Morgunblaðið - 03.09.1949, Qupperneq 2
MORGUTSBLAÐIÐ
Laugardagur 3. sept. 1945.1
; 2
iíommúnistar ætia dómsstólunum
að vera verkfæri i höndum
fiokks síns
Fyrirlíta klutíausa frarakvæmd
laga og sarma rjettvísi
STUNDUM skyldu menn halda,
að kommúnistar hjer á landi
væri allra manna löghlýðnastir.
Aðfinningar þeirra og umvand-
anir við þá, sem þeir segja, að
hafi brotið lögin, eru svo fjálg-
legar, að hinn ærukærasti heið-
ursmaður gæti ekki gert betur.
Stónhelgi kommúnista
Um margra ára bil áttu
kommúnistar t. d. ekki nógu
«terk orð yfir óheiðarleik og
glæpsemi Alþýðuflokksforingj-
anna. ,,Þjófnaður“ þeirra á eign
uni verkalýðsfjelaganna hjer í
Jteykjavík var ekki aðeins dag-
legt umræðuefni í Þjóðviljan-
um, heldur voru útsendarar
flokksins látlaust hafðir til þess
að fjölyrða um þetta á vinnu-
Ætöðvum og annarsstaðar, þar
sem þeir gátu fengið menn til
að hlusta á sig.
Amóta margmálir hafa komm
únistar verið um áhuga sinn til
að halda uppi baráttu gegn
.skattsvikum, smygli og gjald-
eyrisundanskoti. Af skrifum
Þjöðviljans skyldu menn ætla,
að enginn kommúnisti hefði
nokkru sinni framið neitt slíkt
afbrot.
Afbrotamemi úr flokki
kommúnista
En það er einkennilegt,
hvernig lítil atvik geta á ör-
„skammri stundu gert mikið
orðagjálfur að engu. Sjálfsagt
hafa sumir framið stórfelldara
smygi en Jón Aðalsteinn og al-
variegra brot á innflutnings-
og gjaldeyrislöggjöfinni en Is-
leífur Högnason. Vitað er og, að
■fieiri hafa skotið undan mikl-
um gjaldeyri og stórlega svikið
„skatt en Halldór Kiljan.
Fjöldi brota á þessari lög-
gjöf er afgreiddur á ári hverju
án þess, að þau veki sjerstaka
athygli. En af hverju hafa þá
jnái þessara manna orðið að ó-
venjulegu umræðuefni?
Um þau öll, er að vísu svo,
að þótt sakarefni sjeu misjafn-
lega mikilvæg. þá eru þau nokk
uð sjerstaks eðlis og sum harla
tortryggileg.
• Ötaðreyndin er samt sú, að
það eru kommúnistar sjálfir,
sem um þau öll hafa gert sitt
tii að gera þau að stórmálum.
Hamagangur þeirra út af því,
að þessir menn skuli hafa ver-
ið látnir lúta landslögum, hef-
ur vakið mesta eftirtekt á mál-
unum.
Dóraararnir eiga að
vera hinir seku
Asíæðan til þess er sú, að
hinir seku eru allir úr
innsta hópi. kommúnistaklík-
urinar. Þessvegna telja komm-
únistar, að það sje alger fá-
sinna að ásaka „slíka“ menn.
Ekki skipti máli hverjar at-
haínir þeirra sjeu. Af því, að
þeir eru forystumenn kommún-
ista, á fyrirfram að vera vitað,
að þeir geti ekki gert neitt
rangt.
Ef þeir eru dæmdir, þá er
það ekki sök þeirra, heldur
dómstólanna, sem . dæmir þá.
i»að cru dómstólarnir og dóm-
ararnir, sem þá eru hinir seku,
en ekki þeir, er afbrotin
frömdu.
Ásakanir kommúnista
ómerktar
Með svipuðum hætti fór um
deiluna út úr eignum verka-
lýðsfjelaganna. Þrátt fyrir all-
ar ásakanir sínar á Alþýðu-
flokksbroddana, höfðu komm-
únistar ætíð reynt að draga
málarekstur út af eignum þess-
um sem allra mest á langinn.
Þeir vildu auðsjáanlega nota
málið til áróðurs. En kærðu sig
ekki um endanlega niðurstöðu.
Ef til vill hefur þetta komið
af því, að kommúnistarnir hafi
innst inni vitað, að málstaður
þeirra var ekki eins sterkur og
þeir ljetu. Ef þeir hefðu haft
sigurvissu, mundu þeir hafa
sóst eftir málsúrslitum sem
allra fyrst, gagnstætt því, sem
þeir gerðu.
Dómur gekk svo í málinu á
s. 1. vori. Niðurstaða hans var
sú, að kröfur kommúnista voru
hafðar að engu og hinir marg-
ákærðu Alþýðuflokksbroddar
sýknaðir. Um hitt var auðvitað
ekkert sagt, hvort aðgerðir Al-
þýðuflokksmannanna hafi á sín
um tíma verið skynsamlegar.
heppilegar eða æskilegar. —
Það er alt annað mál, en hitt
hvort þær hafi verið löglegar.
Kommúnistar ráðast
á hæstarjett
Kommúnistar ljetu þettta þó
ekki á sig fá. Með þessu var að
vísu af æðsta dómstóli þjóðar-
innar ómerktur margra ára róg
burður þeirra En kommúnistar
láta sjer ekki bregða við slík
smávægileg óhöpp.
Úrræði þeirra var það, að í
stað þess, að áður höfðu þeir
ráðist á Alþýðuflokksbrodd-
ana eina og ákært þá um óheið
arleik og þjófnað. þá bættu þeir
nú nýjum við í hóp hinna á-
kærðu.
Þeir settu nú dómendur hæsta
rjettar á ákærðra bekkinn og
sögðu, að hæstirjettur hefði
kveðið upp „stjettardóm", sem
að engu bæri að hafa eftir rjett-
um lögum. Þjóðviljinn var ekki
lengi að finna þessa skýringu.
Og til frekari áherslu var full-
trúaráð verkalýðsfjelaganna
kallað saman og það látið sam-
þykkja yfirlýsingu þessa efnis.
Nú er það svo, að í fulltrúa-
ráði verkalýðsfjelaganna er
ýmislegt af skaplegum mönn-
um. Samt mun allur þorri Is-
lendinga betur treysta dómur-
um hæstarjettar til að segja,
hvað lög sjeu á Islandi heldur
en ■ fullírúaráðinu.
Hvorum treysta
menn betur?
Sigurður Guðnason er áreið-
anlega allra besta skinn. Allur
almenningur mun þó betur
treysta gerhygli og rjettdæmi
Jóns Ásbjörnssonar en Sigurð-
ar Guðnasonar.
Eggert Þorbjarnarson er um
margt skeleggur maður og hef-
ur mjög lagt sig eftir lærdómi
í hinum kommúnistisku fræð-
um. Hann hefur m. a., gengið
á skóla í Moskva til að full-
komna sig í hinum marxistiska
visdómi. Flestir íslendingar
munu samt fremur treysta lög-
fræðilærdómi Gissurar Berg-
steinssonar og óhlutdrægni til
að komast að rjettri niðurstöðu
um lögfræðileg efni.
Hannes Stephensen er gamal-
reyndur áróðursmaður komm-
únista og furðu slyngur til að
finna afbötun á óhæfuverkum
þeirra. Enginn efi er samt á
því, að Þórður Eyjólfsson er
mun slyngari í lögfræðinni og
kann betur skil á því en Hannes
hver lagaákvæði koma til
greina í þeim málum, sem fyr-
ir hæstarjett koma.
Á að setja myndskoðun-
armanninn yfir
hæstarjett?
Guðmundur J. Guðmundsson
sýndi .óneitanlega mikla hug-
kvæmni í öflun klámmyndanna
til skoðunar á skrifstofu Æsku-
lýðsfylkingarinnar, og ekki
skorti hann vilja til að sýna
fram á, hvaðan myndirnar
væru upprunnar. Jónatan Hall-
varðsson mun hinsvegar hafa
ólíkt meiri æfingu í öflun þeirra
sakargagna, sem þýðingu hafa
og almenningur treystir dóm-
greind hans um, hver raunveru-
lega sje sekur, mun betur, en
myndskoðunarmannsins úr
Æskulýðsfylkingunni.
Björn Bjarnason er mætis
maður og hefur unnið mikið af-
rek, skv. því, sem Þjóðviljinn
einu sinni sagði, er hann
steypti fleiri kirkjukerti en
nokkur annar íslendingur fyrr
og síðar. Ekki mun hann þó um
samviskusemi taka fram Árna
Tryggvasyni, og margra ára
reynslu Árna við dómsstörf
mun koma að meira haldi við
að finna rjettar niðurstöður
mála, en öll æfing Björns við
kirkjukertasteypuna.
Rjettvísin á að vera
flokkstæki, segja
kommúnistar
Auðvitað vita kommúnistar
eins og aðrir, að þótt þessir full-
trúaráðsmenn: sjeu um sumt
ekki verri en gengur og gerist,
þá er fásinna fyrir þá, að ætla
að setja sig í sess háyfirdómara
yfir sjálfum hæstarjetti þjóðar-
innar. En kommúnistum finnst
þetta ekki skipta máli. Þeir líta
á lög og rjett með allt öðrum
augum en aðrir menn.
Þeir telja, að rjettvísin hafi
þann einn tilgang að þjóna
flokkshagsmunum þeirra. Þeg-
ar hún gerir þ,að ekki, þá er hún
einskis virði. Þá er hún í hópi
hinna seku, sem ber að fordæma
og fótum troða.
Það er engin tilviljun, að
kommúnistar líta þannig á. —
Fræðikenningar þeirra segja,
að svona sje málið vaxið. Og
úr því að Lenin og Marx hafa
haldið þessu fram, dirfast
kommúnistasprauturnar hjer
ekki að hafa á því aðra skoðun.
Enda er framkvæmd rjettvís-
innar með þessum hætti austan
járntjalds.
Þar eru lög og rjettur að engu
höfð, Dómararnir verða þar að
gerast þjónar einræðisherranna.
Ef þeir gera það ekki, er þeim
miskunnarlaust vikið frá. Þeir
settir í þrælavinnu ásamt hin-
um verstu glæpamönnum.
Hvarvetna vaxandi
andúð á kommúnistum
íslendingum geðjast ekki því-
líkir stjórnarhættir og slíkar
aðfarir munu aldrei ná hylli
hjer á landi. Ein af ástæðunum
fyrir fylgishruni kommúnista í
öllum frjálsum löndum er sú,
að almenningur hefur áttað sig
á þeirri lítilsvirðingu, scm
kommúnistar berá fyrir lög-
hlýðni, rjettlátum dómum og
hlutlausri lagaframkvæmd.
Sú afstaða kommúnista mun
heldur ekki afla þeim fylgis
hjer á landi. Þvert á móti mun
hún verða þeim til samskonar
áfellis hjer sem annars staðar.
Sendinefnd fil
Ausfurlanda
LAKE SUCCESS, 2. sept. —
Trygve Lie, aðalritari S. Þ.
sagði í dag, að nefnd sú, sem
á næstunni fer til hinna nálæg-
ari Austurlanda til að fjalla um
efnahagsmál, væri skipuð ýms-
um færustu sjerfræðingum
heimsins. Hann sagði ennfrem-
ur, að Gordon Clapp formaður
sendinefndarinnar mundi fara
þangað austur hinn 7. sept.
—Reuter.
Herskipaheimsóknir
LONDON, 2. sept. — Ákveðið
hefur verið, að bresk herskip
heimsæki fjölmargar erlemlar
hafnir á næstunni. Þau munu
meðal annars koma til Frakk-
lands, Ítalíu, Portúgal, Corsíku
og Alsýr. — Reuter.
• • -<H
Staksteinar
Úr Hafnarfirði
ÖLLUM fregnum úr Hafnar - j
firði ber saman um það, að
fylgi Sjálfstæðisflokksinc
fari þar mjög vaxandi. —•
Hefur almenn sókn verið
hafin þar fyrir kosningu Ing-
ólfs Flygenrings, sem er
mjög vinsæll meðal Hafn
firðinga, enda hinn mesti
mannkostamaður. Þekking
hans á atvinnumálum er hin
viðtækasta og óhætt er að '
fáir menn kunni betur skil
á hagsmunamálum Hafnfirð
inga. Það þykir sjerstaklega
áberandi, hversu Sjálfstæðis-
flokkurinn á áberandi vax-
andi fylgi að fagna meðal
unga fólksins í Hafnarfirði.
Spáir það góðu um framtíð
flokksins þar.
Klofningur í
Alþýðuflokknum
í ALÞÝÐUFLOKKNUM í
Hafnarfirði ríkir um þessar
mundir mikil óánægja og
klofningur. Þykir flokknum
hafa farnast hrapalega stjórn
bæjarmálanna undaníarið ■
kjörtímabil. Eru forystu-
menn flokksins orðnir mjög 1
sundurþykkir og hefur tog- i
streyta þeirra haft lamandi ;
áhrif innan flokksins. Á allt
þetta ríkan þátt í að vcikja
flokkinn við þessar kosning- ,
ar. Hinn endemislegi rekst- :
ur Hafnarfjarðarvagnanna
undir stjórn þingmanns kjör i
dæmisins, sem situr í ráð- !
herrastóli hefir einnig mælst
mjög illa fyrir, enda bakað 1
bæjarbúum aukin útgjöld og
óþægindi.
1
Undarleg bændavinátta
BÆNDAVINÁTTA Tímans
og Framsóknar lýsir sjei oft
á mjög einkennilegan hátt.
Það má heita undantekning- 1
arlaust, að þegar einhver and
stæðingur Tímans talar af 1
skilningi og vinsemd í garð
bændastjettarinnar, þá rýk-
ur blaðið upp með svívirð-
ingum um hann og telur hann
hinn versta mann. Hvernig
stendur á þessu?
Astæðan er einfaldlega sú, !
að Tíminn hefur alla æví 1
sína logið því að fólki í sveit-
um, að allir stjórnmálaflokk
ar nema Framsókn, sætu á
S-vikráðum við hagsmuni ■
þess. Það er hræðslan við að '
bændur sjeu hættir að trúa j
þessu, sem að knýr Tímann
til þessara asnasparka. — En j
bændur eru áreiðanlega !
hættir að trúa því, að Sjálf- I
stæðisflokkurinn og forystu- 'j
menn hans berjist gegn hags-
munum þeirra. Reynslán
sýnir þeim hið gagnstreða. '
Hún sýnir það, að aldrei hef-
ur verið tekið raunhæfar á j
hagsmunamálum bænda i
stjettarinnar en einmitt síð í
an að áhrif Sjálfstæðismanna j
á stjórn landsins tóku ac j
vaxa.
Bifreiðaslys Bretlantli |
LONDON — í júnímánuði s.I«
voru 16,082 bifreiðaslys í Brett
landi.