Morgunblaðið - 06.09.1950, Page 5
Miðvikudagur 6. sept. 1950
MORGUISBLAÐIÐ
S
Á Esperantistaþinginu.
Um 60 fulltrúar á fyrsta
landsþingi esperantista
Þorsleinn Þorstefnsson hagstcfustjéri
kjöriim hsfðursfjelagi.
II uppskera góð á Sáms
stöðum eftlr sum
sst
Komræktinnl miðar hægf áfratn.
EINS og ákveðið hafði verið,
hófst fyrsta landsmót íslenskra
iDsperantista í fyrstu kennslu-
ptofu háskólans kl. 16,00 laugar-
daginn 2. þ. m. Fór þá fram há-
tíðleg setningarathöfn, og setti
forseti sambandsins, sr. Halldór
Kolbeins, sóknarprestur í Vest-
mannaeyjum, mótið með ræðu
Þg sunginn var alþjóðasöngur
hinnar óháðu esperantohreyfing-
ar, La Espero.
Við setningu landsmótsins
Meðal viðstaddra voru í boði
isambandsins eisti virki esperant-
Sstinn á Islandi, dr. oecon. h. c.
Þorsteinn Þorsteinsson, hagstofu-
ptjóri, og borgarstjórinn í Reykja
vík, Gunnar Thoroddsen, er jafn-
an hefur sýnt esperantohreyfing-
nnni velvild og áhuga, en mennta
málaráðherra, Björn Ólafsson,
jgat ekki verið viðstaddur sökum
anna og sendi sambandinu kveðju
eína. Mótinu bárust einnig kveðj-
ur og óskir um árangursríkt starf
frá Helga Elíassyni, fræðslumála-
Ptjóra, sem gat ekki heldur þegið
hoðið um að vera viðstaddur mót
Sð, og esperantistum í Borgar-
íiesi.
Er setningu mótsins var lokið,
hófust almenn fundarstörf, og
flutti ritari sambandsins, Ólafur
S. Magnússon, skýrslu sambands-
fetjórnar. Síðan fluttu skýrslur
feínar fulltrúar einstakra fjelaga
Snnan sambandsins, en umræðum
um starfið var að öðru leyti
frestað fram yfir kvöldmat. Að
fekýrslunum loknum var flutt af
fetálþræði ræða Júgóslavans próf.
'dr. Ivi Lapenna, er dvaldist hjer-
lendis s.l. marsmánuð. Voru það
lcveðjuorð hans til íslenskra esp-
terantista. Að því loknu var sýnd
ikvikmynd frá Vestmannaeyjum,
og skýrði hana Ólafur Halldórs-
Eon, læknir.
Hagstofustjóri kjörinn
heiðursfjelagi
Um kvöldið hófst fundur á ný
kl. 20,30 með því, að heiðursgest-
Ur mótsins, dr. Þorsteinn Þor-
feteinsson, hagstofustjóri, flutti
fróðlegt erindi um fyrstu ár esp-
erantohreyfingarinnar á Islandi.
Að ræðu hans lokinni lýsti fund-
íirstjóri yfir því, að stjórn sam-
bandsins hefði kjörið hann heið-
ursfjelaga sambandsins í þakk-
Bætisskyni fyrir brautryðjanda-
Starf hans í þágu esperantohreyf-
Sngarinnar, en hann samdi og gaf
út fyrstu ísl. kennslubókina í
esperanto 1909. Risu fundarmenn
’úr sætum sínum til að hylla heið
Ursfjelagann, en hann þakkaði.
Söngur og' leikþátíur
Þá hófst söngur blandaðs kórs
Undir stjórn Hallgríms Jakobs-
BOnar. Söng kórinn ýmis þekkt
lög við texta á esperanto, m.a.
Jag Sigvalda Kaldalóns við isl.
þjóðvísuna „Hjer sit jeg^ein á
fetokki“ — í esperantoþýðingu —
þg var kórnum vel fagnað. Síðan
fluttu Auðunn Br. Sveinsson og
Óskar Ingimarsson samtal Jóns
Hreggviðssonar og Jóns Marteins
sonar úr Islandsklukkunni, eftir
Haildór Kiljan Laxness, og þótti
takast vel.
Að þessu loknu hófust umræð-
ur um ýmiss málefni sambands-
ins og hinnar íslensku esperanto-
hreyfingar almennt, m.a. hvort
tiltækilegt þætti kostnaðar vegna,
að ráða fastan starfsmann eða
erindreka til sambændsins. Stóðu
umræður fram á nótt, en var síð-
an frestað til sunnudagskvölds,
en á sunnudagsmorgun var lagt
af stað í skemmtiferð.
Skemmtiferð
Farið var til Þingvalla. Veður
var gott, en skúrir. Á Þingvelli
var staðnum, sögu hahs og þjóð-
legum minjum þar nokkuð lýst
— að sjálfsögðu á esperanto. —
Síðan var haldið um Ljósafoss að
Selfossi og þar snæddur miðdeg-
isverður. Þaðan var haldið til
Reykjavíkur um Krísuvík með
viðkomu í Strandakirkju, en því
miður var stöðug rigning mest-
alla þá leið, svo að ferðafólkið
varð að láta sjer nægja að horfa
hvert á annað í staðinn fyrir
landslagið, þegar ekki sást út
vegna rigningarinnar.
Komið var til Reykjavíkur um
kl. hálfátta, en kl. níu var fund-
arstörfum fram haldið og að
þessu sinni í Hótel Garði, og var
þar kaffisamsæti. Urðu umræð-
ur allfjörugar með köflum og var
samþykkt að halda næsta lands-
mót íslenskra esperantista í Vest-
mannaeyjum næsta sumar. Um
miðnætti sleit forseti sambands-
ins, sr. Halldór Kolbeins, mótinu
með ræðu, þakkaði þátttakendum
komuna og þeim, er lagt hefðu
hönd að verki við undirbúning
ög framkvæmd mótsins.
Aðeins esperanto
Mótið fór að öllu leyti fram á
esperanto, bæði ræður og söngur,
auk leikþáttarins, sem fyrr var
getið, og auk þess notuðu esper-
antistarnir sjer tækifærið til að
æfa málið í daglegu tali í einka-
samtölum á öllu mótinu, á fund-
um, í ferðalaginu, undir borðum
o. s. frv. Varð þá sama raunin á,
sem annars staðar um esperanto,
að mönnum tókst mjög fljótt að
nota sjer málið að fullu gagni.
Er ekki að efa, að þetta fyrsta
landsmót íslenskra esperantista
hefur orðið góð hvatning þeim,
er sóttu það, og orðið til aukinn-
ar gagnkvæmrar kynningar inn-
an hreyfingarinnar. Þátttakendur
voru um 60 alls, og komu menn
víðs vegar að af landinu, frá fsa-
firði, Húnavatnssýslu, Hornafirði,
Vestmannaeyjum, Hveragerði og
víðar, en þátttaka Hafnfirðinga
og Reykvíkinga var tiltölulega
langminnst og raunar furðu lje-
leg, þegar gætt er aðstöðumunar
Framhald á bls. 12.
Tíðarfarið.
Klemens Kristjánsson til-
raunastjóri á Sámsstöðum var
hjer á ferð fyrir nokkrum dög-
um. Átti Morgunblaðið tal við
hann um heyskapinn og upp-
skeruna almennt þar eystra og
á Sámstöðum sjerstaklega.
Einnig mirintist Klemens á ferð
sína til Danmerkur í fyrra
mánuði, en hann fór þangað til
þess að sitja námsskeið gras-
ræktarmanna.
Klemens- sagðist svo frá:
Vorið var allgott eins og all-
ir vita. Júní þurr og hlýr. En
framan af slætti var úrfella-
samt i Rangárvallasýslu, en
komu sæmilegi'’ þurrkar upp
úr miðjum ágúst. Grasspretta
var í góðu meðallagi og nýting
allgóð á heyjum Mikil hey eru
komin inn í sýslunni, vegna
þess sem sagt, hve þurrkur var
sæmilegur þar um slóðir síð-
ari hluta ágúst. Slætti er sums
staðar lokið, en á öðrum bæj-
um er nokkuð efíir að slá af há.
Votheysverkunin.
— Hvernig eru menn settir
með vothey, þar um slóðir?
— í Fljótshlíð er alltof lítið
af votheysverkun. — Þó eru
þar nokkrir bændur, er geta
verkað helminginn af heyi sínu
í vothey eða vel það. En nokk-
uð margir bæir eru í Fljóts-
hlíð, þar sem vothey er sama
sem ekkert. Þetta er þó að lag-
ast, og lagast væntanlega bet-
ur á næstu árum. þegar bænd-
ur eru farnir að sannfærast um,
hve votheysverkun er ómiss-
andi í votviðrasumrum.
Vantar varnarlyf.
— Horfur með kartöfluupp-
skeru eru góðar, ef myglan
kemur ekki til sögunnar síð-
asta sprettinn. Vart hefur orð-
ið við kartöflumyglu á tveim
bæjum i Hlíðinni, og hætt við
að hún breiðist út, ef ekki verð
ur úðað með varnarlyfjum.
— Eru varnarlvfin fáanleg?
— Jeg held að hægt sje að
fá þau. Að minnsta kosti hef
jeg fengið nóg v.f þeim, til þess
að verjast kartöfluskemmdum
á Sámstöðum.
Kornræktinni miðar hægt.
— Hvað er að frjetta af korn-
ræktinni?
— Hún er. sem áður, aðal-
lega á Sámsstöðum, í Gunn-
arsholti og á stöku stað í Ar-
nessýslu. t. d. á Skeiðunum í
Mosfellssveitinni og á nokkr-
um bæjum í Þingevjarsýslu,
einkum að Viðivöllum i
Fnjóskadal. Austur á Skriðu-
klaustri held jeg sje lika ein-
hver kornrækt og á nokkrum
fleiri stöðum,
Annars hefur viðleitnin til
kornyrkju heldur færst saman
á siðustu árum meðal annars
vegna þess, hve fólki hefur
fækkað í sveitunum og því erf-
iðara að koma bví við, að bæta
bessum störfum við annað.
Menn vilja ekki eiga við korn-
rækt í smáum stíl, finnst bað
ekki taka því O? hafa ekki afl
til að rækta korn svo nokkru
verulegu nemi
Vjelar bæta ekki npp
fólksfækkunina
— Yfirleitt er erfiðara með
sveitavinnuna en áður, þó vél-
um hafi fjölgað í sveitunum,
þá hafa þær ekki unnið það
upp, sem tapast hefur vegna
fólksfækkunarinnar.
Þó mjólkurframleiðslan hafi
aukist hjer sunnanlands á síð-
ustu árum, þá er ekki þar með
sagt, að vjelavinnan hafi jafn-
ast á við fækkun fólksins. Þeir
sem eftir eru í sveitunum
verða að leggja meira á sig,
heldur en áður var.
Kornið þroskast snemma.
— Og hvernig eru horfurn-
ar með kornupnskeruna nú?
— Byggið er að verða þrosk-
að og hafrarnir eru langt komn-
ir. Uppskeran á bvggi byrjar
8.—10. september. Það er
Dönnes-bygg og Flojabvgg og
Edda-bygg, sænskt. Færeyja-
byggið sem jeg hef haft á und-
anförnum árum og heitir Sig-
urkorn, þroskast seinna, ekki
fyrr en undir miðjan mánuð-
inn.
— Hefur kornið ekki spillst
af foki í sumar9
— Nei, það hefur ekkert fok-
ið hjá mjer ennþá. Vonandi
fýkur það ekki. því jeg rækta-
að mestu leyti þær tegundir
byggs og hafra sem hafa mest
rokþol.
— Hafa gæsirnar ekki spillt
uppskerunni fvrir þjer?
— Gæsirnar eru óvenjulegá
snemma á ferðinni. I korninu
á Rangárvallasandi eru þær
byrjaðar að narta i kornakr-
ana. Ef ekki á að fara þar allt
í súginn, þá verður að taka
kornið þar næstu daga, áður
en gæsirnar hirða það.
Tonn af grasfræi
— Hvernig er með frærækt-
ina hjá þjer?
— Jeg hef tiltölulega lítið
grasfræ í ár. Það er háliðagras
aðallega og lítið eitt af tún-
vingli. Jeg hef ekki aukið fræ-
ræktina á seinni árum vegna
skorts á verkufólki. Þó jeg
rækti tonn af grasfræi, þá seg-
ir það ekki mikið, þar sem
bændur þurfa alls á landinu að
minnsta kosti sextíu tonn á ári.
Á námskeiði grasræktar-
manna.
— Og hvað getur þú sagt
mjer af utanför binni?
— Mjer var boðið að vera
þátttakandi á námsskeiði fyrir
grasrækt sem „Matvæla- og
landbúnaðarnefod“ hinna Sam-
einuðu þjóða hjelt í Kaup-
mannahöfn. Námskeiðið stóð
yfir í tíu daga Þvi var hagað
þannig, að í fjóra dgana voru
fyrirlestrar á 'annsóknarstof-
unni við Rolighedsvej. Voru
fluttir 9 fyrirlestrar á fjórum
dögum, um hagfræði grasrækt-
ar og aðferðir sáðskipti, útsæði,
framleiðslu og eftirlit með fræi
og fræþörf. Á námskeiðinu
voru grasræktarmenn frá 13
þjóðum.
Ferðalög um Ðanmörku.
— Næsti þáttur námskeiðsins
var svo ferðalög. Skoðuðum við
fyrst búgarða i nánd við Kaup-
mannahöfn. Fórum síðan um
Jótland til Álaborgar sunnan
Limaf jarðar. Skoðuðum þar
búgarða og mikla nýrækt, 1?
þúsund hektara á einum stað.
Kostað hefur tuttugu milljónir
að ræsa fram bað land og rækta.
Talið er að brúttó afrakstur af
landi þessu verði 12 milljónir
króna árlega. En sumt af land-
inu er allmikið lægra en sjáv-
arborð, og þarf rafm.agnsdælur
til þess að koma vatninu af
DVÍ.
Við skoðuðum búgarða, smá-
býli og búnaðarskóla, fórum
norður fyrir Lirnafjörð og skeð
uðum Store Vildmose, eða
Miklumýrar, sem hægt væri &"&
kalla. Fórum 'siðan vestur að
Norðursjó og suður til Suður-
Jótlands og skoðuðum meoal
annars ýmsar tilraunastöðvar,
bæði á heiðum á sandjarðvegi
og á fitjunum við Norðursjó,
þar sem eru víðir vellir og míkil
grasrækt.
Jeg hefi ferðast víða um
Danmörku áður og hafði all-
mikil kynni af dönskum land-
búnaði fyrir 25—30 árum. Mjer
sýndist akrar dönsku bænd-
anna vera yfirleitt ver hirtir eh
þeir áður voru. Stafar þetta at
miklu leyti af því, hve danskir
bændur hafa átt erfitt með að
fá nægilegt verkafólk. Á ferð-
um mínum sá jeg hvorki vjel-
þurrkun eða súgþurrkun, ett
talsvert er af votheysgerð, eink
tim með ATV-aðferðinni. Dansk
ir bændur segiast ekkl fá nægi-
lega góða verkun á smrahevi
eða lúsernu, nema þeir hafi
sýru í heyinu.
Verkfail í banda-
rískri atómrann- :
sóknasiöð
NEW YORK, 5. sept. — Fjög-
ur hundruð starfsmenn í atom-
rannsóknarstöðinni í Schenec-
tady, New York, ‘hófu í dag
verkfall, þrátt fyrir áskorur»
stjórnarvaldanna um að halda
áfram vinnu, þar sem vinnu-
stöðvunin geti haft ill áhrif 4
hervarnaframleiðslu Banda-
ríkjanna.
Það er fyrirtækið „General
Electric Company“, sem starf-
rækir rannsóknarstöð þessa
fyrir Bandaríkjastjórn.
—• Reuter.
Sex fórust í Egyptalanði
ALEXANDRIA. — Járnbrautar-
lest, scm var á leið frá Mersa
Matruh, varð nýlega fyrir spreng
ingu. Ljetu 6 menn lífið. —-
Sprengjuefnið hafði verið skilið
eftir í eyðimerkurbardögum sein
ustu styrjaldar.
: S*
j i
Matvöruverslun í
s |
í sem er á mjög góðum stað og í fullum gangi er til sölu *
■ •*!
a *
S nú þegar. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 8. þ. m. merkt: 5
Í „101 — 942“.
■ Í
UUJUÚI ■_»_». ■_«.■.» ■.■IQPjðQKflLO ■ ■ « ■-■öJOÍJÍtP. ■*»**»» »#»■ » 'hplMMS