eiga orðastað við þig. Tilgangur þinn með áskorun inni hlýtur að vera sá, að sem flestir borgarar Reykjavíkur og sem flestir landsmenn geti hlýtt á umræður okkar um atburð- ina 30. mars og aðdraganda þeirra. Þeim tilgangi verður best náð með umræðum í út- varpi. Jeg skora þig því í út- varpsumræður um málið og hef þegar ritað útvarpsráði um það. Lýðveldi stofnað í Eire DUBLIN, 19. apríl: — Lýðveldi var formlega stofnað í Eire í gær og fóru fram mikil hátíða höld um landið í tilefni af því. Heillaóskir bárust frá þjóðhöfð ingjum víðsvegar um heim og blöðin í dag birta mörg hver langar greinar um hið nýstofn aða lýðveldi. Bresku blöðin eru yfirleitt sammála um að óska Eire góðs gengis, en það hefir verið í konungssambandi við Bretland, sem meðal annars til skamms tíma fór með utanríkis mál þe§s. —* Reuter. I FRJETTATILKYNNINGU frá ríkisstjórninni í gær segir svo: Forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra hafa sent stjórnarvöld unum í Jrlandi hamingjuóskir í tilefni af stofnun írska lýð- veldisins hinn 18. apríl. Hirðisbrjef. Du Rels, fulltrúi Bolivíu, hóf ræðu sína með því að lesa nokkur hirðisbrjef Mindszentys kardinála, sem hann ritaði fyr- ir handtöku sína. í brjefunum neitar hann afdráttarlaust, að hann hafi átt hlutdeild í nokkr um samsærum. Du Rels fullyrti, að kardínál- inn hefði verið píndur til að játa á sig allar sakir og að beitt hefði verið hryllilegum miðaldalegum pyndingaraðferð um. Yfirheyrður í 82 tíma. Hann sagði, að Mindszenty hefði fyrst verið látinn í rakan og dimman klefa, þar sem ó- mögulegt hefði verið að standa upprjettur. Loftdæla hefði síð- an verið notuð á þann hátt, að honum hafi legið við köfnun. Að þessu loknu var ungverski kardínálinn leiddur fyrir lög- reglumenn og yfirheyrður und- ir sterku ljósi í 82 klukkustund ir samfleytt. Allan þennan tíma var honum meinað um að setjast og þegar þreytan bar hann ofurliði voru læknar not- aðir til að vekja hann til með- vitundar aftur. Pólitísk vopn. Du Rels lagði áherslu á það í lok ræðu sinnar, að rjettar- höld væru skrípaleikur einn fyrir austan járntjaldið. Dóm- stólarnir væru notaðir sem pólitísk vopn og áður en fólk j væri leitt fyrir þá, væri látin fara fram löng „undirbúnings- rannsókn“, sem notuð væri til þess eins að veikja mótstöðuafl sakborninganna og ganga þann- ig frá hnútunum, að þeir segðu það eitt, sem kommúnistastjórn arvöldin vildu. Þessi undirbún ingur hefði undantekningar- laust í för með sjer játningu þeirra ákærðu. Átta njósnarar dæmdir BELGRAD — Átta unj borgarar voru í siðaí viku dæmdir í fangelsi slavíu fyrir njósnir og áró ir Kominform.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.