Morgunblaðið - 12.02.1952, Page 6
6
Þiiðjudagur 12. febrúar 1952
MORGXJTSBLAÐIÐ
íÞRÓTTIR
Mynd þessi er frá Skautamóti fslands, sem hófst á íþróttavellinum
í gær. Lengst til vinstri er Iljalti Þorsteinsson, sem vann í 500 m.
hlaupi karla, þá er Edda Indriðadóttir, er vann 500 m. hlaup kvenna
á nýju íslandsmeti og Björn Baldursson, sem varð annar í 500 og
2000 m. hlaupi, öll frá Akureyri. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Stautðiirát íslands hófst í
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í skautahlaupi hófst á íþróttavellinum
í gær, en brautir vallarins höfðu verið sprautaðar vatni, þannig
rð þær voru nú ísi þaktar. í gær var keppt í 500 og 3000 m. hlaupi,
en í dag verður þá keppt í 1500 m. hlaupi fyrir konur og karla og
5000 m. hlaupi karla.
Úrsiit í gær urðu þessi:
500 m.: — 1. Hjalti Þorsteins-
Fon, SA, 52,0 sek., 2. Björn Bald-
vinsson, SA, 52,8 sek., 3. ólafur
Jóhannesson, SR, 53,0 sek., 4. Þor-
Eteinn Steingrímsson, Þrótti, 53,2
sek., 5. Kristján Árnason, KR,
53,4 sek. og 6. Þorvaldur Snæ-
Ljörnsson, AS, 53,6 sek. (Kepp-
endur voru 11).
3000 m. hlaup: — 1. Kristján
'Árnason, KR, 5.56,3 min., 2. Björn
Baldursson, SA, 6.02,2 mín., 3.
Þorsteinn Steingrímsson, SA,
6.18,4 mín., 4. Hjalti Þorsteinsson,
SA, 6.07,8 mín., 5. Þorvaldur Snæ-
bjömsson, SA, 6.18,4 mín. og 6.
Jón D. Ármannsson, SA, 6.22,2
mín. (11 keppendur).
500 m. hlaup Icvenna: — 1. Edda
Indriðadóttir, SA, 63,3 mín. (ísl.
met) og 2. Guðný Steingrímsdótt-
ir, KR, 73,2 sek.
Mótið heldur áfram í dag kl.
2 e. h.
Allir íbúar Óslóborpr
undirbúa vetrarleikiita
■PORMAÐUR norsku Óljnnpíu-
nefndarinnar, O. Dietlev-Simonsen
j r., hélt útvarpsræðu s. 1. sunnu-
dag. Hóf hann mál sitt með því
að vitna í stofnskrá Ólympíuleik-
anna:
„Engin þjóð má útiloka aðra
þjóð vegna litar hennar trúar eða
síjórnmálaskoðana. Ríkisborgara-
l’éttur gefur mönnum rétt til þátt-
t'.-ku, ef viðkomandi uppfyllir að
Öðru leyti sett skilyrði m. a. um
áhugamennsku".
Einni borg er faiið að sjá um
1‘ikina, það er aldrei landið í heild
eða þjóðin sem um þá sér. Alþjóða
clympíunefndin er skipuð 68 mönn
tm frá 45 löndum en í fram-
Jc væmdanefnd eru 6 menn. Nú
skipa það þessir menn: Forseti
Udström, Svíþjóð, varaforseti
J rundage, Bandaríkjunum, Bona-
cossa, Italíu, Scharroo, Holland,
Massard, Frakkland og Burghley
lávarður, Englandi.
Það hefur verið sagt, hélt Ditlev
Simonsen áfram, að Osló hefði
ekki efni á að sjá um framkvæmd
vetrarleikanna, en ég segi, að við
Jiöfum ekki efni á að hafna boð-
jnu. Við viljum að sem flestir út-
lendingar sjái borg okkar og land.
Kannski koma þeir aftur. Minnist
þess, að allir Norðmenn eiga að
vera gestgjafar, gamlir sem ung-
jr. Sýnið menningu og íþrótta-
anda. Forðizt árekstra, — hvernig
sem þeir kunna að verða. Fyllið
ekki sæti gesta vorra. Sitjið ekki
lehg'i á veitingahúsum. Lofið öðr-
um að komast að. Horfumst í augu
víð glaða, fjöruga og góða íþrótta-
hátíð svo við eftir á getum verið
ístolt af framkvæmd okkar, sagði
Ditlev-Simonsen.
Allir íbúar Oslóarborgar undir-
búa nú leikana og ég efast ekki
um að í Osló fari fram mikil
íþróttahátíð. Við þá sem í dag
fara með Gullfaxa til Oslóborgar
vil ég segja: „Góða ferð. Þið eruð
velkomin". -—G. A.
Uiniu Horgunblaðs-
íil elgitar
AKUREYRI, 11. febr. — Stór-
hríðarmóti Akureyrar lauk síð-
astliðinn sunnudag með keppni í
stórsvigi og stökki. Hófst mótið
kl. 1,30 e. n.
Stórsvigið fór fram hjá Breiða-
hjalla, og var svigbrautin 1300
m löng hjá A og B flokkum, en
900 m hjá C flokki. Torfærur
\oru nokkrar á brautinni, svell-
bunkar og smáhengjur. 20 hlið
vorou í braut A og B flokks, en
15 hlið í braut C flokks. Brautar-
stjóri var Magnús Brynjólfsson.
Helztu úrslit. Stórsvig A flokks
1. Magnús Brynjólfsson KA á
1.39 mín., 2. Freyr Gestsson KA
1.48 mín., 3. Bergur Eiríksson
KA 1.48. B flokkur. 1. Magnús
Guðmundsson KA, 1.40 mín. 2.
Þráinn Þórhallsson KA, 1.41 mín.
3. Halldór Ólafsson KA 1.44 mín.
C flokkur. 1. Árni B. Árnason
MA 1,08 mín. 2.—4. Baldur
Ágústsson KA 1.19 mín. Jens
Sumarliðason Þór 1.19 mín. Guð-
mundur Guðmundss.on KA 1,19
mín.
Stölckið hófst í Miðhúsaklöpp-
um kl. 3 e. h. Stökkstjóri var
Björgvin Júníusson. Aðeins einn
keppandi tók þátt í stökkinu.
Stighæstir urðu eftirtaldir
menn: Bergur Eiríksson KA,
225 stig. Þráinn Þórhallsson KA
215.1, Jens Sumarliðason Þór,
194,5. C flokkur, 17—19 ára. Sig-
tryggur Sigtryggsson KA 223,0
stig, Guðm. GuðmundSson KA
218.1, Freyr Gestsson KA 206,6
stig. í þriggja manna sveitar-
keppni var fyrst A sveit KA með
666,1 stig, önnur B sveit KA og
þriðja sveit Þórs.
Sveit KA vann til eignar bik-
ar, sem Morgunblaðið gaf fyrir
nokkrum árum og keppt hefur
verið um á stórhríðarmótinu und
anfarin ár. Þetta var í fimmta
sinn, sem KA vann bikarinn.
— H. Vald.
Hæsfa viSfangsefni L.R.:
Tony vaknar til lífsins
*
eftir Harald A. Sigurðsson
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ verður frumsýndur hjá Leikfélagi
R.eykjavíkur í Iðnó nýr gamanleikur eftir Harald Á. Sigurðsson,
sem hann nefnir Tony vaknar til íífsins. Haraldur er löngu þjóð-
kunnur fyrir ritstörf sín og er óþarfi að kynna hann landsmönn-
um. Hann hefur skrifað fjölda gamanþátta, sem fram hafa komið
bæði í útvarpi og á leiksviði jafnan við miklar vinsældir. í félagi
við aðra hefur Haraldur áður samið stór leikrit og minnast menn
í því sambandi Leynimels 13, sem þeir gerðu Emil Thoroddsen,
Indriði Waage og Haraldur. Þá hefur Haraldur skrifað bækurnar,
Bak við tjöldin, Holdið er veikt og Blátt blóð.
LEIKENDUR
I Með aðalhlutverkið, Tony, fer
hinn vinsæli gamanleikari Alfreð
Andrésson, Er þetta 40. hlutverk
Alfreðs hjá Leikfélaginu. Þorfinn
Oks, útgerðarmann leikur Stein-
dór Il.jörleifsson, en hann tók við
því hlutverki af Hauki Óskars-
I syni, sem varð að hætta æfingum
sökum veikinda, Unni Oks, konu
hans, leikur Kristjana Breiðfjörð,
! Þóru Jónsdóttur, þjónustustúlku á
heimili Oks hjónanna leikur Soffía
Karlsdóttir, Hermann Pétursson
einkabifreiðarstjóri er leikinn af
| Jóni Leós, Ragnar Ingólfsson,
I garðyrkjumaður, af Árna Tryggva
syni og Brandur Antonsson upp-
finningamaður af Brynjólfi Jó-
hannessyni.
LEIKSTJÓRN
Leikstjóri er Brynjólfur Jó-
hannesson, en hann hefur leikið
lengur og farið með fleiri hlutverk
hjá L. R. en nokkur annar starf-
andi leikari. Er þetta 6. stykkíð
sem hann stjórnar. Leiktjöld hef-
ur Magnús Pálsson gert.
STÆRSTA LEIKRIT
HARALDAR
Tony vaknar til lífsins, er
Svigkeppnin um
ISAFIRÐI 11. febr. — I gær fór
fram í svikbrautinni í Stórurð,
hin árlega svigkeppni um svig-
bikara Ármanns. Keppnin fór
fram í tveim flokkum. í eldri
flokki voru 4 sveitir og 18 kepp-
Framh. á bls. 12.
lúmlegalÖÍO manns á veg
m FerSafélags Ákureyrar
Haraldur A. Sigurðsson.
stærsta verk Haraldar Á. Sigurðs-
sonar, sem enn hefur verið fært
upp á leiksvið. Verður að svo
stöddu ekkert annað sagt um efni
leiksins en það, að hér er á ferð-
inni ósvikinn gamanleikur, sem
gerist í nágrenni Reykjavíkur á
okkar dögum.
Tony vaknar til lífsins, er 222.
viðfangsefni Leikfélagsins og á
vori kománda vei’ðúr ef allt gengur
að óskum þrjú þúsundasta leik-
sýningin í gömlu Iðnó.
Rannsókn á heimllisásfæðum
atviniBuEauss hragphúa
Grelnargerð írá yiirframfærstelulHrúa
AKUREYRI, 11. febr. — Ferða-
félag Akureyrar héit aðalfund
sinn sunnudaginn 10. febrúar. í
upphafi fundarins minntist for-
maður Kristjáns heitins Skag-
fjörð og hins mikla starfs hans í
þágu Ferðafélags ísiands. Fundar
menn risu úr sætum til heiðurs
minningu þessa mæta manns.
Samkvæmt skýrslu formanns
voru félagar í árslok 1951 503
talsins. Hafði þeim fækkað um 22.
Félagið gaf út blaðið Ferðir, en
það hefur komið út mánaðarlega.
Á SÍÐASTLIÐNU SUMRI
19 skemmtiferðir voru farnar
s.l. sumar. Þátttakendur voru
1010 alls. Sú nýbreytni hafði ver-
ið tekin upp að fara stuttar kvöld
ferðir um nágrenni Akureyrar,
og mæltust þær vel fyrir. Farnar
voru fjórar vinnuferðir í Vatna-
hjallaveginn og að sæluhúsi fé-
lagsins við Laugafell.
Félagið á nú skuldlausa bók-
færða eign kr. 48,340,77.
Rætt var um nærtækustu verk
eíni, komandi ferðalög og ef til
vill nokkuð breytta tilhögun á
þeim.
STJORNARKJOR
Þrír menn áttu að ganga úr
stjórn að þessu sinni. Björn Þórð-
arson, sem hefur verið formaður
félagsins síðan 1948, baðst undan
endurkosningu. Eyjólfur Árnason
og Björn Bessason voru endur-
kosnir og í stað Björns Þórðar-
sonar var kosinn Kristinn Jóns-
son og er hann nú formaður fé-
lagsins.
Stjórnina skipa því nú: Krist-
inn Jónsson, formaður, T3jörn
Bessason, varaform., Þorsteinn
Þorsteinsson, gjaldkeri, Eyjólfur
Árnason, ritari. Meðstjórnendur
eru: Edvard Sigurgeirsson, Jón
Sigurgeirsson og Aðalsteinn
Tryggvason.
I varastjórn eru: Ármann Dal-
mannsson, Þorsteinn Davíðsson
og Karl Magnússon. I ferðanefnd:
Þorsteinn Þorsteinsson, Kristófer
Vilhjálmsson, Þorsteinn Svan-
Framh. á bls. 12.
FYRIR noklcrum dögum hafði
„Þjóðviljinn11 það eftir ræðu-
manni á fundi atvinnuleysingja,
að á tilteknu heimili hér í Reykja
vík væri svo komið að húsbónd-
inn hefði orðið að selja spari-
fötin sín og væri nú „að reyna
að selja hráolíuofninn í braggan-
um, sem hann býr í“ til þess að
komast hjá að leita opinberrar
aðstoðara til þess að draga fram
lífið. „Það stór sér á börnun-
um“, sagði ræðumaður ennfrem-
ur, samkvæmt fiásögn „Þjóð-
viljans“.
Af tilefni þessara ummæla lét
yfirframfærslufulltrúi Reykja-
víkurbæjar rannsaka ástandið á
þessu heimili. Gaf hann síðan
borgarastjóra skýrslu um málið.
Lagði borgarstjóri hana fram á
fundi bæjarráðs í gær. Hefur
Mbl. fengið þessa greinargerð til
birtingar og fer hún hér á eftir:
„í gær, 7. febr., kom út í Þjóð-
viljanum ummæli sem höfð voru
eftir einum ræðumanni á fundi
atvinnuleysingja 5. þ. m., þar
sem lýst er því að ástandið vegna
atvinnuleysis sé orðið mjög al-
varlegt og að ræðumaður hafi
vitnað í ákveðið heimili, þar sem
„stór sér á börnunum.“
Út af ummælum þessum taldi
ég það skyldu framfærslufulltr.
að sannprófa ummæli þessi og
bæta úr án tafar ef þörf krefði.
Ritaði ég því ræðumanni bréf,
þar sem ég fór þess á leit að
hann gæfi méh upplýsingar um
viðkomandi heimilisföður. Ég
sendi með bréfið á heimili ræðu-
manns kl. 11 f. h., svo hann gæti
gefið mér upplýsingar strax eftir
matinn, hvað hann og gerði.
Þegar ég hafði fengið þessar
upplýsingar sneri ég mér til
barnaverndarnefndar og bað
framkvæmdastjóra nefndarinnar,
hr. Þorkel Kristjánsson, að fara
á staðinn og athuga heimilis-
ástæður og útlit barnanna, svo
hægt væri þegar í stað að koma
heimilinu til hjálpar ef með
þyrfti.
Hr. Þorkell Kristjánsson skýr-
ir mér svo frá í morgun, að hann
hafi farið, svo sem um var beðið,
ásamt hjúkrunarkonu barna-
verndarnefndara á umgetið heim
ili. Þar hafi maðurinn skýrt frá
því að hann væri atvinnulaus og
að hann hafi boðið olíuofn til
sölu, en ástæða fyrir því að hann
vildi selja ofninn taldi hann vera
þá að það væri sér hagfelldara
að selja olíuofninn og fá kolaofn
í staðinn, þar sem sér áskotnaðist
cft spítnarusl til að brenna. Taldi
hann sig vita að hann gæti leitað
til bæjarins um hjálp og hann
myndi gera það heldur en að láta
börnin svelta, en svo væri nú
ekki komið enn fyrir sér.
Þorkell tók það fram að þau
hefðu ekki séð þess nein merki
!að börnin hefðu liðið skort og
kvað hann sig og hjúkrunarkon-
una hafa farið af heimilinu í
fullu trausti þess að heimilisfað-
irinn myndi heldur biðja aðstoð-
ar en láta börnin líða.
| Um viðkomandi mann upplýsir
Ráðningarastofa Reykjavíkur, að
hann hafi fyrst látið skrá sig
!4/ll ’41, síðan ekki aftur fyrr en
10 árum síðar þ. 21/11 ’51 og
hafi ekki mætt til skráningar
| Framh. á bls. 12.