Morgunblaðið - 07.08.1949, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sunnudagur 7. ágúst 1949.
ÍÞHÓTTIR
Aiaxandrma droiln-
ing horfir á iands-
leikinn
KAUPMANNAIIÖFN 6. ág.
— Mikill áhugi er á Jót-
landi fyrir landsieik Dana
og íslendinga í knattspyrnu,
sem fram fer í Árósum á
morgun, sunnudag.
Gert er ráð fyrir, að áhorf-
endur komi frá hinum fjar-
lægustu stöðum Jótlands, og
járnbrautarferðum verður
fjölgað. |
Þá hefur og verið tilkynnt,
að Alexandrína ekkjudrottn-
ing verði meðal áhorfenda.
Dómari verður einn af
kunnustu milliríkjadómur-
um Norðmanna, Kolbjörn
Dahle. — Hann hefur áður
dæmt marga milliríkjaleiki í
Kaupmannahöfn.
Tekið verður á móti ís-
lenska landsliðinu í dag í
ráðhúsi Árósa. — Páll.
Rússnesk sfúlka sefur
heimsmef í spjófkasfi
MOSKVA, 6. ágúst, — Tilkynt
hefur verið hjer, að rússneska
stúlkan Natelía Shinitskaya frá
Leningrad hafi sett nýtt heims-
met í spjótkasti í annað sinn á
tíu dögum.
í keppni á Dynamo-leikvang-
inum í gærkvöldi, kastaði hún
53,41 m., og bætti þar með fyrra
met sitt, sem var 49,59 m. all-
verulega.
Heimsmetið í spjótkasti
kvenna áður en Shinitskaya
bætti það, var 48,63 m. Austur-
ríska stúlkan Herma Bauma,
setti það á Olympíuleikunum
í London. — Reuter.
Rússar ganga í
alþjóða fimleika-
sambandið
STOKKHÓLMI. 3. ágúst: —
I kvÖld var samþykkt á þingi|
Alþjóða-fimleika sambandsins
að taka Rússland inn í samband
ið. Var þetta samþykkt með
16 atkvæðum gegn 3, en einn
fulltrúinn sat hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Formaður rússnesku sendi-
nefndarinnar, sem kom til
Stokkhólms í þessu sambandi,
skýrði svo fiá, að í hinum 16
rússnesku ríkjum væru nú als
sex miljónir starfandi fim-
leikamenn og konur.
Rússar fóru fram á að rúss-
neska yrði ásamt frönsku við-
urkennt sem aðalmál fimleika
sambandsins, en það var fellt,
þar sem þingið hafði nýlega
samþykkt, að franska skyldi
eina aðalmálið:
Rússar höfðu enga kröfu
gert um það að fá mann í stjórn
sambandsins, en Mullers full-
trúi Tjekkóslóvakíu, sem sæti
á í stjórninni, bauðst til þess
að víkja úr henni fyrir rússn.
fulltrúa. En niðurstaðan varð
samt sú, að hann situr í stjórn-
inni, að minnsta kosti til næsta
þings sambandsins. —NTB.
Hvar er knötfurinni
I AÐ voru margir, sem kepptu um það sín á milli, hvar knöttur-
inn væri á myndinni, er birt var í síðasta sunnudagsblaði. Hjer
kemur önnur. Er öllu verra að átta sig á, í hvaða hring knött-
urinn er hjer. — Svar verður birt í íþróttadálkum eða Dagbók
í þriðjudagsblaðinu.
20 menn hoin leikið
í lnndsliði íslendingn
ISLENDINGAR heyja fjórða landsleik sinn í knattspyrnu í dag
og' þann fyrsta, sem fram fer á erlendri grund. Leikurinn er
háður í Árósum. í blaðinu í gær var skýrt frá skipan danska og
íslenska liðsins, og því ekki ástæða til þess að gera það aftur hjer.
Sex þeirra manna, sem nú<£- ■— --
leika með íslenska landsliðinu,
hafa verið með í öllum lands-
liðsleikjunum fjórum, en þrír
menn, Helgi Eysteinsson, Hörð-
ur Óskarsson og Óli B. Jóns-
son, eru nú í liðinu í fyrsta
sinn.
Alls hafa 20 menn (22 ef
tveir, sem komu inn sem vara-
menn í fyrsta leiknum, eru
taldir með) tekið þátt í lands-
liðsleikjum þessum (leikurinn í
dag er þar talinn með). Verða
hjer birt nöfn þeirra og leik-
fjöldi,
Leikir
Ellert Sölvason, Val ........ 4
Hermann Hermannsson, Val . 4
Karl Guðmundsson, Fram .... 4
Sigurður Ólafsson, Val ...... 4
Sveinn Helgason, Val ........ 4
Sæmundur Gíslason, Fram .. 4
Ríkarður Jónsson, Fram.......3
Albert Guðmundsson, Val . . 2
Gunnlaugur Lárusson, Víking 2
Haukur Óskarsson, Víking ... 2
Ólafur Hannesson, KR ........ 2
Birgir Guðjónsson, KR........1
Brandur Brynjólfsson, Víking 1
Einar Halldórsson, Val ...... 1
Hafsteinn Guðmundsson, Val 1
Helgi Eysteinsson, Víking .... 1
Hörður Óskarsson, KR.........1
Jón Jónsson, KR ............. 1
Óli B. Jónsson, KR .......... 1
Þórhallur Einarsson, Fram .. 1
Auk þess komu þeir Anton
Sigurðsson, Víking, Hafst;einn
Guðmundsson, Val og Ottó Jóns
son, Fram, inn sem varamenn
í leiknum við Dani 1946.
Sem sjá má af þessu yfirliti,
hafa leikmenn eingöngu verið
úr Reykjavíkurfjelögunum fjór
um. Skiptast þeir þannig á fje-
lögin (leikurinn í dag' talinn
með):
Valur 7 með samt. 20 leiki
K.R. 5 — — 6 —
Fram 4 — — 12 —
Víkingur 4 — — 6 —
Framkvæmdir við
íþrólfasvæðið
ALMENNA byggingarfjelag
ið mun taka að sjer að vinna
að byrjunarframkvæmdum við
fyrirhugað íþróttasvæði í Laug
ardal.
Bæjarverkfræðingur hefur
ge'rt frumvarp að samningi
bæjarins við fyrirtækið, um
þessar framkvæmdir og var það
lagt fram á bæjarráðsfundi i
fyrradag og fjellst bæjarráð á
frumvarpið.
B-móf í frjálsum
íþróftum
B-MÓTIÐ í frjálsum íþrótt-
um fer fram á Iþróttavellinum
næstkomandi þriðjudag og mið-
vikudag. Skilyrði til þátttöku í
hverri grein er, að viðkomandi
hafi ekki áður náð í henni 600
stigum samkvæmt finnsku stiga
töflunni.
Keppt verður í 100, 200, 400,
800, og 1500 m hlaupi, 400 m.
gTindahlaupi, hástökki, lang-
stökki, stangarstökki, kúlu-
varpi, kringlukasti og spjót-
kasti.
Júgóslavía vann
Áslralíu í knatf-
spyrnu
MELBOURNE, 6 ágúst: — Jú-
góslavía vann Ástralíu með 3:0
í öðrum landsleik landanna í
knattspyrnu, sem fram fór hjer
í dag.
Fyrri leikinn, sem háður var
s.l. laugardag í Sydney, vann
Júgóslavía með 3:2.
íslenskk kven- ;
ikófar I Fmnlandi
FRÁ ÍSLENSKUM kvenskátum sem verið hafa á ferðalagi í
Finnlandi barst Morgunblaðinu eftirfarandi brjef. Það er dag-
sett í Loilannierni þann 12. júlí. í brjefinu segir á þessa leið:
SALA MJÓLKUR er um þessar
mundir til stór skammar og mikilla
óþæginda og tjóns fyrir baeiarbúa i
í Keflavík.
Kaupfjelag Suðurnesja er eini að-
ilinn, er söluna hefur með höndum
og er hún í svo vítaverðri vanræsklu
að óviðunandi er með öllu.
Seld er eingöngu flöskun’jólk og
er þar með útilokað allt val viðskipta
vinanna um það hvort þeir kjósa
heldur hina dýrari mjólk í flöskum
eða óska að fá þá ódýrari í brúsum.
Fremur er nú þetta einstrengisleg
verslunaraðferð, en hitt er þó verra
að engin hirðusemi er um það höfð
að hafa frambærilega vöru á boð-
stólum.
Að morgni hvers dags, þegar neyt-
endur koma í mjólkurbúðir kaupfjel.
er þeim ávalt seld mjólk frá deginum
áður og er ljett að fylgjast með þessu,
því dagsstimplar eru á flösku lokun-
um. Geymsla mjólkurinnar er með
öllu ófær og ekkert um það hirt að
hún standi á köldum og dimmum stað
og daglega geta Keflvikingar sjeð
mjólkurflöskurnar standa utan dyra
í glaða sólskini, rjett eins og forráða-
menn fyrirtækisins álíti að sama að-
ferð gildi um meðferð nýmjolkur og
saltfisks á Spánarmarkað.
Að vísu mun samdægurs mjólk
komast til Keflavíkur rjet fyrir lok-
Unartíma á kvöldin og fresta þvi
margir mjólkurkaupum dagstns fram
á kvöld, en betra er samt að gæta vel
að dagsstimplinum því ella er reynt
að pranga inn á mann eldri mjólkinni
sem orðin er þá ósöluhæf vara, svo
sem að líkum lætur. Mjólk sú, sem
ætluð er til sölu daginn eftir er síð-
an látin standa í eða rjett innan við
sýningarglugga verslunarinnar allan
tímann frá kl. sex að kvöldi til kl.
niu næsta morgunn og það þýðir, að
skærir geislar morgunsólarinnar hafa
skinið á hana í fimm til sex klukku-
stundir, um þennan tíma árs, áður
en sala hennar hefst og er mjólkin
þá orðin slík, að banna ætti með öllu
að leyfa sölu slíkrar vöru, enda er
hún þá sennilega orðin allt að
tveggja sólarhringa gömul frá fyrstu
hendi og með þessari meðferð ekki
orðin nein sældar vara.
Víða verður maður þess var, hvi-
líkum neyðarkjörum kaupandinn er
ofurseldur í landi, sem þiáist af vöru-
skorti og erfiðleikum á nær öllum
sviðum, en annar eins trassaskapur
og viðgengst hjá Kaupfjelagi Suður-
nesja í mjólkursölumálunum mun
vera alveg fráhær og vitnar ömur-
lega um þann verslunarmáta, er ríkir,
þar sem einokun kemur undir sig
fótunum i einhverri mynd og þeir,
sem halda að kaupfjelögin sjeu allra
meina bót í íslenskum verslunarrnál-
um, ættu að kynna sjer rekstur
Kaupfjelags Suðurnesja hin siðari
árin. Það ætti að minnsta kosti að
mega spyrja fjelagsmennina um það
hve hökufeitir þeir hafa orðið af
hinum marglofsungna „arði“ sem
kaufjelögin telja sjer helst til gildis
og . skattafríðindapólitíkin byggist
mest á.
Það er krafa Keflvíkinga að sam-
dægurs mjóik komi hvern dag á
markaðinn fyrir hádegi og allir vita
að slíkt er ekkert þrekvhki um vor
og sumar tímann. Ur ófremdar
ástandi því er nú ríkir í mjólkurmál-
unum hjer syðra, og veldur ueytend-
unum óþægindum og skaða, verður
tafarlaust að bæta.
Neytandi.
Mann lieimsækir Wairuar.
WAIMAR — Thomas Mann, hinn
frægi þýski rithöfundur kom til
Waimar á rússneska hernámssvæð-
inu í Þýskalandi hú um mánaðar-
mótin. Var hann boðinn þangað til
að taka þátt í Goethe-hátiðehöldun-
um, sem þar reu holdin um þessar
múndir.
Við erum hjer staddar á
kvenskátamóti 16 íslenskar
stúlkur. Við komum hingað
þann 3. júlí frá Stokkhólmi. í
Helsingfors vorum við í tvo
daga, en síðan var haldið inn
í land, um 300 km. til borgar,
sem heitir Kolho, en við erum
í skátabúðum rjett utan við
þann bæ.
Fólkið og umhverfið
dásamlegt.
Umhverfið hjer er dásamlegt
og fólkið líka. Það vill alt fyr-
ir okkur gera. Við erum skoð-
aðar í krók og kring. En furðu-
legt er hvað fólkið veit mikið
um ísland, tiltölulega meira, en
um Svíþjóð og Danmörku. Hjer
eru alls 1656 stúlkur, þar af
300 útlendingar, frá Danmörku,
Svíþjóð, Noregi, Hollandi, Sviss
landi og Bretlandseyjum.
Bak við Jámtjaldið.
Á leiðinni frá Ábo til Hels-
ingfors, en hana fórum við í
járnbraut, þurftum við að fara
í gegnum lansvæði Rússa, scm
þeir eiga í Finnlandi. Þegar
þangað kom var lestin stöðvuff
og svartir hlerar settir fyrir
alla glugga. Eimvagninn var
einnig tekinn frá og rússnesk-
ur settur í staðinn, en rússnesk-
ur lestarstjóri tók við stjórn.
Meðan þessu fór fram stóðu
rússneskir hermenn með al-
væpni á brautarstöðinni og
mátti enginn fara úr lestinni.
Að því búnu lögðum við af
stað í 70 mínútna langa ferð.
Hitinn í lestinni var óþolandi.
Niðamyrkur í klefunum og
ekkert vatn að drekka. Svæði
þetta er innan við 100 km. frá
Helsingfors.
Miklir hitar.
Miklir hitar hafa gengið hjer
um slóðir undanfarið, altaf í
kringum 34 stig á celsius.
Við förum hjeðan aftur 14.
þ. m. með lest til Ábo og það-
an með skipi til Stokkhólms.
Þar verðum við í tvo daga, en
síðan munum við halda til
Kaupmannahafnar, dvelja þar
í viku og fara síðan flugleiðis
heim til íslands.
Við hlökkum allar til að
koma heim. Kærar kveðjur —•
Islenskir kvenskátar í Finn-
landi.
(Morgunblaðinu barst þetta
brjef ekki fyr en í gær, en stúlk
urnar munu vera komnar
heim, eða koma í þessari viku).
Presti vikið frá starfi
vegna kommúnisma
PARÍS, 6. ágúst, Það var sagt
frá því í dag, að kaþólska kirkj-
an hefur vikið frönskum presti
frá starfi fyrir það, að hann
var kommúnisti. Prestur þessi
heitir sjera Grangier. Það er
erkibiskupinn í Lyons, sem rak
hann. í afsagnarbrjefinu er m.
a. á það minnst, að Grangier
hafi tekið þátt í götuæsingum
með kommúnistum.