Morgunblaðið - 28.11.1953, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.11.1953, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 28. nóv. 1953 Goblin þvollavélarnar komnar. Kosta aðeins 1875.00. Goblin ryksupr Þrjár gerðir fyrirliggjandi. Vesturgötu 2 — Sími 80946. NAUÐIiNGARUPPBOD, sem auglýst var í 68., 71. og 73 tbl. Lögbirtingablaðsins 1953, á húseigninni Miklubraut 50, hér í bænum, eign Lúðvíks Guðmundssonar o. f 1., fer fram eftir kröfu bæj- argjaldkerans í Reykjavík o. fl. á eigninni sjálfri föstu- daginn 4. desember 1953, kl. 2,30 síðdegis. Uppboðshaldarinn í Reykjavík. ■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■ Afgreiðslnstarí Rösk, ábyggileg stúlka, óskast í sælgætisbúð, (vaktaskipti). — Uppl. milli kl. 10—1 í \Jeitincfciitoj-unni ^JÍJÍon Aðalstræti 8 Bursfasett hentug til jólagjafa tekin upp í dag. ER0S HAFNARSTRÆTI 4 — SÍMI 3350. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ NAUDUNGARUPPBOD sem auglýst var í 74., 76. og 77. tbl. Lögbirtýigablaðsins 1953 á hluta í eigninni nr. 45 við Flókagötu, hér í bæn- um, eign Stefáns A. Pálssonar, fer fram eftir kröfu Sigurgeirs Sigurjónssonar hrl. á eigninni sjálfri miðviku- daginn 2. desember 1953 kl. 2,30 síðdegis. Uppboðshaldarinn í Reykjavík. AÐALFUMDUR Byggingasamvinnufélagsins Hofgarður, verður haldinn í Baðstofu Iðnaðarmanna, þriðjudaginn 1. des kl. 8,30 e. h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN 9? PREMIEB u MAYONNAISE, 24x8 únsu glös. \ m Nýkomið. ' ■ ■ ■ JJJc^c^et't ^JJriótjánóóon Js? (Jo. \ ÞÝZKIR FORDBlLAR vðkja afhygli Þýzkir Fórdbílar, sem nefnast Taunus, hafa á þessu ári vakið alheimsathygli. Sérstaklega hefur þeirra þó verið getið í sambandi við fjögur kappakstursmót, sem haldin hafa verið í Suður-Evrópu í sumar. Á alþjóða austurríska kappakst ursmótinu, þar sem keyrt er 1600 km leið af tveim ökumönnum og tekur um tvo daga í allt, vann Taunus ein af þrennum gullverð- launum. Leið sú sem farin er í keppni þessari, er ein sú hættu- legasta í Evrópu, enda gafst helmingur þátttakendanna upp. Þá vann eini Taunus-bíllinn sem þátt tók í mótinu, júgóslav- neska Adria kappakstursmótið, en þetta er í annað skipti, sem það fer fram. Vegalengdin frá Bled til Sarajevo er 650 km, en af þeirri vegalengd eru um 455 km moldar- og sandvegir. Taunus bíllinn vann þarna tvöfaldan sig- ur. Hann ók alla vegalengdina á skemmstum tíma, en auk þess er kafli á veginum, sem kallast „Looben-vegurinn“ og er um 23.5 km, og er það jafnan sér- stakur þáttur í keppni þessari að fara þá vegalengd á sem skemmstum tíma. Taunus-bíllinn setti nýtt met á Looben-veginum að þessu sinni. í þriðja alþjóðlega Trave- múnde-kappakstursmótinu vann Taunus de Luxe 1. verðlaun. Auk þess unnu þrír Taunus- bílar einu flokksverðlaunin, sem veitt voru á móti þessu. Veðurskilyrði voru mjög slæm þegar keppnin fór fram, látlaus rigning og illsku veður. Aðeins 23 bílar luku keppninni, en 36 voru með í byrjun. Að lokum skal geta áttunda alþjóða lögreglukappakstursins í Basel í Sviss. Alls tóku þátt í þessari keppni 184 bílar frá 7 þjóðum. Keppnin er stigakeppni, og tryggði lögreglan í Köln í Þýzkalandi sér öruggan sigur á Taunus-bíl með 7218 stigum, en þeir næstu fengu 5636 stig. Vega- lengdin, sem ekið er, er 10669 km, og var meðalhraði Kölnar- lögreglunnar um 70 km á klst. og er þar þó reiknað með öllum töfum vegna tafa við eftirlit, benzíntöku, sprungin hjól o. s. frv. Þetta er í fyrsta skipti sem útlendingar (þ. e. aðrir en Sviss- lendingar) vinna þetta mót. — Verðlaun fyrir kappakstur þenn- an eru forkunnar fögur og gefin af borgarráði Basel-borgar. Árangur sá sem hér hefur náðst, og þó sérstaklega á hinum afleitu júgóslavnesku vegum, bendir ótvírætt til þess að þessir bílar geti gefið góða raun hér á landi, en til þessa hafa þeir ekki fengizt innfluttir. Þó mun von nokkurra bíla á næstunni. Um- , boðsmenn Taunus-bílanna eru Kr. Kristjánsson h.f., Laugaveg 170. — Sjá ennfremur mynd af Taunus sendiferðabíl og station- vagni á öftustu síðu blaðsins í dag. — Augl. — 0- W- " ÞVEGILLBIMN verður ávallt vinsæl jólagjöf! Útsala í Reykjavík: 6 Bfry j/mH ARMSTOLAR frá kr. 950,00. GESVABORD (innskotsborð) kr. 295,00 sík. Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar. Gretlisgötu 6. — Sími 80117. 9 Samkvæmiskié Austurstræti 6 — Laugaveg 116. Bezt að auglýsa í MorgunblaðÍDu - Gott starf Félags aesífir/kra kvemia ENN einu sinni minnir Félag aust firzkra kvenna á bazarinn sinn sem haldinn verður 2. des. n. k. og rennur allur ágóði af honum í styrktar- og sjúkrasjóð félags- ins. Verður öllum ágóða, eins og margir vita, varið til að gleðja á einhvern hátt þá Austfirðinga sem hér dveljast í sjúkrahúsum um jólin, svo og aðra þá Aust- firðinga sem hér dveljast um lengri eða skemmri tíma, vinafá- ir og farnir að heilsu. Hefur fé- lagið einnig getað veitt sjúkum og bágstöddum Austfirðingum ör lítinn fjárhagslegan stuðning fyr- ir jólin, og hefur þessi starfsemi fallið í góðan jarðveg, því að víða hefur skórinn að kreppt. ★ Félag austfirzkra kvenna er nú orðið 10 ára. Það var stofnað 2. janúar 1942 og eru nú í því yfir 140 félagskonur. Frú Guðrún Vilhjálmsdóttir hefir verið form. félagsins frá upphafi. — Auk ýmiss konar skemmtana sem fél- lagið hefur efnt til fyrir félags- konur sínar og gesti þeirra hef- ur það á vori hverju gengst fyr- ir skemmtikvöldi aldraðra aust- firzkra kvenna sem dveljast hér í bæ, og hafa þar verið saman komnar sem gestir félagsins yfir 60 konur. Eru samkomur þessar hinar skemmtilegustu, gömlu kon unum til mikils yndis og gleði- auka og félaginu til hins mesta sóma. Þess má og geta, að félagið safn ar nú fyrir einu herbergi í stór- hýsi Hallveigarstaða sem senn á að rísa hér í bæ, en sá þáttur sem mikilvægastur er í félagsstarf- seminni er jólaglaðningurinn og styrkurinn við sjúka, sem fyrr er getið. Er þessi starfsemi félags- ins öðrum átthagafélögum til eftirbreytni, enda er hún mjög vinsæl og sannarlega ekki fyrir gíg unnin. Geta þeir bezt um það dærfit, sem hjálpað hafa aust- firzku konunum að koma jóla- glaðningnum til viðtakenda. — Hér eiga við orð Einars Benedikts sonar er hann segir: Það smáa er stórt í harmanna heim.. Á fyrsta starfsári félagsins höfðu félagskonur ekki yfir að ráða nema um 3000 krónum til fyrr nefndrar starfsemi.. Síðan hefur þessi upphæð hækkað til muna fyrir tilstyrk góðra manna sem sótt hafa bazar félagsins eða styrkt það á annan hátt og á síð- ustu árum hefur félagið úthlutað um 7000—8000 krónum fyrir jól- in, svo að nú eru þeir- örðnir á annað hundrað sem njóta góðs af þessari mannúðarstarfsemi þess á hverju ári. Má þess einnig geta, að félagið hefur nú úthlutað yfir kr. 50 þús. til sjúkra og bág- staddra síðan það tók til starfa. En það sem mestu máli skiptir er vitanlega, að ánægjan er gagn- kvæm, þeirra sem eru gefendur og hinna sem eru þiggjendur. Að lokum heiti ég á alla sem tök hafa á, að styrkja austfirzkar konurnar nú sem endranær í hinu góða og göfuga starfi þeirra og iáta nokkuð af hendi rakna til fyrr nefndrar starfsemi þeirra fyr ir jólin. Vil ég því viðvíkjandi benda á bazarinn sem verður 2. des. n.k. J. Röðull með um 230 lonn HAFNARFIRÐI: — Togarinn Röðull kom af karfaveiðum í gær og var hann með um 230 tonn. — Nú mun líða að því, að bátarn- ir fari að stunda línuveiðár. Mun vélbáturinn Hafbjörg reyna með línu einhvern næstu daga. — Að undanförnu hafa bátarnir verið hreinsaðir og lagfærðir fyr ir vertíðina. — G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.