Morgunblaðið - 10.02.1954, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. febrúar 195'3
Deiluiini út af færeysku
sjómönnunum skolið til
f élagsmálaráðunev tisins
< TOGARAÚTGERÐARFYRIR- ’
TÆKIN Marz og Júpiter, hafa
ekotið deilumáli sínu og stjórnar
Sjómannafélagsins til félags-
málaráðuneytisins til lausnar.
Sem kunnugt er hefur stjórn
Sjómannafélagsins tilkynnt að
hún muni neita að samþykkja að
Færeyingar verði ráðnir á togara
sem gerðir eru út héðan frá
tteykjavík.
<3ERIR GREIN FYRIR KRÖFUM
SJÓMANNAFÉLAGSINS
í bréfi sínu til ráðuneytisins,
víkur framkvæmdastjóri fyrir-
tækjanna, Tryggvi Ófeigsson,
Wiáli sínu að kröfum þeim sem
stjórn Sjómannafélagsins setti
fram, er hún neitaði að sam-
fjykkja ráðninguna varðandi
hækkun á kaupi, skattaívilnanir.
Varðandi kauphækkunina segir í
hréfinu, að samningsaðilar séu
heildarsamtök togaraeigenda. —
Um skattaívilnanir geti fyrir-
■tækið ekki haft nein áhrif heldur
löggjafarsamkoman. — Síðan seg
ir svo:
Ekki koma önnur atriði fram
í bréfinu sem rök fyrir synjun
_J5jómarinafélagsins, en hún mun
þíó áreiðanlega valda öllum hlut-
aðeigendum miklu tjóni og eng-
■um verða til gagns.
KAUPIÐ VIRÐIST EITT
EKKI NÆGJA
Enda þótt kaupið væri hækk-
■að til samræmis við það, sem ný-
lega hefur verið umsamið á báta-
flotanum, er það engin sönnun
fyrir því, að nægjanlega margir
menn rnuni fást á skipin. Kaupið
heftr verið hækkað á bátaflot-
anum og þó hafa ekki fengizt
nægnega margir menn á bátana,
og einmitt verið leyft að ráða
þangað Færeyinga. Ef samræmi
væri í hlutunum, sýndist það
vera íéttara að láta Færeyinga
vxnna á togurunum, en banna
þeim vinnu á vélbátunum, þar
sem kaupið er talið hærra, sé
það ædunin að gæta hagsmuna
íslenzkra sjómanna.
VEIGAMESTA ÁSTÆÐAN —
TOGARARNIR SIGLA EKKI ÚT
Það er álit okkar, að veiga-
mesta ástæðan til þess að sjó-
mepn fást ekki á togárana sé
sú, að nú veiða þeir fyrir heima-
markað, en sigla ekki. í því sam-
bandi má benda á, að á verzl-
unarskipaflotanum er aldrei
mannahörgull og er þó kaupið
þar langt um lægra en á togur-
unum og lægra en í landi. Ef til
vill stafar þetta að einhverju
leyti af hlunnindum, sem menn
geta skapað sér með því að sigla.
Að lokum hljóðar bréfið svo:
SLÆMT ÁSTAND
Hinu háa ráðuneyti hlýtur að
vera kunnugt um, að margir
togarar utan af landi og úr
Reykjavík hafa orðið að sigla
Framh. á bls. 12
Ávarp
frá fjáröfðunarnefnd Háfðiyssafna^ar
JMEÐ STOFNUN Háteigsprestakalls hlaut það að verða óhjá-
kvæmileg nauðsyn fyrir söfnuðinn að reisa sér kirkju svo fljótt
*em tök yrðu á. Kirkjulíf og safnaðarstarf byggist á því, að með
byggingu kirkju séu þau ytri skilyrði fyrir hendi, sem hverjum
söfnuði eru nauðsynleg. Án kirkju getur enginn söfnuður verið.
Starfið er margt að vísu og margar þarfir. En minnumst hans,
sem sagði: „Eitt er nauðsynlegt". Vér höfum tekið við dýrmætum
-arfi kirkju og kristni. Það er vort að varðveita hann og ávaxta
*til heilla hinni uppvaxandi æsku og komandi kynslóð. Vinnum
•að því, að áhrifamáttur Krists megi göfga líf einstaklinganna og
helga heimilin í þessum söfnuði.
Kirkjulóð er fengin á fögrum og ákjósanlegum stað á horni
Háteigsvegar og Nóatúns. Fjársöfnunarnefnd er tekin til starfa.
Hefir hún þegar ráðið að leita nú til safnaðarmanna um fjárfram-
lög til hinnar fyrirhuguðu Háteigskirkju.
Gerir nefndin ráð fyrir, að fjársöfnuninni verði þannig hagað,
.að þess verði óskað, að hver einstakur safnaðarmaður, 16 ára og
ældri, konur og kerlar, heiti einhverju tilteknu framlagi og greiði
t>að eftir hentugleikum sínum, annað hvort í einu lagi eða með
árlegri greiðslu eða með því að greiða ársfjórðungslega næstu 3 ár.
Ef gert væri ráð fyrir því, að safnaðarmenn, sem leitað er til,
legu fram að meðaltali 100 krónur á ári í næstu þrjú ár, væri
kirkjubyggingarmálinu vel borgið. Fjáröflunarnefndin vill því
íara þess á leit vvð yður, að þér útfyllið viðfest eyðublað, tiltakið
é því framlag yðar til kirkjubyggingarinnar og undirritið það með
jnafni yðar og heimilisfangi.
Innan skamros mun fólk úr söfnúðinum fara um prestakallið á
•vegum fjáröflunarnefndar og vitja eyðublaðanna og þess fram-
lags, sem lofað er á þessu ári, eða hluta þess. Þeir, sem þess óska,
£eta einnig komið eyðublöðum ásamt framlagi sínu til einhvers
af undirrituðum nefndarmönnum eða til sóknarprestsins, séra Jóns
í»orvarðarsonar.
Ákveðið er, að gerð verði vönduð bók, er geyma skal nöfn þeirra,
íem með fjárframlögum sínum vinna að byggingu kirkjunnar.
Benda má á það, hversu mikinn áhuga og lofsverða fórnfýsi
■nargir söfnuðir landsins, sumir þeirra mjög fámennir, hafa sýnt
■við byggingu kirkna sinna. Með áhuga og sameiginlegu átaki mun
kirkjubyggingarmál Háteigssafnaðar einnig leysast farsællega.
Vmnum samhuga að góðu málefni. Þorbjörn Jóhannesson Bjarnþóra Benediktsdóttir
ff' Flókagötu 59. form. sóknarnefndar. Mávahlíð 6. Erlendur Einarsson
Eggert P. Briem Bólstaðarhlíð 3.
, Flókagötu 29. Halldóra Sigfúsdóttir
1 Y>; Guðbjörg Birkis Flókagötu 27.
l l. Barmahlíð 45. Pétur Sæmundssen
T Íí ,4 J, Jónas Jósteinsson Bólstaðarhlíð 11.
Mávahlíð 8. Svanhildur Þórðardóttir
Stefán A. Páisson Háteigsvegi 18.
< Flókagötu 45.
Hljémsveit George Howard
í annað sinn hér á iandi
UM NÆSTU helgi er væntanleg hingað til lands stór hljómsveit
á vegum bandaríska flughersins. Hún mun halda hér tónleika
næstkomandi mánudags- og þriðjudagskvöld í Þjóðleikhúsinu. —
Komið getur til mála að hún haldi þriðju tónleikana á miðvikudag
kl. 4, en ekki er vitað með vissu hvort úr því getur orðið, þar sem
hljómsveitin fer héðan aftur á miðvikudagskvöld.
í bæjarráði í gær
FYRSTI fundur bæjarráðs &
þessu kjörtímabili var haldinri I
gær. Var fyrst kjörinn formað-
ur og var Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri kjörinn formaðui?
bæjarráðs. Ritari var kjörimí
Magnús Ástmarsson. Aðrir 2
bæjarráði eru: Auður Auðuns,
Geir Hallgrímsson, Guðm. H.
Guðmundsson og Guðm. Vigfús-
son.
Eins og kunnugt er kom hing-S*
að um sama leyti í fyrra hljóm-
sveit frá bandaríska flughernum
og hélt fjóra tónleika við geysi-
lega hrifningu og aðsókn, en sú
hljómsveit var að mestu skipuð
blásturshljóðfærum og voru í
henni 75 menn.
Sleppur hvað effsr annað úr
greipum tollvarðanna
STÆRSTA HLJÓMSVEIT,
SEM HÉR HEFIR KOMIÐ
Að þessu sinni kemur aðeins
Va hluti þeirra hljóðfæraleikara,
sem hér voru s. 1. ár. Hinn hlut-
inn er að mestu skipaður strengja
hljóðfærum, en alls eru 84 menn
í hljómsveitinni, auk stjórnanda
og einsöngvara. Einnig eru með
í ferðinni tveir hörpuleikarar, en
það er alger nýjung að heyra hér
leikið á hörpu.
George Howard offursti.
SAMI STJÓRNANDI
OG í FYRRA
Stjórnandi hljómsveitarinnar
er sá sami og í fyrra, George S.
Howard offursti. Auk þess, sem
hann er aðalstjórnandi þessarar
hljómsvoitar er hingað kemur,
hefur hann á hendi yfirstjórn
allra tónlistarmála bandaríska
flughersins, en innan hans starfa
milli 90—100 smærri og stærri
hljómsveitir víðsvegar um heim-
inn.
Tveir einsöngvarar eru með
hljómsveit.inni, þeir sömu og í
fyrra, William Jones bariton og
William DuPree tenor. Einnig
mun Guðmundur Jónsson syngja
með henni.
FJÖLBREYTT EFNISSKRÁ
Allt eru það vandaðar tónsmíð-
ar sem fluttar verða og er sér-
stök efnisskrá fyrir hverja tón-
leika. Af hljómsveitarverkunum
má nefna sinfóníu í D-moll eftir
César Franck, Scheherazade og
Capriccio Espagnol eftir Rimsky
Korsakov, „Nótt á Nornastóli“
eftir Moussorgski, Elddansinn
eftir De Falla, Svaninn frá Toun-
ela, einleikslag á „Enskt horn“
eftir Sibelius, forleiki eftir Cop-
land, Thoka (Mignin) og Johan
Strauss (Leðurblakan). Enn-
fremur Sögur úr Vínarskógi eft-
ir Strauss.
ÁGÓÐINN RENNUR TIL
S. í. B. S.
Björn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Tónlistafélagsins, skýrði
blaðamönnum í gær frá komu
hljómsveitarinnar. Tónlistafélag-
ið mun annast undirbúning að
komu hennar. Ágóði tónleikanna
mun renna til S.Í.B.S. Ekki hefur
verið ákveðið ennþá verð á að-
göngumiðum, en verðinu mun
verða stillt mjög í hóf. Að þessu
sinni verða ekki neinir sérstakir
tónleikar fyrir styrktarmeðlimi
Tónlistafélagsins. Tónleikar þess-
ir eru opinberir.
LÖGREGLA og tollverðir Noregs, Svíþjoðar og Danmerkur hafai
haft ærið viðfangsefni síðastliðna daga, en viðfangsefni þeirra I
þetta sinn er að klófesta finnska smyglara, sem hafa með séu
12.000 lítra af áfengi og liggur sterkur grunur á því að þeir muni
ætla að koma áfenginu á land á einhverju Norðurlandanna.
Það er finnski fiskikútterinn
„Ari“, sem er með áfengið innan-
borðs. En hann fór frá Hollandi
fyrir nokkrum dögum síðan, og
eftir því sem tollskýrslur í Rott-
erdam herma, þá er farmur skips
ins aðallega áfengi eða 12.00 1.
KOMUST FRAM IIJÁ
LANDHELGISGÆZLUNNI
Kútter þessi hefur vakið illan
grun hjá landhelgisbátum Svía
og Dana í Eystrasalti nú fyrir
nokkru. Kútterinn var á sveimi
um Eystralsalt, en fór hvorki inn
á danska né sænska höfn. Af
þessu háttalagi drógu varðbátarn
ir þá ályktun að finski kútterinn
mundi hafa ólögmætan varning
um borð og þá helzt áfengi. En
þar sem kútterinn hélt sig utan
við landhelgi beggja landanna
gátu varðbátarnir ekki neitt
hreyft við honum. Nokkru seinna
fór hann til Finnlands, þar sem
rannsókn var gerð í skipinu, en
þrátt fyrir mikla leit, fannst ekki
dropi af áfengi og enginn bann-
vara.
EITT OG SAMA SKIP
Margt virðist benda til þess, að
kútterinn á Eystrasalti og „Ari“
sé eitt og sama skip og stundi
stórfellt smygl. En hvar hann
losar sig við farminn er yfirvöld-
um Norðurlanda hulin ráðgáta.
Sænsk og dönsk yfirvöld telja að
stórfelld smyglverzlun sé rekin
yfir Eystrasalt frá Kiel og Lú-
beck yfir til Svíþjóðar og jafnvel
gegnum Kattegat til suðurstrand
ar Noregs, en verkinu sé stjórn-
að frá aðalbækistöðvum í Hol-
landi og Þýzkalandi.
VIRÐIST ÆTLA AÐ SLEPPA
Síðastliðna daga hefur mjög
verið fylgst með ferðum „Ara“,
en skipstjórinn virðist hafa r.á-
kvæmar fréttir af viðbúnaði yfir-
valdanna, því skipið kemur
hvergi í höfn þar sem búist er
við því í það og það skiptið. Síð-
ustu fréttir af því voru það, að
í gær var það á leið upp Kílar-
skurðinn, og voru Þjóðverjar
beðnir að athuga farm þess. —
Þjóðverjar kváðust hafa haft tal
við skipstjórann, sem hefði tjáð
þeim að hann væri á leið til Pól-
lands, með löglegan farm. Þjóð-
verjar kváðust ekki geta kyrrsett
skipið vegna þess að Kílarskurð-
urinn væri alþjóðasiglingaleið og
þeir hef ðu ekki leyf i til að hindra
ferðir þess.
Góður aíli ákranesbáfa
AKRANESI, 9. febrúar — í gær
var heildarafli Akranesbáta 157
tonn og var hæsti báturinn Svan-
ur með 14 tonn. Skipstjóri er
Þórður Óskarsson frá Súðavík,
en af 12 manna áhöfn bátsins
eru níu Súðvíkingar.
í gærkvöldi kom Keilir úr slipp
og fóru þá í róður 18 bátar og
var aflinn í dag hjá þeim áþekk-
ur því sem hann var í gær.
Gott veður hefur verið á mið-
unum. Þorskurinn er ekki sér-
lega þéttur á línunni, en hann
er stór og eftir því vænn.
■—Oddur.
Hvorki yMjörstjórn éa bæjar-
stjórn taka kæruna til greina
AKUREYRI, 9. febr. — Fyrsti
fundur bæjarstjórnar Akureyrar
var í dag. Fyrir fundinum lá
hin framkomna kæra frá Al-
þýðuflokksfélögunum út af bæj-
st j órnarkosningunum.
Steindór Steindórsson hafði
framsögu um kæruna. Bar hann
fram tillögu um að kæran yrði
tekin til greina og kosning yrði
látin fram fara að nýju. Þessi
tillaga var felld. — Með tillögu
Steindórs greiddi atkvæði fulltrúi
„Þjóðarvarnar“ en á móti full-
trúar Sjálfstæiðsmanna, Fram-
sóknarmanna og kommúnista —
þ. e. a. s., annar þeirra sat hjá.
Að þessu loknu tilkynnti Stein-
dór að kærunni yrði áfrýjað til
félagsmálaráðuneytisins.
BRÉF YFIRKJÖRSTJÓRNAR
Fyrir fundinum lá bréf frá
yfirkjörstjórn, þar sem birt er
endurrit úr gjörðabókum hennar.
Er þar lýst, svo sem föng eru á,
hvaða orsakir liggja til ákæru-
atriðanna og mistökin útskýrð.
Þar er bent m. a. á, að hinir um-
ræddu fimm atkvæðaseðlar, sem
á vantaði, muni aldrei hafa verið
í atkvæðaseðlabúntunum, vegna
mistalningar prentvélarinnar í
prentsmiðjunni, þar sem þeir
voru prentaðir. Undirkjörstjórn-
ir töldu alla seðlana, en tvítöldu
ekki þá alla. í öðru lagi er bent
á að atkvæðaseðlar hafi getað
misfarizt í kjördeildum, t. d. með
því, að kjósendur hafi tekið þá
með sér. Utankjörstaðaatkvæði
komu öll fram. Varðandi ákæru-
atriði, um að kosning hafi stað-
ið fram yfir miðnætti, tekur yfir-
kjörstjórnin fram að þeta hafi
tíðkazt síðari ár hér. Benti hún
á að kjörfundur hafi staðið til
kl. 0,25 árið 1946 og 1950 til kL
1 15 eða jafnlengi og nú, án
þess að þetta yrði átalið. Sama
mun hafa tíðkazt í Reykjavík. —
Ennfremur bendir yfirkjörstjórn-
in á og reyndar viðurkennt I
kærunni, að umrædd fimm atkv.
skekja geti engu breytt um tölu
kjörinna fulltrúa af hverjum lista
og litlar líkur til að hún breyti
röð innan lista. —Vignir. j