Morgunblaðið - 10.02.1954, Qupperneq 1
41. árgangur.
33. tbl. — Miðvikudagur 10. febrúar 1954.
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Berlínarfynd'jrinn:
IVIolotov talar jafn digur-
barkalega og áður
Engum dylsl lengur skrumhlutverk hans
Einkaskevti til Mbl. frá Reuter-NTB
BERLÍN, 9. febr. — Bilið milli austurs og vesturs var jafnbreitt
og áður í dag er utanríkisráðherrar fjórveldanna höfðu lokið 14.
fundi sínum. Franskur talsmaður skýrði blaðamönnum þó svo frá,
að Molotov hefði skýrt samstarfsmönnum sínum svo frá að hann
myndi á miðvikudag leggja fram enn nýja áætlun er TRYGGÐl
öryggi Evrópu!!
Lokaður fundur í dag
Talsmaðurinn skýrði og frá því, að utanríkisráðherrarnir
hefðu komið sér saman um það að halda lokaðan fund á
fimmtudaginn og ræða þá 1. dagskrármál ráðherrafundarins:
Spennan í alþjóðamálunum og tillögu Sovétríkjanna um að
efna til fimmveldafundar með þr.tttöku Kínverja.
MOLOTOV TALAR <
DIGURBARKALEGA
Molotov hélt ræðu á 14. fund-
invm, sem haldinn var í dag. Hélt
hann því enn fram að Evrópu-
herinn og endurvopnun Þýzka-
lands myndu leiða til nýrrar
styrjaldar í Evrópu. Molotov
kvað Rússa tilbúna með uppkast
að friðarsamningum við Þjóð-
verja, og taldi að ráðherrar
Vesturveldanna gætu nú ekki
dregið lengur að taka ákveðna
afstöðu til þess máls!!!
Talsmaður Frakka skýrði svo
frá, að utanríkisráðherra Vest-
urveldanna vildu halda fyrsta
fundinn um 3. dagskrármálið, sem
er friðarsamningar við Austur-
ríki, á föstudag. í sambandi við
það er Figl, utanríkisráðherra
Austurríkis, kominn til Berlínar.
Verður hann viðstaddur umræð-
urnar.
LÍTIL VON UM
SAMKOMULAG
Utanríkisráðherrar Vestur-
veldanna voru orðfáir. DuIIes
kvaðst engu hafa við að
bæta það sem hann í sínum 5
ræðum á fundinum hefði sagt
um Þýzkalandsmálin. Bidault
og Eden kváðust vantrúaðir
á, að ráðherrarnir myndu
komast að samkomulagi um
Þýzkalandsmálin úr þessu.
Síðasta vonin er þó samt lok-
aði fundurinn á morgun, en
þá tala ráðherrarnir um mál-
in á annan hátt, en frammi
fyrir hópi blaðamanna og
annarra.
Páfinn á fótum
RÓMABORG, 9. febrúar — Páf-
inn átti rólega nótt og hefur nú
getað nærzt og átti stutta fóta
Rússar
eigu
atomvopn
• MOSKVU og;LUNDÚN-
UM, 9. febr. — Rauði herinn
hefur nú þegar yfir að ráða
atomvopnum af ýmsum gerð-
um, herma áreiðanjegar heim-
ildir í Moskvu.
• Voru þessi nýju vopn
reynd á heræfingum er fram
fóru í Vestur-Russlandi nú
nýlega.
• í Lundúnum var frétt
þessari tekið með nokkrum
efasemdum, en bent á, að
langt væri síðan - að Rússar
hefðu hafið tilraunir við fram
leiðslu slikra vopna.
— Reuter-NTB.
Astralskar
konur tryllast
LISMORE, 9. febrúar- — Margar
konur særðust í þrengslum þeim
er urðu úti fyrir Gollen Hotel í
Lismore í Ástralíu í dag. Þar
ist í dag. Hann tók einnig á móti hafði mikill skari kvenna safn-
trúnaðarmönnum Vatikansins og azt saman til að hylla Elizabetu
ræddi kirkjunnar mál. | Bretadrottningu og hertogann af
Tilkynnt var í Róm í dag að Edinborg. Lögregluvörður var
páfinn hefði aldrei verið í lífs-
hættu, en lasleiki hans Og lítið
mótstöðuafl hefði þó orsakað
mikinn kvíða meðal hans nán-
ustu. —Reuter-NTB.
við hótelið en hann fékk við
ekkert ráðið er drottningin birt-
ist á svölunum — svo trylltar
voru hinar áströlsku konur.
—Reuter-NTB.
rímerkið sem 1849 kostaði
1 penny var sell á 959 pund
áðelns 10 slík eru lil í heiminum
LUNDÚNUM, 9. febr. — Frímerki hafa löngum verið eftirsótt —
svo eftirsótt, að nízkir auðkífingar hafa jafnvel opnað gullkistur
sýnar til að komast yfir þau. Nýlega var 'eitt slíkt frímérki á ferð-
inni í Lundúnum. Það var selt á uppboði fyrir 950 sterlingspund.
Það var gefið út 1849 af póstmeistaranum í Hamilton á Bermuda.
Það kostaði þá 1 lítið penny.
HIÐ SNJÁÐA FRÍMERKI íheiminum í dag.
Uppboðshaldarinn sló í borðið j 950 punda greiðslan er sú
og hr. Mikle, kaupandanum, var hæsta, sem nokkru sinni hefur
Hjón sg bern þeirra
bíða bana
KALMAR, 9. febrúar — Fjöl-
skylda, hjón með son sinn, beið
bana í dag er árekstur varð milii
bifreiðar og járnbrautar í grend
við Kalmar í Svíþjóð. Slysið
vildi til þar sem akvegur og
járnbrautarspor skerast. —NTB.
09
auglýsingar
STOKKHÓLMI, 9. febrúar —
Sænskt útvarpsfirma hefur í
hyggju að koma upp fljótandi út-
varpsstöð á Eystrasalti á sumri
komanda. — Stöðin verður utan
hinnar þriggja mílna landhelgi
Svía og áformað er að hún út-
varpi iéttri og skemmtilegri tón-
list og auglýsingum. —NTB.
afhent askja með frímerkinu í,
gegn 950 punda greiðslu. Þegar
kaupandinn opnaði öskjuna, sá
hann dökkbrúnt nærri hringlótt
frímerki. Það var í upphafi hvítt.
Á því voru prentuð orðin: Ham-
iRon — Bermuda. Frímerkið
var snjáð, svo að stafirnir B og e
í Bermuda voru brott máðir. Á
miðju merkinu var tímatalið:
1849 og fyrir neðan það áletr-
unin: 1 penny og undirskrift
póstmeistarans.
verið greidd fyrir pennymerki.
Það sem áður hefur verið dýr-
ast selt var selt á 450 pUnd. Það
var árið 1934. — Hr. Milke tókst
naumiega að yfirbjóða bandarísk-
an kaupenda, sem á uppboðinu
var.
Norrænir ráðherrar
á fundi
KAUPMANNAHOFN, 9. febrúar
— Fræðslumálaráðherrar Norð-
10 SLIK MERKI |
Það var árið 1846, sem póst-
meistaranum á Bermuda var t urlandanna áttu í dag fund með
heimilað að taka gjald af hverju ' miðstjórn Norðurlandaráðsins í
bréfi. Hann hafði 70 pund árlega j Kaupmannahöfnf Var rætt um
í laun og átti auk þess að fá 1 norrænan alþýðuháskóla svo og
penny í þóknun fyrir hvert bréf ! um samvinnu á sviði vísinda og
er hann kom til skila. Hann bað ! samvinnu um vísindalegar rann-
bréfsendendur að setja penny sóknir, sérstaklega hafrannsókn-
með hverju bréfi í kassann. En
skjótt komst hann að raun um,
að í kassanum voru fleiri bréf
en pennypeningar.
Svo að hann ákvað að útbúa
sín eigin frímerki, sem hann
seldi hverjum þeim, sem vildi
póstleggja bréf. Þessi frímerki
hans eru nú mjög sjaldgæf. —
Munu aðeins 10 slík vera til í
ír.
-NTB.
HVER ER TILGANGURINN?
VÍNARBORG, 9. febrúar—Tveir
bandarískir blaðamenn sem þátt
tóku í iblaðamannaráðstefnu í
Bano í Tékkóslóvakíu, hafa beð-
ið vistar þar sem pólitískir flótta-
menn. ■—NTB.
Þýzkt félag mun kvik-
mynda Morgumi lífsins
ÆHa að Ijúka kvikmyndalöku á ikáldverki
Kristmanns Guðmundssonar á þessu ári
ÞÝZKT kvikmyndafélag hefur gert samning við Kristmann Guð-
mundsson rithöfund um að kvikmynda skáldsögu hans, „Morgunn
lífsins“. En sú skáldsaga Kristmanns var nýlega gefin út í Þýzka-
landi í ennþá nýrri útgáfu og hefur hlotið miklar vinsældir.
SAMNINGAF.
UNDIRRITAÐIR
Það er þýzka kvikmyndatöku-
félagið Greven í Dússeldorf, sem
hefur ákveðið að gera kvikmynd
þessa. Hafa samningaumleitan-
Kristmann Guðmundsson, höf-
undur skáldsögunnar Morgunn
lífsins.
ir staðið yfir að undanförnu og
voru endanlegir samningar und-
irritaðir nú um helgina.
KVIKMYNDAÐ f SUMAR
Félagið hyggst * ljúka kvik-
myndatökunni fyrir árslok og
mun flokkur þýzkra kvikmynda-
tökumanna koma hingað í
vor, til að kvikmynda ýmis atriði
sögunnar í íslenzku umhverfi.
STÓRBROTIÐ
SKÁLDVERK
„Morgunn lífsins" er meðal
fegurstu og stórbrotnustu skáld-
verka Kristmanns Guðmundsson-
ar. Hún hefur hlotið miklar vin-
sældir hér á landi, ekki sízt þeg-
ar höfundurinn las hana upp sem
framhaldssögu í útvarpið fyrir
nokkrum árum. Er því óþarfi að
rekja efni skáldverksins hér'.
250 ÞÚS EINTÖK í
ÞÝZKALANDI
Skáldsagan hefur einnig hlot-
ið mikið lof í Þýzkalandi. Þar
var hún fyrst gefin út árið 1934
en síðan hafa fleiri útgáfur kom-
ið út og nú síðast var hún gefin
út í handhægri vasabókarútgáfu
fyrir almenning af Goldmans
Taschenbúcher. En alls mun
„Morgunn lífsins“ hafa komið út
í kvart milljón eintökum. Er ekki
ólíklegt að hin síðasta útgáfa hafi
orðið til þess að vekja eftirtekt
kvikmyndafélagsins á þessu stór-
brotna og sérkennilega íslenzka
skáldverki.
ÞEKKTUSTU
RITHÖFUNDARNIR
Margar aðrar af skáldsögum
Kristmanns hafa komið út í
þýzkri þýðingu, svö sem Lamp-
inn, Ströndin blá, Brúðarkjóll-
inn, Bjartar nætur, Helgafell,
Börn jarðar og Góugróður. En
þeir Kristmann Guðmundsson,
Gunnar Gunnarsson og Jón
Sveinsson (Nonni) eru kunnast-
ir íslenzkra rithöfunda í Þýzka-
landi.
Frakkar búast nú til
varnar í Luang Prabang
yppreisnarnienn fæpa 20 km frá borginni
LUANG PRABANG, 9. febr. — 308. herdeild Viet-Minh uppreisn-
armannanna í Indó-Kína sótti í dag enn fram í áttina til hihnar
gömlu konungsborgar, Luang Prabang í Laos. Á sama tíma hófu
uppreisnarmenn skæruhernað í norðurhluta landsins, sýnilega í
því augnamiði að veikja varnir borgarinnar. Framverðir upp-
reisnarmanna eru nú innan við 20 km frá Luang Prabang, en þeir
munu nokkrum dagleiðum á undan aðalhernum. — Herlið Frakka
og borgarar í Luang Prabang búast til varnar eftir beztu getu.
Sendur í skyndi fil iBido-Siína
Varnarmálaráðherra Frakka, Pleven, er kominn til Saigon.
Hefur hann fengið víðtæk völd í hendur frá frönsku stjórninni
í því skyni að afla réttra upplýsinga um ástandið í Indó-Kína.
IIVAD GERIST?
Sumir telja að uppreisnarmenn
muni ekki hefja lokaárásina á
borgina að svo stöddu, vegna
þess að þeir vita ekki um mátt
varnarhersins, þar sem hann hef-
ur alltaf hörfað án þess að leggja
til orustu. En einnig má telja
líklegt, að geri þeir ekki árásina
þegar í stað, minnki líkurnar fyr-
ir því að þeir nái henni á sitt
vald.
Wilson, landvarnaráðherra
Bandaríkjanna hefur látið þá
skoðun sína í ljósi, að Frakkar
muni sigrast á óvininum í Indó-
Kína.