Morgunblaðið - 17.08.1950, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.1950, Blaðsíða 14
14 MORGIJTSELAÐIÐ Fimtudagur 17. ágúst 1950. í ■miiiiiiiiiiiiiiiii Framiialdssagan 11 ail]|]lll«IIIIIIIIIHIIIllllHIIIIIIIUIllllIlllltinnnNSNIHllllllllllUlllllllllllllllllllllllllllll»IUIII"»»»*| FRÚ MIKE Effir Nancy og Benedicl Freedman ^niMlUllllU»llllllllllll!llllHllllIH!lll»HHlllllllllllllimiMIN]ntMWniHtH.MMI»l»lllllll»,,l,,llllHI,»H,,.»,M»,i,,»»»l»,»,»,»»»»»»»»»»,»,,,,,»»»*,»»»»»»»»»»' Nótt í Nevada Orð, aftur voru það algeng orð. Eða kannski var þetta allt íaman hugarburður í mjer. Jeg liafði skyndilega orðið óham- ingjusöm, en nú gagntók mig einhver gleðitilfinning. — Jeg iiugsaði um þetta dálitla stund. Orð, sem jeg vissi hvað merktu, Og önnur, sem jeg vissi ekki hvað merktu, voru undirrót allra tilfinninga, sem menn finna til. „Mike spurði um þig“. í>essi orð voru svo dásamleg, að þau l*ófu mig upp í skýin. „Gerði hann það?“ „Já, og honum finnst þú vera -fijerstaklega lagleg“. „Er það? Sagði hann það?“ „Hann sagði það ekki beint. En hann sagðist ekki hafa sjeð neina kvenlega veru, sem hefði fallegra hár“. Jeg varð fyrir dálitlum von- brigðum. „En Mildred. Þó hann hafi fiagt þetta, þá er ekki víst að honum finnist jeg vera lagleg. Honum finnst bara að jeg hafi mikið og fallegt hár. Og svo finnst mjer „kvenleg vera“ evo ósmekklegt orðalag“. „Hvað finnst þjer ósmekk- legt við það?“ „Það er kannski ekkert. Það er eins og verið sje að tala um dýr“. Mildred hló. „Þú ættir að vera ánægð með þetta, því að þetta sýnir, að hann gælir ekki við hvaða stúlku sem er. Því ef hann gerði það, mundi hann kunna betur að koma orð- um að því“. Mjer fannst þetta rökrjett hugsað og ástúð mín til Mild- red óx mikið. „Hann sagði einnig dálítið meira“. „Hvað?“ „Hann sagði, að augu þin væru eins grá og dúfubrjóst“. Þetta var skáldlegt og mjer fjell það vel í geð. „Sagði hann þetta í raun og yeru, Mildred?“ Mildred hikaði. „Já. hann sagði að þau væru grá eins og whisky-jói“. „Eins og hvað?“ Hún leit á mig og virtist í vandræðum með að skýra þetta fyrir mjer. „Whisky-jói, það er einnig fugl“. „En ekki dúfa?“ Hún fjellst á að það væri ekki dúfa, heldur þjófóttur og hrekkjóttur fugl. „Hversvegna í ósköpunum var honum gefið þetta nafn?“ spurði jeg. „Það stafar af hljóðinu, sem hann gefur frá sjer. Það hljómar eins og þegar menn biðja um whisky á veitinga- húsi“. Jeg var í vafa um, hvort mjer f jelli í geð það, sem Mike hafði sagt um mig. Auðvitað varð að taka það til greina, að hann var kominn frá skógivöxnu landi og það mundi vera honum eðlílégt að gera samanburð á stúlku og þeim hlutum, sem hann sá daglega. Ef til vill hafði hann aldrei sjeð dúfu, en whisky-jóa sá han-n á hverjum *degi. En jafnvel þó jeg reyndí að setja mig í hans spor, gat mjer ekki geðjast að þessum isamanburði. En skyndilega greip mijg skelfileg tilhugsun, og eg léit á Mildred. — Hvers vegna hafði hann farið að minn ast á augu mín, nema. ... „Mildred, þú hefir þó ekki sagt honum það?“ „Sagt honum hvað?“ spurði hún þegar í stað, eins og hún hefði engu að leyna. En nú hafði þessi grunur gagntekið mig, jeg varð að fá vissu um það. „Þú manst, að jeg sagði, að augu hans væru svo djúp og blá, að hægt væri að synda í þeim“. Það var eins og jeg hefði sært Mildred. „Katherine Mary, þú veist að jeg mun aldrei segja orð af því, sem við tölum um í trúnaði. Fyrr mundi jeg bíta tungu mína úr mjer“. Hún sagði þetta á þann hátt, að jeg skammaðist mín fyrir að hafa spurt hana þannig. og mjer fannst jeg vera óverðug vináttu hennar. En ennþá gat jeg ekki varist tilhugsuninni um það, að mjer fannst undar- legt, að hann skyldi minnast á augu mín. Mildred svaf hjá mjer þessa nótt. Við höfðum ráðgert, að «jeg fylgdi henni heim um morg uninn. en við sváfum framundir hádegi. Johnny tók byssuna sína og fór út í gilin. Þetta var ágætt tækifæri og við ákváðum að baka nokkrar eplakökur. Jeg kunni það, því mamma hafði einu sinni sýnt mjer, hvernig fara átti að því. Jeg ætlaði að baka 12 stykki, og ætlaði að eiga tvær sjálf. „Það er til fullur kassi af eplum, Mildred. Hvað heldurðu að sjeu mörg í kassanum?“ „Á að giska 30 pund“, sagði Mildred. Jeg gægðist ofan í kassann og tók upp óásjálegt stykki. „Er þetta epli?“ spurði jeg Mildred. „Auðvítað, þetta er þurrkað epli“. Jeg hafði aldrei notað þurrk- uð epli áður og jeg reiknaði með að þau væru notuð á sama hátt og venjuleg ný epli eins og þau, sem mamma keypti í Boston. Jeg setti þessi 30 pund í vaskinn til að bleyta í þeim. Síðan setti jeg þau yfir eldinn. „Ertu ekki með allt of mikið af eplum?“ spurði Mildred þegar hún horfði á mig fylla hvern pottinn af öðrum og setja á eldavjelina. „Gleymdu ekki, að jeg er að baka ofan í 10 karlmenn“, sagði jeg. Og nú spurði hún ekki fleiri spurninga. Jeg' kunnj ekki við þögnina, svo að jeg sagði: „Jeg geri ráð fyrir, að þú sjert vön mat- reiðslukona sjálf, Mildred“. „Jeg eldaði handa Dick mörgum sinnum, þegar hann kom að heimsækja mig. Jeg held að það sje ein ástæðan fyrir að hann bað mín“. Hún hló, en þagnaði svo skyndilega. Það voru tár í augum hennar. „Ó, Kathy. Jeg veit ekki, hve- nær víð Dick getum gift okk- ur“. „Hversvegna?“ spurði jeg, og tók utan um hana annarí hendi. „Hvað er að?“ „O, það /er ekkert. Það er aðeins það — það er erfiðara að gíftast lögfræðingi en lög- regiumanni í fjallahjeruðun- um“. „Hvað er svona erfitt við það?“ „Lögregluþjónninn getur kvænst þegar hann hefir gengt þjónustunni í fimm ár. — En lögfræðingurinn getur ekki gifst fyrr en hann hefir komið sjer það vel fyrir, að hann get- ur sjeð fyrir sjer og konu sinni. Það segir Dick að minnsta kosti. Og það er svo erfitt að byrja". „Það mæta manni alltaf ein- hverjir erfiðleikar, þegar mað- ur er ungur“, sagði jeg, og jeg sagði margt annað, sem við höfum heyrt fólk segja. Þetta virtist hughreysta hana. Ekki þau orð, sem töluð voru, heldur það, að hún vissi, að mjer þótti leiðinlegt þetta með hana og Dick, og að jeg vonaði, að þau gætu gift sig sem fyrst. Mildred tók svuntuna af sjer í skyndi. „Komdu“, sagði hún. „Þetta er nóg. Fylgdu mjer heim núna“. Við háðum keppni yfir sljett engilandið, og það virtist hafa hressandi áhrif á Mildred. En jeg hugsaði sífellt um dálítið sem hún hafði sagt, að lög- regluþjónn í fjallahjeruðunum gætj ekki kvænst fyrr en hann hefði verið í þjónustunni í fimm ár. Hvað skyldi Mike vera bú- inn að vera þar lengi? Jeg stansaði ekkert á bú- garði MacDonald, vegna þess að jeg var að sjóða eplin. — Á heimleiðinni ljet jeg Rosie að- eins fara fetið. Jeg tók í taum- ana, þegar hún stansaði til að taka niður, en það gérði hún eins oft og hún sá sjer færi á. Skyndilega tók jeg svo harka- lega í taumana, að við sjálft lá, að höfuð hennar rækist í mig. Þetta var ekki viljaverk, en allt í einu hafði jeg tekið eftir, að nokkru fyrir norðan mig var ríðandi maður á ferð, HlMMlllllllllllllllinilllllllllttllllMlllllllllllllllllinilllllJ \ Klukkan f Auglýsingar, | scm birtast eiga í f sunnudagsblaði | I í sumar, þurfa að vera : komnar fyrir | jklukkan 6 j | á föstudögum. s- * iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiinHiiiiiiiiiiiiiiiMiiiini* wiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiuiuai Ibúð 3 3 1 Reglusamur miðaldra maður ósfc i | ar eftir að fá leigt 1—2 her- | | bergi og eldhús. Tilboð sem' íil- | | greini leiguupphæð leggist inn : I á afgr. blaðsins fyrir hádegi á ! : laugardag merkt: „Einbúi — : j 1 637“. E s l Frásögn af ævintýrum Roy Rogers 17. Farrell raknaði úr rotinu. Roy sýndi honum lögreglumerki ið togaði hann á fætur og sagði að hann væri handtekinm. Svo lögðu þeir af stað að Silfurborg. Þegar kom á lögreglustöðina tóku þeir til við að yfir- heyra Farrell, en hann fjekkst ekki til að játa neitt. Hanm sagðist hafa verið á gangi fram hjá húsvagninum, þegar hann sá einhvern vera að fikta á gasgeyminum. „Jeg hjelt náttúrlega, að þessi maður væri þjófur eða einhverskonar fantur“, sagði Farrell, „en svo reyndist það vera Roy“. Farrell hafði beðið lögreglumennina að kalla á Jason lög- fræðing og hann kom líka innan stundar. Hann fjekk skýr- ingu á öllu, sem gerst hafði. — Þetta virðist vera mikill misskilningur, sagði Jason. — En jeg vil reyna að leiðrjetta þennan misskilning. Að vísu veit jeg ekki, hver reynt hefur að myrða stúlkurnar með gasi, en eitt er jeg viss um, að það var ekki þessi maður, því að nú skal jeg gefa hin sterkustu rök fyrir því. Farrell er í rauninni faðir Línu, rjetta nafn hans ec Andrjes. . 1 | Farrell hrökk við, þegar Jason sagði þetta, en tók sig á og samþykkti allt sem Jason sagði. — Já, hann sagðist vera íaðir Línu, Þegar hann var ungur maður, þá hafði hanm brotið af sjer, verið settur í fangelsi. Þegar hann losnaði úr fangelsinu hafði hann svarið þess dýran eið, að móðir Línu skyldi aldrei fá að vita, að hann hefði setið í fangelsi. Þessvegna hafði hann breytt um nafn og farið að kalla sig Farrell. — Og jeg vildi helst ekki, að Lína kæmist að því. að jeg væri faðir hennar. Hann tók upp slitið veski Andrjesar, með öllum skjölum og myndinni af Línu, þegar hún var ungbarn. — Skiljið þið ekki, sagði hann og hafði æst sig upp, — hversvegna jeg var þarna niður frá hjá húsvagninum. Jeg var þar til þess að halda vörð yfir dóttur minni, sem jeg elska í raun- inni mikið. En helst vil jeg, að þið segið henni samt ekki, að jeg er faðir hennar. En peningana, sem hún kallar arf eftir föður sinn, skal hún fá þegar í stað. Jeg á aðeins eftir að ganga frá formleg- um skjölum, sagði Jason lögfræðingur. TllohQumJuúl'A ASTLLL „Þú sagSist vera svo hrifimi af fótbolta á sunmidög«m.“ ★ Viðurkenninga ? Dómarar hafa oftast síðasta orðið, en .við vitum samt um eina undan- tekningu. Lögfræðingur nokkur leyfði sjer að þræta við dómara um laga- bókstaf, en varð að láta í minni pok- ann fyrir ofureflinu. Hann gafst upp með píslarvættissvip og sagði: „Já, já, herra, jeg er alveg sammála. Þjer hafið á rjettu að standa og jeg hef á röngu að standa, eins og þjer hafið venjulega.“ Og dómarinn sat eftir í þönkum, ★ Taugaóstyrkur bílstjóri: „Talið þið nú ekki við mig í augnablik. Það er símastaur að koma á móti okkui.“ ★ Hógværð, Tveir menn unnu að því að gera við þjóðveg. Maður nokkur, sem fór þar hjá, varð svo skelfdur að heyra orð- bragðið, sem þeir notuðu, að hann sendi vinnuveitanda þeirra kæru. Mennimir voru spurðir um þenrian atburð og beðnir að senda skriflega skýrslu. Annar þeirra skrifaði: „Kæri herra! Það var svona. Bill Smith lá niðri í skurði og var að leggja þar vír, þegar jeg missti ofurlítið gló-i andi blý niður á hálsinn á honum. Þá kallaði Bill: „Georg, þú verður að fara varlegar með blýið“.“ ★ Fólk fer í styttri brúðkaupsferðir nú en áður fyrr, en það fer í fleiri. ★ Tvennt til. Viðskiptavinur settist í stólinn hjá’ rakaranum. Rakarinn leit á höfuð hans og sagði: „Hvort viljið þjer heldl ur, herra, láta klippa yður eða fægja?“ ★ Það var hringt til skólastjórans, Rám rödd sagði: „Öli litli getur ekki komið í skólann í dag, hann er kvef- aður.“ „Nú, jæja,“ sagði skólastjórinn. „Hver talar?" Svarið kom þegar í stað: „Pabbá minn.“ I ^aiterdine- dragt I brún eða svört óskast. Uppl. í j síma 4080, FINNBOGI KJARTANSSON SkipamiSlun Austurstræti 12. Simi 5544. . Símnefni: „Polcoal‘\

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.