Morgunblaðið - 30.04.1949, Page 16
VEÐUKÚXLITIÐ FAXAFLÓI:
FRJETTIR af vertíðinni eru á'
Isfiskur á Bretlands-
markað fyrir 4 milj. kr.
DAGANA 21. apríl til 29., seldu 12 íslenskir togarar ísvarinn
fisk á markað í Bretlandi. Samtals lönduðu þeir 45.864 kíttum
aí fiski og samanlagt söluverð hans nam kr. 3.573.693. Auk þess
aeld.u þrju fiskflutningaskip bátafisk þar fyrir rúmlega 444 þús.
►fcóh'uí. Þessa semu daga lönduðu átta togarar fiski í Þýskalandi.
SeWi isest í fyrstu ferð
Af þeim 12 togurum, sem
aeidu í Bretlandi, er togarinn
Uranus frá Reykjavík með
Haesta sölu. Hann seldi fyrir
F«m 15000 sterlingspund. Helga
fell frá Reykjavík, var með
mestan afla af þeim togurum
sem lönduðu í Þýskalandi, og
fiskflutningaskipið Rifsnes er
með hæsta sölu fiskflutninga-
skipanna. X
Sölurnar í Bretlandi
Togararnir sem seldu í Bret,-
landr eru þessir: Surprise sem
var með 3085 líitt seldi fyrir
9138 sterlingspund, Júlí 4555
kit fyrir 14168 pund, Bjarní Ó1
afsson 4092 kit fyrir 11364. —
Bjárr.. riddari 3932 kit fyrir
11221, Elliði 4313 kit fyrir
12094 pund, Jón forseti 4655
kíí* fyfir 14126 pund, Maí 2098
kȒ* fvrir 7703 pund. Egill
Skallagrímsson 3830 kit fyrir
10874, Skúli Magnússon 5164
h>c fyrir 14643 pund, Uranus
4715 kit fyrir 15241 pund.
Venus 3118 kit fyrir 9750 pund
og Þórólfur 2305 kit fyrir 6654
sterlingspund.
Fiskflutningaskipin eru Ing-
ólfur Arnarson með 760 kit er
hann seldi fyrir 2639 pund, Rifs
nes 1780 kit fyrir 7423 pund
og Ingvar Guðjónsson 2251 kit
og seldi fyrir 6986 pund.
Þýskaland
í Þýskalandi lönduðu þessir
togarar: Helgafell RE 297 smál.
íselfur 203 smál. Fylkir 319,
Ing< ur Arnarsson 304, Askur
279, Karlsefni 282, Geir 291, og
Eiii';áeý'íl72 smálestum.
Verðið á öllum bolfisk. nema
steinbít er 39 sterlingspund
tonnið. á hinum bresk-banda-
ríska hernámssvæði Þýskalands.
ftnillfriafáð iðnnema
fr@3dnr aðaiiund
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
iðnnemafjelaganna í Reykjavík
og Hafnarfirði, var haldinn ný-
lega. Á fundinum voru rædd
ý)nr> hagsmunamál iðnnema svo
SCITi.
Möguleikar á útbreiðslu Iðn-
nemans, málgagni Iðnnemasam
bandS Islands, Fræðslustarf-
semi Fulltrúaráðsins svo og önn
ui fjelagsmál.
í stjórn Fulltrúaráðsins, fyr-
ii: næsta kjörtímabil, voru kosn
ii • Fmnbogi Júlíusson, blikk-
smíðanemi, formaður, Björn
Júlíusson, rafvirkjanemi ritari
og Sigurður Árnason, múrara-
»«mi frá Hafnarfirði, meðstjórn
andi, Fundurinn var mjög fjöl
sóttu r og ríkti mikill áhugi fund
ovmanna á málefnum samtak-
U’ /:
<s------------------------
Hvalveiðar hafnar
viS landið
HVALVINNSLUSTÖÐIN í
Hvalfirði er tilbúin til vinslu,
en vertíð er rjett nýbyrjuð.
í vetur sem leið hefur verið
unnið að því að auka afköst
verksmiðjunnar, með því að
setja þar upp nýjan sjóðara.
Á þann hátt hefur afkastageta
verksmiðjunnar verið aukin um
50cc, og ætti því að vera auð-
velt að vinna úr sex hvölum á
sólarhring. Við verksmiðjuna
sjálfa vinna í sumar 70—80
menn.
Fjórir norskir hvalveiðibát-
ar. hinir sömu og í fyrra verða
gerðir út, og eru þeir allir farn-
ir á veiðar. Tíðarfarið hefur háð
aflabrögðum og munu bátarnir
ekki hafa verið búnir að veiða
neinn hval í gærdag. Hvalskytt
urnar eru norskar, en á skipun-
um verða bæði Norðmenn og
Islendingar.
Dr. Julian Huxley
kemur fil íslands
HINN heimskunni breski vís-
indamaður, dr. Julián Huxley
hefir í hyggju að koma til ís-
lands í sumar. Eins og kunn-
ugt er var hann fyrsti fram-
kvæmdastjóri UNESCO, menn
ingarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Hann hefir gegnt
mörgum vitðingarstöðum í
breskum vísindafjelögum. —
Hann hefir meðal annars ver-
ið forseti dýrafræðifjelagsins
breska, sem er öflugur og stór-
merkur fjelagsskapur.
Dr. Huxley mun koma hing-
að í júnímánuði. Er hann í
fylgd með tveimur breskum
fuglafræðingumm, sem kom
hingað til að rannsaka lifnaðar
hætti súlunnar. Heita þeir J.
Fisher og Vevei-s. Fyrir 10 ár-
um rannsökuðu breskir fugla-
fræðingar lifnaðarhætti súlunn
ar. — Var súlan valin
vegna þess hve tiltölulega
auðvelt er að telja hana og
vegna þess, að hún er aðeins til
á nokkrum stöðum í heiminum.
Núna eftir 10 ár verður súlan
talin á ný og rannsóknir bornar
saman við hinar 10 ára gömlu
rannsóknir.
í fylgd með þeim fjelögum
verður kunnur breskur fjall-
göngumaður, sem á,að klífa í
björg, þar sem aðrir komast
ekki og loks er maður frá sjón-
varpinu í London, sem mun
taka myndir af fuglalífinu í
Vestmannaeyjum og jafnvel
víðar og verður myndum hans
síðar útvarpað.
Ðavíð frá Fagraskógi
Leikrit Davíðs Stefánssonar,
Gullna hliðið, hefuv verið
sýnt í bænnm Abo í Finnlandi
og vakti sýning þess mikla at-
hygli. — Á 2. síðu er skýrt
frá þessu.
Fasiar flugferðlr
hjeðan fil london
FLUGFJELAG ÍSLANDS hefir
í hyggju að halda uppi föstum
flugferðum milli London og
Reykjavíkur í sumar og verður
fyrsta flugferðin farin næstkom
andi mánudag tíg komið aftur
á þriðjudag.
í þessari ferð verða um 25 far
þegar, en auk þess munu blaða
menn fara í þessa vígsluferð.
Gullfaxi annast þessar ferðir,
eins og aðrar utanlandsferðir fje
lagsins.
Það munu margir verða ángð
ir með þá nýbreytni Flugfjelags
íslands að hafa ferðir alla leið
til London, í stað þess að þeir,
sem hafa ætlað til Englands,
eða Suður-Evrópu, flugleiðis
hjeðan hafa ekki kómist lengra
en til Prestwick flugleiðis frá
íslandi, en þurft að skifta þar
um flugvjelar eða fara með járn
brautarlestum til London.
Gullfaxi fór í gærmorgun til
London með kaupsýslumenn á
iðnaðar- og verslunarsýningu.
sem haldin er um þessar mund
ir í Bretlandi.
Fram fær þýskan
þjálfara
EINHVERN næstu daga er
væntanlegur til landsins þýsk-
ur knattspyrnuþjálfari á vegum
knattspyrnufjelagsins Fram.
Þjálfarj þessi er Theodór
Langel. Hann er í tölu fremstu
knáttspyrnuþjálfara Þjóðverja
og hefir m. a. verið þjálfari hin
kunna þýska fjelags „Schalke
04“. —
Langel er 34 ára að aldri. —
Hann hefir jafnframt knatt-
spyrnunni lagt stund á hand-
knattleiksþjálfun og mun hann
sennilega þjálfa kvennaflokk
Fram.
Framarar vænta mikils af
þjálfara sínum, en æfingar fje-
lagsmanna hafa að miklu leyti
legið niðri nú í vetur.
Sjálfslæðismenn minnast |
l.maí kvðldskemfun
EINS og auglýst hcfur verið, efna Sjálfstæðismenn til hátíðar
í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 8,30. Verður 1. maí þar
minnst og munu forustumenn úr röðum verkalýðssamtakanna
f.ytja ræður en auk þess verða ýmiss skemmtiatriði og að síð-
ustu dans.
I.maí
HÁTÍÐAHÖLD Alþýðusam-
bands íslands og Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, þann
1. maí hefjast með því, að Lúðra
sveit Reykjavíkur leikur á
Lækjartorgi kl. 1,40.
Klukkan 2 hefst svo útifuncl-
ur þar, en fundarstjóri verður
Guðjón B. Baldvinsson ritari
B.S.R.B. Þar flytur forseti Al-
þýðusambandsins, Helgi Hann-
esson ræðu. Aðrir ræðumenn
verða Ólafur Björnsson forseti
B.S.R.B., frú Kristín Ólafsdótt-
ir, Friðleifur Friðriksson for-
maður Vörubílstjórafjelagsins
Þróttur, Matthías Guðmunds-
son formaður Póstmannafjelags
ins og Jón Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
ins.
Um kvöldið verður svo
skemmtun, sem Alþýðusam-
bandið gengst fyrir, í Iðnó og
verður þar margt til skemmt-
ana, ræður, söngur, upplestur
og dans.
Tvö sfærstu verkalýðsfé-
lög Banadar. ákveða að
ganga í hin nýju alþjóða-
samfök verkamanna
WASHINGTON, 29. apríl: —
Tvö stærstu verkalýðsfjelög
Bandaríkjanna, AFL, sem telur
8 milj. fjelaga og CIO, sem tel-
ur 6 mi-lj. fjelaga, hafa samþykt
að ganga í hin fyrirhuguðu
nýju alþjóðasamtök verka-
manna er verða ókommúnistisk.
Samkvæmt samningi þeim, er
þessi tvö verkalýðsfjelög hafa
gert með sjer, munu þau senda
fulltrúa á fund þann, er haldinn
verður í Genf snemma í júní, til
þess að undirbúa stofnun hinna
nýju alþjóðasamtaka verka-
manna og ákveða, hverjum
skuli boðin þátttaka í þeim.
Búist er við því, að eftir fund
inn í Genf, muni frjálsum
verkalýðsfjelögum, þ. e. a. s-
þeim, sem ekki eru í einu og
öllu háð stjórn lands síns, í
Evrópu, Asíu, Afríku og Suður
Ameríku boðin þátttaka. Talið
er, að um 40 milj. verkamanna
muni tilheyra hinum nýju sam-
tökum áður en lýkur.
LONDON — Frú Pandit, systir
Nehru, forsætisráðherra Indlands
sem nýlega var skipuð sehdi-
herra lands síns í Washingtón,
kom nýlega til London á leið
þangað. — Mun hún ræða við
bróður sinn, sem dvelur í London
um þessar mundir.
Meðal ræðumanna verða:
Ingimundur Gestsson, Friðleif-
ur Friðriksson, Böðvar Stein-
þórsson, Sveinn Sveinsson, Sig-
urjón Jónsson og Ólafur Páls-
son. Nokkrir fjelagar úr Karla-
kór Reykjavíkur syngja. Briem
kvartettinn leikur vinsæl lög,
Ólafur Magnússon frá Mosfelli
syngur einsöng að lokum verð-
ur dansað fram eftir nóttu. Að-
göngumiðar verða seldir í skrif
stofu Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðismenn hafa á und-
anförnum árum efnt til sjer-
stakrar samkomu í Sjálfstæðis-
húsinu 1. maí. Hafa þessar sam
komur alltaf verið mjög fjöl-
sóttar og sýnt vel hið mikla og
trausta fylgi er Sjálfstæðis-
flokkurinn á að fagna innan
verkalýðssamtakanna. Á sam-
komunni á morgun koma fram
ýmsir forustumenn leiðandi
verkalýðsfjelaga hjer í bænum
og er ekki vafi á því að miklu
færri en vilja munu komast í
Sjálfstæðishúsið á morgun. Er
því fólk hvatt til þess að tryggja
sjer miða sem allra fyrst.
Kanada úfnefnir
sendiherra hjer
RÍKISSTJÓRN Kanada hefur
tilnefnt Edward Joseph Gar-
land, sem sendiherra Kanada á
íslandi, með aðsetri í Oslo.
Þann 4. apríl s. 1. var sendi-
herranum veitt viðurkenning af
ríkisstjórninni og forseta Is‘-
lands. Ekkert liggur enn fyrir
um, hvenær kanadiski sendi-
herrann kemur hingað til að
afhenda forseta trúnaðarbrjef
sitt.