Morgunblaðið - 10.06.1949, Síða 5
Föstudagur 10. júní 1949.
MORGUTSBLAÐIÐ
Buráttan harðnar milli kirkjunnar
og kommúnista í Tjekkóslóvakíu
Eftir Sydney Brooks frjetta-
ritara Reuters í Prag.
BARÁTTAN milli kaþólsku
kirkjunnar og lögregluríkis
kommúnista í Tjekkóslóvakíu,
er stöðugt að harðna. Hafði
verið heldur grunt á því góða,
því að kommúnistar vildu alls
ekki sætta sig við neina Júrkju
nema þeir gætu notfært sjer
prestana. sem kommúnistiska
áróðursmenn.
Ráðist á stærstu kirkjuna í Prag
En fyrir einum mánuði eða
svo, sauð alveg upp úr, þegar
tjekkneskir lögreglumenn rjeð-
ust inn í Skt. Vitus kirkjuna í
Prag, ráku alla út, og lok-
uðu kirkjunni í tvo klukkutíma
og umrótuðu öllu á meðan. Þeir
sögðust vera að leita að leyni-
legri útvarpsstöð, sem þeir
hjeldu að væri falin einhvers-
staðar undir kórnum.
Erkibiskupinn í Prag heitir
Josep Beran. Ekkert er honum
fjær skapi en láta undan síga
fyrir lögleysi og ofbeldi kom-
múnista. Eftir árásina á Skt.
Vitus-kirkjuna sendi hann frá
sjer harðorð mótmæli, sem voru
lesin upp af öllum prjedikun-
arstólum í landinu; en sem
kunnugt er, þá er ekki lengur
ritfrelsi í Tjekkóslóvakíu og
því komu mótmæli þessi hvergi
fram á prenti.
Útvarpið er kommúnistiskt
áróðurstæki.
Kommúnistar hafa hinsvegar
nógan blaðakost. Dag eftir dag
eru þau full af árásum og sví-
virðingum á Beran erkibiskup.
Það er líkast því, að bundinn
maður sje sleginn, því að hvergi
fær Beran að birta svargrein-
ar. Útvarpið er auðvitað í hönd-
um kommúnista og þá er ekki
lengur aðalhlutverk þess að
vera menningartæki, heldur að
vera áróðurstæki.
Nokkrir prestar hafa gengið
í þjónustu kommúnista. Einn
þeirra er Josef Plohjar, heil-
brigðismálaráðh. í tjekknesku
stjórninni. Hann hefur verið
sviftur prestsumboði fyrir a,
hlýða ekki banni biskupsins um
að prestar mega ekki taka þátt
í stjórnmálum.
Annar prestur sr. Josef Luka
covic, sem um leið er verka-
málafulltrúi fyrir Slóvakíu flyt
ur prjedikanir um ágæti komm-
únismans. Trúarræður hans
ganga mest út á að dásama, að
ríkið skuli hafa eytt 56 miljón
tjekkneskum krónum til kirkju
bvgginga frá stríðslokum.
Hótar bannfæringu.
Beran erkibiskup hefur hótað
að bannfæra þá presta, sem
vinna með stjórninni að ofbeld-
isverkum gegn kirkjunni.
Þessi hótun kom fram í brjefi
sem biskupinn sendi Alois Petr
flutningamálaráðh. í stjórn Za-
potockys. í brjefinu var því
einnig lýst yfir, að enginn
þeirra presta sem ljeti í ljósi
álit sitt á stjórnmálum, talaði
þar fyrir hond kirkjunnar.
I síðasta brjefi biskupsins til
presta kirkjunnar, sem var
Beran erkibiskup hræðíst ekki
hluhkipti Mindsentys
Josef Beran, erkibiskup.
skrifað 29. apríl, en ekki gert
opinbert fyrr en í maílok, er
því haldið fram, að stjórnin hafi
margsinnis brotið ákvæði stjórn
afskrárinnar með ofbeldi sínu
við menn kirkjunnar.
!
Ofbeldi kommúnista.
) í brjefinu er getið nokkurra
njósna og ofbeldisverka komm-
únista undanfarið:
j Nýlega ætluðu biskupar
. landsins að halda fund með sjer,
en urðu að hætta við fundinn
vegna þess, að lögreglumenn
höfðu komið fyrir í fundarsaln-
um urmul af smá hljóðnemum.
Kommúnistisk útgáfunefnd
bannaði nýlega endurprentun
kaþólskrar bænabókar og engar
aðrar bænabækur hafa fengist
prentaðar. Kommúnistamir eru
þeirrar skoðunar, að rússnesk-
ur áróður sje betra andlegt
fóður.
Þá hafa kommúnistar lokað
öllum skólum kaþólsku kirkj-
unnar í Slóvakíu og Mæri og
eru nú smám saman að einangra
skólana í Bæheimi.
Kaþólsk bókaútgáfa hefur
verið stöðvuð, jafnvel bönnuð
rit, sem fjalla eingöngu um and
leg efni, en svo framarlega
gengu Þjóðverjar jafnvel aldrei
meðan þeir voru „verndarar Bæ
heims og Mæris“.
Þrátt fyrir ákvæðið í stjórn-
arskrá landsins um að öllum
sje frjálst að láta hugsanir sin-
ar í ljósi, hefur verið komið á
strangri ritskoðun til að hindra
útkomu kaþólskra bóka, eftir
öðrum leiðum.
Hinsvegar mega þeir prestar,
sem gengið hafa í þjónustu kom
múnista, hella öllum þeim sví-
virðingum sem þeir vilja yfir
kirkjuna og komið hefur það
fyrir, að þessir prestar hafa
verið orðnir svo afvegaleiddir,
að þeir hafa sjeð í hinni komm-
únistisku stjórn allar dásemd-
ir kristindómsins.
Páfinn kallaður fasisti.
Oft kemur það fyrir að heilar
árásargreinar eru birtar til á-
rása á páfann og er hann þar
kallaður „umboðsmaður fas-
ista“ og „heimsveldissinni".
Og oftast er það sama við-
kvæðið, þegar prestar ,sem ver-
ið hafa óþægir ljáir í þúfu kom
múnista, eru dregnir fyrir dóm,
að þeim eru fundnar upp-
lognar tylliásakir um njósnir
fyrir vesturveldin. Er nú fjöldi
presta og klausturfólks í fang-
elsum ásakað um landráð. Ekki
er vitað um fjölda þessa fólks,
því að ríkið hindrar alla ná-
kvæma skýrslusöfnun kirkj-
unnar.
Viðræður ríkis og kirkju.
Fyrir um það bil mánuði hóf-
ust viðræður kaþólsku kirkj-
unnar og ríkisstjórnarmeðlima
um stöðu kirkjunnar í framtíð-
inni. í fyrstu ljetu fulltrúar
kirkjunnar það í Ijósi, að þeir
væru fúsir til að slaka nokkuð
á sínum kröfum. En brátt fór
að koma í Ijós, að kommúnistar
voru ekki ánægðir með það
Fyrir viku eða svo, lýsti Ber
an erkibiskup því yfir, að hann
teldi þýðingarlaust að halda
þesum viðræðum áfram, því að
kommúnistarnir hefðu auðsjá-
anlega komið á þessa fundi,
ekki til að semja, heldur til að
gefa fyrirskipanir.
Kýs að berjast fyrir frelsið.
Beran erkibiskup þekkir vel,
hvernig fór fyrir Mindsenty
kardínála í Ungverjalandi, þeg
ar hann vildi ekki hlýða fyrir-
skipunum kommúnista. — En
hann heldur áfjrarn á þeirri
braut, sem hann álítur rjett-
asta. Hann heldur áfram að
berjast fyrir frelsi og rjettlæti.
Aður kostaði sú barátta hann,
3 ára dvöl í fangabúðum Þjóð-
verja í Dachau. Það getur ver-
ið, að hún eigi eftir að kosta
hann dvol eða dauða í fanga-
búðum kommúnista í Tjekkó-
slóvakíu.
Góð gleraugu eru fyrlr I
öllu.
Afgreiðum flest gleraugna
recept og gerum við gler-
augu.
*
!
Augun þjer hvílið með |
gleraugu frá
TÝLI H.F.
Austurstræti 20.
$KIPAÚT<
RlKISl
ÍKÐ
S fT
Heimaklettur
Tekið á móti flutningi til Siglu-
fjarðar í dag.
Hamlel bóðum
við Tjörnina
9)
iiisgiE
ÞAÐ er mikið talað
skemtanalíf bæjarins sje
legt og fátt að sjá og hey
en svo skeður það skyndilega,
að við fáum tvær Hamletsýn-
ingar í einu, önnur er kvik-
mynd, sem búin er að geta sjer
heimsfrægð og fá mörg verð-
laun, leikstjórn og leikur af-
bragð, svo um gildi hennar verð
ur ekki deilt. Þar við bætist
að við mvndina er settur 5s-
lenskur texti, sem hjálpar öll-
um alrrffenningi til þess að iylgj-
ast með gangi myndarinnar. —
Þetta hefur fólk fært sjer i nyt
og er nú hátt á nítjánda þús-
und manns búnir að sjá mynd-
ina og er vissulega ekki nema
allt hið besta um það að segja.
En svo er hin sýningin, hvað er
um hana? Jú, Leikfjelag
Revkjavíkur hefur gerst svo
djarft að setja Hamlet á svið í
gamla Iðnó, bíða ekki einu sinni
eftir Þjóðleikhúsinu, sem bjart-
sýnustu menn eru famir að
þora að vona. að verði einhvern
tíma í fyrirsjáanlegri framtíð
starfrækt, fyrst kominn er leik-
hússtjóri og með-leikhús?tjóri.
Er ekki von að fólk spyrji, hvort
það sje þess virði að sjá Hamlet
í Iðnó eftir að það er búið að
sjá hann hinum megin við
Tjörnina, og haldi, að það eí til
vill spilli áhrifum þessarar stór
feldu sýningar. En það er síður
en svo, sýningarnar eru svo ó-
líkar, en samt geta þær stutt
hvor aðra. Vil ieg nú skýra hvað
jeg meina. Fyrst sa jeg bíó-
myndina. Mjer fannst hún stór-
kostleg að öllu leyti og vor jeg
satt að segja hræddur um, að
hún myndi skyggja a leikinn.
En mynd er ávalt vjelræn, hve
vel sem hún er unnin og getur
aldrei fyllilega komið í stað
Jifandi fólks, þetta fann jeg
best, þegar jeg sá sjónleikinn
í Iðnó, leikinn á okkar eigin
tungu, svo að ekkert smáatriði
tapaðist, en öll hin mikla lit-
auðgi leiksins, frá sárasta harmi
og þunglyndi til Ijettasta í kops,
kom fram.
Þektur danskur léikari, Ti-
emroth, að nafni, haíði leik-
stjórn á hendi og setti leikinn
á svið. Það verk, sem hann hef-
ur unnið, er svo óvenjulegt, og
frábært, að Reykvíkíngar hafa
ekki ráð á að láta svona sýningu
fara fram hjá sjer, bara af því
að svo hittist á, að hægt er að
sjá Hamlet í bíó. Hann tapar
ekki á því að sjást oftar, heldur
þvert á móti, því Hamlet er
spennandi sjónleikur, fullur af
hnyttnum og skemtilegum sam-
tölum, en alls ekki þunglama-
legur og torskilinn, eins og
margir halda. í raun og veru
er sviðsetningin líkust töfrum,
en þó er hún einíöld eins og
Columbus-eggið. Án þesS' að
leiktjaldið sje hreyít, breytist
sviðið fyrir augunum á manni
í sífellu frá einu aíriði til ann-
ars, stundum grynnra, stundum
dýpra, inn á sviðið, djúpir litir
á tjöldunum og skrautlegir bún
ingar gefa sýningunni litauðgi
og fegufð í öllum sínum ein-
faldleik. Ósjálfrátt vaknar sú
hugsun hjá manni, að einmitt
þessu likt hafi Shakespeare
auiii
/ótnunum.
leikaranna aúla
ekki að ræða, þetta er eng-
inn leikdómur, aðeins bak t.a jeg
þeim ógleymanleg kvöld, ir
hafa lyft þarna Grettistalsi. ekki
síst Lárus Pálsson: Á bak við
þessa sýningu er stórhugur og
djörfung, sem almenningi fcer
að svara með því að sjó hana.
Ástæðan til þess. að jeg hripa
þessar línur, er sú, að eins og
trúuð manneskja er ekki í
rónni nema hún geti frelsað
meðbræður sína, eins finsr. mjer
jeg ekki mega til þess hugsa,
að fjöldi fólks láti sjer úr greip-
um ganga, að sjá svona ów:nju-
lega sýningu, sem hlýtur að
lifa lengi í endurminhinguntn.
Og eitt er víst, að þeir, sem
hafa sjeð myndina i ■ituim
glæsileik, hafa ennþá betri skil-
yrði til þess að njóta þess lif-
andi lífs og þeirra blæbrigðá;
sem leikurinn gefur.
Notið tækifærið, það getur
orðið bið á því að HatnJet sæki
okkur heim í jafnfögmm bón-
ingi og góðri túlkun.
G.estur,
Myndin í Gamla foé
SYSTURNAR frá St Pierre,
heitir amerísk M.G.M. mynd,
sem nú er sýnd í Gamla Biói.
Myndin er látin gerast að
mestu í Nýja-Sjálandi um
miðja 19. öld, en það yar þá
athvarf æfintýramanna.
Nokkrir kunnir leikarar
koma fram í þessari xnynd. —
Lana Turner leikur aðalhlut-
verkið. Hún er kvikmyndahús-
gestum fyrir löngu kunn. A
móti henni leikur R.ichard
Hart. Hann mun vera lítt
kunnur hjer. Hlutverki sitiiu
gefur hann góð skil, en það
krefst heldur ekki neinna. sjer-
stakra leikhæfileika Þá leikur
Donna Reed eitt aðalhiutw rk-
anna. Hún er góð leikkona. og
leikur hlutverk sitt mjög vel.
Van Heflin leikur ein.nig eitt
af aðalhlutverkunum. Hann er
vafalaust einn vinsælasti teik-
ari, sem sjest hjer í kviktnynd-
um.
Atburðarásin í myndinni er
hröð, eins og verða vlll í slík-
um skáldverkum. Efni hennar
er Ijett og enda er jnyndin
gerð eftir skáldsögu er h*utir
á frummálinu Green Dotphin
Street,- þó það sje dálitið reyf-
arakennt, þá mun ungum sem
gömlum' þykja þessi tuynd
skemmtileg. Einn kafli mynd-
arinnar er t.d. mjög vel gerður,
eins og það er þegar jarðskjálfti
leggur eignir þrímenninganna
að mestu í rústir.
Gæfa fylgir
trúlofiinuv
hi'mgumunD
frá
«ÍCI HPÖH
Rafnífncti’ti 4.
Mqruar eerflit.
Sendir gegn póstkröfu kwn h
Km er.
— SendiS nákta-mt ntsi — ■ ,
um, að ' sjálfur sýnt leikrit
íátæk- ! hans svifa hjer jdir
ra, | Um meðferð
íjeg
tn,