Morgunblaðið - 07.08.1949, Page 11
Sunnudagur 7. ágúst 1949.
M O RG C TS B L AÐ 1 Ð
11
FJelagslif
KK
Inn;mf jclagsmót í sleggjukasti,
kúluvarpi og langstökki kl. 2 i dag.
Frjálsíþróttadeildin.
.................
I. O. 13. T,
I. O. G. T.
St. Víkingur nr. 101.
Fundur í kvöld kl. 8.30. íræðslu-
þáttur, upplestur.
Æ. t.
Níræðisaf mæli
Tilkynning
Reykjavík — Akureyri
Vöruflutningar með bifreiðum. ■—
Afgr. í Reykjavik í Sendibía^Iöðinni,
Ingólfsstræti 11. Sími 81625
BifreiðastöSín Stefnir h.f.
Akureyri.
Samk«niar
Almennar samknmur
Boðun Fagnaðarerindisins eru á
tunnudögum kl. 2 og 8, Austurgötu
6, Hafnarfirði.
Kaup-Sala
Samkoma í Zion í Hafnarfirði kl.
4 e. h. Reykjavik kl. 8 e. b.
Allir velkomnir.
Minningarspjöld Slvsaramaf jelags-
ins eru fallegust. Heitið ú Slysa-
vaniafjelagið. Það er best.
Minni ngarspjöld barnaspítalas jóðs
Hringsins eru afgreidd í verslun
Ágústu Svendsen, Aðalstræti 12 og
Rókahúð Austurbæiar Simi 4258.
Minningarspjöld
MinningarsjóSs Árna M. Mathiesen
fást í Hafnarfirði hji: Versl: Sinars
Þorgilssonar, Verslun Jóns Mathiesen
Verslun Bergþóru Nyborg og frú
Vigdisi Thordarsen, í Reykjavík hjá
Versluninni Gimli.
Suyrfiisgar
SNYRTISTOFAN ÍRIS
Skólastræti 3 — Sími 80415
ÁndlitsböS, íiuínisuyrtinB
FótaaSgerðir
...............
Húsnæðl
1 herbergi og eldhús eða að-
gangur að eldhúsi óskast fyiir full-
orðin hjón með stálpaðan krakka. —
Húshjálp eftir samkomulegi. Tilboð
auðkennt: „Húshjálp — 699"‘ send-
ist Mbl.
..................
Hreiugern-
ingar
Ræstingastöðin
Sími 81625. — (Hreingemingar)
Kristján GuSrnundsson, Huraldur
'Siörnsson. Skúli Helaasnn f> fl.
HREIISGEKWGAR
Magnús Guðmundsson
Símar 4592 og 4967
Eggert Claessec [
| Gústaf A. Sveinsson i
| Odfellowhúslð Sími 1171 |
hæstarjettarlögmenn
I Allskonar lögíræðistört i
Gæfa fylgir
trúiofunar
Suingunum
frá
^íGVRÞÓR
Hafnarstræti 4
íteykjavik.
Marsar, geröir.
Bendir gegn póstkröfu fcverí á lant
•era et.
— SendiO náltssszS mál —
NÍRÆÐUR er í dag Sigurfinnur
Árnason á Lokastíg 2. Hann er
fæddur á Kirkjulæk í Fljótshlíð
sunnudaginn í 16. viku sumars
og nú ber níræðisafmælið upp á
sama dag. Sigurfinnur er ern enn
og hraustur.
Jeg átti tal við hann í tilefni
af níræðisafmælinu og sagði hann
svo frá:
í Þorlákshöfn
— Jeg ólst upp hjá foreldrum
mínum á Kirkjulæk fram til
þrítugsaldurs. Átján ára byrjaði
jeg að róa í Þorlákshöfn og stund
aði róðra þar 20 vertíðir. Aldrei
barst okkur á, aðeins einu sinni
náðum við ekki að berja til Hafn-
arinnar og urðum að hleypa vest-
ur í Herdísarvík.
Þegar jeg fór að eiga með sjálf-
an mig rjeðist jeg til Þorláks-
hafnar og bygði þar bæ handa
mjer. Var hann kallaður Finns-
bær. Þrír aðrir tómthúsmenn
voru þar, og áttu sinn bæinn
hver. Þá átti Jón ríki Þorláks-
höfn, bjó þar og verslaði, og þá
mun hafa verið rúmlega 20
manns í Höfninni. Hann leyfði
okkur að byggja þarna og var
sanngjarn á lóðarleigu. Jeg vann
oft hjá honum. Nú er breytt í
Höfninni, allir tómthúsbæirnir
horfnir og nú á að fara að gera
þar hafnargarð- Ekki hef jeg trú
á því að hann standi. Brimið er
öflugt þar, eins og sjá má á því
að það hefur rifið stór björg af
sjávarbotni og kastað þeim upp
á háa kietta.
- Kyntist þú ekki sjera Eggert
í Vogsósum, þegar þú varst í
Höfninni?
— Það var lítið. En hann kom
þangað oft og altaf gangandi.
Hann hafði þann sið, að fara
fyrst inn í lambhús, taka þar af
sjer gönguskóna og setja upp
spariskó að ganga á á fund Jóns
Árnasonar. Auðvitað voru báðir
skórnir íslenskir.
Jarðskjálftarnir miklu.
— Þú manst sjálfsagt vel eftir
jarðskjálftunum miklu 1896?
— Já, þá voru hörmungatím-
ar. Jeg var þá í vegavinnu í
Flóanum og lágum við í tjöld-
um skamt frá Skeggjastöðum og
komu því jarðskjálftarnir ekki
jafn þungt niður á okkur og öðr-
um. En mjer er minnisstæð
fyrsta hrynan. Landi hallar til
vesturs þar sem við vorum, en
þegar jarðaldan rann undir sner-
ust lækir við og alt vatn fell til
austurs. Og stórkostleg sýn var
að horfa til Ingólfsfjalls. Það var
engu líkara en það væri að
brenna og hrynja, svo mikið var
grjótflugið, skriðuhlaupin og
mökkurinn upp af þeim.
Jeg stundaði vegavinnu nokkur
sumur, m. a. vann jeg að veg-
inum í Kömbum. Þótti okkur
körlunum það einkennileg vega-
gerð að fara í sífeldum kráku-
stígum niður snarbratta Kamb-
ana í stað þess að leggja veginn
austur brúnir.
Á togara Vídalíns
Jeg fluttist til Reykjavíkur
1897 og rjeðist á togarann „Gríms
nes“, sem var einn af togurum
Vídalíns. Útgerð Vídalíns mundi
þykja ljeleg nú, þótt mikið væri
gumað af henni þá. Og önnur
var ævin okkar þá, heldur en
þeirra, sem nú eru á nýu togur-
unum. Á „Grímsnesi" var fyrst
enginn hásetaklefi og ekkert
rúm. Við urðum að liggja innan
um fiskinn í lestinni. Svefn fekk
maður nær engan meðan verið
var að fiska og fæðið var svo
ljelegt, að enginn maður mundi
líta við því nú. Þegar togarinn
-.TOA ‘B[JB gOUI SpUB[gU2 [TJ JOJ
um við aðgerðamennirnir settir
í land og fengum ekkert kaup
meðan hann var í ferðinni.
Við togarabjörgun
Þá um sumarið vorum við lengi
að reyna að bjarga enskum tog
ara, sem hafði strandað um vet
urinn í Meðallandi, en „Gríms
nes“ lá þar úti fyrír og átti að
draga togarann út þegar þar að
kæmi. Það var norskur maður,
sem stóð fyrir þessu. Togarinn
stóð á rjettum kili og hoi'fði
stefni á land. Við losuðum úr
honum kolin og byrjuðum svo
að moka sandi frá honum og
mokuðum dag eftir dag þangað
til togarinn flaut. — Þá hefði
„Grímsnes“ átt að draga hann út,
En dálítið brim var við ströndina
og þorði skipstjóri ekki að hætta
sjer nærri. Dráttartaugin reynd-
ist því of stutt. Og á meðan verið
var að bræða þetta kom ólag og
sló togaranum flötum upp í sand-
inn, þannig að kjölur vissi að
landi. Kom nú hver aldan af
annari og skall á skipinu svo að
það fór að brotna — og þar með
var þeirri björgun lokið.
30 ár á sama stað
Upp úr aldamótunum rjeðist
jeg hjá Thor Jensen. Hann hafði
þá verslunina Godthaab. Vann
jeg þar hvað sem fyrir kom við
uppskipun, útskipun, smíðar,
móttöku á fiski o. s. frv. Þegar
Miljónafjelagið keypti Godthaab
vann jeg hjá því öll árin, en fór
svo til Kveldúlfs. Samtals vann
jeg 30 ár hjá Thor Jensen og son-
um hans. Aðeins eitt árið vann
jeg fyrir föstu kaupi hjá Miljóna-
fjelaginu, 50 krónum á mánuði.
En það borgaði sig ekki. Jeg
hafði hærra kaup í daglauna-
vinnu og altaf vísa vinnu. Kaup
var þá lágt og aldrei um neina
uppbót að ræða fyrir eftirvinnu
nje helgidagavinnu. En það var
sama. Mjer líkaði vel við Thor
Jensen og jeg held að honum
hafi líkað vel við mig, því að oft
ljet hann mig vinna ýmis störf
heima hjá sjer, t. d. að salta
kjöt á hverju hausti. Thor var
ágætur maður og ekki var konan
hans síðri. —
En nú skulum við fara að slá
botn í þetta. Og það hefði verið
nóg að segja að ævi mín skiftist
í þrent. Þrjátíu ár var jeg í föður-
húsum, 30 ár vann jeg hjá sama
húsbónda og 30 ár var jeg sjálfs ;
mín, en þar af hefur ellin tekið
rúmlega helminginn frá mjer.
Á.
gimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimiiimiuiiiiiiimiiii
1—2 herbi og eldhús (
óskast nú þegar. Einhver í
fyrirframgreiðsla, ef ósk 1
að er. Upplýsingar í síma f
7377
iiiimmm
imm iii iii 111111111111111111111111111111111111)
..........................mimii...mmimi
2 stúlkur
vantar nú þegar, Upplýs-
ingar gefur yfirhjúkrunar
konan, Elli- og hjúkrun-
arheimilið Grund.
...........
iiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiliiiiiiiiiinil|iii
Veltilbúnir
1 Kjö! og fiskrjeffir
§ allan daginn í
Matarbúðinni
i Ingólfstræti 3, sími 1569 i
iimmmmmmmmmi
iiiiimiiimimmimmmmmmmmmii
Blakkferniserum |
og ryðhreinsum þök. Not- j
ið tækifærið áður en haust i
rigningarnar byrja. — j
Pantið í símum 4592 og i
4967.
Hús og íbúðir
i af ýmsum stærðum og i
I gerðum til sölu. Eigna- I
i skipti oft möguleg.
i Haraldur Guðmundsson, i
i löggiltur fasteign-rsali, — i
i Hafnarstræti 15. — Símar f
i 5415 og 5414, heima.
m mimmmmmmmiimmmmiiiimmi 111111111111111111
immmmmmmmmmmmmmimiimmmmmmim
m —
Heimatilbúið
1 Fiskfurs I
Matarbúðin i
Ingólfsstræti 3, sími i
1569. I
iiiimmmmmmriYtlll4nihiiiiiMiiiiMimiiimmmiim>
iiimimiiimimiiiiiiiiimiiMMi.iiMMMiiitimmmiimi
I Smurtbrauð
Snittur. — Veislumatur.
i'Köld borð.
Matarbúðin
Ingólfsstræti 3 sími 1569.
immmmiii
iimmmmmmimii
immmmm
iimiimmimii
Tilboð óskast í 3—5 kgw. (eftir vatnsfallshæð 20
—30 m)
vatnsafisirafstöi
110 w. jafnstraumur með ýmsu tilheyrandi svo sem
110 m. af vírbundmun 6’ trjerörum, madum, heimilis-
tækjum o. fl.
Upplýsingar hjá undirrituðum
Guðjón A. Sigurðsson,
Gufudal — ölvesi.
Vörubílstöðin Þrótíur
verður lokuð frá kl. 2 e. h. mánudagihn 8. þ. m. vcgna
jarðarfarar Gísla Guðmundssonar bifreiðarstjóra.
Vöni lííá töÉi-n f^rótti
ir
« ftM* Oiiia ■■■jf
Konan mín
INGA DAGMAR HALLDÓRSDÓTTIR,
ljest 5. ágút 1949.
Valdimar ÞórSarson, Rirkjusandi.
Jarðarför föðúr okkar, tengdaföður og afa
EYJÓLFS PÁLSSONAR,
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 9. ágúst og
hefst með húskveðju frá heimili hans Baldursgötu 16
kl. 1 e. h. —
Elísabet Eyjólfsdóttir, Sigríður Eyjólfsdóttir,
Eiríkur Eiríksson og dótturbörn.
Jarðarför mannsins míns
GÍSLA G. GUÐMUNDSSONAR, bílstjóra
hefst með bæn frá heimili okkar Framnesveg 33 mánu-
daginn 8. ágúst kl. 3.30 e. h. Athöfninni frá Frikirkj-
unni verður útvarpað. — Jarðsett ve'rður í gomla
garðinum.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Sólveig Jónsdóttir
títför móður okkar
KRISTÍNAR ÞORVARÐARDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 8. ágúst og
hefst með bæn að Faxaskjóli 14 kl. 1 síðd.
Sigríðitr Bencdiktsdóttir,
Kristjana Benediktsdóttir.