Morgunblaðið - 16.08.1952, Side 11
■ Laugardagur 16. ágúst 1952
MORGVNBLAÐIÐ
11 1
— Verður Juin J
Frakkiandsforsef!
Framh. af bls. 6
han ner sonur hins velvirta lög-
regluforingja. Sjálfur gleymir
hann aldrei uppruna sínum og
ætt. Og þegar hann kom fyrir
nokkrum árum í kirkjugarðinn
í Venafro í Ítalíu, grét hann
eins og barn við grafir 7000
Marokkóhermanna. Þeir voru
vinir 'hans frá æskuárunum.
Og nú þegar hann hefur sagt
hug sinn allan, gerir hann það
sem vopnabróðir Eisenhowers,
Pattons og Clarks. En einnig hef-
ur hann sýnt með einurð sinni
í þessari ræðu, að Frakkland er
að verða aðaltengiliðurinn milli
Washington og Moskvu.
Kanp-Sala
K.4UPUM — SELJUM
Notuð húsgögn, lierrafatnað, —
gólfteppi, útvarpslæki, saumavélar
o. m. fl.
HtiSG 4GNASKÁLINN
Njálsgötu 112. — Sími 81570.
Minningarspjöld
dvalarheimilis aldraðra sjðmanna
fást á eftirtöldum stöðum í Rvík:
skrifstofu Sjómannadagsráðs,
Grófinni 1, sími 6710 gengið inn
frá Tryggvagötu); skrifstofu Sjó
mannafélags Reykjavíkur, Al-
þýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10;
Tóbaksverzluninni Boston, Lauga-
vég 8, bókaverzluninni Fróða,
Leifsgötu 4, verzluninni Laugateig
ur, Laugateigi 41, Nesbúðinni,
Nesveg 89 og Guðmundi Andrés-
syni, gullsmið, Laugaveg 50. — 1
Hafnarfirði hjá V. Long.
Topað
TAPAZT
'hefur blár jakki, fyrir utan
Oddfellow-húsið. Skilist gegn
fundarlaunum í Camp Knox B 16
Samlcamur
FÍLADELFÍA
Safnaðarsamkoma í kvöld kl.
8.30 (laugardag).
FéÍagsÍíf
MEISTARAMÓT ÍSLANDS
Eins og áður hefur verið aug-
lýst, fer Meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum fram í Reykja
vík dagana 23.—27. þ.m. og 6.—7.
sept. — Keppni verður hagað sem
hér segir:
LaHaardagur 23. ágúst:
200 m., hástökk, kúluvarp, 800
m., lírngstökk, spjótkast, 5000 m.,
400 m. grindahlaup.
Sunnudagur 24. ágúst:
100 m., stangarstökk, kringlu-
kast, 1500 m., þrístökk, 110 m.
grindahlaup, sieggjukast, 400 m.
Mánudagtir 25. ágúst:
4x100 m. boðhlaup, 4x400 m.
boðhlaup, 3000 m. hindranahlaup.
Kyennakeppni: 100 m,, hástökk,
kúluvarp, spjótkast, 4x100 m.
boðhlaup.
Miðvikudagur 27. ágú.st:
Fimmtarþraut, 4x1500 m. boð-
hlaup. — Kvennakeppni: 80 m.
grindahlaup, kringlukast, lang-
stökk, 200 m.
Laugardagur 6. seplcinber:
10.000 m. hlaitp, Tug’þraut
(fyrri dagur).
Sunnudagur 7. september:
Tugþraut (síðari dagur).
Þátttökutilkynningar ber að
senda stjórn Frjálsíþróttasam-
bands Islands (Pósthólf 1099),
Reykjavík, og verða þaor að hafa
borizt í síðasta lagi 19. þ.m.
Frjálsíþróttusumbund lslands.
lerklaveiki fierjar i Formésu
hjélparsfarfsemi meSal eyjarskeggja
ÞRÁTT fj'rir hið erfiða stjórn- (
málaástand hefur kínverska þjóð- i
ernissinnastjórnin á Formósu |
(Taiwan) getað gefið sér tíma til
að sinna heilbrigðismálum ibú-
anna á Formósu og þá einkum 1
heilbrigðisástandi unga fólksins
þar. _
Á eynni eru 3800 læknar (helm
ingi fleiri en í Burma, sem bæði
er stærra land og mannfleira),
1000 hjúkrunarkonur og 17
sjúkrahús með 2900 .sjúkrarúm-
um. — Samt sem áður er þetta
hvergi nærri nóg. íbúar Formósu
eru sem stendur 7,5 milljónir að
tölu.
BERKLAVEIKI ÚTBREIDD
Berklaveikin hefur náð mikilli
útbreiðslu á eynni á undanförn-
um árum ekki minnst vegna þess
hve íbúatalan hefur aukizt ört í
sambandi við flóttann frá megin-
landinu. Árlega deyja 15 þúsund
manns úr berklum, en 150 þús-
und hafa tekið veikina.
Ríkisstjórnin skipaði þvi nefnd
til að fjalla um þetta vandamal
og leitaði samtímis aðstoðar S. Þ.
og hefur Barnahjálparsjóður S.Þ.
(UNICEF) lagt fram 153 þúsund
dollara til baráttunnar gegn veik-
inni. í samráði við Alþjóða Heil-
brigðismálastofnunina (WHO),
sendi sjóðurinn hóp manna tiÚ
eyjarinnar til þess að þjálfa inn-1
lent starfslið í meðferð tækja,
sem notuð eru í baráttunni gegn
berklaveikinni. FóHc þetta er nú
komið heim frá Formósu eftir
eins árs starf og greinir frá mikL
um árangri af starfi sínu.
70 ÞÚS. BERKLAPRÓFAÐIR
Á MÁNUÐI
Síðustu fregnir frá Formósu
herma, að um ein milljón barna
og unglinga hafi gengið undir
berklaprófun og 660 þúsund börn
hafi verið bólusett. Berklarann-
sókninni er haldið áfram og um
70 þúsundir manna eru berkla-
prófaðir á mánuði. Baráttunni
gegn veikinni verður haldið á-
fram til 1954 og er áætlað að
fram að þeim tíma verði lokið
berklaprófun 4 millj. barna og
unglinga, en það eru allir íbúap
eyjarinnar undir 20 ára aldri.
Annar útbreiddur sjúkdómur á
eynni er tracoma, hættuleg augn-
bólga, sem um helmingur ailra
skólabarna þjáist af. Unnið er að
því að lækna þennan sjúkdóm,
sem getur orsakað blindu.
BarnahjálparsjóSur S. Þ. hefur
fram að þessu sent 200.000 kg
þurrmjólkur til Formósu og 40
þúsund börn, sem líða af nær-
ingarskorti, fá eitt glas mjólkur
á dag.
raa
KARLSKRÓNU, 15. ágúst. —
Pólskt fiskiskip strandaöi nýlega
við Torhamn, aðeins 100 metra
frá landi. Þegar komið var að
skipinu, sáu menn skipstjórann
sitja uppi á stýrishúsinu hrópandi
á hjálp, og er skipshöfninni, skip-
stjóranum og tveimur hásetum,
hafði verið bjargað í land, kom
það í ljós, að blóðugur bardagi
hafði átt sér stað um borð, vegna
þess að skipstjórinn vildi ekki
sigla til Svíþjóðar með hásetana,
en þar ætluðu þeir að vera eftir.
Voru mennirnir allir sem lurkum
lamdir, og eftir mikið þras varð
það úr, að skipstjórinn einn
sneri aftur til Póllands.
Þýzkalaitdi
BERLINARBORG — I skýrslu
efnahagsráðs Vestur-Þýzkalands
er svo frá skýrt, að Þjóðverjar
geti að líkindum orðið sjálfum
sér nógir um hráefni til kjarn-
orkurannsökna og tilrauna til
beizlunar kjarnorkunnar í frið-
samlegum tilgangi. Búast Þjóð-
verjar við að þeim verði í náinni
framtíð leyft að taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið í
kjarnorkurannsóknum. — Segir
í skýrslunni að úraníum verði að-
allega unnið úr jörðu á tveim
stöðum í Vestur-Þýzkalandi, við
bæinn Weissenstadt í Bæjara-
landi og Wittichen í Svörtuskóg-
um.
Firmakeppn! Bridge-
félags Reykjavíkur
EFTIR aðra umferð firmakeppni
Bridgefélags Reykjavíkur er
staðan þessi:
Lúllabúð 102.5, Ásgarður,
smjörlíkisgerð 102, Big. Skjald-:
berg 102, Fálkinn h.f. 101,5, Tré-
smiðjan Bar. 18 101, Kron 101.]
Austurbæjarbíó h.f. 99.5, Hólmur
h.f. 99.5, Har. Árnason h.f. 97, j
Ragnar Ólafsson, lögfr. & end.
96.5, Búrfell 96, Gamla kompaniið
95.5, Skipadeild SÍS 95, N. N. h.f.
95, Smári, smjörlíkisgerð 94, G.'
Helgason & Melsted 94, N. Man-j
cher & Co. 93.5, Jón Kornelíusar I
93.5, Agnar Norðfjörð h.L 93,'
Heildverzlunin Berg 93, Vélasal- ]
an h.f. 93, Föt h.f. 92, Raftækja-|
salan h.f. 91.5, Magnús KjaraX.
91.5, Bókfell h.f. 91.5, Víkings-j
prent h.f. 91.5, Brynja 90.5, Nýja^
Efnalaugin 90, Verzl. Vitinn 88.5,
ísl.-erlenda verzlunarfél. 88,
Björgvin Frederiksen 87, Lud-
vig Storr 86.5, G. J. Foss-
berg 86, Hreinn h.f., 85.5,
Toledo 85, Afgr. Smjörlikisgerð-
anna 84.5, Frigg, sápuverksmiðja
84, Crystal 83, Síld & Fiskur 83,
Rúllu- og hleragerðin 82, Radio-
og Raftækjasalan 82, Hélgafell
81.5, P. Stefánsson h.f. 80.5, Al-
þýðubrauðgerðin 80, Draupnisút-
gáfan 80, Verzl. Gullfoss 75.5,
Verzl. Árna Páissonar 71, Smjör-
líkisgerðin Ljómi 70.5.
Frh. af bls. 7.
— Oð nautaatið?
— Áhugi manna á nautaatinu
sem um langan aldur hefur verið
eftirlætisskemmtun þjóðarinnar,
hefur mjög dofnað á síðustu ár-
um og á það m. a. rót sína að
rekja til vaxandi áhuga á hvers
konar íþróttum, einkum knatt-
spyrnu, enda eru Spánverjar vel
hlutgengir þar, hafa t. d. sigrað
Breta í landskeppni. Óhætt er að
segja að knattspyrnan hafi leyst
nautaatið af hólmi sem öndvegis
íþrótt Spánverja.
— Hvað viltu svó segja að lok-
um um saltfisksölumálið?
— Aðeins það, að hagsmunir
beggja, þeirra sem út flytja
og skapa þannig gjaldeyr-
irinn og þeirra, sem flytja
mn fyrir þann sama gjaldeyri,
eru s-vo nátengdir, að gagnkvæm
aðstoð ætti að vera sjálfsögð
þegar svo miklu varðar. Islenzkir
innflytjendur verða að gerá
sitt til að bjarga þessum mark-
aði fyrir þjóðina, og þeir geta
reitt sig á aðstoð og fyrirgreiðslu
sendiherra okkar á Spáni, aðal-
ræðismanns okkar i Bercelona
eðá hjá mér í Bilbao og Madrid.
St. H.
Ásökun Búlgara hnekkt
LONDON, 14. ágúst. — Júgó-
slavar hafa neitað þeirri ásökun
Búlgara, að júgóslavneskar flug-
vélar og, hermenn hafi ógnað
búlgörsku landamærunum í júní
s.l. Segja Júgóslavar, að þessar
ásakanir Búlgara séu uppspuni
frá rótum og einungis notaðar í
áróðursskyni,- — Reuter.
Fisksföfiun eftir Sig-
urjón sett upp
ÞAÐ er nú í ráði, að Fegrunar-
félag Reykjávíkur gangist fyrir
að setja upp lágmyndina „Fisk-
stöflun“ eftir Sigurjón Ólafsson
myndhöggvara. Myndin er skjöld
ur 3x4 metrar á stærð. Er ætl-
unin að setja hana upp við Sjó-
mannaskólann.
Framh. eí bls. 7
Landssambands iðnáðarmanna og
Teknologisk Institut i Kaup-
mannahöfn var haldið hér sum-
nrið 1951 námskeið fyrir hús-
gagnasmiði. — Kennari var F.
Brahtz ráðunautur við Tekno-
logisk Institut, sem hafði með-
íerðis nauðsynleg efni og verk-
færi. Um haustið var haldið í
Reykjavík námskeið fyrir bak-
arameistara og var kennari Chr.
Madsen sömuleiðis frá Tekno-
logisk Institut. Þessi námskeið
heppnuðust mjög vel og þátttak- ,
endurnir voru sérlega ánægðir '
með árangurinn. Ætlunin er að
halda þeim áfram í öðrum iðn-
greinum, ef aðstæður leyfa.
Mikið hefur verið reynt til að
koma á verðlaunasamkeppni |
milli iðnaðarmanna, en það hefur |
ekki tekizt, einkum vegna erfið-
leika á útvegun húsnæðis og
sömuleiðis vegna áhugaleysis iðn-
aðarmanna sjálfra. Áfram verður
samt reynt að koma því á og von- |
azt er til að slíkt myndi vekja
athygli og áhuga almennings á
iðnaði til aukins skilnings á fjár-
hagsiegri og þjóðfélagslegri þýð-
ingu hans. I
Sem stendur er ekki skortur í
á iðnnemum í hinum ýmsu iðn- I
greinum. 17 iðnskólar eru á land- '
inu og þeir eru allir næstum
íullskipaðir. .
Þegar hinn nýi iðnskóli í Rvík I
verður tilbúinn, er leyst úr i
brýnni þörf, því að gamla skóla- '
húsið er fyrir löngu orðið of i
þröngt.
í Landssambandi iðnaðarmanna i
eru nú 53 félög með 2443 með-
limuirL__________________
Glæfraför
BAYAR, forseti Tyrklands, heiðr
aði nýlega Hasim Mardim, sem
unnið hefur það þrekvirki að
sigla yfir Atlantshafið á mótor-
kænu.
Framh. af bls. 1
upp frá Heklutoppi. Baldur Lín-
dal hefur efnagreint gufuna. —
Þar sem hitinn er mestur er hún
fremur þurr, megnið, sem út
streymir er venjulegt andrúms-
loft, en lítillega blandað öðrum
lofttegundum, vetni, koldíoxýd,
brennisteinssýru og saltsýru. Auk
þess nokkuð af loftkenndum kís-
ilsamböndum.
1 ,
MEÍRI HITI 5
EN BÚIZT VAR VIÐ
— Og er þessl gufa ekki all
heit?
— Jú, hún er heitari en ég
hafði búizt við. í fyrstu ferðinni
hafði ég meðferðis kvikasilfurs-
mæli úr gleri, bjóst við, að hit-
inn væri ekki mikið yfir venju-
legu suðumarki, en hann reyndist
miklu meiri. Nú síðast hafði ég
meðferðis mæli, sem tekur hærri
hita og reyndist gufan þá vera
heitust 530 stig á celsius.
— Samkvæmt þessu er þá langt
frá því að kólnað sé í glæðum
Heklu?
— Já. Við Axlargíginn er hit-
inn alveg upp á yfirborðið, svo
að ef stungið er priki niður í
grjótið, þá sviðnar það. Sé flík
varpað á jörðina, blossar hún upp
eftir nokkra stund. Sama er að
segja um það, að skór manns
eyðileggjast, ef staðið er kyrr
nokkra stund í sömu sporum.
Hitinn er einna mestur í Heklu
í sprungunni, sem liggur eftir
endilöngu fjallinu og sérstaklega,
í Axlargígnum. Líklega hefur
botn gígsins sigið, svo að barm-
arnir springa og verður þar opin
leið fyrir gufuna út. Annars er
enn nokkur hiti í hrauninu, þar
sem það er þykkt, þannig að í
vetur festi þar ekki snjó.
I i
KOLSÝRA ENN í VATNI
Á RANGÁRVÖLLUM
Gísli Þoi'kelsson hefur tekið
reglulega sýnishorn af vatni í
nærsveitum Heklu og sýna þær
rannsóknir að nokkur kolsýra er
enn í öllu vatni ofan til á Rang-
árvöllum. Er vatnið því hart, svo
erfitt er að þvo úr því. ,
Unnu á krókudíl
BÓNDI nokkur í Burma og kona
hans drápu fyrir skömmu króku-
díl er hafði velt bát þeirra á
Irrawaddy. Krókudíll þessi hafði
skömmu áður gengið af tveimur
mönnum dauðum.
S. CARL LÖVE,
fyrrv. skipstjóri, lézt 2. ágúst.
Bálför hefur farið fram. — Þökkum auðsýnda samúð.
Vandamenn.
Útför konunnar mmnar
GUÐRÚNAR PÁLSDÓTTUR
og litla drengsins okkar
sem dóu 12. ágúst í Sjúkrahúsi Akraness, verður mið-
vikudaginn 20. ágúst og hefst frá heimili okkar Borgar-
túni við Akranes kl. 2 e. h. Þeir, sem vildu minnast
hennar, eru vinsamlega beðnir að láta einhverja líknar-
stofnun njóta þess.
Fyrir mína hönd og barnanna okkar
Stefán Eyjólfsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við analát og
jarðarför
GÍSLA SIGURÐSSONAR, trésmiðs.
Kristjana Sigríður Pálsdóttir,
hörn, tengdabörn og barnaböm.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
CARL K. Á. JENSEN
Fyrir mína hönd, barna og annarra vandamanna
Kristín Eiríksdóttir.