Morgunblaðið - 10.06.1949, Qupperneq 1
16 síður
Danska viðskiptanefndin, sem dvelur nú hjer á landi. Talið frá vinstri: Heering landsrjettar-
málaflutningsmaður, Möller fulltrúi í ,,Direktoratet for Vareforsyningen“, frú Bodil Begtrup,
sendiherra Dana, Sandager Jeppesen skrifstofu stjóri í utanríkisráðuneytinu, formaður nefndar-
innar og Barnekovv skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Dönsk viðskiptanefnd í Reykjavík
/
JUlgóður árungur uf fundi
utunríkisráðherrunnu í gær
Vishtnsky skiffi skyndl-
lega tim skoðun og ffellsf
á helstii fillögur Acheson
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuíer.
PARÍS, 9. júní — Á ráðstefnu utanríkisráðherra fjórveldanna
í dag, fjellust Rússar á, að sjerhver hinna fjögurra utanríkis-
ráðherra, skyldi senda fvrirskipanir til hernámsstjóra ríkis síns
í Þýskalandi um að hafa lokið skýrslu sinni varðandi sam-
göngubannið eigi síðar en 13. júní n.k. — Andrei Vishinsky,
utanríkisráðherra Rússa, lýsti yfir þessu í lok fundarins í dag,
sem er sá lengsti er haldinn hefur verið til þessa og stóð í
meira en 4y2 klst. Ráðherrar Vesturveldanna fjellust þegar á
þessa tillögu Vishinsky. Með henni hafa utanríkisráðherrarnir
komist nær samkomulagi en nokkru sinni áður, síðan ráðstefna
þeirra hófst 23. maí s.l.
Kom öllum á óvart.
Þessi yfirlýsing Vishinsky
kom öllum á óvart. Með henni
fellst hann í öllum aðalatriðum
á tillögu þá, er Acheson bar
fram á fundinum í gær, þess
efnis, að ráðstefnan skyldi
senda hernámsstjórunum sam-
eig'inlegar fyrirskipanir.
Skifti skyudilega um skoðun.
Fyrr á fundinum í dag sagði
Vishinsky, að ekki kæmi til
greina að hann færi að senda
hernámsstjóra Rússa í ‘Berlín
neinar fyrirskipanir, þar eð það
væri ékki Rússum að kenna að
samkomulag hefði ekki náðst,
eins og Acheson hefði verið að
Frh. á bls. 12
„íslands Hrafnistumenn"
í SAMBANDI við hátíð sjó-
manna, Sjómannadaginn, verð-
ur sýnd hjer í bænum kvik-
myndin „íslands Hrafnistu-
menn“.
Kvikmyndin fjallar um há-
tíðahöld sjómanna á árunum
1944, 1945 og 1946 hjer í Reykja
vík. Myndin er í litum og hafa
þeir Óskar Gíslason, Kjartan
Ó. Bjarnason og Sören Sören-
sen gert myndina. Sýningar á
henni fara fram í Tjarnarbíó á
mánudag, þriðjudag og miðviku
dag. Hver sýning tekur um eina
klukkustund.
Brussellandanna
halda fnnd 17. júní
LONDON, 9. júní. — Það hefur
verið opinberlega tilkynnt í
London, að ráðgjafanefnd utan
ríkisráðherra Briissellandanna
muni koma saman til fundar
17. júní n.k. í Luxerhburg, þ.
e.a.s., ef ráðstefnu utanríkis-
ráðherra fjórveldanna verður
lokið þá. — Verður það í fyrsta
sinn, að ráðherrarnir koma
saman til fundar eftir að
Atlantshafs-sáttmálinn var
undirritaður. — Bevin til-
kynnti í ræðu sinni í Black-
pool í dag, að hann myndi sitja
fundinn, sem sá sjötti í röð-
inni. — Aðalverkefni fundar-
ins er talið vera að ræða sam-
eiginlegar hervarnir hinna
fimm Brússellanda og sam-
ræmingu Brússelsáttmálans
við Atiantshafssáttmálann.
— Reuter.
Fræg söngkona deyr
VÍN, 9. júní. — María Cebo-
tari, hin fræga söngkona, sem
sungið hefur í flestum stærri
borgum Evrópu, ljest hjer í
dag, 38 ára að aldri. Hún var
gift þýska leikaranum Gustav
Diesl. — Reuter
Mjög fjölmennur Kom-
informfundur huldinn
I Tjekkóslóvukíu
Fullfrúar mæftir frá fjölmörgum löndum,
meðal annars Norðurlöndunum
,,THE NEW YORK TIMES“ skýrði frá því fyrir rúmlega viku,
að þá væri talið vitað, að yfir stæði í Tjekkóslóvakíu mikill
Kominformfundur, þar sem mættir væru til ráðstefnu helstu
kommúnistaforsprakkar fjölmargra landa. Mun hjer hafa verið
um að ræða einna fjölmennasta alþjóðlega kommúnistafundirm
frá því ófriðnum lauk.
Þrír stórir. *
Meðal þátttakenda á fundin-
um voru meðal annars þrír af
þeim mönnum, sem á sínum
tíma undirritúðu stofnskrá eða
stefnuyfirlýsingu Kominform,
þeir Georgi M. Malenkov, tal-
inn þriðji valdamesti maður
rússneska kommúnistaflokks-
ins, Rudolf Slansky, aðalritari
tjekkneska kommúnistaflokks-
ins, og Mihaly Farkas, hermála-
ráðherra Ungverjalands.
„The New York Tinies“ seg
ir meðal annars svo frá Kom-
informfundinum:
„Meðal annarra háttsettra
fulltrúa eru Frakkinn
Andre Martjr, Harry Pollitt,
ritari breska kommúnista-
flokksins, og Palmiro Togli-
atti, leiðtogi kommúnista í
Ítalíu.
„Fulltrúar eru einnig mætt
ir frá Astralíu, Kanada, Isra-
elsríki, Brasilíu, Argentínu,
Venezuela, Chilc, Cuba, Aust
urríki, Hollandi, Belgíu. ís-
landi, Danmörku, Svíþjóð og
Noregi“.
Hernaðaráætlun.
Ekki er talið ólíklegt, að á
þessum Kominformfundi verði
gengið frá stefnuáætlun komm-
únista fyrir talsverðan hluta
veraldarinnar. Raddir hafa
heyrst um það. að Kominform-
löndin hafi meðal annars ákveð
ið að herða á aðgerðum sínum
gegn Júgóslav’u.
Rússar höfnuðu samvinnu
vio Brefa í sfyrjaEdarbkin
Ræöa Bevins á verkamanngfMgmy í gær
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
LONDON 9. júní — Ernst Bevin, utanríkisráðherra Breta, flutti
ítarlega ræðu um stefnu bresku stjórnarinnar í utanríkismálum
á þingi verkamannaflokksins í dag. Bevin sagði, að eftir styrj-
aldarlok hefðu Bretar gert sjer vonir um, að geta haft nána
samvinnu við stórveldi heimsins, og þar á meðal Rússa. Hann
sagði, að það væri sök Rússa, að sú samvinna hefði farið út
um þúfur, og Bretar hefðu þá valið þann kost að vinna með
öðrum lýðræðisþjóðum heims.
Höfn Shanghai lokað
HONGKONG 9. júní — Fyrsta
skipið, sem yfirgaf Shanghai
eftir að kommúnistar náðu
borginni á sitkvald, kom hing-
að til Hongkong í dag. Það var
hollenska farþegaskipið „Tji-
badak“. Með skipinu voru 347
kínverskir farþegar. Meðal far-
þeganna voru nokkrir af fyi-
verandi- leiðtogum þjóðernis-
sinna.
— Shanghai-höfn var lokað í
dag, er það frjettist, að herir
stjórnarinnar hefðu lagt tund-
urduflum á siglingaleiðinni til
og frá borginni. — Reuter.
Bevin sagði, að með Mars-
hall-hjálpinni hefði verið lagð-
ur grundvöllurinn að beirri
samvinnu. — Marshall-aðstoðin
miðaði að því, að treysta efna-
hagslegt öryggi og almenna vel-
ferð þátttökuþjóðanna og hefði
þegar tekist að vinna með henni
ómetanlegt gagn fyrir viðkom-
andi þjóðir. Kvaðst hann hafa
harmað það, að Rússar vildu
ekki taka þátt í endurreisnar-
áætlun Evrópu, en benti á, að
þeir nytu óbeint góðs af Mars-
hall-aðstoðinni, m. a. fengju
þeir keyptar vörur frá Marshall
Framhald á bls. 12