Morgunblaðið - 10.06.1949, Blaðsíða 8
8
MORGIJTSBLAÐIÐ
Föstudagur 10. júní 1949.
0tg.: fl.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.),
Frjettaritstjóri ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla.
Austurstrsti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innsnlsnrls,
kr. 15.00 utanlands.
t lausasölu CO aur* «intakiS, 75 aura meS Lcsbók
Hámark
svívirðingarinnar
ENGUM, sem fylgst hefur með baráttuaðferðum íslenska
kommúnistaflokksins undanfarið, hefur dulist það, að heit-
asta áhugamál hans er að spilla sambúð íslensku þjóðar-
innar við þær þjóðir, sem henni ríður mest á að eiga við
vinsamleg viðskipti og jafnan hafa verið traustustu við-
skiptavinir okkar. Á þetta sjerstaklega við um Breta og
Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir.
En kommúnistum hefur ekki fundist nægilegt að reyna
að svipta okkur vináttu og áliti hjá þessum tveim engil-
saxnesku stórveldum. Nú síðast er röðin komin að þeirri
írændþjóð okkar, sem við erum tengdir hvað innilegustum
frændsemis- og vináttuböndum, Norðmönnum.
★
Og hver er svo aðferð íslenskra kommúnista til þess að
spilla þessari góðu sambúð og innilegu vináttu íslendinga
og Norðmanna?
Hún er einhver hin lubbalegasta og svívirðilegasta, sem
hugsast getur. Þjóðviljinn byrjar á því að ljúga því hrein-
lega upp og síma það til Norðurlanda og auðvitað Moskvu.
að nafngreindur íslenskur ólánsmaður, sem ber varð að
náinni samvinnu við nasista í Noregi, hafi stjórnað að-
gerðum lögreglunnar gegn skrílsárás kommúnista á Al-
þingi 30. mars s. 1.
Þessa lýgi básúna svo Moskvublöðin og málgögn komm-
únista á Norðurlöndum út um þessi lönd.
En íslensku kommúnistarnir ljetu ekki sitja við betta.
Þeim þótti ekki ennþá nægilega vel að verið. Þeir hafa
þrásinnis endurtekið þá lýgi í blaði sínu að þessi
sami íslendingur, sem ber varð að samvinnu við böðla
norsku þjóðarinnar sje meðlimur í fjölmennasta æsku-
lýðsfjelagi Sjálfstæðisflokksins, Heimdalli. Sannleikurinn í
þessu máli er hinsvegar sá að þessi maður er ekki í Heim-
dalli og hefur aldrei verið þar meðlimur.
★
Þrátt fyrir þessar staðreyndir hika kommúnistar ekki
við að halda áfram að bendla þennan mann við fjelagið
og nú síðast lýsa þeir því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
snúist til varnar honum og atferli hans.
Hefur önnur eins óskammfeilni nokkurntíma heyrst?
Að sjálfsögðu sakar það ekki Sjálfstæðisflokkinn þó
,.Þjóðviljinn“ beri slíkan þvætting á borð fyrir íslendinga.
Hann hefur ekki, og mun ekki, halda uppi neinum vörnum,
hvorki fyrir nasista nje kommúnista, sem unnu með nasist-
um og sendu þeim heillaóskaskeyti í síðustu heimsstyrjöld.
Hitt er annað mál að vel má vera að það fólk kunni að
vera til á Norðurlöndum, sem leggi trúnað á þessar lyga-
sögur kommúnista. Skeytasendingar kommúnista um að
stærsti stjórnmálaflokkur íslensku þjóðarinnar haldi uppi
vörnum fyrir samstarfsmenn nasista í Noregi geta þess-
vegna ekki haft nein áhrif önnur en þau að spilla áliti ís-
lands í augum einhverra Norðurlandabúa, sem glæptust á
því að trúa rógburði þeirra.
★
Afstaða almennings á íslandi til þess verknaðar, sem
hinn íslenski ólánsmaður er sagður hafa framið í Noregi
í samvinnu við þýska nasista er sú að hann harmar ógæfu
hans. íslendingar telja sig hinsvegar engan manndóm sýna
með því að þrástagast á yfirsjónum þessa landa síns. Komm-
únistar, sem sjálfir hvöttu til fjandskapar íslendinga við
baráttu lýðræðisþjóðanna gegn nasismanum, reyna hinsveg-
ar að nota þær til þess að spilla sambúð Norðmanna og
íslendinga og ausa pólitíska andstæðinga sína hjer heima
rakalausum rógi. Það sýnir manndóm þeirrar „ærusveitar“,
sem bak við „Þjóðviljann“ stendur.
En kommúnistum mun hvorki takast að spilla sambúð
Islendinga og Norðmanna nje bletta skjöld Sjálfstæðis-
ílokksins. Sjálfir standa þeir uppi berir að vörn fyrir ógn-
arstjórn, sem í engu stendur stjórn nasista að baki um
hryðjuverk, svikræði og kúgunaraðferðir.
m ae óhripae:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Seinheppnip
afbrotamenn
ÞAD hefir komið fyrir oftar en
einu sihni hjer í Reykjavík, að
seinheppnir innbrotsþjófar hafa
sofnað við „vinnuna“ — verið
fullir og ,,dáið“ á staðnum.
Þetta er nokkuð kátbroslegt
og almenningur hefir hlegið að
þessu.
En það eru víðar til skrítnir
afbrptamenn en í Reykjavík.
„The New York Times“ skýrði
nýlega frá eftirfarandi smá-
skrítnum afbrotum.
•
Rændi síniaklefan-
um
í HARTFORD kom það fyrir,
að maður rændi símaklefanum
úr stórri;matvöruverslun. Hann
reif klefann frá veggnum og
stakk af með hann með öllu,
sem í honum var, þegar mest
var að g’era í versluninni!
í Curtis, Nebraska, skeði það
hinsvegar nótt eina, að þjófar
grófu upp 83 girðingarstaura,
sem bóndi nokkur hafði sett
upp, og höfðu þá á brott með
sjer.
•
Strætisvagn
- og myndavjel
HANN var líka frumlegur
þjófnaðurinn, sem Times segir
að átt hafi sjer stað fyrir
skömmu 1 bílaborginni Detroit.
Maður þar í borg, sem sakaður
var um að hafa stolið strætis-
vagni, sagði lögreglunni', að
hann hefði tekið bílinn til þess
að þurfa ekki að fara fótgang-
andi til veitingahússins, þar
sem hann hafði í hyggju að fá
sjer kaffisopa!
Þessi náðist sem sje. Öðru
máli var að gegna með starfs-
bræður hans í borginni Hagers
town, sem brutust inn í verk-
smiðju á staðnum. Þeir stálu
raunar ekki miklu — aðeins
myndavjelinni, sem komið hafði
verið fyrir til þess að ná mynd
um af væntanlegum innbrots-
þjófum.
•
Mikil aðsókn að
vinnu
EN sleppum frumlegu afbrota-
mönnunum. Hjer er í staðinn
smáfrjett úr Reykjavik: Það er
svo mikil aðsókn að garðavinnu
bæjarins, að miklu færri en
vildu hafa komist að. Ráðningar
stofan hefir til þessa ráðið 16
stúlkur í garðavinnuna og eitt-
hvað af piltum, en þeir munu
hafa skipt tugum og jafnvel
hundruðum, sem sóttti um
vinnu. Nokkrir unglingar verða
að líkindum ráðnir til viðbótar,
en ekki verða þeir margir.
Stúlkurnar og piltarnir vinna
nú við skrúðgarðana í Reykja-
vík, og reynast ágætlega.
•
Skólafólkið er að
byrja vinnu
NÚ ER reyndar kominn sá tími
þegar hundruð manna bætast
á vinnumarkaðinn_ Þetta er
skólafólkið — alt frá smákrökk
um upp í þrítugt, háskólageng-
ið fólk.
Það hefir komið í ljós, að
mjög margt af skólafólkinu hef
ir hug á að vinna að jarðyrkju,
helst í Reykjavík eða nágrenni.
Þetta er skemtileg vinna, en
vinnuframboðið er meira en
eftirspurnin. Svo þeir, sem
ekki komast í garðavinnuna,
verða að gera sig ánægða með
eitthvað annað.
•
Salernislistamenn
í FYRRADAG kom maður að
máli við Daglega lífið og vildi
láta koma því á framfæri svona
opinberlega, hvort ekki sje
hægt að klæða veggi almenn-
ingssalernanna í Bankastræti
með einhverju því efni, sem
hvorki er hægt að teikna á nje
skrifa.
Salernislistamennirnir hafa
sig sem sje mjög í frammi þessa
dagana, og veggir salernanna
eru yfirfullir af allskonar klúr-
yrðum.
Maðurinn, sem er gramur yf-
ir þessu — og hann er vitaskuld
ekki einn um það — talaði um
að klæða veggina með plötu-
stáli.
«
Furðuleg
«nanntegund
ÞETTA þyrfti ekki að verða of
kostnaðarsamt, sagði maðurinn,
og það borgar sig, ef það fær
afmáð þann blett af höfuðborg
inni, sem klúryrði og teikningar
,,listamannanna“ eru.
Hann taldi þetta eina ráðið
til að stöðva þennan ósóma. —
Það er búið að margskrifa um
þá furðulegu manntegund, sem
aldrei fær sjeð salernisveggi í
friði, en skrifin hafa því miður
reynst að mestu árangurslaus.
•
Þurkar og ryk
FÓLKIÐ í úthverfunum kvart-
ar yfir því, að ekki hafi verið
gert nóg af því í þurkunum að
undanförnu að væta göturnar
þar. Það hefir viljað brenna við
að rykið á úthverfagötunum
yrði kæfandi mikið. Á sumum
götum bar svo mjög á þessu, að
bílstjórarnir reyndu að komast
hjá því að aka um þær.
Þeir, sem þessum málum
ráða, ættu að taka þurkana og
rykið og úthverfin til athug-
unar.
■.iitiiiiiimiMiiiimiiiiifiMiitiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiMMiKiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiimiiiMiiMiiiiiniiiiiiiiMiiiiiiMiimiiiiiiiiiMimiiiiiMiniiiiKmmiiiiiiMiiiiiiiiiimmiiiiiimitn «
| MEÐAL ANNARA ORÐA .... |
“l, MMIIMIMMIMIMMMIIIMMMIMMMIMIMMIMMMIMMIMIIIIMIIIIIIIIIIIMIIIMMMIIIMIMIIIIIIMMMIIIIIMM..
Hinn nýi vegur—Sameinuð Evrópa
GOMUL
DRAUMSÝN
DRAUMURINN um sameinaða
Evrópu ter orðinn gamall. En
raunsæir. stjórnmálamenn vinna
nú að því að gera hann að raun
veruleika. Starf ,eirra hefir
miðað stórum skrefum áfram
Þegar að Winston Churchill tók
forystuna í málinu á Haagráð-
stefnunni í fyrra, virtist mörg-
um að hugmynd hans væri ó-
raunsæ. .En í dag hafa tíu Ev-
rópuríki ákveðið að mynda
sameiginlega stjórn og þing.
Það er þó ekki stjórn og þing
í venjulegum skilningi, ekki
samband, sem skerði í nokkru
sjálfstæði einstakra ríkja. En
það er tæki til sameiginlegra
umræðna og ákvarðana í þýð-
ingarmiklum málum.
• •
NÝJAR LEIÐIR TIL
ÖRYGGIS OG
VELFERÐAR
ENGINN getur í dag fullyrt
um, hvaða þýðingu þessi nýju
samtök muni hafa. Þau eru
raunverulega ekki afleiðing af
vilja fólksins til þess að skapa
sjer víðtækari samtök eða auk-
inni samúð þjóða í milli. Þau
eru 'sköpuð af erfiðleikum yf-
irstandandi tíma, af þeim ótta,
sem sigurvegarar síðustu heims
styrjaldár ætluðu að gera útlæg
an úr heiminum en sem ennþá
lifir góðu lífi meðal þjóðanna.
Ábyrgir menn hafa verið
knúnir til þess að leita nýrra
leiða og úrræða til þess að
trvggja frelsi og velferð fólks-
ins. Þeir hafa valið þá leið að
freista aukinnar samvinnu, góð
vildar og skilnings milli hinna
vestrænu menningarþjóða, sem
í dag telja hugsjónum sínum og
hagsmunum ógnað.
• •
EVRÓPURÁÐIÐ
ÞRÓUN hinnar nánu samvinnu
Evrópu hefir verið mjög hröð
undanfarið. Trúlega verður hún
hægari á naestunni. Erfiðleikarn
ir koma fyrst i ljós fyrir alvöru
þegar komið er að sjálfri fram-
kvæmd hugsjónarinnar. — Það
er löng leið framundan. En það
er altaf löng leið að stóru og
háleitu takmarki. En mennirnir
mega ekki þreytast á þeirri
göngu. Þeir verða að ná tak-
markinu.
Stofnun Evrópuráðsins er að-
eins eitt skref í áttina til hinn
ar sameinuðu Evrópu. Hver þýð
ing þess verður'kjest rauverul.
þá fyrst er starf þess er komið
í fullan gang. Fulltrúarnir á
þingi þess verða að geta sagt
skilið við margar hefðbundnar
venjur, kreddur og fordóma og
móta stefnu sína og starf, of-
dirfsku og framsýni. Ef að
styrjöld vofir yfir, er samein-
ing Vestur-Evrópu óhjákvæmi-
leg. Hún gétur einnig verið
nauðsynleg ef þjóðirnar eiga
um langan aldur að búa við svo
kallaða „kaldan frið“. Samein
uð Vestur-Evrópa, með hinn
mikla ibúafjölda sinn, fjölþætt-
an iðnað og þróttmikla menn-
ingu, hlýtur að verða þriðja
veldið í átökum framtíðarinn-
ar, það afl, sem skapar jafn-
vægi og kemur í veg fyrir skipt
ingu heimsins milli hinna
tveggja miklu stórvelda, Banda
ríkjanna og Sovjet-Rússlands.
• •
VESTUR-EVRÓPA
ER EKKI
ÚTSKÆKILL
YFIR Vestur-Evrópu vofir sú
hætta að verða nokkurskonar
útskækill á meginlandi Evrópu
og Asíu. Með viðleitni Moskva-
valdsins til þess að semja beint
við Bandaríkin um hin öilaga-
ríkustu stórmál er beinlínis
stefnt að því að rótfesta það
sjónarmið. En sameinuð Vestur
Evrópa, með nána samvinnu á
sviði efnahagsmála, stjórnmála
og hervarna kemur í veg fyrir
þessa ráðagerðir kommúnista.
Það eru þessi viðfangsefni og
mörg fleiri, sem blasa við Ev-
rópuráðinu, þegar það kemur
saman í Strassburg í ágúst í
sumar.
Júgóslava.
PRAG — Júgóslavneska blaðið
„Borda‘‘ skýrði frá því fyrir
skömmu, að Rússar hefðu und-
anfarið reynt að trufla útvarps-
sendingar frá Belgrad til útlanda.