Morgunblaðið - 08.11.1952, Síða 5
Laugardagur 3. nóv. 1952
MORG L .\ BLAÐIÐ
k 1
«* i
ÞAÐ er mín skoðún, að hlutverk
útvarpsins í tónlistarmálum sé
tvíþætt: Annarvegar að geðjast
hlustendum, hins vegar að ala þá
upp, m. a. með tónlistarfræðslu
og flutningi úrvalstónlistar.
Þannig komst Jón Þórarinsson
tónskáld m. a. að orði, er Mbl.
hitti hann nýlega að máli og
ræddi við hann ýmislegt um tón-
listarstarfsemi Ríkisútvarpsins á
komandi vetri. En hann er eins
<og kunnugt er fulltrúi í tónlistar-
deild útvarpsins.
TALSVERÐUR ÁRANGUR
NÁÐST
— Ég tel að með starfsemi út-
varpsins, heldur Jón Þórarinsson
áfram, hafi :ráðst íöluverður ár-
angur í þessu. uppeldi., enda þótt
tónlistarfræðsla útvarpsins hafi
ekki verið eins mikil og æskilegt
hefði verið. VeJdur þar um skort-
ur á- mönnum og annríki þeirra,
sem að þessum rnálum hafa starf-
að. Áformað er, að reyna að bæta
úr þessu í vetur með því að taka
upp skipulega fræðslu um tón-
list. Mun dr. Páll ísólfsson, Árni
Kristjánsson og ég annast hana.
Það er skoðuo mín að blöðin
gætu gert mikið gagn með því
að vekja athygli á góðum tón-
listaratriðum í dagskrá útvarps-
ins. Þau gætu jafnvel lagt fram
drjúgan skerf til þess að fræða
hlustendur um tónlist og ýmisiegt
er að hljómlistarstarfsemi lýtur.
Af ýmsu má ráða, að tón-
listarsmekk almenning hafi
-'farið verulega fram á undanförn-
um árum. Því er þó ekki að leyna,
að raddir þeirra, sem óánægðir
eru með tóníistarflutning útvarps
ins eru jafnan háværari en við-
urkenningarorð hinna, sem
ánægðir eru. Mikill hluti hlust-
enda viroist enn ekki kunna að
meta það sem gert er í þessum
efnum. Liggja til þess ýmsar
ástæður, bæði það að tónlist nýt-
ur sín í möi'gum tilfellum alls
ekki, þegar hún er komin til hlust
enda gegnum útvarp, Valda því
erfið hlustunarskilyrði, léleg við-
tæki o. fl.
Ennfremur hefur útvarpið ekki
ennþá lagt eins traustan grund-
vÖll að tónlistarþroska fólksins,
með skipulagðri fræðslu og æski-
legt er.
STOFNUN SYMFÓNÍU-
HIjJÓMSVEITARINNAR
MERKILEGASTA SPORIÐ
Ánnars tel ég að það langsam-
]ega merkilegasta, sem útvarpið
hefur gert í þágu tónlistarmál-
anna í landinu, sé þátttaka þess
og forysta um stofnun symfóníu-
\ tó'Eilístarmáfum:
uin og þroska
þeirra
starfsemi
>*
ar enerkiiegasta sporið
Jón Þórarinsson tónskáld.
hljómsveitarinnar. Það er fyrst
og fremst að þakka ágætum skiln
ingi ráðamanna útvarpsins,
hversu langt það mál er komið
áleiðis.
Með þessu hefur útvarpið farið
inn á þá braut, að eiga þátt i að
gefa hlustendum sínum kost á
lifandi flutningi tónlistar. En að
allra manna áliti er það frum-
skilyrði þess, að almenningur
geti haft gagn af grammófóns og
útvarpsmúsík, að hann hafi áður
haft sem nánust kynni af lifandi
tónlist. Með því að leggja sinn
skerf fram til stofnunar og starf-
semi Synfóníuhljómsveitarinnar
hefur útvarpið því ekki aðeins
verið að heyja að sér útvarps-
efni að hverju sinni, heldur og að
skapa skilyrði til þess að hlust-
éndur geti notið hvers konar tón-
listar sem það flytur.
TÓNLISTARFLUTNINGUR
EYKST
Eins og hlustendum er. kunn-
ugt, hefur dagskráin nú verið
lengd um eina klukkustund á
dag. Með því eykst auðvitað tón-
listarflutningur útvarpsins tölu-
vert og standa vonir til þess að
hlustendúm sé með því gert til
hæfis.
Symfómuhljómsveitin á hljómleikum í Þjó'ðleikliúsinu.
Annars er það mín skoðun, að
varlega beri að fara í lengingu
dagskrár. Aðaláherzluna beri að
leggja á, að vanda sem mest það
sem fyrir er. Ég tel yfirleitt að
ofnotkun útvarps sé mjög hættu-
ieg. Hljómlistin á ekki að vera
eins og stöðugur lækjarniður í
eyrum hlustenda. Hún má ekki
heldur verða of hversdagsleg í •
notkun útvarpsins. Helzt ættu
menn ekki að hlusta á góða tón-
list, nema þegar þeir hafa góðan
tíma tii þess og geta gefið sig ó-
skiþta að því á meðan.
— Ertu þá mótfallinn tónlist á
vinnustöðum?
— Já, alveg hiklaust, e. t. v.
einmitt vegna þess, að ég hef
kynnt mér sérstaklega notkun
slíkrar tónlistar í Ameríku.
— Hvaða áhrif hefur hún haft
þar?
— Það er að vísu fullyrt af
‘sumum, að vinnuafköst aukizt
við notkun tónlistar á vinnustöð-
um, en á hinn bóginn fullyrði ég,
að þess háttar notkun tónlistar
sem deyfilyfs geri menn smátt og
smátt ónæma fyrir sannri nautn
hennar og jafnframt að þroska-
minni einstaklingum.
EITTHVAD FYRIR ALLA
— Hvað viltu að öðru leyti
segja um þátt tónlistarinnar í
( dagskrá útvarpsins í vetur?
— Hann verður í aðal atriðum
svipaður og verið hefur. Áherzla
f verður lögð á það, eins og áður,
1 að hafa þar eitthvað fyrir alla.
Hins vegar mega menn ekki
i vænta þess, að eingöngu verði
I flutt það sem allir vilja heyra.
j — Verður aukinn flutningur
léttrar hljómlistar og danslaga?
— Um það eru ekki beinlínis
uppi sérstakar ráðagerðir. Hins-
vegar eykst sennilega nokkuð
flutningur blandaðrar tónlistar,
svipaðrar og hádegisútvarpið
flýtur. Sprettur sú aukning af
dagskrárlengingunni, scm við
minntumst á áðan.
SKIPTI ÚTVARPSINS OG
SYMFÓNÍUIILJÓMSVEIT-
ARINNAR
— Hvernig er háttað skiptum
útvarpsins og Symfóníuhljóm-
sveitarinnar?
— Þcgar hljómsveitin tók fyrst
til, starfa var það fyrir tilstyrk
og forgöngu útvarpsins og í von
ufn að styrkir mundu fást til
staríseminhár frá ríki og bæ. —
Þessir styrkir hafa síðan verið
veittir og eru það nú þessir þrír
aðilar, útvarpið ríkið og Revkja-
víkurbær, sem standá að rekstri
hljomsveitarinnar.
— Hvað fær svo útvarpið frá
hljómsveitinni?
— Það hefur rétt til þess að út-
varpa öllum opinberum hljóm-
leikum hennar án sérstaks end-
urgjalds og ber hljómsveitin
sjálf allan kostnað af stjórnend-
um sínum, einleikurum og ein-
söngvurufn, sem fram kunna að
l Framhald á bls. 10
Einbýlishús úr timbri er til
sölu nú þegar. Tilboð ósk-
ast. Húsið er til sýms, þeg-
ar óskað er. Nánari uppl.
gefur:
Tómas Tómasson, hál.
Vatnsnesi. -— Sími XJ.
Ung, reglusöm
óskar eftir
stúika
ráðskonustöðu
Menn, sem eiga móðurlaus
börn ganga fyrir. — Þeir,
sém vildu sinna þessu, sendí
nöfn, heimilisföng, inn á
afgr. Mbl. fyrir 11. þ. m.,
merkt: „Farsæl — 3 55“.
F rímerk j asaf narar
Hið eftirsótta frímerkjasett
Hópflug ítala til sölu. Enn-
fremur fleiri fágæt íslenzk
frímerki. Læt útlend frí-
roerki í skiftum fyrir ís-
lenzk.
Bjarni Þóroddsson,
Blönduhlíð 3.
IBUÐ
Okkur vantar sem fyrst
litla íbúð fyrir einn af
starfsmönnum okkar. Æski-
legast á hitaveitusvæðinu
eða í Austurbænum. Hús-
hjálp og leiga eftir sam-
komulagi. Upplýsingar:
FÁLKINN h.f. Sími 81670.
Enska ullar-
éfseumsgariiið
komið í öllum litum. —
Bekkjótt gluggatjaldaefni.
Ódýrt kjólntau, margar teg.
Nærfatasilki einlit og rósótt.
Sportsokkar.
Verzl. ÓSK
Laugaveg 82. Sími 80025.
Báðskonsi
óskast út á land. — Tvennt
í heimili. Má hafa með sér
1—2 börn. Uppl. á Braga-
götu 26, eftir kl. 3, laugar-
dag og sunnudag.
Tvíbreitt
og
Laugaveg 1.
Sænskur
piötuspiiari
(Luxor Radio), sem skiftír
12 plötum og innbýggður í
spónlagðan kassa, til sölu,
ásarnt 60 plötum. Uppl. í
Bragga J4'við Sölvhóisgötu
kl. 4—6 í dag og á morgun.
KYNNING
Maður um fertugt í góðri
stöðu, en dálítið einmana,
óskar eftir að kynnast góðri
stúlku, nánari kynning get-
ur komið til greina. Þær sem
áhuga hefðu á þessu eru
beðnar að leggja nafn og
heimilisfang, símanúmer og
mynd, inn á afgr. Mbl. fyrir
mánud.kv., merkt: „Góð
staða — 154“.
lÍÐHíjisia
Kenni 10—14 ára bömum
reikning. —-
Kristján Halldórssort
Njálsg. 87. Heima kl. 5
til 7 e.h. —
Í4|érb(irm
Amerísk hjón óska eftir
barni, ekki eldra en 2ja ára.
Tilboð merkt: „Kjörbarn —
162", sendist afgr. Mb). sem
fyrst. —-
Notað
Drengfa*-
reiébfóS
til sölu i Tjarnargötu 20. ■
Til sýnis eftir kl. 4 í dag.
íhtifl óskasf
1—2 herbergi og eldhús. —
Þrennt í heimili. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 12.
þ.m., merkt: „100—163“.
Húsmæður athugið
Stúlka getur tekið að sér
hreingerningar og þvotta i
heimahúsum. Uppl. í síma
81345 á milli kl. 10 og 3 í
dag. —
Bandaríkjamaður, giftur ísl.
konu, óskar eftir íbúð í
Keflavík, 1—2 herbergjum
og eldhúsi. Má gjarnan vera
eitt stórt. herbergi. Uppl. í
síma 302, Keflavík.
*
Verzl. BLANDA
Bergstaðastræti 15.
BEZT AÐ AUGIASA
í MORGUmLAÐim.