Morgunblaðið - 23.09.1953, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.09.1953, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 23. sept. 1953 MORGUNBLÁÐIÐ ^J^venjjjó&in og, ^JleimifiÉ V# t „Orösin eru þuð hollasto, sem guð hefir gefið þessu lundi ® áí í MATJURTABÓK Eggerts Ol- afssonar, sem út kom árið 1774 segir: „Grösin eru það allra holl- asta, sem guð hefir gefið þessu landi“. Það er áreiðanlega mikið til í þessum orðum Eggerts og þau hljóta að vekja okkur til umhugs- unar um, hvort ekki sé skaði skeður, hve notkun þessa holla íslenzka jarðargróðurs til mann- eldis hefir lagzt niður frá fyrri tíð, er fjallagrösin voru ein aðal- fæða landsmanna. Sem betur fer eru samt til margar íslenzkar húsmæður, sem ekki hafa gleymt fjallagrösunum, þó að nóg sé af allskonar útlend- um grjónum og gerviefnum á markaðinum, sem hafa svo greini lega orðið vanrækslu þeirra vald- andi. Kvennasíðan hitti fyrir nokkr- um dögum að máli húsfreyju eina hér í Reykjavík, sem hefir hald- ið tryggð við fjallagrösin. Hún heitir Jórunn Kristjánsdóttir, Skagfirðingur að ætt og ólst upp á bænum Lambanesi í Fljótum í Skagafirði. Til Reykjavíkur flutt ist hún árið 1921 og hefir búið, hér síðan. GRASAFERÐIR í GAMLA DAGA „Mér finnst ég ekki geta án grasanna verið“ — segir frú Jór- unn — enda er ég líka vön þeim frá blautu barnsbeini. í gamla daga fyrir norðan var ætíð farið til grása fram i heiðar á vorin og drjúgur skerfur af grösum fluttur heim. Til grasaferðanna var ávallt hugsað með mikilli tilhlökkun og í þeim gerðust líka mörg aevintýri. — En er það engum vand- kvæoum bundið að komast á grasafjall hér í Reykjavík? — spyr ég frú Jórunni. — Auðvitað er það sínu auð- veldara nú en áður fyrr að kom- ast á grasafjall. Nú komumst við SkreySir sig sjálfur Reykvísk húsfreyja, frú Jórunn Krisfjáns- dótfir, hvetur íslendinga iil aukinnar Hann getur varla verið ein- faldari og óbrotnari, kjóllinn hér að ofan. Einmitt vegna þess er hann einstaklega fallegur og skemmtilegur. Háir hanzkar fara vel við hann — annars cru þeir alls ekki nauðsynlegir. Jórunn Kristjánsdóttir. á tveimur tímum, það sem áður tók tvo daga. GOTT GRASALAND VIÐ SKJALDBREIÐ Á sumrin, er fólk fer til berja ætti það að hafa hugfast, að upp- lagt er að snúa berjaferð upp í grasaferð, ef hann rignir, þar eð bezt er að típa grös í rigningu eða þegar jörð er vot. Með því móti væru tvær flugur slegnar í einu höggi. Það er til allgott grasaland í nágrenni Reykjavík- ur, t. d. Skjaldbreið, en þangað er innan við tveggja stunda akst- ur. — — Farið þér sjálfar til grasa? — Nú í seinni tíð læt ég bónd- ann um það að mestu. Hann fór nú fyrir nokkru með hópi af ferðafólki austur að Skjaldbreið og kom heim með steintroðinn hveitipoka af ljómandi fjallagrös um, senr hann hafði tínt á meðan ferðafélagar hans klifu fjallið. GRASATE GÓÐUR DRYKKUR — Og eruð þér ekki slyngar við að matbúa grösin? — Það þarf nú enga sérstaka lagni til, en ég matreiði þau á ýmsan hátt, helzt sem einfald- astan. Graságrautur og grasa- vellingur eru iðulega á borðum hjá mér og ágætt þykir okkur grasateið til drykkjar á morgn- ana og einnig til kvöldverðar. Ég helli á grösin alveg eins og venju legt te og nota mjólk eða rjóma- biand út í, eða eftir því, sem hver vill. Þetta er ljúffengur drykkur og á hollustu hans leikur enginn vafi. Einnig þykir mér ágætt að hafa fjallagrös í rúgkökur og rúgbrauð. Þá væti ég í deiginu með grösunum og seiðinu af þeim en geri brauðin annars á venju- legan hátt. HANDHÆGT NESTI Ég vildi sérstaklega vekja at- hygli þeirra, sem fara í fjalla- ferðalög, á þvi, að fyrirferðar- lítið og handhægt nesti er ljúf- feng súpa, gerð úr þurrmjóik, hrærðri út í vatni, fjallagrösum og dálitlu af púðursykri og salti. Þessi réttur er mjög góður hita- gjafi því grösin eru ákaflega auð ug af mjölva og öðrum bætiefn- um. Ég var um langt skeið mjög veil í maga og þykist ég hafa laeknað mig að miklu leyti með fjallagrösum. ÆTTU AÐ FÁST í HVERRI MATARBÚÐ — Er hægt að fá fjallagrös hér í verzlunum? . — í einstaka búðum eru þau fá anleg — alltoí óvíða samt. Yfir- leitt eru þap líka alldýr, 50 gr. á 4—5 krónur. Þetta þarf að breytast ,fjallagrös ættu að fást í hverri matvöruverzlun við sann gjörnu verði. Eins og nú standa sakir ætti grasaeklan og hið háa verð þeirra að hvetja fólk til að fara sjálft á grasafjall. Á fyrri öldum voru fjallagrös stórkostleg búdrýgindi á flestum eða öllum Framh. á bls. 11. Grasaréilir Fjallagrasagrautur. 2 1. mjólk 50 gr. fjallagrös. 70 gr. sagógrjón eða byggmjöl. s.alt eftir smejík. Fjallagrösin lögð í bleyti í kalt vatn næturlangt, síðan hreinsuð undir rennandi vatni. Þegar mjólkin sýður, eru þau, ásamt grjónunum eða mjölinu látin út í og hrært í þar til sýður aftur. Þá saltað. Soðið þar til grjónin verða* glær, um 20—30 mínútúr. Grautinn má borða heitan eða kaldan með, saft eða rjómablöndu. Grasa-saftbúðningur. 30 gr. fjallagrös, 3 dl. sæt berjasaft, 1 dl. vatn, 4 blöð matarlím, 2 eggjahvítur, 1 dl. rjómi. Grösin eru hreinsuð og þveg- in. Sjóðandi vatni helt á þau og látið kólna. Grösunum síðan hellt á sigti og vatnið látið síga af þeim, síðan söxuð allgróft. — Vatni og saft blandað saman og sett yfir hita. Þegar það sýður, eru grösin sett út í og soðin í fjórar minútur. Þá er matarlímið, sem áður hefir legið í bleyti í köldu vatni hrært saman við og látið kólna. Þegar þetta byrjar að hlaupa saman, er stífþeyttum eggjahvítum blandað gætilega saman. — Skreytt með þeyttum rjóma. Fjallagrasate. 15 gr. fjallagrös, 6—8 bollar sjóðandi vatn. , Lagað eins og venjulegt te. — Ketillinn hafður yfir gufu eða heitri plötu í 5—10 mínútur. •— Drukkið með mjólk eða rjóma- blöndu og sykri eftir smekk. ★ Fleygið ekki froðunni. Húsmæður! Fleygið ekki syk- urfroðunni af berjahlaupinu. Úr henni getið þér gert gott hlaup með því að setja hana í pottinn á ný og bæta í hana svo litlu af vatni og sjóða síðan þar til froðan leysist í sundur. Bætið þá svolitlum bita af smjöri út í og sjóðið áfram í 2—3 mínútur. Hellið leginum síðan strax í krukku og bindið yfir, meðan hann er heitur. arís á liáðuin áttum n París er á báðum áttum. — Myndin að ofan sýnir nokkur Parísa**- model vetrartízkunnar 1953—54. Við sjáum, að Dior er ekki einnt um hituna. — Knésiðu pilsunum er spáð vafasömum sigri. Hvernig börnin verila hamingjysöni Á HINNI síðustu svokölluðu „Hvíta hús ráðstefnu", sem hald- in var í Bandaríkjunuxn s. 1. vor var sett fram og rædd spurning- in: „Hvernig börnin verða ham- ingjusöm?" Spurningunni var svarað með eftirfarandi ráðleggingum, sem beint er til foreldra: 1) Verið róleg og örugg í fram- komu yðar gagnvart barninu. Jafnvel korhung börn finna það ótrúlega fljótt, ef for- eldrar þess eru óákveðnir og óstyrkir. 2) Eitt mikilvægasta atriðið er, að barnið finni, að það er elskað. Þó að það skilji ekki hið talaða orð, þá getur það samt lesið gleðina á andliti mömmu sinnar, það skynjar ást hennar í tónfallinu í rödd hennar, á handtökum henn- ar, á þvi, hvernig hún flýtir sér til að gefa því að borða þegar það er svangt og hugga það, þegar það grætur. 3) Verið sjálfum yður sam- kvæm. Barninu er nauðsynl. að vita við hverju það geti bú- izt af fo^'eldrunum. ^essvegna Nýjasta frá París. — Kjóllinn er úr grófu uUareíni, og fellur þétt að upp midir brjóstið. Húfan, hálsklúturinn og múffan eru úr sama efni, liðlegu „astrakan" eða öðru álíka. Hentugur bæði sem göngukjóll að haustlagi eða vetrarkjóll. er það rangt.að hlæja að Jóni lifla, þegar hann di'eifir lei^- föngunum sínum i allar átt- ir í dag og skamma hann sv© fyrir sama athæfi á morgun,: 4) Qefið bax-ninu t^ekifæri til að þroska sjálfsfæði sitt. LoflS því að rannsaka hlutina og reyna hæfni sína og getu gaj*ii vart hinum daglegu viðfangá- efnum. Forðist allar hömluiv nema nauðsynlegt sé að beita þeim, vegna öryggis barnsins sjálfs eða annarra. Takig alla hættulega og viðkvæma. hluti burt úr herberginu þajjr sem það er að leikjum sinuní, þannig, að ekkert sé að ótú ast eða hafa áhyggjur af. * 5) Takið tillit til persónuleiká Og vilja barnsins. Heirntið ekkí, að það geri skilyrðis- laust það sem þér viljið eðh álítið að það eigi að gera á. ákveðnum stað og stund. Ef það viil t.d. ekki borða nýjaft rétt, sem þér hafið útbúið. þ| stoínið ekki til styrjaldar i'tt af því. Bíðið heldur og reyrí- ið svo aft.ur í annað skipti. * Bregðist það illa við, el- þér setjið það í fyrsta skipt| á náttpottinn er hyggilegt að bíða eina eða tvær vikur ácí- ur en þér byrjið æfinguna | ný og það má vel vera, a§ nú gangi hún ágætlega. ; Hyllist til að velja yður lækni, sem er barngóður og verður ekki reiður og önujg- ur ef barnið er hrætt og erfitj. viðureignar. Til Öryggis er ráðlegt að látfr lækni slioða barnið af og til og bólusetja það, jafnskjótt og aldui- þess leyfir. Hamingjusöm bernska er grundvöllurinn að hamingju- sömum fullorðinsárum. TilfinnS- ingar smábarnsins gagnvart hin- um þrönga umheimi þess getur haft ótrúlega mikil áhrif á síð- ari afstöðu fullorðna mannsins gagnvart heiminum og tilver- unni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.