Morgunblaðið - 23.03.1954, Blaðsíða 16
Veðurúfiit í dag:
NA-kaldi, léttskýjað
68. tbl. — Þriðjudagur 23. marz 1954.
Oiíuiindirnar mikiu
Sjá bls. 9.
Getur „Já“ breyzt í upptöku
á segulband og orðið „Nei44?
Fyrirspurn á AJþingi
út af þingfréttum Tímans
I^R lagafrumvarpið um viðauka við lög um Búnaðarbankann kom
J til umræðu í Efri deild í gær, kvaddi Bjarni Benediktsson
(•ómsmálaráðherra sér hljóðs, og beindi þeirri spurningu til for-
*ita deildarinnar hvort segulbandsupptökutækin er notuð eru til
Vpptöku tals á fundum deildarinnar gætu verið orðin slitin og
^iluð. Og hvort verið gæti, að bilunin hefði í för með sér að töluð
«;»rð breyttust í upptökunni, t. d. að já yrði nei þegar á bandið
|æmi.'
^ÆÐAN RANGFÆRÐ
' Kvaðst ráðherrann bera
fram þessa spurningu vegna
þess að ræða sú er hann flutti
um Búnaðarbankamálið á
föstudag hefði komið öfug og Jmm Lviiiij
snúin í dagblaði einu. Hefði ÉöKCj lílíl PíUlliSÍ
allt efni hennar verið rang-
fært.
Ráðherrann sagði að blað
þetta væri máígagn samstarfs
flokks Sjálfstæðismanna í rík-
isstjórn (þ. e. Tíminn). Að
þeim flokki standa ýmsir göf-
ugir og gegnir menn og slíkar
rangfærslur í málgagni flokks
ins geta varla stafað af ill-
vilja. Menn grípa varla tii
þess að rangfæra heilar þing-
ræður, sem til eru skrifaðar,
nema að menn séu algjörlega
rökþrota. En það kann að vera
að Tímamenn séu það í þessu
máli, því það liggur nú fyrir
að Búnaðarbankinn hefur
gersamlega gleymt í hvaða
tilgangi hann er stofnaður og
formaður bankaráðsins Her-
mann Jónasson, hefur lýst því
yfir í þingdeildinni, að ekki
sé hægt að reka banka með
því að lána bændum einum,
RANNSÓKN
FRAMKVÆMD
Gísli Jónsson forseti deildar-
jjmar, kvaðst mundu láta fara
fram rannsókn á upptökutækjum
Efri deildar, því mikils virði væri
£ið þingræður brengluðust ekki
í upptökunni. — Niðurstöðu þeirr
ar rannsóknar ætti að mega
vænta mjög bráðlega.
Frumvarpið var síðan sam-
þykkt, en breytingartillögur felld
ar, og endursent Neðri deild.
Fólk veikisl a! því að
skammia
HAFNARFIRÐI — í síðastliðinni
viku urðu nokkur brögð að því
hér í bæ, að fólk veiktist af því
að taka inn svonefnda brúna
skammta, sem notaðir eru við
höfuðverk. Voru skammtar þess-
ir seldir í Ilafnarfjarðar-apóteki,
en það auglýsti fyrir nokkru, að
allir þeir, sem slíka skammta
hefðu undir höndum, væru beðn-
ir að skila þeim í apótekið. —
Mun samsetning skammtanna
hafa verið röng. Mál þetta er
nú í efnafræðilegri rannsókn hjá
lyfjaeftirlitinu.
Hér var ekki um að ræða al-
varlegt eitur, og veiktist það fólk
sem tók skammtana inn, ekki
alvarlega. Þó veiktist kona nokk-
nr, sem tók inn tvo skammta tölu
vert, en hún er nú á batavegi.
- G.E
SveiS Harðar og
Gimnaelrs bridge-
meistarar
EFTIR 10. umferð í meistara-
flokkskeppni Bridgefélags
Keykjavíkur komu aðeins tvær
sveitir til greina sem sigurveg-
arar í keppninni, sveit Harðar
’ Þórðarsonar og sveit Gunngeirs
Péturssonar. Þær sveitir spiluðu
■til úrslita í gærkvöldi, en þeirri
jkeppni var ekki lokið er blaðið
fór í prentun.
I 10. umferð urðu úrslit bessi:
Sveit Harðar vann sveit Ólafs
Þorsteinssonar, sveit Einars Guð-
áohnsens vann sveit Hermanns
^ónssonar, sveit Asbjarnar Jóns-
íionar vann sveit Ólafs Einarsson-
ar, sveit Stefáns Guðjohnsens
vann sveit Hilmars Ólafssonar.
Sveit Einars Baldvins gerði jafn
tefli við sveit Róberts Sigmunds-
sonar og sveit Gunngeirs Péturs-
sonar við sveit Ragnars Jóhannes
Eonar.
Sveit Harðar er nú efst með
16 stig, Sveit Gunngeirs er með
15 stig, Hilmars 13, Ásbjarnar,
Einars Baldvins og Stefáns 12
hver, Róberts 11, Ragnars 10 og
Einars Guðjohnsens 8.
fer fil
niðnrrih
HEYRZT hefur að búið sé að
ákveða örlög sænska farmskips-
ins Hanön, sem legið hefur hér
í Reykjavíkurhöfn um langt
skeið, eftir að búið var dð þétta
skipið svo að hægt sé að fara
með það til útlanda. — Það mun
síðast hafa gerzt í máli skipsins
af brezkir brotajárnskaupmenn
hafa keypt það til niðurrifs. Mun
dráttarbátur verða sendur frá
Bretlandi til að sækja skipið og
draga það út. Hanön liggur við
Ægisgarð, þar sem Hæringur lá
áður.
Afenilsfíiélið
í DAG verður hS® nnargtimtalaða
frumvarp til áaferagsslaga tekið
fyrir á fundi neSfci deildar. Mun
þá væntanlega fást úr því skorið
hver er vilji neðo dsáídar í áfeng
ismálunum.
Fram er komið’ jse&tdarálit alls
herjarnefndar neSsi deiidar, og
hefur þess og brexdingartillagna
nefndarinnar verið getið í blað-
inu.
Þá eru og komnar fram breyt-
ingartillögur í 13 liðum frá Pétri
Ottesen. Tillögur hans ganga í þá
átt að úr frumvarpinu verði felld
ar nálega allar heimildir til vín-
veitinga og vínsölu nema á út-
sölustöðum þar sem íbúar hafa
með atkvæðagreiðslu ákveðið að
slíkir staðir séu opnir. — Þá
leggur Pétur Ottesen til að stofn
aður verði áfengisvarnarsjóður
og áfengisvarnarráð. Þau ákvæði
voru upphaflega í frumvarpinu,
en efri deild vildi einróma gera
þessa hlið málsins einfaldari í
vöfum.
Loks vill Pétur að Stórstúka
íslands fái 500 þús. krónur ár-
lega úr áfengisvarnasjóði til bind
indisstarfsemi og að á næstu 10
árum skuli leggja til hliðar 6%
af hreinum ágóða Áfengisverzl-
unarinnar. Skal helmingi þeirr-
ar upphæðar varið til byggingar
drykkjumannahæla og lækninga-
stöðva handa drykkjumönnum,
sjúkrahúsa og elliheimila, einum
sjötta hluta til húsbygginga á veg
um Góðtemplarareglunnar, en af-
ganginn skal lána til byggingar
félagsheimila og gistihúsa.
r
Nýtt Mandsnæt
í sundi
í GÆRKVÖLDI var sett nýtt
íslandsmet í Sundhöllinni, er
Pétur Kristjánsson sundkappi
setti nýtt íslandsmet í 50 m
sundi, frjáls aðferð. — Synti
hann vegalengdina á 26,3 sek.
Sundþjálfarinn, Þorsteinn
Hjálmarsson, hafði orð á því
við Mbl. að vatnið í lauginni
hefði verið alltof heitt til slíkr
ar keppni. Var hún um 29
stiga heit, en má ekki vera
yfir 26 stig, þegar keppt er.
Þetta munar mjög.
Var Pétur að keppa í und-
anrásum fyrir KR-sundmótið,
sem fram fer í kvöld og skýrt
er frá á öðrum stað. Gamla
metið átti Pétur sjálfur, sem
var 26,6 sek.
Oftlega er akstri drukkinna manna líkt við það, að óðir menn
skjóti af byssum á almannafæri. — Um helgina tók lögreglan sex
menn, sem ölvaðir voru við akstur. — Þetta eru þrír bílanna, eftir
árekstra sem þeir lentu í. — Bíllinn á vinstri hönd, ók beint framan
á sendiferðabílinn, sem er til hægri handar. — Stúlka var í jepp-
anum og við harðan árekstur bílanna rak hún höfuðið gegnum
framrúðuna með þeim afleiðingum að hún hlaut skurð mikinn á
ennið. — Sá drukkni sem ók jeppanum meiddist líka. — Sá sem
ók sendiferðabílnum var lítið betur á sig kominn. Hann meiddist
líka. — Gamla bílnum var ekið beint á símastaur. — Einnig sá sem
honum ók var drukkinn. Hann skarst á handlegg og varð að leita
Iæknis. Þrír bílstjórar aðrir voru teknir af götulögreglumönnum
fyrir að vera ölvaðir við akstur. — Þeir aftur á móti urðu ekki
valdir að neinum slysum. — Mynd þessa tók ljósmyndari rann-
sóknarlögreglunnar, R. Vignir.
Nýi strætisvagninn er rúmlega 11 m langur. Vélin er undir gólfi
vagnsins. Aftast í vagninum er stæði fyrir allmarga farþega.
— Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Sfærsfi og sérsfæiasf s sfræfis-
vagninn gelur fekið Ið manns
S.V.R. tóku við vagnmum í gær. en
liann er yfirbyggður hjá Bílasmiðjiinni
SEGJA má að frá því hinir
frambyggðu vagnar Strætis-
vagna Reykjavíkur komu í um-
ferð, hafi hver vagninn öðrum
stærri Og veglegri verið tekinn í
notkun. — í gær tóku borgar-
stjói<i, Gunnar Thoroddsen og
forstjóri Strætisvagnanna, Eirík-
ur Ásgeirsson, á móti stærsta al-
menningsvagni, sem byggt hef-
ur veNð yfir hér á landi. — Þessi
vagn, sem er rúmlega 11 metra
langur, getur auðveldlega tekið
80 manns, þar af í sæti nær 40.
Þennan stóra vagn byggði
Bílasmiðjan yfir og gerði Gunn-
ar Björnssón allar teikningar að
vagninum. Er hann fullkomnasti
strætisvagninn sem Strætisvagn-
ar Reykjavíkur hafa eignazt til
þessa.
Vagninn var afhentur Strætis-
vögnum Reykjavíkur í gærdag
við stutta athöfn suður við
Nauthólsvík, en þangað hafði
gestunum verið ekið í fyrstu ferð
vagnsins. Meðal gesta var Ingólf-
ur Jónsson viðskiptamálaráð-
herra er flutti stutt ávarp. —
Einnig mælti nokkur Orð Gunn-
ar Thoroddsen borgarstjóri.
Forstjóri Strætisvagna Reykja
víkur lýsti vagninum fyrir gest-
um og gat þess í upphafi máls
síns, að Bílasmiðjan helði með
smíði vagns þessa gert mesta
átak til þessa, sem gert hefði
verið á smíði ísl. bílasmíði.
Vagn þessi er frá hinum
sænsku VolvO verksmiðjum og
er hér sérfræðingur frá verk-
smiðjunni til að leiðbeina við
akstur og meðferð vagnsins.
VAGNINN GJÖRÓLÍKUR
ÖÐRUM VÖGNUM
Vagninn er um margt gjör-
ólíkur öðrum strætisvögnum i
akstri, þar sem hann á allur að
vera miklu mýkri, engir rykkir
þegar ekið er af stað. — Vélin
er undir gólfi vagnsins og er hún
150 hestafla. Fyrir þetta er vagn-
inn miklu rúmmeiri en eldri
vagnar, en stærstu þeirra rúma
50 manns. Hemlar vagnsins vinna
fyrir þjöppuðu lofti og er heml-
unin mjúk og örugg. — Vagn-
inn sjálfur að viðbættri fullri
hleðslu vegur 14 tonn.
I ræðu sem forstjóri SVR flutti,
gerði hann nokkuð að umtals-
efni rekstur strætisvagnanna, en
milli 25 og 30 vagnar eru nú
daglega við akstur saiifieitt 18
klst. í sólarhring og er meðal-
akstur vagnanna 200—300 km.
á dag. ,
STRÆTISVAGNAR
OG ATVINNUÖRYGGI
Um 40 þús. manns ferðast með
vögnunum daglega. Forstjórinn
taldi nauðsynlegt fyrir Strætis-
vagna Reykjavíkur að fá fimm
nýja vagna á ri, til að mæta
endurnýjunarþörfinni einni. —
Taldi hann að innflutningsyfir-
völdin þyrftu að gera sér Ijósar
þarfirnar í þessum efnum. —•
Öryggisleysi í þessum efnum get-
ur orsakað vinnutap og hvers-
konar erfiðleika fyrir þúsundir
heimila. — Samgöngumálin í
höfuðstaðnum verður að skipa á
bekk með vatnsveitu og raf-
magni.
Að lokum fór forstjórinn mikl-
um viðurkenningarorðum um
Bílasmiðjuna og forráðamenn
fyrirtækisins, sem tekið hafa
fegins hendi við hverskonar
ábendingum sem til góðs mega
verða. Bað hann gestina að hylla
Bílasmiðjuna fyrir þann ágæta
smíðisgrip, sem vagn þessi væri,
Einnig tóku til máls við þetta
tækifæri Lúðvík Jóhannesson
forstjóri Bílasmiðj unnar og Björg
vin Frederiksen formaður Lands
sambands ísl. iðnaðarmanna.
BÆTT ÞJÓNUSTA FYRIR
ALMENNING
Borgarstjóri kvaðst telja vagn
þennan merkan áfanga fyrir ísl.
iðnað og fyrir Strætisvagna
Reykjavíkur. Lauk hann lofsorði
á forstjóra fyrirtækisins, sem
hefði stýrt því í nær 3 ár af ein-
stökum dngnaði og fyrirhyggju,,
enda hefði S.V.R. tekið miklum
stakkaskiptum til bóta.
Borgarstjóri færði Ingólfi Jóns
syni ráðherra þakkir fyrir góðar
undirtektir um málefni S.V.R.
og fyirheit um að bæta úr inn-
flutningsþörf nýrra vagna, eina
og ráðherra hefðf drepið á i
ávarpsorðum sínum.
Borgarstjóri lauk máli sínra
með því að bera þá ósk fram um
að innflutningsyfirvöldin, for-
ráðamenn Sírætisvagna og ísL
iðnaðarmenn ættu að vinna að!
einu og sama marki: bættri þjón-
ustu fyrir almenning.
VIDURKENNA
KOMMÚNISTASTJÓRNINA
LUNDÚNUM, 22. marz — Kana-
diski utanríkisráðherrann, Lester
Pearson, sagði í dag, að Kanada-
menn færu ef til vill að dæml
Breta og viðurkenndu kínversku
kommúnistastjórnina. Kanada-
menn setja þó það skilyrði, að
Pekingstjórnin sýni emhvern
friðarvilja á væntanlegri Genfar-
ráðstefnu.