Morgunblaðið - 31.07.1952, Qupperneq 1
j 39. árgangur,
171'. tbl. — Fimmtudagur 31. júlí 1952
Preutsmiðja Margunblaðsins.
Van Fieel:
drai minni Iriðarvon
órsu mí eiumitt nú
138viHri á vígsftöðvuiimnt,
glyndroði í Biði kommúnisfo
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-I\TB
TÓKÍÓ 30. júlí — Bæði kínverskir kommúnistar og yfirmaður
8. hers Bandaríkjanna í Kóreu hafa gert heyrin kunnugt í
dag, að friðarhoríur í Kóreustríðinu haíi stórum daprast að
undamörnu.
V&n Fleet hershöfðingi, sem stjórnar 8. hernum,
‘ sagði þau uggvænlegu tíðindi á fréttamannafundi í
Seúl í dag, að framvinda mála hefði verið með þeim
hætti þar eystra undanfarið, að friðarhorfur hefðu
aldrei verið vonlausari en einmitt nú.
í Pekingútvarpinu var kveðið
svo að orði í dag, að sjónarmiö
samningamanna Sampinuðu þjóð
anna í Panmunjom hlytu óhjá-
kvæmilega að eyða allri von um
að vopnahlé tækist.
GETA HRUNDIÐ
HVERRÍ ÁRÁS
Van Fleet gaf yfirlit um
herstyrk og aðstöðu óvina-
; herjanna og sagði m. a. að
herir S.Þ. væru nú svo öflugir
í Kóreu, að þeir gætu hrund-
ið hvers konar árás á allri víg-
línunni. Hann upplýsti einnig,
að kommúnistar hefðu dreift
liði sínu nokkuð á vígstöðvun-
um til að reyna að forðast
áframhald þeirra þimgu bú-’
sifja, sem S. Þ. hafa valdið
þeim með þrotlausri ásókn síð
ustu daga.
GLUNÐROÐÍ
Þá sagði Van Fleet, að vart
hefði orðið grundroða í liði komm \
únista vegna stórfelldra sam-
göngutruflana af völdum illviðra,
vatnselgs og hinna kerfisbundnu
árása sprengjuflugna S. Þ. á sam- ,
.göngumiðstöðvar í Norður-Kóeru.
Hann kvað her sinn hafa búið sig
vel undir regntímann, en komm-
únistar mundu hins vegar ekki
hafa getað gert slíkt hið sama.1
Á vígstöðvunum hafa síðustu 6
;daga geisað stórrigningar og
stormur. Flugveður var ekki í!
.dag. i
Aukin vöid
et
HEIDELBERG, 30. júlí. — Opin-
berlega hefur verið tilkynnt, að
Matthew B. Ridgway hafi verið
skipaður yfirmaður alls herafla
Bandaríkjanna í Evrópu frá og
með 1. ágúst n.k. að telja. Þessi
skipun mun ekki hafa í för með
sér neinar breytingar á yfirstjórn
herja Atlantshafsbandalagsins,
þar sem núverandi yfirmaður
Bandaríkjahers í Evrópu, Thom-
as T. Handy, verður staðgengill
Ridgways í Frankfurt með víð-
tæku umboði. — Aðalstöðvar
Ridgways verða eftir sem áður í
Parísarborg. — NTB.
Einn vaidamesti maður egypzka
hersins fyrir byltinguna var
Hussein Farid, herráðsforingi. —
Sýnt er nú að hann kernbir ekki
hærurnar í þeirri tignarstöðu, eft
ir að Naguib marskálkur hefur
láíið hneppa hann í fangelsi, en
spilling í æðstu stjórn hersins
var að sögn hans eitt megintil-
efni bylíingarinnar. Farid hefur
áður verið yfirforingi lífvarðar
Farúks kóngs.
EGYPTALANO:
Hreinsun í Wafd fiokknum
„Svört bók" verður gef in út um
valdaferil Farúks konungs
Einkankeyti til \íbl. frá Reuler-ISTIt
KAÍRÓ 30. júlí: — Ekki virðast öll kurl enn vera komin til grafar
í F.gyptalandi eftir byltinguna um síðustu helgi. Alí Maher for-
sætisráðherra mælti svo fyrir í dag, að ákveðnir rrienn mættu ekki
fara yfir landamærin án sérstaks leyfis stjórnarvalda og hreinsun
fer nú fram í Wafdistaflokknum. Telja menn að með henni eigi að
gera flokkinn samstarfshæfari við hina nýju valdhafa, ef vera
mætti að flokknum sem er allsráðandi á þingi yrði síðan falin
stjórnarforysta.
Það er af Farúk að segja, að hann dvelzt enn á eynni Kaprí
með fjölskyldu sinni og hefur gert brezkan fréttamann að
blaðafulltrúa sínum. Er allt í óvissu enn um framtíðar-
áform hans, en blaðafulltrúinn tilkynnti í dag að kóngur
mundi gefa opinbera yfirlýsingu á morgun, fimmtudag. Á
hinum vikulega blaðamannafundi í Washington í dag sagði
Acheson að enn hefði ekki borizt umsókn um landvistarley.fi
fyrir konungsfjölskylduna.
RIKISRAÐIÐ
Meðal stjórnmálamanna ríkir
nokkur eftirvænting um skipun
ríkisráðsins, sem fara á með völd
þangað til Fúad litli tekur við
ríki. Er álitið að Farúk hafi bréf-
Ncrsklr skákmenn valdir
á
OSLÓ, 30. júlí — Skáksamband
Noregs hefir valið eftirtalda
menn til þess að keppa fyrir hönd
Norðmanna á Ólympíumótinu í
skók, sem hefst í Helsingfors 9.
ágúst: Ernst Rojahn, Erik Mad-
sen, Erling Myhre, Áge Vestöl,
Otto B. Morcken og W. Ramm.
28 þjóðir hafa tilkynnt þátt-
töku sína í móti þessu.
ChurchlSI um landvarnamá! í neðri deild’mni
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LUNDÚNUM/ 30. júlí. — Umræður héldu áfram í neðri deild brezka
þingsins í dag um efnahags- og landvarnamál og var Churchill,
forsætisráðherra, málshefjandi. Kvað hann nauðsynlegt að breyta
landvarnaáætluninni til samræmis við efnahagsafkomu þjóðarinnar.
Við verðum að þreyta henni þannig að hún krefjist ekki stöðugt
þyngri fjárfórna og aukinna hráefna, sagði hann. Kostnaður við
vígbúnaðaráætlun Varkamannastjórnarinnar hefði farið langt fram
úr þeim 14,7 milljörðum punda sem upphaflega var ráð fyrir gert,
ef íhaldsstjórnin hefði ekki dregið úr vígbúnaðarhraðanum og fært
tímatakmarkið fram. — Meðan Churchill flutti ræðu sína gerðist
þingmönnum Vcikamannaflokksins órótt og höfðu þeir í frammi
hróp og köll.
lega lýst vilja sínum í þessu efni
og mælzt til þess að ráðið yrði
skipað tveim ættingum sínum
undir forsæti Aiís Mahers, for-
sætisráðherra. Hins vegar mun
Naguib, marskálkur vera því
öndverður að nokkur úr konungs
ættinni hafi afskipti af æðstu
stjórn landsins.
NAGUIB VILL VINSAMLEGA
LAUSN SÚDAN-MÁLSINS
í blaðaviðtaii í dag fór Naguib,
marskálkur, nokkrum orðum um
Súdan-málið og ítrekaði þau
fyrri ummæli sín, að Egyptaland
og Súdan ættu að lúta sama þjóð-
höfðingja, en því marki yrði að
ná með samkomulagi en ekki
valdbeitingu. Ég aðhyllist aðeins
þá lausn málsins, sem báðir aðil-
ar geta fellt sig við, sagði bylt-
ingarleiðtoginn.
Ekkert bendir til þess, að sam-
komulagsviðræður verði teknar
upp að nýju milli Breta og Eg-
ypta um Súdan-málið. I neðri
málsstofu brezka þingsins upp-
lýsti Eden, utanríkisráðherra, í
dag, að hann hefði sent Egypta-
landsstjórn orðsendingu í dag, en
kvað þar ekkert hafa verið
minnzt á Súdan.
Sitarpur bardagi á landla-
mærum IVflakaó og Kína
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
IIONGKONG 30. júlí: — Sviptingar urðu enn í dag á landamærum
portúgölsku nýlendunnar Makaó og Kína milli kommúnista og
portúgalskra varðmanna. Miklu flemtri hefur slegið á hina 350
þúsund íbúa nýlendunnar, sem er áföst við meginland Kína um
65 kílómetrum fyrir suðvestan Hongkong.
SPRENGJUKAST
Það var upphaf átakanna í dag,
að kínverskir kommúnistar vörp-
-uðu hándsprengjum að grand-
lausum portúgölskum hermönn-
um þar sem þeir voru að skipta
um vakt í virki einu við landa-
mærin. Hófu Portúgalir þá þegar
skothríð að Kínverjum og stóð
sennan í tvær klukkustundir.
FLÓTTI
Óstaðfestar fregnir herma, að
portúgölsk yfirvöld hafi þegar
hafið brottflutning óttasleginna
íbúa frá landamærunum og vitað
pr sð með ferjunum til Hongkóng
,komast færri en vilja. næstkomandi. — NTB.
Atburðir þessir eiga rót sína að
rekja til ágreinings sem varð í
fyrri viku um staðsetningu gadda
vírsgirðingar á landamærunum.
Heræfingar í
Norður-Noregi
OSLÓARBORG, — Mestu heræf-
ingar, sem um getur í Norður-
Noregi hófust í fyrradag. 6000
hermenn taka þátt í æfingunum.
Verður haldið áfram til 21. sept.
ÁÆTLUNINNI FRESTAÐ M.A.'
AF TÆKNILEGUM ÁSTÆÐUM
Forsætisráðherrann sagði, að
tæknileg þróun og fUllkomnaii
vopn sem ódýrara væri að fram-
leiða mundu hafa mikinn sparnað
I i för með sér og jafnframt efla
’ varnarmátt Bretlands, enda væru
ýmsar gerðir hergagna sem nú
væru framleiddar að verða úrelt-
ar. Við getum ekki vænzt þess að
verða hernaðarlega sterkir,
sagði hann, án þess að byggja á
traustum efnahagslegum grund-
velli og enga landvarnaáætlun
‘ er unnt að framkvæma án þess
að nauðsynlegra tekjustonfa sé
aflað.
ÚTFLUTNINGUR IIERGAGNA
Churchill kvað stjórnina hafa
gert ráðstafanir til að verulegur
hluti framleiðslunnar færi til út-
flutnings, og þótt mönnum kynni
að finnast það undarlegt ráðlag
að flytja út hergöng þegar Bret-
ar þörfnuðust þeirra sjálfir, þá
teldi hann það nauðsynlegt sök-
' um þess hversu verðmætar út-
flutningsvörur hér væru um að
! ræða einmitt til að afla fjár til
• Framh. á bls. 2
Gruenfhersbræðrum
verður launisð
hjálpin
WASHINGTON — Fari Eisen-
hower með sigur af hólmi i for-
setakosningunum í Bandaríkjun-
um þykir sennilegt að fyrrver-
andi samstarfsmaður hans í París,
Alfred Gruenther, herráðsforingi
Altantshafsherjanna verði á
næsta ári kallaður heim og gerð-
ur formaður herforingjaráðs
bandaríska landhersins. Einn af
einbeittustu stuðningsmönnum
Eisenhowers á landsfundinum í
Síkagó var bróðir Gruenthers,
Hómer að nafni.
Sálutnessa Petains
ILE D’YEU — Hinn 23. júlí var
ár liðið, síðan Petain, marskálk-
ur, lézt hér í gæsluvarðhaldi. —
Vegna þess voru honum sungnar
sálumessur.
SVÖRT BÓK UM FARÚK
Kunnugt er nú, að Egypta-
landsstjórn hefur í undirbún-
ingi eins konar „svarta bók“,
eins og það er orðað í fregn-
inni, um valdaferil Farúks
konungs. Verða þar talin öll
afglöp og hneyksli, sem Far-
úk var bendlaður við meðan.
hann sat á valdastóli. Enn-
fremur verður þar ítarleg
greinargerð um valdafsalið og
aðdraganda þess. — Þvkir
mönnum ósennilegt að hinn
svallsami kóngur verði þar
látinn njóta sannmælis meira
en góðu hófi gegnir.
Nýlt sænskt me!
í kúluvarpi
STOKKHÓLMI, 30. júlí—Roland
Nilsson setti nýtt sænskt met í
kúluvarpi á íþróttamóti, sem háð
var hér í dag. Varpaði hann kúl-
unni 16,64 m., en fyrra metið,
sem hann átti sjálfur, var 16,55
m. Setti hann það á Ólympíu-
leikunum í Helsingfors. •—NTB.