Morgunblaðið - 30.04.1949, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.04.1949, Blaðsíða 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 30. apríl 1949. tTtg.: H.l. Ái-vakur, ReykjavDc. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni GcU'ðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla. Austurstrætí 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlanda, % * kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Forsetakosningar Á KOMANDI sumri á þjóðin að velja lýðveldi sínu for- seta til fjögra ára. Er kjördagur samkvæmt stjórnarskránni síðasti sunnudagur í júnímánuði en hann ber nú upp á 26. þess mánaðar. Lýðræðisflokkarnir íslensku, Sjálfstæðisflokkurinn, Al- þýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gáfu í gær út til- kynningu um það að þeir hefðu farið þess á leit við núver- andi forseta íslands, herra Svein Björnsson, að hann yrði í kjöri í þessum kosningum. Hefur hann fallist á það að gefa kost á sjer að nýju, eftir að hafa ráðgast við lækna sína. Þann lO.'&príl 1940 tóku íslendingar hið æðsta vald í mál- efnum ríkisins í eigin hendur. Var það skref afleiðing þess ástands er skapaðist við hernám Danmerkur og ómöguleika Ðanakonungs til þess að fara með konungsvald á íslandi. Jafnframt fól Alþingi ríkisstjórninni að fara með hið æðsta vald. Stóð sú skipan til 17. júní 1941 eða í rúmlega eitt ár. Þann 17. júní 1941 kusu íslendingar ríkisstjóra, er fara skyldi með vald þjóðhöfðingja þar til varanlegri skipun yrði komið á. Var Sveinn Björnsson sendiherra þá kjörinn til þess að gegna þeim störfum til eins árs samkvæmt lögum er sett voru um embætti ríkisstjóra. Hann var þannig fyrsti ís- lendingurinn sem fór einn með þjóðhöfðingjavald á Islandi. Var hann síðan endurkjörinn ríkisstjóri meðan það embætti var tih En 17. júní 1944 var lýðveldi stofnað á íslandi og forseti þess kjörinn til eins árs af Alþingi á Þingvöllum. Varð Sveinn Björnsson fyrsti forseti hins íslenska lýðveldis. Árið 1945, er þjóðin skyldi sjálf velja sjer forseta samkvæmt stjórn arskrá lýðveldisins, varð hann sjálfkjörinn. Fyrsta kjörtímabili Sveins Björnssonar sem þjóðkjörins forseta, að vísu sjálfkjörins, vegna þess að enginn bauð sig fram á móti honurrt, er nú lokið og forsetakosningar eiga að fara fram á komandi sumri. Eins og áður er sagt standa allir lýðræðisflokkarnir að endurkjöri Sveins Björnssonar og er ástæða til þess að fagna þeirri einingu, sem kemur fram í þeirri samvinnu þeirra. Á þessu stigi málsins verður það að teljast líklegast að ekki verði boðið fram á móti honum. Val forsetans mun því fara fram með kyrrð og einingarbrag, sem stingur þægilega í stúf við vopnabrak og hávaða íslenskr ar stjórnmálabaráttu. Þinghelgin UMRÆÐUNUM um málshöfðunarbeiðni fimmmenning- anna gegn Ólafi Thors er nú lokið á Alþingi. Urslit málsins eru kunn. Það verður ekki annað sagt en að Neðri deild Alþingis hafi gert rjett í því að synja þessari beiðni. Það hefði sann- arlega verið hlálegt ef „fína fólkið“ hefði fengið þingleyfi til þess að stefna þingmanni fyrir ummæli, sem hermdu satt eitt um atferli þess og höfðu auk þess verið endurtekin utan þinghelginnar. Atkvæðagreiðslan í Neðri deild stóð því alls ekki um það, hvort 5-menningarnir ættu að fá tækifæri til þess að stefna Ólafi Thors. Til þess hafa þeir greiðan aðgang. Þeir hafa þessvegna ekki verið sviptir neinum rjetti við synj- un Neðri deildar á beiðni þeirra. En þingmenn hafa hins- vegar látið í ljós álit sitt á hinum frámunalega teprulega og grunnfærnislega málatilbúnaði þeirra. Öll þjóðin hefur horft upp á þennan tepruskap og haft á honum djúpa fyrirlitn- ingu. Enginn hefir þó haft þvílíka vanvirðu af honum og þingmaðurinn, sem var einn af hinum fimm, prófessorinn, sem alltaf er að snúast og stóð að lokum uppi gjörsamlega ein angraður frá flokki sínum í fylgd með Framsóknarmönnum einum, sem hjeldu sig gera Ólafi Thors og Sjálfstæðisflokkn- um bölvun með afstöðu sinni. En þeir skutu gjörsamlega yfir markið. Kjarni þessa máls er annars sá, að Ólafur Thors hefur með endurtekningu ummæla sinna utan þinghelginnar gefið „fína fólkinu“ möguleika til málshöfðunar. Alþingi hefur hinsvegar ckki viljað rjúfa þinghelgi stjórnarskrárinnar. Bæði Ólafur Thors og Alþingi hafa haft skynsamlegan hátt á. En „fína fólkið“ hefur borið sig fram úr hófi kjánalega að. Þessvegna situr það nú uppi með hneisuna í umkomuleysi „fínheita“ sinna- .• \Jíbuerji áhripar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Það borgar sig að tala við vörðinn ÞAÐ er als ekki. svo vitlaus áskorunin til þeirra, sem leið eiga út á Reykjavíkurflugvöll, að þeir tali við vörðinn við hliðið. Þetta eru allra skýr- ustu náungar, eins og getið var til, þegar á þessa varð- þjónustu var minnst hjer á dögunum. Einn þeirra kom til mín með fróðlega skýrslu um störf lögregluvarðanna við hlið flugvallarins og þykir eftir at- vikum rjett, að birta þá skýrskuhans. „Fyrir tæpum þremur ár- um“, segir vörðurinn, „þegar íslendingar tóku við vellinum, setti þáverandi flugvallar- stjóri reglur, allumfangsmiklar um umferð á vellinum". • Margir vildu skoða „FYRST eftir að völlurinn var opnaður almenningi þurftu margir að koma þangað til að skoða hann og vildi þá brenna við, að sumir færu lengra, en leyfilegt var í hnýsni sinni. Um hríð varð að hafa tvo eftirlitsmenn í bifreið, sem fóru um völlinn ásamt lögreglu- manni. . Kom það ósjaldan fyrir, að menn voru teknir, sem höfðu brotist inn í birgðarskemmur". Óvinsæl afskipta- semj ÞÁ segir vörðurinn, heimildar- maður minn, frá því, að í fyrstu hafi verið skrifuð niður nöfn þeirra, sem komu á völlinn, en það hafi í senn verið tafsamur og óvinsælt og auk þess óþarfi í flestum tilfellum. Var þess- ari skriífinsku hætt smátt og smátt, þar til hún var með öllu lögð niður. Fjöldi manns á erindi á völl- inn daglega til þess að taka á móti farþegum, eða kveðja þá. Sumir þurfa að fara í flug- vallargistihúsið og loks er kominn baðstaður í Nauthóls- vík, sem hundruð manns sækja á sumrin þegar veður er gott. Verðirnir gefa upplýsingar „Á HVERJUM degi nemur fjöldi manns staðar til að tala við vörðinn“, segir kunningi okkar og sjest á því, að áskor- unin ber árangur. Fólkið bið- ur um upplýsingar um hitt og þetta, hvar þessi stofnun sje á vellinum, eða hin. Ökunnugir gætu flækst út á flugbrautir í ógáti og stofnað lífi sínu og annara í hættu. Krakkar leita talsvert inn á völlinn fylgdarlaust, hestar og kindur einnig. Vörðurinn hef- ur eftirlit, að ekki sje ekið bif- reiðum ógætilega á vellinum. Loks er vellinum lokað klukk- an 11,30 á kvöldin, en þó þurfa menn að komast inn og út af hónum, t. d. þeir, sem búa í gistihúsinu, eða eru þar á skemtunum. gj jgf tm • 1400 bílar á dag ÞAÐ er hreint ekki svo lítil umferð um hliðið. Einn daginn fóru þar um 1400 bílar, segir heimildarmaður minn. (Má vörðurinn þakka sínum sæla fyrir, að það fóru ekki allir eftir áskoruninni um að tala við vörðinn). „Það or því ekki óeðlilegt, að á þessum stað sje lögreglu- vörður, enda hefur það oft komið fyrir, að bifreiðastjórar hafa verið teknir þarna við hliðið fyrir eitthvað ólöglegt athæfi. Það virðist t.d. vera hrein- asta gildra fyrir þá, sem aka ölvaðir, því á einu ári hafa Verið teknir, 12 ölvaðir bif- reiðastjórar vð hliðið. „Af framangreindum ástæð- um og öðrum ástæðum, hefur ekki þótt rjett, að leggja niður varðgæslu á, þessum stað“, segir vinur okkar að lokum. • Ekki altaf „opið að aftan“ HVAÐ „bakdyrnar“ snertir þá er það upplýst í málinu, að það er ekkj altaf „opið að aftan“. Á daginn á Flugfjelagið að hafa vörð við hliðið, en það er lokað eftir vinnutíma á kvöld- ágætar, en þær breyta ekki þeirri skoðun, sem hjer hefur komið fram, að þessi varð- * gæsla er kák eitt á meðan völl- urinn er ógirtur, eða sama sem og hægt er að komast inn á hann svo að segja hvar sem er, bæði af sjó og landi- En það er svo margt kákið, að þetta er kanske ekki verra en hvað annað! • Grænmetið og „drottningin“ ERLENDUR Pjetursson, af- greiðslumaður Sameinaða, hef ur bent mjer á, að það sje ekki rjett, að grænmetið, sem kom á dögunum hafi verið í ,.Dr. Alexandrine“. Með því skipi voru aðeins kartöflur. Kálið var í öðru skipi, sem beið eftir afgreiðslu vegna verkfallsins. Erlendur sagði mjer einnig, að hann og forstjóri Grænmet- isverslunar ríkisins, hefðu gert alt, sem í þeirra valdi stóð til þess að, kartöflurnar kæmust í land, en alt þeirra strit í því sambandi hefði kom ið fyrir ekki. • Börnin í kirkju- garðinum ÞAÐ er sama sagan um allan heim, að húseigendum er illa við að leigja barnafólki íbúðir. Hjón nokkur í Ameríku, sem voru í húsnæðshraki leituðu til húseigenda nokkurs og föl- uðu íbúð hjá honum. Húseig- andi spurði þau allra venju- legra spurninga, sem leigjendur eru spurðir um og loks spurði hann hvort hjónin ættu börn. — Við eigum þrjú börn, svaraði maðurinn, en frúin brá vasaklút upp að augunum og tár hrökk niður kinnar hennar. — Og hvar eru börnin?, spurði húseigandinn. — Þau eru í kirkjugarðin- um, svaraði maðurinn mæðu- lega. í Húseigandinn gekk inn á að leigja íbúðina og samningar voru undirskrifaðir. — Síðan fóru hjónin út í kirkjugarð og sóttu börnin sín þrjú, sem voru þar að leika sjer, og fluttu inn Þessar upplýsingar eru allar í nýju íbúðina. ••iMniiiiiuiiimiaiiiMiMimiimiiTimiiiiimnMiiiit.. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Einn i?f hverjum 60 Parísarbúum eftirlýsfur afbrofamaður Eftir Russel Howe, frjettaritara Reuters. PARÍS — Sívaxandi hópur vopnaðra glæpamanna er far- inn að valda hinum 22.000 lögreglúmönnum Parísar mikl um vandræðum. Einn af starfsmönnum frönsku lögreglunnar skýrði mjer nýlega frá því, að í borg- innj og úthverfum hennar sje nú einn maður af hverjum 60 eftirlýstur afbrotamaður. Fyrir stríð var vitað, að að- eins einn af hverjum tíu glæpa mönnum bar byssu að vopni. í dag er svo komið, að níu af hverjum tíu Parísarglæpa- mönnum er vopnaður. Þeir hafa tekið upp hátt starfs- bræðranna í Chicago og nota marghleypur eða jafnvel hríð- skotabyssur við iðju sína. • • SKIPULÖGÐ STARFSEMI 1947 VORU framin 286 morð í París. Lögreglan handtók 249 manns í sambandi við morðin. En á sama tíma voru framdar 948 „vopnaðar árásir“, og lög- reglunni tókst aðeins að hand- sama 439 af árásarmönnunum. Um 600 mál eru ennþá óleyst. Tölur eru enn ekki fyrir hendi fyrir síðastliðið ár. Glæpastarfsemin í París er vel skipulögð þessa dagana. — Glæpaflokkaforingjarnir lifa góðu lífi í námunda við Bois de Boulogne eða á „Rivier- unni“, gefa aðstoðarmönnum fyrirskipanir sínar, sem síðan koma þeim áliðis til „hinna óbreyttu“, sem aldre sjá sjálf- an foringjann. • • TVEIR BÍLAR NOTAÐIR HAGSÝNUSTU glæpaflokka- foringjarnir ráða yfir vopná- búrum, stjórna nokkrum sæmi lega heiðarlegum fyrirtækjum til þess að villa mönnum sýn — og hafa góða lögfræðilega ráðunauta. Algengast er það, að glæpa- flokkar frönsku höfuðborgar- innar noti tvo bíla á ránsferð- um sínum. Annar tilheyrir flokknum og er látinn standa, með vjelina í gangi, á umferð- arlítilli hliðargötu. Mennirnir, sem framkvæma sjálían glæp- inn, stela hinum bílnum. Þegar „vinnunni“ er lokið, flýja glæpamennirnir í stolna bílnum og skilja hann eftir, þegar þeir koma að sínum eig- in bíl. Á þennan hátt koma þeir í veg fyrir það, að lög- reglan fái lýsingu á bíl þeirra. • • AFBROTAMENN FRÁ NORÐUR-AFRÍKU ÁTJÁN stórþjófnaðir, sem meir en 100 glæpamenn tóku þátt í, voru á þennan hátt framdir í París 1947. Aðeins átta menn voru handteknir í sambandi við þessa þjófnaði. 17 lögreglumenn falla að meðaltali á ári hverju í viður- Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.