Morgunblaðið - 13.05.1949, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.05.1949, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 13. maí 1949. Hæstsirjettordómuf MlRningarorÍ: HeEgi Guð- mundsson læknir í Keffavik Frarnh. af hls. 5. varðsson, sjer-atkvæði í máli þessu, svohljóðandi: Samkvæmt vætti tveggja far þega í bifieið gagnáfrýjaða fór hesturinn á hægu brokki út á veginn og stefndi yfir hann án nokkurra óvæntra viðbrigða. Telur annað þessara vitna, sem er vanur bifreiðarstjóri, að þá hafi verii 6—7 bíllengdir að hestinum. Hafi bifreiðarstjór- inn þá hægt ferð bifreiðarinn- ar, en eigi hafi hann beitt heml um, fyrr _n eftir að bifreiðin hafði rekist á afturhluta hests- ins vinstra megin. Telur vitni þetta, að stöðva hefði mátt bif- reiðina, áður en áreksturinn varð, jafnvel þótt hemlum hefði ekki verio beitt strax og sást til hestsim og eigi fyrr en kom- ið vár 'allnærri honum. Verður því að telja, að bifreiðarstjóran- um -hafi verið innan handar að afstýra slysinu, ef hann hefði sýnt hauðsynlega aðgæslu og beitt JþerrJum í tæka tíð. Sam- kvæmt því. sem nú var rakið, og trjeð r.kírskotun til 34. gr. lagar^ir. 23/1941, er leggur sönn unarbyrði um fulla aðgæslu ökiimanns á hendur ábyrgðar- manni bifreiðar, þykir gagná- frýjándi eiga að bæta aðaláfrýj andá tjón hans, en ekki er á- stæða til að leggja hluta sakar á aðaiáfrúianda, þótt hesturinn rynni laus yfir veginn, þar sem hariri gierði það án allra óvæntra og oeðiilegra viðbragða og bif- reiðin var í beirri fjarlægð frá honum, sem áður er lýst, er hann fór inn á veginn. Menn þoir, sem framkvæmdu mat á hestinum, telja, að slík- ur kestur hefði eigi verið seld- ur undir 6000—7000 krónum, en •; ýíð þá fjárhæð hafi þeir bætt 1000—2000 krónur í sára- bæfur áfr^janda til handa. Miða verður bætur einungis við á- ætlað söluverð hestsins, og þyk ir samkvæmt því rjett að dæma . -—............- -im r nnmw— r ussningasandur ; ii á Hvaleyri. | Siri'.i: 9199 og 9091. = Guðmu. dur Magnússon. I ■MtHuiiMMMmmwmimnnimiMMiiitMWfnnnMnm ! Endui,_-oðunarskrlfstofa = i 'lfs ísfelds ETfÓI.FSSONAR, | lögg. endursk. Túngötu 8. i Sími 81388 I Mit.;-:iti»Hit»M'iMiiiil»tsmnMfl gagnáfrýjanda til að greiða að- aláfrýjanda kr. 6500.00 ásamt vöxtum, eins og krafist er, og samtals kr. 2000.00 í málskostn að í hjeraði og fyrir Hæsta- rjetti. Samkvæmt þessu teljum við, að dómsorð ætti að hljóða svo: Gagnfrýjandi, Steindór Ein- arsson, greiði aðaláfrýjanda, Kristjáni Guðmundssyni, kr. 6500,00 ásamt 6% ársvöxtum frá 29. apríl 1947 til greiðslu- dags og samtals kr. 2000.00 í málskostnað í hjeraði og fyrir Hæstarjetti að viðlagðri aðför að lögum. Gunnar Þorsteinsson flutti málið í Hæstarjetti fyrir Krist ján Guðmundsson, en fyrir Steindór Einarsson, Theódór B. Líndal. — Atlanfshafsbandalag Framh. af bls. 1 að tryggja heimsfriðinn“. Hann benti á, að Bandaríkjamenn eyddu % af þjóðartekjum sín- um í að aðstoða Evrópuþjóð- irnar og þeir peningar kæmu ekki allir frá „miljónamæring um í Wall Street“. s Andúð Rússa „Agreiningur okkar og rúss- nesku stjórnarinnar kom í ljós áður en styrjöldinni lauk. And- úð þeirra í garð hinna vestrænu bandamanna var augljós fyrir árslok 1945“, sagði Churchill. — Hann kvaðst ætíð hafa verið öflugur stuðningsmaður þess, að myndað yrði bræðralag ensku-mælandi þjóða, sem og að Evrópuráði yrði komið á fót. „Aðeins á þann hátt verð- ur hægt að varðveita frið, mannkyninu til handa“. Verður íslandl boðin þátttaka? Loks sagði Churchill að vegna þess að það hlyti óhjákvæmí- lega að verða nokkur bið á því, að Atlantshafssáttmálinn yrði staðfestur í öllum viðkomandi löndum, þá myndi æskilegt að starfssvið hernaðarnefndar Ev- rópuráðsins yrði breikkað með því að bjóða Ítalíu, Portúgal, Danmörku, Noregi og Islandi að senda áheyrnarfulltrúa á fundi nefndarinnar. Islandsvinir í Upp- sölum sfofna „Is- lanska Sallskapef „ISLÁNDSKA Sállskapet“ nefnist fjelagsskapur, sem stofn ^ aður var 1 Uppsölum 26. apríl s.l. fyrir forgöngu helstu nor- rænufræðinga Uppsalaháskóla. Var próf. Jöran Bahlgren kjörinn formaður, próf. Valter Jansson varaforomaður, ívar Lundahl bókavörður og Anders Sundquist fil. lic. gjaldkeri, en meðstjórnendur eru Sigurd Fries fil. mag., Nathan Lind- quist prófessor, Dag Ström- báck prófessor, Göran Hagg- ström framkvæmdastjóri, And- ers Diös verkfræðingur, dr. Rolf Nordenstreng og Lennart Moberg dósent. Fyrstu heiðursfjelagar voru kjörnir dr. Helgi Briem sendi- fulltrúi íslands og dr. Einar Ol. Sveinsson prófessor. Einar Ól. Sveinsson hjelt fyrirlestur um Landnámabók við Uppsalaháskóla, og hjelt hið nýstofnaða fjelag honum samsæti eftir fyrirlesturinn. — Bókmenniir Frh. aí bls. 5. lönd og kemur stöðugt út í nýj- um og nýjum útgáfum. Maupasant var ekki bjart- sýnn maður og hafði mjög tak- markaða trú á hið góða í mann- linum. Margar sögur hans eru sóðalegar og ljótar, en flestar ritaðar af mikilli snild. Smá- sagnatækni hans er einkum við brugðið. — En einnig „Bel- Amí“ er gerð af leikandi kunn- áttu. — Lesandinn kynnist fyrst söguhetjunni, George Duroy, á skvernum í París, þyrstum og auralausum. Hann er að ráfa þar að kvöldlagi: — laglegur náungi, sem gengur í augun á stúlkunum. Þött þetta sje eiginlega mesti mannhund- ur og óþokki, er hann jafnframt svo mannlegur, að lesandinn fær ósjálfrátt áhuga fyrir hon- um og ánetjast frásögninni svo rækilega ,að mjög erfitt er að hætta, fyrri en bókin er búin. Hún er hvergi leiðinleg; — en þó er eitt leiðinlegt um þessa útgáfu að segja: að hún skuli ekki vera þýdd úr frummálinu. frönskunni. Kristmann Guðmundsson. —ag—aawwMBa ..wami.il»mimammtmmmwn—— STÚDENTSÁRIN eru langt að baki, en nálæg í minningunni. Drengirnir, sem' gengu niður Skólabrúna 29. júní 1912, 21 að tölu, hver með sína nýju stú- dentshúfu á höfði, báru fangið fullt af glæstum framtíðarvon- um, eins og venjulegt er á þeim dýrðardegi. Lífsreynslan var enn ekki ýkjamikil, og því var ekki um það efast, að framtíðarbraut- in yrði hverjum einum greið og gæfurík til hárrar elli. Eins og oss voru duldir þeir herbrestir og þær hamfarir, sem verða áttu í samskiftum þjóða á ævi vorri, eins var fjarri því að oss óraði fyrir, að meira en þriðji hver í hópi rorum ætti að hníga í val- in fyrir aldur fram, eins og raun er á orðin. Megum vjer nú, er vjer lítum til baka, taka oss í munn orð skáldsins: „Þar stóð jeg ungur og ekki hugði út fyrir boða að breiðum sandi“. Einn af stúdentunum frá 1912, Helgi Guðmundsson, læknir, Ijest á Vífilstaðahæli 29. f. m., eftir langa baráttu við hinn hvíta dauða, og í dag er hann til graf- ar borinn frá heimili sínu í Kefla vík. Þykir oss, fornum fjelögum hans, nærri oss höggvið við frá- fall hans, en þyngstur harmur er kveðinn að nánustu ástvinum hans, eiginkonu, börnum, aldur- hniginni móður og bræðrum. Hjer verður farið fljótt yfir sögu um æviatriði og starfsferil Helga læknis, enda er mjer, sem þetta rita, ekki svo kunnugt um þau efni sem skyldi, þar sem svo mikil fjarlægð skildi okkur um starfsárin öll. Helgi var fæddur 3. ágúst 1891 á Bergsstöðum í Svartárdal og voru foreldrar hans Guðmundur Helgason, prestur þar, og kona hans, Jóhanna Jó- hannesdóttir frá Brekku í Þingi. Eyjólfssonar. Sjera Guðmundur ijest 18. nóv. 1895, aðeins 32 ára að aldri. Voru þá fjórir synir þeirra hjóna í bernsku, og Helgi þeirra elstur. Vann móður þeirra fyrir þeim af frábærum dugnaði um uppvaxtarár þeirra öll og lagði kapp á að afla þeim mennt- unar, eftir því sem föng voru á. Fluttist hún með þá til Reykja- víkur, til þess að hægara yrði um skólagöngu fyrir þá . Þegar Helgi hafði lokið stú- dentsprófi, hóf hann nám í lækn- isfræði við háskólann í Kaup- mannahöfn, en hvarf síðan heim og lauk náminu við háskólann hjer. Stuttu síðar settist hann að í Keflavík og gegndi þar læknis- störfum alla tíð síðan, meðan Helgi Guðmundsson. heilsan leyfði. Settur var hann hjeraðslæknir í Keflavikurhjer- aði um tíma árið 1929, en annars leitaði hann aldrei eftir að fá læknisembætti, þar eð starfssvið hans þar syðra veitti honum meira en nóg viðfangsefni. Helgi kvæntist 23. júní 1919 Huldu Matthíasdóttur, alþingk • manns í Haukadal, Ólafssonai, ágætri og mikilhæfri konu, ein-í og hún á kyn til. Var hún hon- um jafnan mikil stoð í starfi hans, enda hjúkrunarkona að mennt- un og hafði gegnt því starfi áð- ur en þau giftust. Þau hjónin eignuðust 8 börn, en eitt þeí: ra dó í æsku. Tveir af sonum þeirra eru kvæntir og búsettir í Keí.a- vík, ein dóttir, Jóhanna, gift sjtra Yngva Þ. Árnasyni á Prestsbakka í Hrútafirði, og önnur dótiir, María, á heima hjer í bænii.n. Þrjú yngstu börnin eru hjá m. - ur sinni í Keflavík. Bræður Helga, sem iifa, eru þeir Jóhannes, bóndi í Arnarn ,i, og Steingrímur, stúdent, starcs- maður hjá tollstjóra. Einn brcð- irinn, Ingvar, er látinn fyrir mörgum árum. Frú Jóhanna, móðir Hel.i læknis, dvelst nú hjá Steingrími syni sínum hjer í bænum. Hún er komin yfir nírætt, enn v -1 ern, mikil hetja í raunum, e ; og hún var dugmikil og framia söm á öllu starfsskeiði ævin • ar. „Seint eldast skólabræður , segir gamalt orðtak skólamanna, og er það orð að sönnu. Hafa þau sannindi aldrei verið mjer augljósari en á þeim stundui.., er jeg hefi verið samvistum me » Helga sál., fyrr og síðar. Har . var hinn ljúfasti maður í kynn ingu, góðlyndur og glaðlyndur, svo að af bar, hrókur alls fagn aðar, er fundum gamallá fjelaga bar saman. Fór hann þó ekki, fremur en aðrir, varhluta aí* strangri lífsbaráttu. Fátækt var fjötur um fót á námsárunum Síðan tók við erfitt starf og ó næðissamt, forsjá fyrir stóru heimili og að lokum iangvinná Mtt'‘.1ÍI5 ■IIIM !»••• MIIC ifll II 31 > M laf MKI Eftir Ed Dodd I'VE NEVER r TTOU0H AS PAW- r4BEdN IN BEAVER RUN 7TOUGH?jHIDE...REGULAR C-mMP, MARK, BUT I'VE HEAAD THE BOSS 1S A FABULOU3 CHAPACTER NAMED HATT MORLEY &-{? WAM Markús og Towne koma að Vatnastíflu. — Jeg hef aldrei fyr komið að Vatnasiíflum, Markús en jeg hef h yrt talað um, að for- maðurinn ~ie ægilegur, kallaður Vígbjörn lirotti, — Jæja, er hann harður í horn að taka. — Já, líkt og mannýgt naut. Það er sagt að hann sje hreinn og beinn þrælahaldari, rekur mennina áfram eins og skepn- ur. k/^Wm i í~ es Þegar þeir koma að skrif- stofunni í Vatnastíflum, sjá þeir að mannskræfu einni er kastað út um dyrnar. §tf¥ (ssri^- -- — Hvað kom fyrir, fjelagi sæll. — Jeg bað Vígbjörn um vinnu. sjúkdómsstríð. En ekkert al' þessu fjekk bugað glaðlyndi hans. Það er þó víst, að Helgi sál. hafði næma tilfinningu fyrii þeirri ábyrgð, er á honum hvíldi í starfi. En honum var svo ljúft að leggja sig allan fram, hlýleik- inn, sem inni fyrir bjó, varpaði mildum blæ yfir hverja þá erfið- leika, sem á vegi urðu. Þykir mjer sennilegt, að þeir, sem leit- uðu hans sem læknis, minnisí; eigi aðeins beinnar læknishjálp- ar hans með þakklæti, heldui finni og, að ljúflyndi hans og bjartsýni hafi eflt þrek þeirra og’ batavonir. Vjer, vinir og skólabræður Helga læknis, kveðjum hann met þökk fyrir ijúfar og ógleyman- legar samverustundir fyrr og síðar. Vjer vottum ástvinum. hans samúð vora. Minningu hans munum vjer geyma í þakklátum. huga til vegferðarloka. Jón Guðnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.