Morgunblaðið - 03.04.1954, Blaðsíða 2
2
MORGUJSBLAÐIÐ
Laugardagur 3. apríl Í954
— Raforkumólafrumvarpið
Framh. aí bls. 1.
scm fá rafmagn frá einkaraf-
stöðvum, verði, ef eftirspurn eft-
dr lánum gefur tilefni til, hlut-
iallslega sem jöfnust tölu þeirra
býla, sem fá rafmagn frá sam-
■veitum, sbr. 7. gr. Stjórn raf-
■orkumála ákveður hlutfallið með
hliðsjón af athugunum, sem gerð
ar eru um raforkuvinnslu fyrir
sveitabýli.
5. gr.
Heimilt er að verja allt að kr.
-500 þús. að fengnum tillögum
raforkumálastjóra og raforku-
xáðs af ríkisframlagi samkv. b-
lið 3. gr. til að lækka verð raf-
•orku til almenningsnota frá
<lísilstöðvum, þar sem það er
Iiæst. Skulu þeir raforkunotend-
ur sitja fyrir framlögum í þessu
skyni, sem lengst þurfa að bíða
•eftir raforkuframkvæmdum sam-
lcvæmt þessum lögum.
6. gr.
Ráðherra skal, að fengnunr
'tillögum raforkuráðs, fela raf-
orkumálastjóra að annast leið-
beiningar um tilhögun og rekst-
■ur vatnsafls-, vindafls- og dísil-
rafstöðva fyrir sveitaheimili ut-
-an þess svæðis, sem héraðsraf-
magnsveitum er ætlað að ná til
1 náinni framtíð. Leiðbeiningar
nm val á stöðvum skulu miða að
Jrví m. a. að tryggja útvegun
varahluta og viðgerðir verði auð-
■veldar.
7. gr.
Stuðla skal að því, að öllum
atriðum 1. gr. verði fullnægt
samtímis eftir því sem við verð-
u r komið og hagkvæmt getur
■talizt.
8. gr.
Nánari ákvæði um framkvæmd
þessara laga setur ráðherra í-
xeglugerð.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
EFNDIR Á
MÁLEFNASAMNINGI
í greinargerð fyrir frv. er
komizt að orði á þessa leið:.
í samningi þeim, er gerður var
xnilli stjórnarflokkanna, þegar
sú ríkisstjórn var mynduð, er
xiú situr, er ákvæði um raforku-
mál svo hljóðandi:
„Hraðað verði byggingu orku-
•vera, dreifingu raforku og fjölg-
un smástöðva (einkastöðva)
vegna byggðarlaga í sveit og við
sjó, sem ekki hafa rafmagn eða
búa við ófullnægjandi raforku,
og unnið að lækkun raforku-
verðs, þar sem það er hæst.
"Tryggt verði til þessara fram-
kvæmda fjármagn, sem svarar
25 millj. króna á ári að meðal-
"tali næstu ár. í þessu skyni
•verði lögboðin árleg framlög ai
xíkisfé aukin um 5—7 millj kr.
og rafmagnsveitum ríkisins og
xaforkusjóði tryggðar 100 millj.
krónur að láni, og sitji það fyr-
ir öðrum lánsútvegunum af
hendi ríkisstjórnarinnar, að und-
-anteknu láni til sementsverk-
emiðjunnar. Auk þessa séu gerð-
ar ráðstafanir til að hraða á-
framhaldandi virkjun Sogsins."
Með þessu frumvarpi er leitað
staðfestingar Alþingis á því, sem
um var samið.
UM 1. gr. og 2. gr.
Á undanförnum árum hefur
■verið varið þeim upphæðum, er
xrú skal greina, til þeirra fram-
kvæmda, sem um ræðir í 1.—4.
lið 1. gr. frumvarpsins:
Um 3. gr.
Fjárframlög úr ríkissjóði til
raforkusjóðs samkvæmt 3. gr.
raforkulaganna hafa verið 2 milj.
króna á ári síðan 1946, er raf-
orkulögin voru samþykkt, en
samkvæmt þessari grein frum-
varpsins yrði hið lögbundna
framlag hækkað upp í 5 milli.
kr. á ári. Hafa nú þegar verið
ákveðnar 5 millj. kr. fyrir árið
1954 á fjárlögum þessa árs.
Fjárframlög úr ríkissjóði til
héraðsrafmagnsveitna ríkisins
samkvæmt 26. grein raforkulag-
anna hafa verið þessi:
1946 ............ kr. 1.800.000.00
1947 .............. — 1.000.000.00
1948 .............. — 2.000.000.00
1949 .............. — 2.000.000.00
1950 .............. — 1.000.000.00
1951 .............. — 1.000.000.00
1952 .............. — 1.860.000.00
1953 .............. — 1.860.000.00
Samtals kr. 12.520.000.00
Hér er gert ráð fyrir að lög-
binda hina árlegu upphæð og
hækka upp í 6 millj. kr. og í
fjárlögum þessa árs er hún 8
millj. kr.
Framlög úr héraði eða hin svo-
nefndu heimtaugagjöld hafa
verið:
1948 ............ kr. 518.505.31
1949 .............. — 452.673.89
1950 .............. — 1.042.942.96
1951 .............. — 1.327.891.57
1952 .............. — 679.673.00
1953 .............. — 385.132.00
Samtals kr. 4.406.818.73
Vaxtatekjur raforkusjóðs eru
nú um það bil lYz milljón króna
á ári.
Afborganir af þeim útlánum
raforkusjóðs, sem veitt eru af
eigin fé sjóðsins, eru nú rúm-
lega 1 milljón króna á ári.
Lántökur handa raforkusjóði
með heimild í fjárlögum (22. gr.)
hafa verið sem hér segir:
1950 ........... kr. 1.500.000.00
1952 ............... — 2.400.000.00
1953 ............... — 4.600.000.00
Af lánunum á árinu 1953 eru
þó 3.000.000.00 kr. aðeins bráða-
birgðalán, til eins og tveggja ára.
Önnur lán hafa ekki fengizt að
teljandi sé. Á efnahagsreikningi
rafmagnsveitna ríkisins og hér-
aðsrafmagnsveitna ríkisins árið
1953 eru skuldir við aðra lánar-
drottna en raforkusjóð aðeins
kr. 2.587.270.37.
í frumvarpi þessu eru ekki sér-
stök ákvæði til tryggingar á út-
vegun lánsfjár samkv. e-lið þess-
arar greinar, en milli ríkis-
stjórnarinnar og bankanna hefur
þegar orðið samkomulag um
lánsfjárframlög, sem tryggja
framgang þessara raforkufram-
kvæmda, og mun það nánar skýrt
í framsögu.
Um 5 gr.
Svo sem kunnugt er hafa mörg
kauptún og sumir kaupstaðir raf-
magn frá dísilstöðvum eða eru
í þann veginn að koma upp slík-
um stöðvum. En raforka frá dís-
ilstöðvum er dýr og er hætt við,
að þeim, sem lengi þurfa að bíða
eftir orku frá vatnsvirkjunum,
þyki biðin löng, nema eitthvað
sé gert til að bæta aðstöðu þeirra.
Því er hér lagt til, að nokkurri
fjárupphæð af framlagi samkv.
3. gr. verði varið til að lækka raf-
orkuverð á þeim stöðum, sem
ætla má, að lengst þurfi að not-
ast við dísilorkuna. Helzt er þá
gert ráð fyrir, að verðlækkunin
yrði framkvæmd með niður-
greiðslu beint til notenda einu
sinni á ári. Verðlækkun dísil-
orkunnar kæmi þá ekki til greina
í þeim kaupstöðum eða kauptún-
um, sem samkv. áætlun fengju
orku frá vatnsvirkjun á næstu
árum.
Um 6. gr.
Verulegur hluti allra býla á
landinu verða að vinna raforku í
einkarafstöðvum, vegna þess að
of kostnaðarsamt er að leggja
til þeirra raflínur frá samveit-
um. Hvort heldur er um vatns-
aflsstöðvar, dísilstöðvar eða vind-
rafstöðvar að ræða, er bændum
á þessum býlum mikil þörf á
að eiga kost á leiðbeiningum um
tilhöglm stöðvanna, val á vélum
og meðferð þeirra. Nú hefur raf-
orkumálastjóri að vísu veitt
bændum leiðbeiningar og gert á-
ætlanir um vatnsaflstöðvar til
sveita og hefur verið veitt fé á
fjárlögum í þessu skyni, en til-
gangurinn með ákvæðum þess-
arar greinar er að festa og auka
þá leiðbeiningarstarfsemi, og er
ætlazt til, að hún taki einnig til
dísil- og vindrafstöðva og til
rekstrar stöðvanna. Ástæða þyk-
ir til að taka sérstaklega fram,
að miða skuii leiðbeiningar um
val dísilstöðva m. a. við það að
auðvelda útvegun varahluta til
þeirra og viðgerðir. Það er aug-
ljóst mál, að æskilegt er að teg-
undir véla í dísilrafstöðvar séu i
þessu skyni hafðar sem fæstar,
en þó þykir ekki rétt að binda
með lögum hendur manna um
kaup disilrafstöðva.
Gert er ráð fyrir að raforku-
framkvæmdir samkvæmt lögun-
um hefjist þegar á þessu ári, og
er því nauðsynlegt að lögin taki
gildi sem fyrst.
WASHINGTON, 2. apríl. —
Hoyt S. Vandenberg, fyrrum
yfirmaður flughers Bandaríkj-
anna lézt hér í dag 55 ára að
aldri Banamein hans var krabba-
mein.
Skólahús brennur.
NEW YORK, 31. marz: — Sjö
börn brendust inni í timbur-skóla
húsi hér, er eldur kom upp í
byggingunni. Eldurinn kviknaði
með mikilli og snögglegri spreng-
ingu, sem ekki er vitað um orsak-
ir á. Megin skólabarnanna, nokk
ur hundruð að tölu sluppu ó-
sködduð.
<*>•
Rafm.veitur rík. Héraðsrafm.v. rík.
Ár árl. stofnkostn. árl. stofnkostn.
1 viðbót kr. viðbót kr.
1946 2.521.964.93 463.920.64
1947 2.680.029.69 417.686.61
1948 4.015.359.96 3.236.204.85
1949 1.762.774.76 5.691.051.28
1950 1.345.439.37 4.299.478.99
1951 938.938.13 5.271.906.59
1952 5.380.052.11 5.765.172.89
1953 7.845.209.97 4.769.337.86
Samtals . 26.489.668.92 29.914.759.71
Lán veitt Til virkj.
bændum rannsókna Samtals
kr. kr. kr.
300.000.00 3.285.885.57
300.000.00 3.397.716.30
25.000.00 589.324.30 7.865.789.11
123.000.00 349.623.48 7.926.449.52
291.300.00 429.094.35 6.265.312.71
343.800.00 437.959.52 6.992.604.24
604.900.00 492.196.21 12.242.321.21
563.500.00 518.776.77 13.696.824.60
1.951.500.00 3.416.974.63 61.772.903.26
Fésfra heldur skemnrlun í
Ausfurbæjarbíéi á sunnud.
UNDANFARIN fjögur ár hefur stéttarfélagið Fóstra gengist fyr-
ir barnaskemmtunum til kynningar á starfsemi barna á dag-
heimilum og í leikskólum. Á þessum skemmtunum hafa börnin
sjálf skemmt. Á sunnudaginn heldur Fóstra eina slíka skemmtun
í Austurbæjarbíói, og koma þar fram börn frá fjórum leikskóium:
Tjarnarborg, Laufásborg, Drafnarborg og Barónsborg. Var blaða-
mönnum boðið í gær að vera við síðustu æfingu skemmtiatriðanna.
Börnin sem koma fram á^
skemmtuninni eru um 30 talsins
og eru á aldrinum 3—6 ára. —
Fóstrur leikskólanna hafa al-
gjörlega útbúið og æft skemmti-
atriðin og koma þær fram með
börnunum. Hafa allar æfingar
farið fram í vinnutíma stúlkn-
anna og hefur hver séð um sinn
hóp.
FJÖLBREYTT
SKEMMTISKRÁ
Skemmtunin hefst kl. 1.30 í
Austurbæjarbíói og er það í
fyrsta sinni, sem þessar skemmt-
anir eru haldnar þar. Kynnir er
Elín Torfadóttir. Skemmtunin
hefst með því að fjórar fóstrur,
þær Þórunn Einarsdóttir, Kristín
Jónsdóttir, Signý Óskarsdóttir
og Gyða Ragnarsdóttir syngja
og spila á gítar. Þá les Gyða
Ragnarsdóttir upp söguna um
vitamínið og koma þá fram 7
börn, sem mjólkurflaska, gulrót,
tómat, brauð, lýsi og brjóstsyk-
ur. Því næst sýna börnin hring-
dansa og Signý Óskarsdóttir spil-
ar með á gítar. Þá segir Elin-
borg Stefánsdóttir kennari börn-
unum sögu og sýnir þeim teikm-
myndir. Barnakór Laufásborgar
syngur og Gyða Ragnarsdóttir
leikur undir á gítar. Þá syngja
fóstrurnar aftur og síðan sýna 6
börn og tvær fóstrur, þær Ið-
unn Gísladóttir og Elín Torfa-
dóttir, smá leikþátt. Að lokum
kveðja börnin með söng.
ENDURTEKIN Á
SUMARDAGINN FYRSTA
Eins og áður hefur verið getið
verður skemmtun þessi á’ sunnu-
daginn. En á sumardaginn fyrsta
verður hún endurtekin og renn-
ur þá ágóði hennar til barna-
vinafélagsins Sumargjafar. Verði
aðgöngumiða mun verða stillt í
hóf sem unnt er svo sem flest-
ir geti veitt sér þá ánægju að
sjá litlu börnin skemmta. En
þau hafa æft af kappi og lagt
sig mikið fram til þess að þessi
skemmtun þeirra megi takast
vel. Fæst þeírra munu áður hafa
komið á leiksvið en allt að einu
eru þau hin kotrosknustu og
hvergi smeyk við áhorfendur.
Afhjúpaður
eirskjöldur að
ÞinghoHsstræíi 28
í DAG k-lukkan 9,30 árdegis
munu laganemar og aðrir lög-
fræðingar safnast saman við hús-
ið Þingholtsstræti 28 hér í bæ.
Þar verður við hátíðlega athöfn
afhjúpaður minningarskjöldur,
sem Orator, félag laganema hef-
ur látið festa upp á húshliðina til
minningar um það að lagaskól-
inn var fyrst til húsa þar árin
1908 til 1911. Seinna fara laga-
nemar í sína árlegu vísindaför að
fangelsi ríkisins á Litla Hrauni,
en nauðsynlegt þýkir að þeir
menn sem væntanlega eiga eftir
að taka að sér dómarastörf kynn-
ist af eigin sjón því böli sem þeir
eiga ef til vill eftir að dæma aðra
í til refsingar eins og réttarskipu
lagið útheimtir.
- Framsaga ráðherra
EXamh. af bls. 1.
halda áfram, svo býlum færi fjölg
andi. Flest myndu nýbýlin verða
reist á svæðum er samorkuverin
næðu til og munu þessi nýbýli
því fá rafmagn smátt og smátt.
Taldi ráðherrann að á næstu 10
árum myndi nýbýlum fjölga um
700 og væri sú áætlun byggð á
þróun síðustu ára.
Ráðherrann sagði og að í mál-
efnasamningi ríkisstjórnarinnar
um raforkumálin væri svo ráð
fyrir gert að einnig þeir sem
utan samorkuverasvæðanna
byggju, myndu fá úrlausn hvað
raforku snerti í samræmi við önn
ur byggðasvæði landsins.
Eftir 10 ár yrðu þó, samkvæmt
hinni lauslegu áætlun 14—1500
býli enn rafmagnslaus. En ráð-
herrann kvaðst vona og trúa því
að á miðju áætlunartímabilinu
yrði fjárhagsafkoman svo góð,
að hægt væri að hraða þeim fram
kvæmdum, sem þá væru óunnin
í raforkumálunum.
Síðan vék ráðherrann að áætl-
uninni um kauptúnin og þorpin.
Raforkumálaskrifstofan gerði ráð
fyrir því að 23 staðir af þeim 39
sem áður er getið fengju raforku
frá fyrirhuguðum samorkuver-
um. Þar byggju 14000 manns.
Eftir yrðu að 10 árum liðnum 16
staðir með 2200 íbúa. Ailir stað-
irnir 7, sem nú búa við ófull-
nægjandi raforku munu fá raf-
magn frá samorkuverum.
FJÁRMÁLIN
Nú vék ráðherrann tali sínu
að fjárhagshlið málsins. Kvað
hann málefnasamning ríkis-
stjórnarinnar kveða á um að
5—7 millj. kr. skyldi árlega á
fjárlögum ráðstafað til raf-
orkusjóðs og 6 millj. kr. til
héraðsrafveitna ríkisins. í ár
væru samkv. því 11 millj. kr„
á fjárlögum í þessu skyni. Og
á næstu 10 árum yrði á fjár-
lögum veittar 11 millj. kr. i
þessu skyni.
Það gerir samtals 110 miilj.
Eftir er að útvega 140 millj.
Ríkisstjórnin hefur fyrir víð-
sýni bankanna innanlandg
fengið tryggingu þeirra fyrir
að fá þetta fé á tímabilinu.
Ástæðulaust væri að setja lög
um það atriði, því samningarn
ir jafngiltu lögum. Lánstíminn
yrði 15—20 ár og vextir eins
hæfilegir og hægt væri.
Jafnframt leitar ríkisstjórn-
in eftir lánum erlendis og eru
fulltrúar hennar farnir utan
í því skyni.
Ráðherrann sagði að lokum að
reynt yrði að dreifa framkvæmdl
um í raforkumálunum um land-
ið, þannig að landshlutar fylgd-
ust að í þeina efnum. Allt sem
gert hefði verið í þessum málum
til þess, sagðíi ráðherrann, er
gott og blessað, en það einkennist
fyrst og fremst af fjárskorti. Nú
hefur trygging fengist fyrir því
að hægt er að sinna þessum mál-
um af festu og alvöru.
Norskt lán í Svíþjóð
STOKKHÓLMI — Norsk sendi-
nefnd dvelst í Svíþjóð til að
semja við sænsku stjórnina um
ýmis efnahagsleg vandamál.
Torp forsætisráðherra Noregs fer
ekki dult með, að Norðmenn hafi
áhugi á lántöku í Svíþjóð, segir
„Dagens Nyheter“.
Kvikmyndastjarna finnst
rænulaus
LOS ANGELES 31. marz: —
Heimsfræg kvikmyndastjarna
Corir.ne Calvert fannst í dag
rænulaus á heimili sínu. Hafða
hún í ógáti tekið of sterkan svefn
skammt. Hún mun halda lífi og
liggur nú í sjúkrahúsi.