Morgunblaðið - 23.09.1953, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.09.1953, Qupperneq 1
16 síður ttttMaM 40. árgangur 215. tbl. — Miðvikudagur 23. september 1953. Prentsmiðja Morgunblaðsim Horfin fjölskylda Góð kjörsókn í dönsku kosníngunum í gær 135 kjördæmakosnir, 40 uppbótarþingtnenn Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. KAUPMANNAHÖFN, 22. .sept. — í dag var kosið til danska þjóð- þingsins. Er helzt að sjá, að kjörsókn hafi verið engu lakari nú, en við kosningar til þjóðþingsins í apríl í vor, en þá greiddu at- kvæði 88,8%. Veður var líka ákjósanlegt um mestan hluta lands. Atkvæðatalning fer fram í nótt. MANNSOFNUÐUR Á RÁÐHÚSTORGI Þegar leið á kvöld söfnuðust tugþúsundir Kaupmannahafnar- búa saman á Ráðhústorgi, þar sem stórblöðin sjá um fréttir af kosningunum. Einnig höfðu þau ráðið færa gamanleikara til að □- -□ Donald Mac Lean hvarf skyndilega í maí 1951 ásamt félaga sínum Burgess. Báðir voru þeir starfsX menn brezka utanríkisráðuneytisins. Nú er þessi atburður aftur á ailra vörum vegna hvarfs Melindu MacLean og barna hennar fyrir nokkrum dögum. Gizkað er á, að fjölskyldan haldi sig nú austan járntjalds. Hér sjást þau hjónin ásamt börnum sínum tveimur. Myndin er tekin, meðan fjölskyldan var enn óþekkt — og hamingjusöm. Kóreuráðstefnan þarf að koma saman sem fyrst Frá sfarfi Sameinuðu þjóðanna í gær Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. NEW YORK, 22. sept. — Allsherjarnefnd allsherjarþingsins felldi í dag tillögu Rússa um að taka til nýrrar umræðu, hvernig skipuð skuli stjórnmálaráðstefnan, er fjallar um Kóreumál. Tillagan hlaut ? atkvæði, en 11 voru á móti. HLUTLAUSU RÍKIN Visinskí tók fyrstur til máls í nefndinni. Lagði hann til að á ráðstefnunni fengju sæti fulltrú- ar hlutlausu ríkjanna, Indlands, Ipdónesíu, Pakistan og Burma. Væri það ósanngjarnt að tak- marka aðild að ráðstefnunni við þjóðir, er stríðið ráku, og Rússa. RÁÐSTEFNAN SJÁLF Bandaríski fulltrúinn Lodge lagðist gegn tillögunni. — Benti hann á, að þetta mál gætu aðilar ráðstefnunnar sjálfrar afgreitt, þegar hún kæmi saman. LÉTTA ÞARF STÖRF RÁÐSTEFNUNNAR Því næst lagði hann til, að full- trúar Bandaríkjamanna, Kín- verja og Norður-Kóreumanna ættu með sér fund til að létta störfum af ráðstefnunni. Nefndi hann San Fransiskó, Hónólúlú og Genf hugsanlega fundarstaði. — Einnig lagði Lodge áherzlu á, að veigamikið væri að vinda nú bráðan bug að ráðstefnunni. —- Brezki fulltrúinn í nefndinni fylgdi Lodge að málum. Pólskur biskup dæmd- ur é 12 úru lungelsi Árásir fullar hafurs og svikráða Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. LUNDÚNUM, 22. sept. — Varsjárútvarpið skýrir frá því í dag, að herréttur hafi dæmt pólska biskupinn Kaczmarek í 12 ára fangelsi. Sami herréttur dæmdi til fangelsisvistar 3 presta og nunnu. Lítið atvinnuleysi ÓSLÓ, 22/ sept. — Atvinnu- skýrslur sýna, að í endaðan ágúst voru um 934 þús. launþeg- ar í Noregi. Er það 16 þús. fleira en á sama tíma í fyrra. Af þess- um fjölda voru 4500 atvinnu- leysingjar, og er það svipaður fjöldi og um þetta leyti í fyrra. Njósnðflckkur afmáður BERLÍN, 22. sept. — Útvarp í Austur-Þýzkalandi skýrði frá því í kvöld, að komizt hefði upp um njósnarasamtök í Austur-Berlín og þau verið afmáð. Sagði út- varp kommúnista, að njósnararn- ir hefðu notið aðstoðar frá her- námssvæði Bandaríkjamanna. Evrópviher- inn tefst STRASSBORG, 22. sept. — í dag voru til umræðu utanríkismál í ráðgjafarsamkundu Evrópuráðs- ins. Fulltrúar Breta og Hollend- inga héldu því fram, að sú stefna, sem Rússar hefðu tekið upp að undanförnu í utanríkismálum, hefði tafið fyrir sameiginlegum vörnum Vestur-Evrópu, Evrópu- hernum. Jafnframt var lögð á það rík áherzla, að Vestur- Þýzkaland yrði að vígbúast, svo að landið geti lagt nokkuð af mörkum til sameiginlegra land- varna. Það var hyggja fundarmanna, að engin breyting hefði orðið á eðli rússnesku stjórnarstefnunn- ar, heldur væri skipt um tækni. T.a.m. var sýndartillaga sú, sem Visinskí bar fram um afvopnun á mánudag, í engu verulegu frá- brugðin þeim tillögum, sem Rúss ar hafa borið fram á undanförn- um allsherjarþingum. — Reuter-NTB. □- -□ Hreinsanír í ættlnndi Stnlins og Beríu HATUR OG FLARÆÐI KOMMÚNISTA Blað Páfagarðs, Observatore Romana, segir í forystugrein í dag, að málaferli þessi séu stór- pólskra kommúnista á kirkjuna eru fullar liaturs og svikráða“. Blaðið telur það furðulega fjar- stæðu að saka þetta fólk um njósnir, en þær voru sakargift- árás á pólsku kirkjuna. „Arásir irnar. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB. LUNDÚNUM, 22. sept. — Út- varpið í Tiflis í Georgíu, Rússaveldi, tilkynnti í dag, að Bakraze forsætisráðh. hefði verið leystur frá störfum. Jafn framt var aðalritari kommún- istaflokksins látinn sigla sinn sjó. EFTIR FALL BERIU Kunnugir segja, að hreins- anir þessar í Georgíu, séu af- leiðing af falli Beríu. Fráfar- andi forsætisráðherra hefir verið að kalla einvaldur í landi sínu síðan 1938 í skjóli Beríu. í ÞRIÐJA SINN EFTIR LÁT FORINGJANS í embætti forsætisráðherr- ans og aðalritarans veljast menn, sem óþekktir eru með öllu á Vesturlöndum. Þessi seinasta hreinsun í ættlandi þeirra Stalins og Beríu er tal- in benda til, að fylgismenn Beríu hafi nú verið kveðnir í kútinn fyrir fullt og allt. Hreinsanir þær, sem nú hafa verið gerðar í Georgíu, eru þær þriðju í röðinni eftir lát Stalins. hafa ófan af fyrir fólkinu meðan það beið. t I HVER TEKUR VIÐ STJÓRNARTAUMUNUM Fyrst og fremst skal nú fengið úr því skorið, hvaða stjórn situr að völdum næsta kjörtímabil, hvort jafnaðarmenn auka fylgi sitt nú eins og í kosningunum í vor. Sem stendur situr að völd- ur» samsteypustjórn íhalds- manna og Vinstriflokksins. f ÞINGMENN 179 Kosnir eru 179 þingmenn til þjóðþingsins. Þar af eru 175 kosn ir í Danmörku sjálfri, en 4 í Færeyjum og Grænlandi, sem nú telst ekki framar dönsk nýlenda. Eru 135 þingmenn kjördæma- kosnir, en uppbótarþingmenn eru, 40. Kjósendur eru um 2,7 millj. ÆSKUMENN FÁ KOSNINGARÉTT Að þessu sinni kjósa æsku- menn á aldrinum 23—25 ára fyrsta sinni í Danmörku, þar sem nú er kosjíS eftir nýjum kosninga lögum. Hefir kjósendum af þeim sökum fjölgað um 120 þús. síðan í vor. Eftir öllum sólarmerikjum að dæma hefir unga fólkið ekki látið sitt eftir liggja og kosið engu síður en aðrir kjósendur. Sáðustu fréitir UM lágnætti í nótt var langt komið atkvæðatalningu dönsku þingkosninganna. Jafn aðarmenn og Vinstri flokkur- inn höfðu unnið nokkuð á, en róttækir og íhaldsmenn tapað lítillega. Þá hafði og Réttar- sambandið tapað allverulegu og kommúnistar tapað nokkru atkvæðamagni, þó að gert væri ráð fyrir, að þingmanna- fjöldi þeirra yrði sá sami og áður. Ef svo fer sem þá horfði, verða úrslit þessi: Jafnaðarmenn 74 (71) Róttækir 14 (15) íhaldsmenn 30 (31) Vinstri fl. 42 (39) Réttarsamb. 6 (10) Kommúnistar 8 (8) Óháðir engan (nýr fl.) Þýzki minnihltuinn á Suðut Jótlandi 1 (1) Tölur þær, sem gefnar eru í svigum, gefa til kynna þing- mannafjölda flokkanna, e£ kjósendafylgi þeirra hefði vaX ið hlutfallslega við fjölgun þingsæta. En þeim fjölgar vegna nýju kosningalaganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.