Morgunblaðið - 25.05.1952, Síða 12
ri2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 25. maí 1952.
— Reykjavlkurbréf
Framh. af bls. 9
framkvæmdastjóri Ræktunarfé-
lags Norðurlands hefur sknfað
eftirtektarverða grein í ársrit fé-
lagsins um byggingar í sveitum.
Bendir hann á, hve byggingar-
kostnaðurinn er orðinn óbærilega
hár, þar sem það kostar kr.
250.000 að húsa meðal stórt býli
með þeim byggingarvenjum, sem
nú tíðkast, þ. e. a. s. að byggja
grunnmúruð „eilífðarhús" úr
stéinsteypu.
Höfundur bendir á, hve þetta
getur beinlínis reynzt misráðið að
leggja í svö óhóflégan kostnað
við byggingar fyrir menn og
skepnur, áður en menn hafa get-
að gert sér gréin fyrir því, hvern-
ig óskir manna verða um hent-
ugastar byggingar, er fram líða
stundir.
Hann lítur svo á, að það
sé beinlínis ósanngjarnt að
ætlast til þess að sú kynslóð,
er nú er uppi í landinu geti
kostað varanlegar byggingar,
er staðið geta í márgar aldir,
og leggur til að menn hugleiði
rækilega, hvort ekki sé hægt
að láta sér r.ægia einhvers
konar bráðabirgða byggingar,
t. d. úr torfi og grjóti, er of-
bjóða ekki gjaldþoli almenn-
ings.
Ræktunin sitji fyrir
AÐ SJÁLFSÖGÐU þurfum við
að rannsaka það mál til hlítar
hvernig hægt er að hágnýta torf-
ið okkar svo úr því geti fengizt
hentug og hlý hús. En fyrir at-
hugunarleysi og fljótfærni hefur
þjóðin yfirgefið hina fornu bygg-
ingarhætti sína og einblínt á
sementssteypuna.
Á meðan ræktun sveitanna er
ekki lengra á veg komin en raun
er á, er það að áliti Ólafs, að
byrjað er á öfugum enda í fram-
kvæmdum, að leggja í ofurkostn-
að við byggingar eins og nú tíðk-
ast. Affarásælla verði að láta sér
nægja bráðabirgðahús, á meðan
bændur hafa ekki komið ræktun-
armálum sínum þannig fyrir, að
afrakstur jarðanna er orðinn
margfaldur á við það, sem hann
er nú.
Ólafur spáir því, að svo geti
farið, er stundir líða, að bænd-
ur, sem erfa þau steinsteypu-
hús, sem nú eru byggð í sveit-
um og reynast þeim óhentug
á ýmsa lund, hugsa til for-
feðranna, sem nú eru uppi,
með litlu þakklæti fyrir hin
óhentugu hús, og furða sig á
því, að núlifandi kynslóð skuli
ekki hafa byggt bráðabirgða-
byggingar meðan verið var að
margfalda ræktunina og koma
upp hæfilega stórum skógar-
teig fyrir hvert býli.
Nýir þjóðhættir
og gamlir
ÞRÍR íslendingar sátu á alþjóða-
ráðstefnu í Noregi fyrir nokkru,
þar sem rætt var um geðvernd
og uppeldismál. Var ráðstefna
þessi haldin á vegum Menningar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO). Þeir voru þar dr.
Helgi Tómasson yfirlæknir, próf.
Símon Jóh. Ágústsson og Broddi
Jóhannesson kennari.
Er þeir komu heim ræddu þeir
við blaðamenn um það helzta,
sem fram fór á ráðstefnunni, og
þeir töldu markverðast fyrir
okkur íslendinga.
Það kom í ljós á ráðstefnu
þessari að mikil umbrót eru í
þessum málum meðal vestrænna
þjóða. Hafa fróðustu og reynd-
ustu menn komizt að þeirri nið-
urstöðu á allra síðustu árum, að
vestrænar menningarþjóð.ir háfi
mjög villzt af réttri leið'í ýms-
um efnum um tilhögun jfþþeldis-
mála sinna.
Stefnan hefur alltöf mikið
hneigzt í þá átt að fylgja óper-
sónulegum reglum og venjum,
treysta þvý að sömu lífsvenjur
henti hinum ólíkustu einstakling-
um. Uppeldið er meira og meira
látið verða „vélrænt“ í þess,
að það á að vera sálrænt; þar
sem aðlöðun við hæfi hvers ein-
staklings nýtur sín.
| Þetta er látið gilda um ein-
stakíinga þjóðfélaganna á öllú
æviskeiðinu frá vöggu til grafar,
börnin látin alast upp á barna-
heímilum éftir nákvæmum sett-
úm reglum, en einstaklingseðli
og einkennum ekki skeytt frekar
en um væri að ræða útungunar-
jvél á hænsnabúi.
Og þar sem nýtízku þjóðfélög
eru sæmilega efnum búin, enda
toenn ævi sína á elliheímilum,
þar sem aldurhhigna fólkið er
slitið frá umgenghi við hina upp-
vaxandi kynslóð í lahdinu, og
ungu kynslóðinrii með því gert
langtum erfiðara fyrir, að halda
í heiðri hvers konar erfðávenjur
er hafa verið til stuðnings menn-
dngu þjóðanna.
Að sjálfsögðu munu skólamenn
og uppeldisfræðingar okkar
leggja áherzlu á, að kynna sér
rækilega þessar nýju niðurstöður
og kenningar, er áreiðanlega
fnunu verða til þess að varpa
-nýju ljósi yfir þróun uppeldis-
málanna hér á landi síðustu ára-
tugina og sýna hvað betur má
fara í skipulagi skóla- og upp-
eldismála.
Það leynir sér ekki að eitt-
hvað er bogið við uppeldis- og
skólamál okkar, þegar þrauta-
lendingin er oft og einatt að
senda þau börn úr kaupstöðum,
sem mestrar leiðbeiningar þurfa
Við og handleiðslu, frá öllum
skólum'og umsjá uppeldisfræð-
inga til sveitadvalar.
. En hinar nýju kenningar í upp-
bldismálum styðja þá skoðun, að
hið frjálsa líf í sveitum feli í
sér hollustu í uppeldisháttum,
sem getur jafnazt á við vist í
beztu skólum.
Óeirðir í Jóhann-
esborg
i JOHANNESBORG 24. máí — í
j dag var verkalýðsleiðtoginn Solly
j Sachs handtekinn er hann var að
| talá á opinberum fundi, sem efnt
var til vegna þess að dónismála-
j náðherra landsins hafði fyrirskip
að handtöku hans, sem byggð var
á andkommúnisku lögunum.
Til allmikilla óspckta kom er
' lögreglan handtók Sachs. Að
1 minnsta kosti 4 konur og tveir
kárlmenn voru flutt í sjúkrahús.
Formaður verkalýðssambandsins
er Sgchs var félagi í, hefur boðað
verkfall n.k. mánudag í mótmæla
skyni við aðgerðir stjórnarinnar.
— Reuter.
Leðurblakan sýnd
við góðar
undirtekfir
TRIPOLIBlÓ hefur undanfarið haft
nokkrar sýningar á kvikmyndinni
sem gerð hefur verið eftir hinum
vinsæla sönkleik: Leðurblakan. —
Að9Ókn' að myndinni hefur verið
tnjög' góð, enda er þetta vel gerð
ímynd og söngur og hljómlist fögur.
- Skólagarðar
Framh. af bls. 8
görðunum, en ég tel fulla ástæðu
til að ætla að hún verði engu
minni en í fyrra og jafnvel meiri
en þá, sagði Malmquist. Tíðar-
far er nú hagstætt til sáningar og
annarra vorverka í görðum. Gott
útsæði er til, en tilfinnanlegur
skortur er á áburði. Yfirkennari
Skólagarðanna verður Sem fyrr
Ingimundur Ólafsson garðyrkju-
maður og kennari.
Eins og í upphafi segir, fer
innritun í Skólagarðana fram
í skála garðanna við Lönguhlíð
á miðvikudaginn kemur. Er
því nauósynlegt að aðstandend-
ur barha, sem hug hafa ’ á
starfinu þar, sendi börnin
þangað á miðvikudaginn kem-
Togarar bæjarúf-
gerðar Reykjavíkur
HINN 20. maí landaði bv. Jón
Þorláksson afla sínum í Reykjá-
vík. Voru það 145 tonn af ísíiski,
sem fór í frystihús og herzlu, og
tæp 5 ton af lýsi. Skipið fór altur
á veiðar 21. maí.
Bæjarútgerðin hafði í vikunni
70 manns í saltfiski, pökkun, út-
skipun, uinstöflun og þurrkun, og
50 manns unnu við fiskherzluna
dáginn serh landað var.
Framh. a/ bls. 7
innvigtuðu fiskimagni, því surn-
ir vigta upp úr sjó en aðrir haus-
að og slægt, einnig hafa bátar
misjafnt fiskimagn, vegna mis-
jafnlega mikils afla af keilu og
öðrum svokölluðum ruslfiski. Að
jafnaði er talið að um 90 lítrar
af lifur séu í tonninu af þorski,
en þó getur þetta verið misjafnt,
eftir því á hvaða tíma hver bát-
ur aflar mest. Að öllu saman-
lögðu verður lifrarmagnið rétt-
asti mælikvarðinn á línufiskinn,
en aftur á móti er miklu meiri
lifur í netafiski, svo sem sjá má
af þessari skýrslu, þar sem
Reykjaröst hefur yfir 54 þúsund
lítra úr 1000 skippundum en
Björgvin 52 þúsund lítra úr 1300
skippundum).
LIFRARSKÝRSLA Lítrar
Björgvin .............. 52018
Jón Guðmundsson ....... 49048
Heimir ................ 45558
Ólafur Magnússon ...... 45489
Guðfinnur ............. 43569
' Vísir ............... 42743
Andvari ............... 41884
Nonni ................. 41775
Vonin II............... 41526
Hilmir .............. 40071
Guðmundur Þórðarson .. 38112
Gylfi frá Rauðuvík .... 36433
Svanur ................ 34916
Skíðblaðnir ........... 34148
Geir Goði ............. 31704
Bjarni Ólafsson ....... 30776
Smári ................. 28198
Björn ................. 25466
Sæfari ................ 23954
Nanna .................. 4975
Togbátar:
Jón Finnsson ......... 11025
Guðný .................. 6891
Netabátar:
Reykjaröst ............ 54948
ArinbjÖrn ............. 52850
Vöggur ................ 40599
Minnie ................ 37003
Gylfi ................. 26767
Auður ................. 24846
Sæmundur .............. 23099
Ársæll Sigurðsson ..... 18366
Þetta er lifrarmagn innlagt til
Bræðslufélags Keflavíkur. Töl-
urnar munu vera réttar en þó
birtar hér án ábyrgðar.
Róðrafjöldi hjá bátum er
nokkuð misjafn og veldur því
ýmislegt, bæði vélbilanir og önn-
ur óhöpp.
Kerlingamar ráku
rættingjana á
NYKÖBING: — Hcrna eina nútt-
ina voru tvær 79 ára gamlar konur
á leið heim til sín. Þær voru að
koma af góðgerðarsamkomu í Ny-
köbing. Vita þær þá ekki fýrr en
tveir ræningjar ráðast að þeim og
reyna að syipta af þeim töskunum.
Gömlu konurnar vörðust vasklega,
sem sjií mó af þvi, að fantarnir
lögðu ó flótta og urðu skömmu
seinna handteknir. önnur gamla
konan hrataði í áflogunum og hand-
leggslbrotnaði.
Veigameirl en
I!!
kjarnorku-
sprengjunnar
DALLAS: — Áætlun, sem er engu
veigaminni en sú um kjarnorku-
sprengjuna, liggur um þesar mundir
fyrir til úrlausnar i Columbia-há-
skólanum. Rektorihn hefur annars
ekki viljað greina nánar frá þessari
óætlun, sem er gerð fyrir banda-
ríska flotann.
Undihbúningurinn að smiði kjarn
örkusprengjunnar var gerður i
Columibia-hláskólanum fyrir hér um
bil áratug.
ðreiddi 1000 mörk
fyrir sjö línur
MUNCHEN: — Á uppboði, sem
haldið var í Miinchen seldist kvæði,
sem Goethe hafði rítað eigin hendi,
fyrir 1000 mörk. Kvæðið er ekki
nema 7 vísuorð, en sniilingurinn
örti það í Karlsbad 1819.
Aftur á m'óti fékkst enginn kaup-
andi að 41 blaðsiðu handriti eftir
Hindenburg, fyrrum rikisforseta. —
Hafði forsetinn þar skráð endurminn
ingar sinar.
Renna enn vonar-
r
.3
PORTLAND, Oregon: — Fyrir
skömmu komu forvígismenn demó-
krata saman í Síkagó til að undir-
búa flokksþingið í júl'í i sum.ar. Voru
þeir þeirrar skoðunar, að Stevenson,
landstjóri í Illinois mundi þegar til
kæmi gefa köst á sér við forsetakosn-
íngarnar, —
stjórn
TEL AVIV, 24. maí. — ASstooar-
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna varðandi mál miðaustur-
landa kom í dag til ísrael. Ræðir
hann þar við forsætisráðherra
landsins, David Ben Gurion. Auk
þess ræðir ráðherrann við fjár-
málaráðherra landsins.
— Reuter. i
myndhöggyara 1
ÖSLO, 24. maí. — í gær stofn-
uðu norrænir myndhoggvarar
með sér samband, sem hafa á
aðálbækistöðvar síriar í Málrney.
Sænski myndhöögvarinn Towe
IPersson var kjörinn formaður
sambandsins. — NTB
Framh. af bls. 5
ekki sízt, þegar það er haft í huga,
að undan farin sumur hefur meg-
inhluti síldarinnar veiðst hér við
norðaustur horn landsins. Það
var því bæði æskilegt og heppilegt,
að jafn traust og vel þekkt fyrir-
tæki sem AJliance h.f., skyldi hafa
áhuga fyrir byggingu verksmiðju
cg vonandi skipast svo málum
á næstunni, að hægt verði að hefja
framkvæmdir þessu aolútandi.
HAFNARBÆTUR ERU
HÖFUÐMÁL FRAM-
TÍÐARINNAR
En það, sem mestu máli skiptir
fyrir Þórshöfn í framtíðinni, eru
aukin og bætt hafnarmannvirki.
Síðastliðið sumar vann dýpkunar-
skipið Grettir að greftri á hraun-
garði eða rifi, sem liggur fram-
anvert við hafnarbryggjuna. —•
Verkið sóttist hægt, en miðaði þó
örugglega í rétta átt, en þegar
hæst stóð biluðu áhöld skipsins,
svo að hætta varð í bili.
í sumar komandi mun Grettir
koma á ný og taka þar til, sem
frá var horfið í fyrra. Að því
verki loknu hefur vitamálastjórn-
in gefið vilyrði fyrir því, að skipið
verði látið gera tih'aun til upp-
moksturs innar í sjálfri höfninni
og gæfi sú tilraun jákvæðan ár-
angur, mundi skapast nýtt og
betra viðhorf til frekari fram-
kvæmda við höfnina. Þessar fram
kvæmdir eru knýjandi nauðsyn
fyrir íbúa og nágrenni þessa
þorps, sern áð verulegu leyti bygg-
ir afkomu sína á sjósókn. Hér
er starfandi stórt og myndarlegt
hraðfrystihús, sem Kaupfélag
Langnesinga á, en það skortir
verkefni að vinna úr, meðal ann-
ars fyrir þá sök, hversu léleg
hafnarskilyrðin cru nú.
Það er að rnörgu leyti ekki
siður lífvænlegt hér á Langanesi,
við hin „yztu höf“, en víða annars
staðar, þar sem meira hefur verið
fyrir fólkið gert af hálfu opin-
bérra aðila. — Það koma að vísu
erfið ár, en þau herða og stæla
fólkið til frekari dáða, meiri mann
dóms og aukinna athafna.
Markús:
£
Eftir Ed Dodái
3 5ACR£ BLEUf YOU BEEG1
á._,, oem/ ,—
1) Það er einhver inn í hús
inu.
2) Svarti óþokkinn þinn.
3) Jonni Malotti skal sýna þér, í húsið hans
hvernig fer, þegar þú brýzt innl