Morgunblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 2
MO.RGl'H BLAÐlti
Fimmtudagui 1 júlí 1954 'j
%
Kvenfél. Akureyrar efna !!1
sundnámÉiiSi fyrir konur
! Elzfi þáfffakandinn aí þeim ósyndu 62 ára
f AKUFfEYRI, 29. júní.
KVENFÉLÖGIN hér á Akureyri hafa mikinn áhuga fyrir eflingu
sundíþróttarinnar meðal kvenna hér í bæ. Hafa þau tekið sig
saman og ráðið sér sundkennara. Fyrir þeirra tilstilli hefir eftir-
darandi ávarp verið samið.
NÁÍVISKEIÐ
FYRIR ÓSYNDAR KONUR
Á mánudagskvöldið var hófst
»\mdnárnskeið fyrir ósyndar og
lílt syndar konur. Var ætlunin
■að öll kvenfélög í bænum ættu
lilufc að námskeiði þessu. Aðeins
■fáar konur mættu þó þetta fyrsta
ivötd og mun ástæðan vepa sú
að byrjað var fyrr en auglýst
liafði verið áður.
Elzti þátttakandinn sem mætt
Jbcfnr til þessa af ósyndum kon-
u»n er 62 ára og hefur aldrei í
•sundlaug komið. Önnur er 65 ára
sið atdri og hefur ekki synt í 45
ár.
Sundið er þjóðar íþrótt okkar
Xslendinga og sú íþrótt, sem fólk
á öllum aldri getur stundað sér
~til ánægju og hressingar.
Konur góðar! Hefjizt handa nú
þegar, takið til sundfötin, gamlir
bolir koma að gagni sem nýir.
Kennslutímarnir verða á hverju
kvöldi frá kl. 7.30—9 og eru tím-
ar þessir eingöngu ætlaðir kon-
um. Nánari upplýsingar eru hjá
sundkennaranum frk. Þórhöliu
Þorsteinsdóttur í síma 1250 og hjá
formönnum kvenfélaganna. Notið
þetta sérstaka tækifæri til þess
að læra að synda. Reynið síðan
að synda 200 metrana.
AKUREYRINGAR
LINIR VIÐ SUNDIÐ
Áhugi akureyrskra kvenna
fyrir sundíþróttinni er einkar
lofsverður og er ekki að efa að
hann hefur mikil áhrif. Annars
hefur þátttaka Akureyringa í
samnorrænu sundkeppninni ver-
ið léleg til þessa. — Vignir.
Ileildarumseíning SIS nam
j 500 inillj, kr, s. L ár
AÐALFUNDUR Sambands
íslenzkra samvinnufélaga
liófst í gær að Bifröst í Borgar-
íírði og sækja hann fulltrúar frá
57 kaupfélögum. Sigurður Krist-
insson, formaður Sambandsstjórn
•ar setti fundinn og minntist lát-
in,n.a starfsmanna og samvinnu-
irömuða. Síðan var Jörundur
Brynjólfsson, alþingismaður, kos-
inn forseti fundarins, en Ólafur
I>. Kristjánsson, kennari, vara-
íorseti.
Sigurður Kristinsson flutti
kkýrslu stjórnarinnar og Vilhjálm
Tir Þór, forstjóri, flutti ýtarlega
£reinargerð um starfsemi Sam-
bandsins á síðastliðnu ári og lagði
íram reikninga þess.
Vilhjálmur skýrði frá því, að
xekstur Sambandsins hefði aukizt
mikið á síðastliðnu ári og orðið
meíri en nokkru sinni fyrr. Varð
heildarumsetning SÍS 500 mill-
jónir króna, þar af 184,5 milljón-
ir hjá Útflutningsdeild og hafði
sú deild ein aukið veltu sína um
43 milljónir, og 179 milljónir hjá
Innflutningsdeild, sem jókst um
11 milljónir. Aðrar stærstu deild-
Galdra-Lofiur sýndur
í Sealfle
LEIKLISTARDEILD háskóla
Washington-fylkis í Seattle efndi
nýlega til sýningar á Galdra-Lofti
Jóhanns Sigurjónssonar í enskri
þýðingu frú Jakobínu Johnson.
Var leikurinn leikinn í aðalleik-
húsi háskólans (University Play-
house), alls þrisvar sinnum og við
hinar beztu undirtektir. Leik-
sljóri var Sherry Selfors, og var
lefkstjórn hennar þáttur í meist-
araprófi hennar í leiklistarfræð -
um. Á undan sýningu og í aðal-
hléinu sýndi frú Jakobína John-
son samkvæmt ósk íslenzkár
bækur og myndir og flutti stutt
ávarp.
í bréfi, sem borizt hefur nýlega
■frá Seattle, er þess getið, hve
leikendur hafi verið góðir, hve
mikla alúð þeir hafi allir lagt
viff að skilja leikinn og bera hann
fram virðulega og með tilþrifum.
Segist bréfritarinn víst aldrei
hafu verið staddur þar „sem eins
var hljótt og hlustað eftir hverju
»jrði.“
ir Sambandsins eru Véladeild,
sem hafði 36 milljónir króna
veltu, Iðnaðardeild með 29 mill-
jónir og Skipadeild með 29 mill-
jónir.
Vilhjálmur Þór gerði ýtarlega
grein fyrir rekstri hinna einstöku
deilda og afkomu þeirra svo og
afkomu Sambandsins í heild. —
Hann skýrði frá nýjungum og
framkvæmdum ársins, en þrátt
fyrir allmiklar framkvæmdir,
hefur énn sem fyrr verið fylgt
þeirri eglu að ráðast ekki í meiri
fjárfestingu en nemur eigin fé og
hægt er að fá sérstök lán til.
Haldið hefur verið áfram að
auka skipastól Sambandsins og
bættist Dísarfell við á árinu 1953,
en á þessu ári kom olíuskipið
Litlafell og Helgafell hljóp af
stokkunum, en það er 3. stærsta
kaupskip Islendinga. Þá skýrði
Vilhjálmur frá því, að Samband-
ið hefði gert fjórar tilraunir til
að fá leyfi fyrir kaupum á 16—19
þúsund lesta olíuskipi, en slíkt
leyfi hefur enn ekki fengizt. Mun
Sambandið halda áfram þessurn
tilraunum í þeirri von að íslend-
ingum auðnist að taka olíuflutn-
ingana til landsins í sínar eigin
hendur.
Fundinum verður haldið áfram
í dag.
Ánægja með siarf-
semi Iðnaðar-
bankans
EFTIRFARANDI samþykktir
voru gerðar á Iðnþinginu á Akur-
eyri varðandi Iðnaðarbankann:
„Sextánda Iðnþing íslendinga
skorar á hæstvirta ríkisstjórn, að
flýta svo sem auðið er lántöku
þeirri til Iðnaðarbanka íslands,
kr. 15 millj., er Alþingi hefir
heimilað, og verði lán þetta lát-
ið sitja fyrir öðrum lönum, sem
síðar eru heimiluð eða ákveðin".
„Sextánda Iðnþing íslendinga
lýsir ánægju sinni yfir starfsemi
Iðnaðarbankans á fyrsta starfs-
ári hans, og skorar á iðnaðar-
menn og styrkja bankann með
sparifjár innlögum og öðru því,
sem bankanum má verða til
heilla“.
Hundruð manna fóru loftleiðis og landveg austur í sýslur í gær og fyrradag til þess að sjá sólmyrkv-
ann, algjöran. Við Dyrhólaey voru tugir manna saman komnir og sýnir neðri myndin nokkra þeirr«|
á varðbergi uppi á eynni. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M tók efri myndina af Dyrhólaey úr lofti.
- SÓLMYRKVIMM
Framh. af bls. 1
myrkvans fara með ægihraða yfir
allbreitt belti af suðurhluta lands
i ins. Fjöldi bifreiða sást á austur-
leið á þjóðveginum.
ÁSKÓGASANDI
Þrjátíu og sex mínútum eftir
að lágt var á stað úr Reykjavík
erum við lentir á Skógasandi.
Kíukkuna vantar nú rúmlega 20
mínútur í tólf. Við bregðum
| þykku dökklituðu gleri fyrir aug-
un og horfum til sólar. Jú, sól-
myrkvinn gengur samkvæmt á-
ætlun. Vísindamönnunum hefur
ekki skjátlast. Tunglið er að þoka
sér fyrir sólina. Það er rétt eins
og það sé að smáéta af henni
hægra meginn.
BYRJAÐ AÐ SKYGGJA
Kl. er 11,50. Það er greinilega
farið að skyggja og kólna. Þarna
á sandinum eru nú 6 flugvélar,
þar af tvær stórar Dakotavélar.
Hitt eru litlar einkaflugvélar.
Samtals munu vera þarna 70—-80
manns. Fólkið er flest í námunda
við vélarnar. Allir eru með gler
fyrir augum og horfa til himins.
Gegnum glerið sést hin minnk-
andi sólskífa. Nú er svo komið að
ef horft er andartak til sólar með
berum augum þá sést skarðið í
hana greinilega.
Við erum að verða hálf loppin.
Veður er kyrrt en andvarinn
verður að kaldri og óhugnanlegri
nepju. Svartur sandurinn, sem
við stöndum á verður þungbún-
ari á svipinn og skrúðgrænt land-
ið upp af honum missir smám
saman lit sinn. Það skyggir smám
t saman meira. Sólskífan er orðin
örmjó. Út.sýnið þrengist. Nú sést
varla orðið til Vestmannaeyja.
I Út við sjóndeildarhringinn bregð
| ur kvöldroða á himininn, e*ins og
rétt eftir sólarlag.
j TITRANDI SÓLMYRKVA-
RÁKIR BYLGJAST YFIR
LANDIÐ
Nú er kl. orðin rúmlega 12.
Titrandi sólmyrkvarákir bylgjast
j yfir landið og gefa umhverfinu
| einhvern dularfullan og annar-
j legan svip. Fólkið stendur flest
I grafkyrrt eins og í ofvæni. Ljós-
; myndararnir háfa komið sér upp
| nokkurskonar „rannsóknarstöðv
1 um“ á víð og dreif í nágrenninu.
Nú er þess örskammt að bíða að
sólin almyrkvist. Tunglið hefur
gert jarðarbúum þann grikk að
leyfa sér að skyggja á hinn mikla
orkugjafa þeirra, sem öllu mann-
legu lífi ræður.
„SÓL TER SORTNA“
Kl. er rúmlega 5 mínútur
yfir tólf á hádegi. Sólin hefur
almvrkvast. Nokkrar undr-
andi cg lítilsmegandi verur
horfa til himins upp frá Skóga
sandi á íslandi. í sólarstað sjá
þær nú aðeins svarta kringlu.
En umhverfis hana er örmjór
glóandi hringur, sem fögrum
geislakrans stafar út frá.
Nú er sem nótt hafi fallið yfir.
Stjörnur tindra á himni, dimm
ský bera við sjóndeildarhringinn
og kvöldroðinn má heita horf-
inn. Allir litir eru horfnir úr
landslaginu, túr.in eru ekki leng-
ur græn og fólkið á sandinum er
álengdar séð eins og dökkur
skuggi. Manni verður hrollkalt.
Örstutta stund, fyrst eftir al-
myrkvan, er óhætt að horfa ber-
um augum á hina svörtu kringlu,
sem milljónir manna beina nú
athygli sinni að. Undir Eyjafjöll-
um blikar rafmagnsljós í bæjar-
glucga.
Þessi sýn er engu cðru lík, sem
nokkru sinni hefur borið fyrir
augu okkar, sem þarna stöndum.
Þetta er stórfenglegasta náttúru-
fyrirbrigði, sem ég hefi séð, að
fráskildu Heklugosi.
Það er sannarlega ómaksins
vert að þakka vísindamönnum,
sem- hafa reiknað það út upp á
mínútu, hvenær þessi undur ger-
ast.
BIRTIR Á NÝ
Hinn algeri sólmyrkvi stendur
yfir í rúma mínútu á Skógasandi.
Að þeim tíma loknum tekur rönd
af sólinni að sjást á ný. Og þá
birtir undra fljótt. Stjörnurnar
dofna og hverfa. Það verður aft-
ur hlýtt og hið myrkvaða belti
jarðarinnar nýtur dags og sólar.
Það er upphafningar- og gleði-
svipur á fólkinu, sem horft hef-
ur á sólmyrkvann. Við höfum
verið vitni að undursamlegu fyr-
irbrigði, séð myrkur og ljós víkja
hvort fyrir öðru á örskömmum
tíma, dag og nótt takast í hend-
ur og skilja á ný með furðuleg»
um hætti. J
Heimsókninni á Skógasand et!
lokið. Snæfaxi lyftir sér til fluga
og leiðin liggur um loftin blá tili
Reykjavíkur. Svo bíðum við
næsta almyrkva á sólu rólegir f
svo sem eitt hundrað og þrjátíu
ár!!
S. Bj. j
---------------- |
Helander fyrir
Hæstarétt
STOKKHÓLMI, 30. júní —
Sænski ríkisákærandinn sagði |
opinberri yfirlýsingu, sem hann
gaf út í dag, að sök Helanders
biskups, sem dæmdur var sekur
fyrir níðbréfaskrif sín sé svq
augljós, að mjög ólíklegt sé að
önnur dómsniðurstaða verði I
Hæstarétti.
Aftur á móti sé vafi um, hvorS
brottrekstur Helanders úr bisk-<
upsembættinu -hafi við lög að
styðjast. Því mun ákærandinn
ekki vera því andvígur, acl.
Helander fái veitta þá beiðni sína
um, að málið verði tekið upp f
Hæstarétti. — Reuter-NTB.
Truman veikur
KANSAS CITY — Truman fyn*
um Bandaríkjaforseti varð alvar-
lega veikur á dögunam. Læknil)
hans segir nú að sjúklingurinn sð
á batavegi, en muni enn um skeiðj
verða rúmfastur.
AUGLYSIMGAR
sem birtast eiga í
Sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa borizt
fyrir kl. 6
á föstudag