Morgunblaðið - 06.05.1952, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.05.1952, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 6. maí 1952. Ctg,: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3043. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinaaon. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austvustræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 20.00 á mánuði, lnnanianda. í lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með Lesbók. Drðsendiíig brezku stjórnarinuar BREZKA stjórnin hefur nú seht ríkisstjórn íslands orðsendingu vegna ráðstafana þeirra, sem hún hefur gert til verndar ís- lenzkum fiskimiðum. Kjarni þessarar orðsendingar er þessi: Brezku stjórninni finnst í fyrsta lagi, að íslenzk stjórnar- vöid heíðu. átt að semja við hana um þetta rr.ál, en grípa ekki til einhliða ráðstaíana. Hún telur í öðru lagi, að reglu- gerðin frá 19. marz, eins og hún var sett, sé ekki í samræmi við alþjóðalög, bæði að því er varð- ar grunniínur og 4 míina land- helgina. Er sérstaklega tekið fram í orð- sendingunni, að línan yfir Faxa- flóa hefði átt að dragast frá Garðskaga í Malarrif, eins og alþjóða hafrannsóknarráðið lagði til árið 1946. Þá er einnig bent á, að í Haag- dómnum sé engin afstaða tekin til víðáttu landhelginnar, enda hafi það atriði ekki verið borið undir dómstóiinn, þar sem Bretar hefðu viðurkennt að Noregur ætti rétt á 4 mílna landhelgi af sögulegum ástæðum. í þriðja lagi óskar brezka stjórnin þess eindregið í orðsend- ingu sinni að íslenzka stjórnin endurskoði reglugerðina frá 19. rnarz, bæði að því er varöar 4 mílna regluna og grunnlínuna yfir Faxaflóa. Þessi orðsending, sem felur i sér raunveruleg mótmæli"brezílú stjcrnarinnar, gegn ráðstöfunum íslendinga til verndar fiskimið- um sínum, er r.ú til athugunar hjá íslenzku stjórninni. í tilefni hennar, vill Morgun- blaðið á þessu stigi málsins, að- eins taka þetta fram: Um fyrsta atriði orðsend- ingarinnar er það að segja, að því hefur verið lýst margsinn- is yfir, af íslands hálfu, að íslenáiigar teiji sér heimilí að gera sjálfir aílar þær ráð- stafanir, sem nauðsyniegar eru til þess að ver.nda fiskimíðin umhverfis lanöið. Kemur það m. a. greiniiega fraia í land- grunnslögunum frá 1948. Bret- um hefur því lengi verið ljós sú afstaða íslendinga. Um grunnlínurner, sem ákveðti ar voru með reglugerðinni 19.' marz, er það að segja, að þær voru dregnar að mjög vel athug- uðu máli og í s'amráði við hina íærustu sérfræðinga, innlenda og erlenda. Að sjálfsögðu má oft um það deila hvernig eigi að draga grunn línur yfir flóa og firði. En varð- andi Faxaflóa ætti það að minnsta kosti að vera auðsætt, að Garðskagi getur engan veg-1 inn talizt eðhleg suðurtakmörk hans. Auk þess kemur greinilega fram í niðurstöðum Haagdóm- stólsins, að heimilt er að miða við eyjar, þegar grunnlínur eru dregnar. En það er það, sem ís- lendingar hafa gert, með því að miða við Eldeyjardrang. I orðsendingu brezku stjórn- arinnar er sagt, að Eldey sé 314 mílu frá meginlandinu og að við hana sé miðað. Þetta er ekki rétt. í fyrsta lagi er Eldey ekki nerna 714 mílu frá meginlandinu, og í öðru lagi er e-kki við hana miðað, heldur Eldeyjardrang. Að því er varðar 4 mílr.a land- helgina,. er það að vísu rétt að i ckki er beinlínis tekin afstaða til! þcss atriðis í Haagdómnum. En bæði er það, að íslendingar hafa aldrei viðurkennt, að samkvæmt þjóðarrétti mætti ekki ákveða rýmri landhelgi en þriggja mílna, enda þótt miðað hafi verið við þá fjarlægð í samningnum milli Dana og Breta frá 1901, og eins er hitt, að áður en sá samningur var gerður var lengi miðað við 4 mílna landhelgi við ísland. Þar áður hafði landhelgi íslands ver- ið enn rýmri. Málstaður íslands í þessu máli er góður og öruggur. — Verður því að vænta þess, að Bretar líti með skilningi á þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til verndar íslenzk- um fiskimiðum. Þær eru fyrst og fremst, eins og Ólafur Thors atvirnumáiaráðherra orðaði það í ræðu sinni hinn 19. marz s.l., sjálfsvörn smá- þjóðar, byggð á lögum og rétti. íslenzka þjóðin stendur ein- lruga í þessu máli og treystir því, að stjórnarvöld hennar haldi þar fast á rétti hennar og kviki í engu frá þeim lífs- nauðsyrJegu ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið. DAGLEGT líf óbreyttra borgara í Suður Kóreu er nú smám saman að færast í eðlilegt horf. Verk- smiðjur rísa úr rústum, ný hús eru byggð og lestir og strætis- vagnar hefja ferðir á ný. Til landsins eru væntanleggr 170.000 lestir af korni og hrís- grjónum fyrir júlí í ór og útvega S.Þ. þessi matvæli. Frá því í fyrra sumar hafa verið fluttar 30.000 lestir af korni til landsins á hverj um mánuði, en fyrir stríðið var Kórea kornhlaða Japans, en get- ur nú ekki einu sinni séð fyrir eigin þörfum. Nýlega kom skip til Kóreu með útsæðiskartöflur og hafa þær þegar verið settar niður. Bændur Suður-Kóreu bú- ast við góðri kartöfiu-uppskeru í haust. Innan skamms byrja hjólín að snúast ó ný í stærstu veinaðar- vöruverksmiðiu Kóreu. Chonnsm spunastofunni, sem jöfnuð var við jörðu árið 1950. Fyrst um sinn mun verksmiðjan geta sent 65.000 pund af baðmullarefnum á mark- aðinn á hverjum mánuði. MET-FRAMLEIÐSLA I I Seoul eru fyrstu sporvagnsi'n- I ir byrjaðir akstur á ný, en allt sporvagnakerfið var gjöreyðilagt. I I ið isf in tll sfS2:aa Varnarsamninpr- inn eins árs -í GÆR var eitt ár liðið^rá því, að undirritaður var samningur milli íslands og Bandaríkjanna um hervarnir landsins. Ástæða þess var fyrst og fremst það ör- yggisleysi, sem ríkti í heiminúm af völdum uppivöðslustefnu kommúnista. j Hér í Norðurálfu voru að vísu ekki blóðugir bardagar. En i öðrum heimshluta höfðu Sam- einuðu þjóðirnar orðið að grípn til vopna vegna tilefnislausrar árásar kommúnista á friðsama smáþjóð. Það var þá augljóst orðið, að eina leiðin til þess að koma í veg fvrir svipaðar of- beldisaðíerðir á öðrum stöðum, voru öflugar og samræmdar varnaraðgerðir iýðræðisþjóð- anna. Tilgangurinn með stofnun At- kntshaísbandalagsins var fyrst og fremst sá að skapa þátttöku- þjóðum þess aukið öryggi og forða heiminum frá hörmungum nýrrar heimsstyrjaldar. — Lega Islands í varnarkerfi hinna vest- rænu lýðræðisþjóða hlaut að krefjast þess, að hér yrðu gerðar raunhæíar ráðstaíanir til vernd- ar land.inu. Ella hefði það orðið hin veiki hlekkur í varnarkerfi þessara þjóða. Af því hefði einnig leitt hið mesta öryggisleysi fyrir íslenzku þjóðina. Ríkisstjórn íslands hikaði því ekki við að gera óumflýjanlegar varnarraðstaíanir. Óhætt er að fullyrða, að hinar sameiginlegu varnarað- gerðir Iýðræðisþjóðanna við Atlartshaf hafi dregið veru- lega úr síyrjaldarhættunni í þessum hluía heimsins. Þessar þjóðir munu því haida áfram að byggja upp varnir sínar í þágii heimsfriðarins, og sír.s eigin öryggis. íslenzka þjóðin getur vissu- lega íagnað því, að hún bar gæfu til þess á sínum tíma, að gerast aðili þessa varnar- bardalags, þrátt fyrir tryllta andstöðu erindreka hins er- Ienda ofbeldis. Verksmiðja nokkur, ssm endur- reist var í sundurskotnu þorpi skammt sunnan .höfuðborgarinn- j ar, hefur framleitt 5,5 lestir sf loftleiðslum og hásper.nulínum á l met-tima. Fjórða rafmagnsveitan er nú að verða fullgerð í Seoul, en verk- fræðingar S. Þ. stjórnuðu yerk- inu, sem hófst í fyrra. Jafns'kjótt og nægilegt rafmagn fæst frá henni, verður bundin endir á vatnsskort í höfuðborginni. Sérstakar ráðstafanir hafa ver- ið aerðar til þess að forða bví, að það sem byggt er upp, verði auð- veldlega eyðilagt á ný. Má í því sambandi gota þess, að þrjár verk smiðjur í Seoul hafa nýlega ferig ið stórar pantar.ir á slökkvitækj- um. Á næstunni mun 51 r.tór slökkvistcð og hundruð minni stcðva fá nýjar brunaslöneur, dæl ur og ýmsan útbúnað xyrir slökkviliðsmenn. Þetta er aðeir.s byr.iunin. Sam- tímis því eð einstaka fram- kvæmdir eru hafnar er gerð ein heildar-áætlun um endurreisn Suður-Kórcu eftir stríðið. 309.000 BÖItN í KÓFEU VERNDUT) GEGN BERKLA- HÆTTUNNI. HANSKUR I ÆNTR ST.TÓRNAR BARÁTTUNNI Nýleéa er hafin mikil barátta gegn berklaveiki í .Kóreu og verða um 300.000 börn berkia- prófuð or; ef til vill bólusett .rresn þ"«sari skæðu veiki. Þessu verki stiórnar dar.ski læknirinn Dr. E’ise Truelsen. Þegar hefur verið lokið berkla- prófun og bólusetningu í borg- inni Seoul, en á sex vjkum vor.u skoðuð þsr rúmleca 40 þúsund börn á aldrinum 1 til 14 árn. Af þeim voru 19.356 bólusett. Búizt er við að þessu starfi vetði lokið um rniðian júlímánuð. Um þ°ss- ar mundir stendur yfir berkla- skoðun í Pusan, en þar verða um 100 þúsund börn skoðtið Heil- brigðismálaráðuneytið í Suður- Kóreu hefur fengið fiö'da læk^a og hiúkrunarkvenna til aðstoðar. en berklaskoðunin or skipulörð af UNCACK, hjálparstoínun S Þ. í Kóreu. ÞEGAR KLUKKAN ER ELLEFU í PANMUNJOM Hvernig er fyrirkomulag vopna hlésfundanna í Parmuniom? Við skulum athuga ytri aðstæð- ur, sem mynda rammann um við- ræðufundina í Panmunjom; Ðag hvern, laust fyrir klukkan 11 síga helikoptervélar herstjórnar S.Þ. hægt niður úr loftinu og setj ast skammt frá fundarstaðnum. Liðsforingjarnir stíga út og ganga hröðum skrefum til tjaldbúða sinna. Samtímis sézt bílaröð nálgast í reykskýi. Bílarnir koma að norð- an og flytja samningamenn Kín- verja og Norður-Kóreumanna, sem einnig flýta sér til tjaida sinna. Yfir hir.u hlutlausa svæði í Panmunjom svífa stórir ’oft- belgir, sem afmarka íundarstað- jinn og eiga að tryggja friðhelgi ! hans. Hinir daglegu fundir eru haldn ir í tialdbúðum Kínverja og Norð ur-Kóreumanna. Meðan viðræð- urnar standa yfir í íjöldunum reyna starfsmenn og fvlgdariið beggja aðila að drepa tímann á sem beztan hátt. Þar mætast varð menn, flugmenn, bifreiðastjérar og blaðamenn. Alloft sjást blaða- mer.n á taii sem stárfsbræður, enda þótt þeir starfi sitt hvoru megir. vígstöðvanna, og oft hef- ur komið fyrir, að skipzt heíur verið á fréttum í Panmunjom. Hinar opinberu viðræður geta staðið yfir í nokkrar mínútur eða fleiri klukkustundir. Þegar þeim er Iokið endurtakast atburð irnir frá .morgninum, nema bara í öíugri röð. Helikoptervélarnar hefja sig til ílugs og halda suður á bóginn. Bifreiðalest kommúa- ista beygir norður á bóginn og hverfur cftir veginum til Xae- song. Síðan er aftur kyrrt og stillt á hinu hlutlausa svæði. Einmitt um bessar mundir er vorið .xýkomið ti! Panmunjom. (Frá S.Þ.) iir PATREKSFIRÐI, 3. maí: — F.jöidi trillubáta er nú tilbúinn nð hefja róðra og hugsa til góðs vor- afla vegna útvíkkunar landhelgis- línunnar þann 15. maí nk., en fisk- ur virðist vera að ganga.á g-runn- miö þessa dagana. Næg atvir.na er nú hér í kauptúninu og á morg- un, sunnudag, verður unnið all- an daginn í hraðfrystihúsunnm til að fiskurinn skemmist ckki. — Gunnar. Velvakandi skrifar: ÚB DAGKEGH Átökin tnilli Austur- bæjar og Vesturbæjar. VOR hefur verið óvenjulega róstusámt rnilii unglingá úr Austur- og Vesturbænum. Hefur jafnvel dregið til átaka, sem hafa leitt, af sér alvarleg meiðsl og óspektir. Kunnur íþróttaleiðtogi kom fyrir skcmmu að máli við Vei- vakanda um þessi mál og komst þá m. a. að orð á þessa leið „S.l. vetur var óvenjulega snjó- þungur hér í Reykjavík. Un?ling- arnir í bænum hafa því orðið að halda sig meira inni við en tíðk- ast hefur undanfarin ár. Vegna hinnar hörðu veðráttu hafa úti- íþróttir einnig verið iðkaðar minna en venjulega gerist. Grka strákanna þarf að fá utrás. Eg held að róstur og uppvaðsla unglir.ganria í vor spretti að meira eða minna leyti af því, að orka þeirra hefur ekki fengið ,út- rás undanfarna vetrarmánuði með venjulegum hætti. f slags- málunum og væringunum rnilli stráka úr hinum ýmsu bæjarhlut- um hefur þessi bælda orka brot- ist ut. Ég held ekki að bað burfi að vera vottur um neinskonar spillingu og þaðan af síður g’æpa hr.eigð þó sumir hafi viljsð Itenna kvikmyndum um þennan óróa I strákunum. Fær útrás í íþróttunum. /JIN skoðun er sú, að ráðið til þess að iægja þessar öldur sé einfaldl. það, að gefa unglingun- um tækifæri til þess að fá orku sinni útrás í iðkun ýmiskonav íþrótta, knattspyrnu og frjóls- iþrótta. Það er staðreynd að ungl ingar á vissu. þroskaskciði verða alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni sem reynir á krafta þeirra og fullnægir athafnaþrá þeirva. íþróttirnar eru þeim ómetanlegt upneldisatriði. Ég álít þessvegr.a, að iangsann- iega áhriíamesta ieiðin til þess sð skipuleggja tómstundir æskur.n- ar réttilega sé sú, að veita henni sem bezl og fjölbreyttust skilyrði til íþróttaiðkana, ekki sízt á vetr- um þegar útivera er eríiðleikum bundin vegna veðurfars." Þetta er skoðun hir.s kunna íþrótlamanns á þessu máli. Alit bendir til þess að hún hafi við gild rök að styðjast. Góð útvarpskvöldvaka. YFELLIN GAK V ÖLD V AKAN í útvarpinu s.i. föstudag var góð og býsna fjölbreytt nð efni. Mætti útvarpið gjarnan gera meira að því en tíðkast hefur að fá efni í kvöldvökur sínar utan af iandi. Það myndi skapa aukna fjölbreytni í dagskrá þess og skapa nánari tengsl milli bess og fólksins út um byggðirnar. Með vaxandi tækni verður nuð veldara að taka upp útvarpsefni út um land. Ætti Ríldsútvarpið að leggja kapp á ?ð færa út kví- arnar á bessu sviði. Eiíi sítróna irostar 5 krónur. MÉR er svo að lokum stutt bT'éf xrá manni, sem borðaði há- degjsverð á Hótel Borg í gær: ,,Ég keypti mér m. a. eina press aða sítrónu í köldu vatni á Hótel Borg um hádegið í rær, lívað haldið þið að hún hafi kostað? Iivorki meira né minna en 5 krón ur. Hugsið ykkur, 5 krónur ein einasta sítróna, Hverskonar okur er þetta eiginlesa? Ég veit ekki þetur en að kíióið kosli nú í út- sölu í búðum rétt rúmar 9 kr. T hveriu kíiói eru 8—9 sítrónur. I búð kostar stykkið þannig rúm lega eina krónu. En á Hótel Borg kostar sítrónan 5 krónur!!! Mér finr.st þetta svo fráleit verðlagning, að ég fæ ekki orða bundist." Ég er sammála þessum bréf- ritara. Um þetta er ekki hægt að hafa nema eitt orð: Okur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.