Morgunblaðið - 01.05.1954, Page 14
14
MORGUNBLAÐID
Laugardagur 1. maí 1954 1
F ramhaldssagan 26
við að neita okkur um margt og
fórna miklu. En við vildum bæði
reka skóla. Þér vitið auðvitað
hvers vegna?“
„Nei“.
„Ég hélt að maðurinn minn
hefði kannske sagt jður það. —
Okkur þykir báðum svo vænt
um börn. Við höfum ekki getað
eignast börn“.
„Ég vissi það ekki“, sagði hann.
„Það þykir mér leitt ykkar
vcgna“.
„Það skiptir ekki máli“, sagði
hún. „Mér datt bara í hug að
eegja yður það. En sennilega
stendur yður líka alveg á sama“.
Hún leit á hann og brosti. „Ég
vil miklu heldur fá að heyra eitt-
hvað um yður“.
„Þér vitið allt um mig“.
„Ég veit bara að þér skilduð
við konuna yðar“, sagði hún. „Eg
er á sama máli og maðurinn minn
um það. Ég dæmi engan fyrir
slíkt. Ég samhryggist yður bara
fyrir það hve þér hljótið að hafa
j>jáðst“.
„Ég vona að það sé ekki á mér
•að sjá, að ég hafi borið neinar
þjáningar?“
„Þér eruð auðsjáanlega ein-
mana“, sagði hún. „Ég hef svo
oft tekið eftir því“.
„Varla“.
„Jú, það er alveg satt“. Hún
brosti uppgerðarlega. „Þess
vegna held ég að við getum hjálp
að hvort öðru“.
„Hvernig þá?“ Hann langaði
ekki til að vita það, en hann
komst þó ekki hjá því að spyrja.
Hún svaraði ekki. Hann taldi
það víst að brosið ætti að vera
nægilegt svar. Til að forðast það,
fékk hann sér aftur í glasið.
„Stundum eruð þér varla ann-
að en drengur, Douglas", sagði
hún og hló þessum harða hlátri
sínum.
„Er það?“
„Þér eruð allt of hræddur um
að gera eitthvað rangt. — Mér
finnst það svo fyndið. En þér
megið þó ekki láta það aftra yður
írá því að skemmta yður“.
„Ég skemmti mér eins og mér
sýnist“, sagði hann. Samræðurn-
ar voru orðnar all-hættulegar og
hann fór að velta því fyrir sér,
hvernig hann gæti bundið endi
á þæi' án þess að sýna henni
ókurteisi. Til allrar hamingju
stóð frú Pawley á fætur.
„Er það?“ sagði hún og leit á
hann með kjánalegri glettni í
augunum. „Ef svo er þá er víst
bezt fyrir mig að fara áður en
yður fer að langa til að
„skemmta“ yður í kvöld. — Þér
megið ekki láta yður stíga það
til höfuðs þó að kona skólastjór-
ans heimsæki yður svona seint
utn kvöld“.
„Ég skal reyna að láta það ekki
stíga mér til höfuðs“.
„Annars get ég ekki komið
aftur“.
„Það væri mjög leiðinlegt“. —
Hann stóð upp og ýtti um léið
stólnum aftur fyrir sig, til þess
að standa ekki of nálægt henni.
„Ég skal lofa yður að kyssa á
handarbakið á mér, en ekki
meira“, sagði hún. Hún rétti hon-
um höndina. Hann tók um hana
og kyssti hana lauslega og hugs-
aði um leið hve frámunalega
kjánaleg þessi látalæti voru. Hún
hélt hendinni lengi á eftir í lausu
íofti. Svo hló hún. „Þér eruð
undarlega strákslegur, Douglas.
Mér finnst svo gaman að stríða
yður“.
„Það er mjög auðvelt að stríða
ínér“.
Hundarnir höfðu séð að hún
stóð á fætur og voru farnir að
vappa fyrir neðan svalirnar. Hún
gekk fram að þrepunum. Hann
hafði hugsað með sér að vitur-
legast væri að minnast ekki á
1 Judy aftur við hana, en nú ákvað
hann að gera það þó.
„Frú Pawley. ...“
Hún nam staðar og sneri sér
við full eftirvæntingar og brosti
til hans í tunglsljósinu.
| „Eruð þér of feiminn til að
nota fornafnið mitt?“
j Hann mundi ekki hvað það var
— minnti að þag væri Joan, en
honum datt ekki í hug að nefna
hana því.
„Haldið þér ekki að hægt sé að
fá yður til að lofa flugfreyjunni
að vera í nokkra daga til viðbót-
ar. Knowles læknir sagði að það
| væri mjög mikils um vert fyrir
hana“.
I Brosið hvarf af vörum hennar.
i „Það er engu líkara en þér haf-
ið áhuga fyrir henni“, sagði hún
reiðilega, sneri sér við og gekk
1 niður þrepin. „Það er bezt að þér
j spyrjig manninn minn að því
sjálfur. Ég er búin að segja að
mér stendur nákvæmlega á
1 sama um það hvort hún er hér
' eða ekki“.
„Jæja“, sagði hann. „Ég geri
það þá. Góða nótt“.
Hún svaraði honum ekki, en
kallaði til hundanna. „Rex —
Queenie“. Hún strunsaði niður
stíginn án þess að líta við og
tunglið skein á kollinn á henni.
6. kafli.
Venjulega gat hann komið
sjálfum sér í jafnvægi eftir nótt-
ina, en þegar Ivy færði honum
teið næsta morgun, var hann
eins gramur og hann hafði verið
kvöldið áður. Það var ekki ein-
göngu vegna þess að honum féll
■ vel við Judy og hann vildi gjarn-
an að hún yrði kyrr. Honum
hefði fundist það jafn mikið ó-
réttlæti ef það væri Taylor, sem
' átti að reka út. Það var engin
! þörf fyrir sjúkrastofu handa
nokkru barnanna og í eldhúsinu
voru 8 þeldökkar starfsstúlkur,
svo ekki ætti það að vera mikil
fyrirhöfn að færa henni upp mat-
inn. Það stöfuðu engin vand-
kvæði að veru Judy.
Frú Morgan sat við borðið
þegar hann kom til morgunverð-
ar. Hún hafði fengið skilaboð frá
Pawley. Þar stóð að af sérstökum
ástæðum yrði hann að biðja ung-
frú Warding að fara.
„Það er hreinasta synd“, sagði
frú Morgan. Henni var farið að
vera vel til Judy og sagði að hún
hefði hjarta úr „ekta gulli“
„Getið þér ekki sagt Pawley að
engin fyrirhöfn sé að því að ung-
frú Waring dveljist hér nokkra
daga í viðbót og hún sé engum
til ama“ Það væri betra að fyrir-
spurnin kæmi frá henni. Satt að
segja kom þetta honum heldur
ekki beinlínis við.
„Nei, það gæti ég ekki“, sagði
frú Morgan. Hún hristi höfuðið,
svo að undirhökurnar dingluðu.
„Það hljóta að vera einhverjar
ástæður fyrir þessari ósk herra
Pawleys" Hún var hrædd við að
gera Pawley gramt í geði vegna
þess að þá gæti hann rekig hana
fyrir það, hvað henni þótti gott
í staupinu, og þá yrði maðurinn
hennar að fara líka.
„Hvenær kemur Knowles lækn
ir aftur?“ spurði Douglas.
„Ekki fyrr en í kvöld“.
„Þá skal ég tala við Pawley
sjálfur".
Frú Morgan leit skelfd á hann.
„Þér segið honum ekkert af því
sem ég hef sagt, herra Lock-
wood“.
Pawley var í kennslustund
uppi í skólahúsinu klukkan níu.
Douglas gekk í veg fyrir hann
um leig og hann kom yfir flötina.
„Ég veit að ég er að skipta mér
af því sem mér kemur ekki bein-
línis við, en mig langar til að
spjalla við yður nokkur orð um
ungfrú Waring“.
STEINÞÓN
Bandalag sfarfsmanna
ríkis og bæja hvelur
félaga sína til þáttföku
1. MAI
Lokað í dag
1. maá
“ÍJruaciinaaritofniin
Lóvnó
BtJICK
model 1948, (Super-sportmodel), til sölu. — Bíllinn er
til sýnis á slökkvistöð Reykjavíkurflugvallar.
Vörubíistjórefélagið Þróttur
Merki á bifreiðar félagsmanna fyrir árið 1954
verða afhent á stöðinni frá 3-—15. maí n. k.
ATHUGIÐ. að þeir sem ekki hafa merkt bifreiðar sínar
með hinu nýja merki fyrir 15. maí, njóta ekki lengur
réttinda sem fullgildir félagsmenn og er samnings aðilum
Þróttar eftir það óheimilt að taka þá til vinnu.
STJÓRNIN
Kaupið merki dagsins
1. mai-nefndin
BIFREIÐAEIGENDUR
Látið okkur smyrja bifreiðina. — Höfum
fullkomnustu tæki til bifreiðasmurnings. —
Getum smurt bifreiðar af öllum stærðum. —
Áherzla lögð á .góða og fljóta afgreiðslu
Þaulvanir smurningsmenn tryggja yður
vandaða þjónustu.
OPIÐ 8-12 OG 13-23
ALLA VIRKA DAGA
SMURSTÖÐ SUÐURMESJA
YTRI MARDVÍK
.