Morgunblaðið - 27.08.1953, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.08.1953, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 27. ágúst 1953 MORQVNBLAÐIÐ 7 ÆSKAN OG iFRAMTÍDIN Listin fyrir fólkið ÞAÐ hefur jafnan verið talið til góðrar menningar að kunna að meta fagrar listir og góðar bók- menntir. Við ísienaingar eigum fátt af jarðneskum fjársjóðum og dýrum fornminjum til þess að státa okkur af og þykjast meiri menn nú, sökum þess, að miklir menn hafi við áður fyrr verið. En það stendur hins vegar í gam alli bók, að dýrastir séu þeir f jár- sjóðir, sem mölur og ryð fær ekki grandað og í því má huggun vor felast og uppörvun. Aðrar þjóðir eiga sér verald- arinnar fjársjóði, steinhallir og stórfylkisvopn, sem þær hafa safnað á aldanna rás. Við eigum torfbæinn einan okkar gersima, utan Viðeyjarstofu. Á íslandi býr í dag dugmeiri og fjölmenntaðri þjóð en í nokkru öðru landi veraldar. Fá- mennið eitt hamlar henni að skipa öndve.gissætið í heiminum og veita öðrum þjóðum leiðsögu, svo sem hún hefur dug og djörf- ung til. En sagan er ekki mæld í árum heldur öldum og fámennar þjóðir verða með árunum mann- fleiri. En á einu sviði getur fámenn' þjóð orðið stórveldi og neytt afls síns og ásmegins. Snilligáfan er ekki mæld í þumlungum og í milljóninni þarf ekki að felast meira mannvit en með snjöllum einbúa. ★ Það er á sviði lista, bókmennta og fagurra fræða, sem íslending-' ar geta auðveldlega skipað for-1 ystusætið í hópi f jölmennra1 þjóða, og það er þar, sem þeirra | landvinningar skulu liggja og þeirra frægðarorð af rísa. Á þeim skamma aldarhelmingi, sem liðinn er síðan fyrst uxu upp skáld og lisíamenn úr þeim ó- frjóa akri, sem niðurlæging og I einangrun hafði verið eín um að yrkja, hafa þau undur gerzt í vorum listmálum og bókmennt- um, að aðrar þjóðir standa þar engu framar. Þrátt fyrir fámenni og fjarlægð frá miðju heims- menningarinnar hafa íslendingar á örfáum árum eignazt rithöf- unda og listamenn, sem hlut- gengir eru á hverju skáldaþingi, er saman kemur. Þrátt fyrir ein- staka örðugleika lítillar þjóðar, er yrkir sín ljóð á annarlega tungu, hafa passíusálmar og sagnaperiur hennar borizt vítt um veröld og átt sér langvinnt frægðarorð. En það er ekki nóg, að skáidin yrkji ljóð, ef þau fást ekki gefin út, né myndhöggvarar geri lista- verk sín, þar sem almenningur á ekki aðgang. Þeir, sem með völd-1 in fara í landinu eiga það í sínum höndum að gera ísland að önd- vegisþjóð lista og fagurfræða,' með ötuium stuðningi og efna-! hagslegri örvun, ef svo má að orði kveða. Þeim fjármunum, sem til siíks stuðnings er varið, er ekki á giæ! kastað heldur bera þeir ríkuleg-1 an ávöxt cg auka frama landsins! með erlendum þjóðum meir en' nokkuð annað. Með tíð og tíma,| ef vel er á haldið, geta borgir og bæir landsins orðið heil lista- söfn, þar sem bókfróð og fjöl- menntuð aíþýða á greiðan að- gang að menningaríjársjóðum, ríkulegri en nokkur önnur þjóð. Slíka heimsveidishyggju í menn- ingarmáium er skylt að styðja og efla af hálfu þeirra, sem með fjármuni þjcðarinnar fara og það ætti að vera heiður allra að styðja siíka starfsemi. Með þetta sjónarmið í huga er tímabært að spyrja hvenær all- ar þær myndastytíur, sem í esgu höfuðborgarinnar eru, verði sett- ar upp almenningi til augnaynd- is. Ekkert flytur listina nær fólk- inu en formfegurð höggmyndar- Falleg orð og frómar hugsanir bæta ekki úr vandræðaústandinu í úfengismúlunum A ÞESSUM árum er það orð- in tízka í landinu að ræða um „haigsmunamál æskulýðsins“ eins og það er orðað, hvað honum sé fyrir bcztu og hvernig honum beri að haga breytni sinni. Það hefur þó í láginni legið, við hinar orð- prúðu og góðviljuðu umræð- ur, að hvergi er eins mikið um stórfellda ölvun og drykkjuskap unglin.ga, afbrot þeirra og slðleysi á almanna- færi sem liér á landi. Sá dagur líður vart að kvöldi í Reykjavík, að fjöldi ungra pilta slagi ekki um götur borgarinnar, aðffamkomnir af ölmæði, hávær- ir og víkingslegir í allri fram- komu. Varla er sú samkoma eða gleði haldin í landinu, hvort sem það er skólahátíð eða frímúrara- fundur, að vín sé ekki haft um hönd í einhverjum mæli, fyrir nýfæddum börnum barf að skála jafnt sem nýbyggðum húsum. Opinberar skemmtanir og dans leikir í höfuðborginni, jafnt sem út um byggðir landsins, kafna alla jafnan í vínflóði og glasaglaumi og enda ekki án þess að fleiri eða færri veizlugestanna séu bornir öndinni skemmri úr húsi. Það er augljóst, að ástand sem þetta er í fyllsta mát óheilbrigt og til skaða fyrir æskulýð þann, sem vex upp í landinu. ★ í engu landi Evrópu er ástand- ið í áfengjsmálunum jafn slæmt og á íslandi, hvergi er víndrykkja slíkur þjóðarlöstur svo nærri stappar þjóðarógæfu, og er þá ekki of fast að orðið kveðið. Eins og sakir standa er óhætt að fullyrða, að ekki séu önnur mál, sem varða íslenzka æsku fremur en hið alvarlega ástand í áfengismálunum og hvern þátt æskumenn eiga í hinni siðlausu víndrykkju landsmanna. Það er góöra gjalda vert að skeggræða um væntanlegar æsku lýðshallir og önnur slík glæst framtíðaráform, skipa ótal nefnd ir til framkvæmda þeirra og hefja almenna fjársöfnun og merkjasölu í þágu málefnisins. Að engum slíkum málum er þó nokkur nauðsyn til jafns við ein- hverjar úrbætur, þótt litlar væru, í þá átt að haga framkvæmd áfengismálanna skynsamlegar með það fyrir augum að draga úr þeim vandamálum, sern þeirn nú fylgja. Því heyrist oft fleygt, að ástæð an fyrir því, að hvergi sést drukk inn rnaður á almannafæri erlend- is, en varla ódrukkinn sumar næt ur hérlendis sé sá, að íslending- ar séu öðrum þjóðum ólikir að skapferli og sé þeim víkingshátt- urinn í b!óð borinn. Það"er þó staðreynd, sem sjald- an er getið, að íslendingar drekka fjarri því meira áfengismagn en aðrar þjóðir, heldur eru þeir þar neðarlega á skrá. En ástæðan er ekki sú, að þjóð- innar og iistrænar stórbygging- ingar, scm það hcfur daglega fyr- ir augum sér. Eiin tíðkast það þó hcr á landi, að forráðamenn ríkisstofnana leyfi sér að byg.gja milljónakróna stórhýsi án þess að^leita sam- keppni um bygginguna. — Slíkt er giæpur við framtíðina og þær kynsíóðir, sem síoar skulu byggja slík hús. Meðan úr slíku er ekki bætt, meðan þröngsýni og per- sónusjónarmið ráða um mat á einstökum listamönnum og vcrk- um þeirra, verður iistin hvorki frjáls á íslandl, né eign fólksins. Hvesiær hljóta íslendingar mnnningarlega áfengislöggjöf ? in sé öðrum þjóðum ólík. Slík rök eru aðeins lélegar afsakanir fyrir ósómanum. Hitt er sanni nær, að hvergi í nálægum löndum ríkir jafn furðu legt fyrirkomulag um áfengisveit ingar sem hér á landi og engin þjóð býr við jafn úrelta og óhæfa áfengislöggjöf sem íslendingar. Sú er fyrst og fremst ástæðan fyrir þeirri drykkjumenningu, sem hér ríkir og frummanninum einum hefði verið sæmandi. Það er því áfengislöggjöfin sem þarf að taka til rækilegra úrbóta, ef nokkru sinni á að verða hægt að draga úr • því margvíslega drykkjuböli, sem þjóðina þjakar, jafnt í bæjum og til sveita. Það þarf að koma hér á svip- uðu fyrirkomulagi og tíðkast með öðrum menningarþjóðum í áfeng ismálum og læra af þeirra reynslu, í stað þess að einblína á kreddur og bannlög þeirra manna sem sjálfkjörnir halda sig vera til þess að segja. íslendingum fyrir hvað þeir skuli drekka, hvar þeir eigi að drekka og hvern ig þeir skuli drekka. Þeim efnum hefur nýlega verið gerð góð skil í ágætri grein er Indriði Þorsteinsson reit í dag- blaðið Tímann, og skal ekki frek- ar út í þá sálma farið. Á Það er augljóst mál, að bann verður aldrei aftur lögleitt á ís- landi. Hinn mæti bindindisfrömuður Brynleifur Tobíasson hefur lýst sig andvígan því, að áfengis- skömmtun verði upp tekin hér á landi, enda hefur hún gefizt mjög illa m. a. í Svíþjóð þar sem hún verður afnumin. Úrbótin verður því aðeins fólg in í einu, að breyta núverandi áfengislögum í stórum frjálslegra horf, svipað og aðrar þjóðir búa við, þar sem það verði ekki lög- brot og gangi glæpi næst að fara með áfengi sem hvern annan drykk. Það er viðurkennt af öllum, sem til þekkja, að sá háttur, sem nú er á sölu og veitingum áfeng- is leiðir aðeins til ofdrykkju, of- stopa og lögbrota. Feykiiegur svartur markaður þróast í landinu með áfenga drykki, svo minnt gæti á bann- árin í Bandaríkjunum; svo við- tækur að lögregla landsins fær við ekkert ráðið. Hvarvetna er bannað að neyta áfengis, þar sem menn koma sam an utan síns heimilis, en þó flóir landið allt í víni og meir ber á drykkjuskap en nokkurs staðar annars staðar í álfunni. Útlendir ferðamenn verða. furðu lostnir, þegar -þeir sjá drykkjuskap íslendinga, og eykét sú furða um allan helming, er þeir geta hvergi fengið vínglas á nokkru veitingahúsi í landinu. Sterkustu drykkir einir eru seldir og það í stórum skömmt- um, svo menn drekka af þeim sökum sjaldnar en verr, en góð- öl er aftur á móti ófáanlegt og virðist harla lítið samræmi vera í því ráðslagi. Sektardómar og sviptingar öku leyfa eru daglegt brauð, óknyttir unglinga aukast, óspektir hvers- kyns magnast. ★ Það er furða hvílíkt langlund- argeð þeim mönnum er gefið, sem vilja æsku landsins vel en horfa þó upp á slíkt áfengis- ástand aðgerðalausir. Það skal enn undirstrikað, að hvergij nálægum löndum er eins magnaður drykkjuskapur ungl- linga sem hér á íslandi. Ástæðan er aðeins ^ein: hin ófrjálsa hef'tilöggjöf í áfengismál- unum. Það er sannarlega kominn tími til, að þeir sem úrbætur vilja rísi upp og varpi af sér feldi. Hér nægja engar frómar samþykktir og fallega orðaðar, né viðstöðu- laust orðaflaumur í blöðum lands Framh. á bls. 12 I DAG birtir Æskulýðssíðan tvö kvæði eftir ungt skáld, Indriða G. Þorsteinsson. Hefur hann nokkuð fengizt við Ijóðagerð, en er þó kunnari fyrir smásögur sínar, sem margar hafa vakið mikla athygli, enda er Indriði sérstæður smásagnahöfundur. — Fyrsta smásagan, sem nokkuð kveður áð, birtist 1950, og ári síðar kom út smásagnakver hans, Sæluvika; er þar að finna 10 smásögur.' Enn fremur má geta þess, að Indriði hlaut verðlaun fyrir smásögu sína Blástör, þar sem fram kemur allmikil náttúrudýrkun, auk hrikalegra svipmynda, sem skáldið bregður upp á stundum. h Indriði G. Þorsteinsson er fæddur 1926 að Gilhaga í Lýtings- staðahreppi, Skagafirði og er sonur Þorsteins Magnússonar og konu han's Önnu Jóseísdóííur. — Hann var einn vetur í Menntaskólan- um á Akureyri, en lauk próíi frá' Alþýðuskólanum á Laugarvatni vorið 1943. — Ilann er nú blaðamaður við Tímann. Indiiði G. Þorsíeinsson: SunmEcEagsnótt á Þorra Bleikfölur máni merlar glæra ísa. Mannvanur draugur upp á þaki gellur. Himinsins festing hiýjar stjörnur lýsa. Ilömluiaust blóð um þrútnar æðar svellur. Af nöktum fótum næturómar rísa og nakið hjú með syni bóndans fellur. Heitorðum anda ungar, rjóðar varir. Ástin er dýr um langar vetrarnætur. Bergvatnsá niðar viður votar skarir. Vinkonu síná huldupiltur grætur. Fótköld rjúpa á næsta naumu hjarir og nágeng tófa snapar frosnar rætur. Hryssurnar snua höm í norðanvindinn. Halarnir kúnna liggja niður í flórnum. Frosin er mýri og litla tæra lindin. Lagðsíðar kindur þvnnast undir bjórnum. Að morgni gleymist sælli meyju syndin, er séra Lárus blessar allt úr kórnum. í lífsins ólgusjó HANN mætti henni um kvöld, eftir að kveikt hafði verið á götuljósunum. Þeim varð gengið inn á Joe’s Bar. Og hann sagði: Við barmanninn: Te fyrir tvo tveir fyrir te. Við stúlkuna: Ég fyrir þig þú fyrir mig. Og hún leit á hann og tísti eins og fugi, sem er að leita að laufi í nefið. Og hún sagði: Æ æ æ kjútí pæ. Ekki löngu síðar dreymdi hana að hann kæmi og segði: Menn á sjó sjór á menn bíddú mín ástin fín. Og henni þótti sem’ún svar- aði: Æ æ æ kjútí pæ. Að ári liðnu var hún aftur stödd inn á Joe’s Bar og mælti upp úr ^einsmannshljóði: Ekki kemur hann enn. Hugleiðing barmanns á Joe’s Bar: Aldeilis er það undur hve ástin er lengi að fyrnast, einkaniega hjá þeim konum, sem búa á 45. hæð í húsi við 45. götu . í New York og vinna í skrif- \ stofu hjá The Livctime Point i Ltd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.