Morgunblaðið - 08.05.1954, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.05.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 8. maí 1954. MORGUNBLAÐIÐ 1 Espemntlsfoiélagii Auroro 10 ám 1 EKKI getur það að jaínaði tal- izt til stórtíðinda á þessari old alls konar félagsskapar, þótt fremur fámennt félag nái tíu ára aldri. Slíkt er daglegur viðburð- ur. í tilefni af þessu afmæli lang- ar mig samt til að fara nokkrum orðum um þetta félag og þó fyrst og fremst málefni það, sem félag- ið hefur á stefnuskrá sinni. Þetta félag var stofnað 18. apr. 1944. Þar það Ólafur S. Magnús- son kennari, sem beitti sér fyrir stofnun þess og var formaður þess fyrstu árin. Annar formaður þess var Magnús Jónsson póst- maður og þriðji og núverandi formaður er Árni Böðvarsson magister. Þetta félag hefur auð- vitað á stefnuskrá sinni að vinna að útbreiðslu tungumálsins espe- ranto. Eins og flestir íslendingar munu vita var þetta tungumál búið til í því skyni, að það yrði notað sem alþjóðamál til að auð- velda öll viðskipti þjóða í milli. Höfundur þess er pólski lækn- irinn Lúðvík Zamenhof, f. 15. des. 1859, d. 14. apr. 1917. Árið 1887 var hann tilbúinn að gera það opinbert, og þá kom út fyrsta kennslubók á esperanto. Það er samt ekki meiningin að fara að rita sögu þessa máls í greinarkorni þessu, heldur að minna á nokkur atriði eins og það horfir við í dag. þjóðir munu aldrei viðurkenna ensku, svo að nefnd séu dæmi. Alþjóðamál verður að vera al- veg hlutlaust. Það verður að vera eign allra þjóða jafnt. Auk þess eru allar þjóðtungur of erfiðar, til þess að nokkur þeirra geti orð- ið almenningseign um alla jörð. Alþjóðamál verður að hafa marga og mikia kosti. Það verður að geta túlkað öil blæbrigði mannlegrar hugsunar og vera jafn vel fallið sem bókmennta- mál, vísindamál og talmál. Það verður að vera skýrt í framburði, þótt það sé talað með nokkuð ólíkum málhreim, og það verður að vera miklu auðlærðara en nokkur þjóðtunga. Aila þessa kosti hefur esperanto til að bera í ríkum mæli. Og ekki þurfum við Vesturlandabúar að fráfælast það, þar sem svo að segj^allur orðstofnaforðinn er tekinn úr rómönskum og germönskum mál- um. Málfræðingurinn mikli, Ras- mus Kristian Rask, skrifaði grein árið 1832, þar sem hann stingur upp á því, að búið sé til aiþjóða- tungumál og tilíærir nánar, hvaða reglum hann áliti, að ætti að fylgja í því efni. Það er eftir- tektarvert, að þegar Zamenhof samdi esperanto, þá fylgdi hann einmitt þessum reglum Rasks í tekið á. m. k. máriuð -á þíhgl, þar sem mörg mál eru notuð. □ □ n ER nokkur þörf “ Á ALÞJÓÐAMÁLI? EF einhver bæri fram þá spurn- ingu, hvort noltkur þörf sé á, að menn skilji hver annan, þá mundi mönnum finnast fávíslega spurt. Eitt af því, og kannski fyrst og fremst það, sem hefur skapað manninum æðra sess en öðrum dýrum merkurinnar, er það, að hann hefur mál. En ef hver ein- staklingur hefði sitt eigið tungu- mál út af fyrir sig, sem enginn annar skildi, þá væri honum þessi blessuð guðs gáfa einskis virði. Tækni nútímans veidur því, að jörð vor er í raun og veru orðin svo undralítil, og samskipti þjóða, sem búa sitt hvorum megin á hnettinum, verða alltaf meiri og meiri. Þess vegna hefur aldrei verið önnur eins þörf á alþjóða- máli og nú. Á miðöldum gegndi latínan þessu hlutvérki í Evrópu, sVo að við stöndum að vissu leyti á lægra þróunarstigi í þessu efni en þeir, sem þá byggðu vora heimsálfu. Langt er síðan menn fóru að gera sér grein fyrir mikilvægi þess, að einstaklingar og þjóðir geti skipzt á hugsunum og skilið hver aðra milliliðalaust. í sög- unni um Babelsturninn í 1. Mós. 11. kap. segir frá því, að menn- irnir höfðu komið sér saman um að byggja borg og turn, sem næði til himins og koma þar með í veg fyrir, að þeir tvístruðust um alla um jörðina....Og drottinn mælti: „Sjá, þeir eru ein þjóð og hafa allir sama tungumál, og þetta er hið fyrsta fyrirtæki þeirra. Og nú mun þeim ekkert ófært verða, sem þeir taka sér fyrir hendur að gjöra.“ ER ESPERANTO LIFANBI MÁL EÐA BAUTT? MÖRG tungumál eru til, sem hvergi eru töluð framar. Á sum- um þeim tungumálum eru til merkar bókmenntir. Og vegna þeirra bókmennta eru þau e. t. v. 'kennd í einhverjum skólum. Slík mál eru samt kölluð dauð. En esperanto getur ekki talizt í þeim flokki. Auk þess, sem til eru tölu- vert miklar bókmenntir á espe- ranto bæði þýddar og frumsamd- ar, þá er fjöldi blaða og tímarita gefinn út á því máli á hverju ári, nokkrar útvarpsstöðvar út- varpa reglulegri dagskrá á espe- ranto, a. m. k. tugir þúsunda bréfa á esperanto berast árlega milli fjarlægra staða og síöast en ekki sízt, á hverju ári eru haldin þing esperantista í fjöldamörgum löndum fyrir utan alþjóðaþingið, sem haldið er á hverju sumri. Á þessum þingum mæta saman lagt margar þúsundir manna, og þar er ekki talað annað mál en espe- ranto. Bæta má því við, að nokk- ur hjónabönd hafa verið stofnuð milli esperantista af ólíkum þjóð- ernum. Hjá mörgum slíkum hjón- jum hefur esperártto orðið heim- Rismál. Eitt slíkt heimili er í öllum aðalatriðum, og mun hann ’ höfuðborg íslands. Esperanto er þó alls ekki hafa séð ritgerð (því lifandi mál. Rasks um þetta mál. Mörg tungumál hafa verið búin til í þessu sama skyni, en espe- ranto er það eina, sem hefur náð nokkurri útbreiðslu. Öll hin eru nú gleymd og grafin. Esperanto er því ekki aðeins bezta lausnin á þessu vandamáli mannkynsins heldur sú eina, sem nú er fyrir hendi. □ M ER ESPERANTO EINA EÐA BEZTA LAUSNIN Á ÞESSU MÁLI7 SUMIR álíta, að ekki þurfi annað en að velja einhvérja þjóðtungu og viðurkenna hana scm alþjóða- mál. Hún yrði þá kennd í öllum skólum víðsvegar um heim og notuð í öllum samskiptum þjóða í milli. Og þar með væri fengið það, sem okkur vantar. En það þarf ekki að grafa djúpt til að sannfærast um, að þessi leið er allsendis ófær. Væri hún fær, þá væri hún líka fyrir löngu komin til framkvæmda. Þeirri þjóð eða þeim þjóðum, sem eiga hið út- valda mál, væri gefín svo mikil forréttindi fram yfir aðrar þjóðir, að það verður aldrei samþykkt. Enskumælandi þjóðir múnu t. d. aldrei viðurkenna frönsku éða rússnesku sem alþjóðamál. Frakk ar, Rússar og spænSkumælandi HVAÐA HORFUR ERU Á FRAMGANGI ÞESSA MÁLS? ÞAÐ er erfitt að gera sér full- Ijósa grein fyrir því. Tregðan gagnvart nýungum, sem horfa til bóta, er oft og einatt svo mikil. Auk þess munu stórþjóðirnar í lengstu lög reyna að halda fram sínum málum. Það hlýtur þó hver og einn að skilja, sem reyn- ir að skilja, hver munur er á því að læra eitt auðlært tungu- mál auk móðurmálsins og vera þar með kominn í menningar- samband við mannkyn allt, ef aliir læra þetta sama tungumál, eða læra hrafl í tveimur, þremur, fjórum eða fleiri útlendum tung- um og geta samt ekki haft beint samband við, nema mjög tak- markaðan hluta mannkynsins. Það mun vera nálægt áratug síðan safnað var undirskriftum að beiðni Sameinuðu þjóðanna að beita sér fyrir því, að espe- ranto sé gert að alþjóðamáli og innleitt sem kennslugrein í skól- Það var alþjóðafélag espe- rantista, sem gekkst fyrir þess- um undirskriftum. Næstum ein milljón einstaklingar og félaga- sambönd, sem töldu yfir 15 millj. meðlima, eða um 16 milljónir manna skrifuðu undir þetta plagg. Á íslandi skrifuðu undir yfir 4 þúsund einstaklingar og félagasambönd með um 24 þús- und meðlimum. Árangurinn af þessu er sá, að Unesco hefur tek- ið þetta mál á dagskrá þingsins, sem halda á í Montevideo á kom- andi hausti. Unesco sendi áheyrn- arfullfrúa á alþjóðaþing espe- rantista á síðastliðnu sumri. Og hann sagði, að það, sem unnið var á því þingi á einni vikú, hefði HVAÐA GAGN GERIR FÉLAG EINS OG AURORO? ÞAÐ er ekki að búast við, að þetta 10 ára gamla félag hafi mikið getað látið til sín taka í < esperantohreyfingunni. Það hef- ur snúið sér að því nauðsynleg- asta. Það hefur gengizt fyrir hámskeiðum í esperanto. Árið 1949 stofnaði Auroro og fáein önnur esperantista félög Sam- band íslenzkra esperantista (Fed- eracio de Islandaj Esperantistoj). Formaður þess er séra Halldór Kolbeins í Vestmannaeyjum. Á vegum þess hafa komið hingað erlendir esperantistar, sem hafa haft hér námskeið í esperanto og haldið fyrirlestra. Það gaf út blað, Voco de Islando (Rödd ís- lands), sem kom út fjórum sinn- um á ári. Þetta blað var að efni og frágangi fyllilega sambærilegt við beztu blöð erlend sömu teg- undar. Efni þes% var miðað við að kynna fyrir útlendum les- endum menningu íslands, bók- menntir og atvinnuhætti. En því miður varð það að hættá að koma út eftir tvö ár sökum fjár- skorts. Útgáfa þessa blaðs hefði þurft að vgra styrkt af opinberu fé, svo góð landkynning var það. Hefði esperanto og allt, sem Zamenhof ritaði á því máli, legið rykfallið á kistubotninum og eng- inn gefið því gaumy þá hefði eng- um komið til hugar að gera það að alþjóðamáli nú. En margir menn sáu þegar og skildu, hvað hér var á ferð. Þeir fóru að læra málið, félög voru stofnuð og þing haldin. Fyrsta alþjóðaþingið var haldið 1905, 18 árum eftir að málið var gert opinbert. Á undanförnum áratugum hafa esperintistar táiað og ritað mál- ið. Þannig hefur það þróazt og þroskazt eins og þjóðtungurnar gera. Og nú bera þeir það fram ■sem þjálfað talmál og bókmál og rétta það öHultt þjóðum. Hvort mun svo núlifandi kyn- slóð hafa vit og þroska til að taka mannlega á móti? Stefán Sigurðsson. Karlmanna- skór Glæsilegt úrval SKHRIWN Laugavegi 7. í mjög góðu standi til sölu. — í bátnum er ný 100 ha. S M General Motor dieselvél. — Uppl. gefur ; M m ' K Gísli Halldórsson h.f. — sími 7000. 5. Húseign á Akranesi til sölu. Járnklætt timburhús á steyptum kjallara á mjög góðum stað á Akranesi, er til sölu. Á hæð eru þriú her- bergi, eldhús og bað, en lítil íbúð, geymslur og þvotta- hús í kjallara. Húsið verður laust til íbúðar 1. okt n. k. Nánari upplýsingar veitir Valgarður Kristjánsson, Jað- arsbraut 5( Akranesi, sími 371. ATVINNA Unglingur 18—20 ára óskast sem fyrst við afgreiðslustörf. Garðar Gíslason h.f. Amerískir bíkr Tveir nýir amerískir fólksbílar óskast til kaups, strax. Hátt verð. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt: „Staðgreiðsla"— 941. Verzlunarhúsnæði óskast Húsnæði óskast fyrir vefnaðarvöruverzlun, helzt sem næst miðbænum. — Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 14. þ. m. merkt: „Verzlunarhúsnæði 956“. B BUÐ 2—3 herbergi óskast 14. maí í 1-—2 ár. — Fyrirfram- í greiðsla eftir samkomulagi. — Gjörið svo vel að hnngja I í síma 2046. ■ íbúð - Ibúð 2—4 herbergja íbúð óskast til leigu 14. maí n. k. Til greina getur komið leiga á ibúð í 3—4 mánuði. Fyrirframgreiðsla. GUNNAR PÉTURSSON Sími: 82019. vantar á Kópavogshælið 14. maí og L júrrf. m Upjriýsingar gefur yfirfijúkrtinarkonan. 5 5- ■ ■■•■■■■■■■^'•■'■■■•■•■■•'••■■■■b* ■■■■■■■■■■•■■■ ■■k«« ■■■■■■■■■■ ■'■•'•■■■•■'bairtríjr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.